Morgunblaðið - 19.02.1989, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
C 37
Hvalveiðar
»Ég veit ekki hvaða
máli það skiptir fyrir
okkur hvort hvalurinn
er veiddur. Hvort við
högnumst eitthvað á
því eða hvaða tapi við
verðum fyrir ef veið-
unum verður hœtt,“
ar skoðunnar að við ættum að
halda hvalveiðunum áfram, en það
er að verða spuming þegar maður
sér afleiðingamar." Ekki var Ólaf-
ur þó viss um að það borgaði sig
að láta undan umhverfisvemdars-
innunum. „Það er spuming hvort
þeir haldi ekki áróðrinum áfram
samt sem áður. Þessir menn taka
ekki rökum og vilja ekki hlusta á
það sem við höfum að segja, held-
ur halda alltaf fram sömu vitley-
sunni. Ætli þeir viti t.d. hvað við
veiddum marga hvali á síðasta
ári?“
Ólafur taldi að það ætti að reyna
Morgunblaflið/Ámi Sœberg
Valborg Guðjónsdóttir
að bjóða grænfriðungunum hing-
að, en það væri svo annað hvort
það myndi hafa eitthvað að segja.
Treysti Halldóri
Inni í Búnaðarbankanum stóð
Eyjólfur Davíðsson og hlýjaði sér
á kaffí í kuldanum. „Eg er hlynnt-
ur veiðunum og fínnst við eigum
ekkert að láta undan. Þær em
harðar þessar aðgerðir grænfrið-
unganna og ég veit ekki hvað
gera skal, enda treysti ég Halldóri
Asgrímssyni alveg fyrir þessum
málum.“
Alvarlegar afleiðingar
„Ég veit ekki hvaða máli það
skiptir fyrir okkur hvort hvalurinn
er veiddur. Hvort við högnumst
eitthvað á því eða hvaða tapi við
verðum fyrir ef veiðunum verður
hætt,“ sagði Valborg Guðjóns-
dóttir. „Mér virðast hagsmunimir
ekki ýkja miklir í sambandi við
veiðamar sjálfar, en veit ekki
hvaða máli vísindaveiðamar
skipta.
En afleiðingamar af aðgerðum
grænfriðunga eru alvarlegar og
ég er hrædd við þær. Við sjáum
að við ráðum ekkert við þessa
menn. Við hefðum ekki trúað
þessu, en þetta er ekkert grín
heldur hótanir. Svo ef það em
ekki nema tiltölulega fáir menn
sem hagnast á hvalveiðunum, þá
fínnst mér að við eigum að hætta
þeim.“
GÓÐ ÞJÓNUSTA
I LUXEMBORG
Til Velvakanda.
að er svo oft sem kvartað er
yfír því sem miður fer og það
kannski ekki að ástæðulausu. En
mig langar að minnast á það sem
vel er gert. Ég ætlaði löngu að
vera búinn að segja frá alveg frá-
bærri þjónustu, sem ég og ferðafé-
lagar mínir fengu hjá Bílaeigunni
Lux-Viking í Lúxemborg í septem-
ber síðastliðunum.
Við höfum áður skipt við bíla-
leigur í Lúxemborg, en þær hafa
ekki komist í hálfkvisti við Lux-
Viking. Ég var sóttur á hótelið
þegar ég vildi fá bílinn og svo er
ég skilaði honum var ég keyrður
frá bílaleigunni á hótelið sem ég
var á, án nokkurs endurgjalds.
Við vomm fjögur saman að
koma úr mánaðar ferðlagi, þar af
vomm við með bílinn í tíu daga.
Við vomm því með töluverðan far-
angur. Eftir að við skiluðum
bílnum stoppuðum við í þijá eða
fjóra dag 5 Lúxemborg. f riÍ9Í'*I .ábl
Þegar ég var að skila bflnum
var þar íslensk stúlka, sem ég man
því miður ekki nafnið á, sem
keyrði mig á hótelið. Ég fór að
spyija hana hvar við fengjum rúm-
góðan bíl til að keyra okkur og
farangurinn út á flugvöll þegar
við fæmm. „Ekkert mál,“ sagði
hún. „Hringdu bara í mig þegar
þið ætlið að fara. Þá kem ég með
stærri bíl og keyri ykkur út á flug-
völl.“ Þetta stóð allt eins og stafur
á bók og þegar ég ætlaði að fara
að borga fyrir keyrsluna kom það
ekki til mála að við fengjum að
borga neitt.
Til að fyrirbyggja allan mis-
skilning, að ég sé að auglýsa bíla-
leiguna Lux-Viking vil ég geta
þess að ég þekki enga, sem að
bílaleigunni standa. Heldur fannst
mér öll þjónustan þar svo frábær,
að mér fannst sjálfsagt að það
kæmi einhvers staðar fram, til að
einhverir fleiri mættu njóta þess-
arar góðu þjónustu.
..ii>HP.,;ÍHr; i Ktrfltui1 Ármánn
Höldum í
okkar siði
og venjur
Sigríður Kristjánsdóttir í
Hafiiarfirði hringdi:
Núna þegar öskudagurinn er
nýliðinn langar mig til að
benda á atriði sem mér finnst alltaf
vera að verða meira áberandi. ís-
lensk böm em farin að tileinka sér
bandarískan sið, þ.e. stunda sömu
iðju á öskudag og bandarísk böm
á Halloween-daginn. Þann dag
ganga börnin í hús, syngja og biðja
um sælgæti eða þau hrekkja fólk.
Ég vil minna
foreldra á að reyna
að halda íslenska
siðnum, að hengja
öskupoka í fólk og
slá köttinn úr
tunnunni. Ég varð
vör við það, að á
öskudag gengu
íslensk börn í hús,
sungu og sögðu
svo „Viltu gefa
mér nammi eða á
ég að hrekkja
þig?“ Mér fínnst
óþarfi að við séum
að taka upp þenn-
an bandaríska sið
og finnst miklu
nær að við höldum
okkar hefðum. I
Ekki síst þar sem hér virðist vera
Gósenland Karíusar og Baktusar,
og held ég að á það sé ekki bætandi.
„Hlæjandi
ráðherrar“
Osköp er furðulegt að sjá
íslensku ráðherrana birtast á
sjónvarpsskerminum hlæjandi og
flissandi (ekki alla) á sama tfma
og þeir em að ræða um íslenskt
þjóðargjaldþrot, skatttaáþján,
gengisfellingu og yfírvofandi at-
vinnuleysi. Kannski geta þeir hlegið
því þeir era allir hálaunafólk.
í fyrra raupuðu þessir sömu ráða-
menn um hve vel þeir stjómuðu
landinu. Verðbólgan niður, næg
atvinna og stöðugt gengi. En nú
er annað uppi á teningnum. Al-
þingiskona, fulltrúi verkalýðsins,
sagði í fjölmiðlum að það ætti ekki
að spara peninga við alþingismenn.
Þeir ættu ekki að búa í kytram eða
borða í pylsuvögnum þegar þeir
ferðuðust í útlöndum. Einhver spyr,
er slíkt kannski bara fullgott fyrir
verkalýð og námsmenn? Vom ein-
hveijir að tala um sirkusinn við
Austurvöll?
Kjósandi
Okkar mál
Sigrún hringdi:
Eg er sammála þeim sem skrif-
aði í Velvakanda og sagði að
við ættum að hætta að skipta við
Þjóðveija. Og ég veit að það em
fleiri á sama máli. Þessir menn sem
em að reka áróður gegn hvalveiðum
okkar em líka famir að rægja Flug-
leiðir. Hvað kemur þeim við þó við
veiðum hvali, sem éta heilan hell-
ing. Það er líka alltof mikið af þeim
h&’vÍ0í1iérai8.v 1 *
2 vikur, brottför 23. mars.
Besta fáanleg gisting, íbúðir eða
hótel.
Verð frá kr. 31.070,-*
fyrir manninn. (Verðmiðaðvið2fuiiorðna
og 2 börn, 2-12 ára, iíbúð.)
Hótel Pulitzer
23/3-27/3-5 dagar
Verð í tvíbýli kr.25,970,-*
22/3-28/3 - 7 dagar
Verð í tvíbýli kr. 29.730,-*
10ND0N
23/3-27/3-5 dagar
Hótei Kenilworth
Verð í tvíbýli kr. 26.660,-*
Y-Hótel
Verð í tvíbýli kr. 25.440,-*
HAMBORC
23/3-30/3-8 dagar
Hótel Reichshof
Verð í tvíbýli kr. 34.200,-*
Innifalið í verði erflug, gisting og morgunverður.
NEWYORK
23/3-28/3 - 6 dagar
Hótel Lexíngton
Verð ítvíbýii kr. 32.230,-*
FIORIDA í FCBRÚAR
23.febrúar-5. mars
3 nætur í Orlando - 7 nætur í St.
Petersburg
Verðfrá kr. 34.980,-*
(Miðast við 2 fullorðna og 2 börn saman í íbúð.)
DROTTNINGARAFMÆLIÐ
í HOLLANDI í APRÍL
skartar sínu fegursta í tilefni afmælis drottningar
sinnar, blóm, fjör og „karnival“-stemmning.
27. apríl - 1. maí
Hótel Víctoría
Verð í tvíbýli kr. 34.150,-*
InnifBlið flug, gisting, morgunveröur, flutningur til og frá flugvelli og
íslensk fararstjórn.
Verð miðað við staðgreiðslu, gengi og flugfargjöld 1. febrúar '89.
Fádu allar nánari upplýsingar hjá okkur
- vid veitum pér góda og örugga pjónustu.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Aðalstræti 16, Reykjavík,
sími 621490