Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 38
38 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989 ÆSKUMYNDIN... ER AF DANFRÍÐISKARPHÉÐINSDÓTTUR ALÞINGISKONU ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFURK. MAGNÚSSON Ekki svo slæmt íþað skiptið „Ég var ellefu eða tólf ára þegar myndin var tekin og leið ágætlega í þetta skiptið. En ég hef aldrei verið mik- ið fyrir Ijósmyndara," segir Danfríður nú, tæpum aldar- fjórðungi síðar og bætir því við að trúlega hafi hún mjög Irtið hugsað um jafnréttismál á þessum árum. Snuðinu fórnaö fyrir skólann Á sínum yngri árum barð- ist hún fyrir því að að bræð- ur hennar tveir gerðu hús- verkin til jafiis á við systur sínar. Hún var metnaðar- gjarnt, stillt og prútt barn, formaður þingflokks Kvennalistans, Danfríður Skarphéðinsdóttir. En eng- an af hennar nánustu grun- aði, að hún ætti eftir að setj- ast á Alþingi, því hún var mjög feimin og hafði sig lítt í frammi. Danfríður er fædd í Reykjavík 3. mars 1953, dóttir hjónanna Ágústu Guðjónsdóttur húsmóður og Skarphéðins Kristjánssonar, sem starfaði hjá SÍS en er nú lát- inn. Bamahópurinn var stór og er Danfríður yngst þriggja systra, Ingibjargar og Lóu. Þá em tveir yngri bræður, Guðjón og Kristján. Systkinin ólust upp í Sólheimunum í Reykjavík og gengu í Voga— skóla.„Danní var námfús og gerði allt sem henni var uppálagt, fljótt og vel,“ segir Kristln Kristjáns- dóttir, föðursystir Danfríðar. „Hún var fljót að átta sig á hlutunum, sjálfstæð og ábyggileg. Hún varð mjög snemma læs og lærði lestur án þess að henni væri kenndur stafur. Þegar móðir hennar hélt að hún væri að skoða bækur, var hún að æfa sig í lestri og varð fljótt fluglæs af sjálfsdáðum." Lóa, eldri systir Danfríðar, seg- ir hana hafa lært að lesa yfir öxl- ina á móður sinni, þegar hún var að kenna Lóu lestur. Þá var Danfríður fimm ára. „Þegar í ljós kom að hún var læs, var ætlunin að láta hana byija í skóla ári á undan þó af því yrði ekki. En áður en það varð ljóst, dreif Danfríður sig í að hætta með snuð, því hún vildi ekki vera með það í skólan- um.“ í skólanum þótti Danfríði gam- an að vera, að sögn Lóu. Henni þótti gaman að læra og var svo samviskusöm, að hún gat aldrei átt neitt óklárað. Og það fór lítið fyrir henni. „Við systumar þóttum mjög ólíkar," segir Lóa. Danfríður var virk í skátahreyf- ingunni og átti þar marga vini. Þá lærði hún á píanó og minnist Kristján bróðir hennar fingraæf- inganna, ekki að góðu. „Hún var svo samviskusöm að hún gerði það sem henni var sett fyrir. Glamrið fór oft í taugamar á mér, sem vildi miklu heldur hlusta á bítla- lög.“ Áþjóöhátíð fyrir þrjátíu árum Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní, skipar ávallt veglegan sess í hjörtum þjóðarinnar. Þegar vel viðrar er jafnan almenn þáttaka í hátíðarhöldun- um og hefur svo verið þegar þessar myndir vom teknar, árið 1951. Af myndunum má ráða að hátíðarhöld á 17. júní hafa ekki tekið svo ýkja miklum breyt- ingum frá því þær voru teknar fyrir tæpum þrjátíu ámm. Fólk hefur safnast fyrir á Arnarhóli o| á nærliggjandi stöðum í mið bænum, blómsveigur var lagður ; styttu Jóns Sigurðsson- ar á Austurvelli, útskrifl nýstúdenta setti svif sinn á daginn og Fjall konan var á sínum stað íþróttakeppni var háð i gamla Melavellinum, er er nú háð í Laugardal Að öðm leyti er flesl óbreytt eins og sjá má, nema el til vill fatatískan. Nýstúdentar í garði Alþingishússins. STARFIÐ BRYNJÓLFUR MAGNÚSSON SNJÓRUÐNINGSMAÐUR. BÓKIN Á NÁTTBORÐINU PLATAN A FÓNINVM Morgunblaðið/Júlíus Siguijónsson Brynjólfur Magnússon RauÖargötur MEÐ blikkandi ljósum koma þeir út úr sqjókófinu og brúnin á lang- þreyttum bílstjórum léttist. Bryi\j- ólfúr Magnússon hefúr í átta ár unnið við snjómokstur á götum Reykjavíkurborgar og unir sér vel í ófærðinni. Snjómoksturinn er unninn eftir ákveðnu kerfí og hefur hver bílstjóri sitt svæði. En þegar snjó- koma er mikil og ófærð, þá er einung- is hugsað um að halda aðalgötum opnum, og eru þær nefndar „rauðar götur“. Biynjólfur vinnur á vöktum og byijar fyrri vaktin klukkan fjögur að morgni, en stundum er þó unnið allan sólarhringinn þegar sá gállinn er á veðurguðum. Ófærðin ágæt Flestir, sem í þessu starfi eru, hafa langa reynslu að baki sem bílstjórar og eru margir þeirra „bíla- tækjadellumenn" eins og Brynjólfur segir. Það ánægjulegasta við starfið er að sjálfsögðu snjórinn, og skemmt- ir Brynjólfur sér oft í laumi við að horfa á aðfarir ökumanna í ófærð- inni. En illa útbúnir bílar hijá hann mest, því þeir þvælast fyrir og koma oft í veg fyrir að hann geti unnið starf sitt. í snjóleysinu er svo unnið við að flytja fyllingarefni og annað sem til fellur. Þetta sögóu þauþá . . . ■ Ingólfur I Margeirsson 1 ■ ritatjóri ■ Alþýðublaðsins. Bókatíðindi Og svo eru nú blikur á lofti í bókmenntaheiminum: Hrafn Gunnlaugsson hefur lokið við að semja skáldsögu, þá fyrstu af mörgum, og vinnur nú að snörun hennar fyfir á enska tungu og þýzka, svo og sænska. Unnendum fagra lista skal það látið uppi- skátt að á komandi vetri verður fyrra kíló sögunnar gefið út í handhægum rúllum hjá forlagi KOTKA í Finnlandi." Ingólfur Margeirsson í Skófoblaði MR 42. árg, 1966, l.tbl. Jóna Við- arsdóttir fjármála- stjóri. Kristín Bragadóttir bókasafns- fræðingur Eg er reyndar með bók núna í láni á náttborðinu. Það er bók- in hennar Bryndísar Schram. Þetta er skemmtileg bók og myndirnar ekki síðri.“ Eg var að hlusta á plötu með sænska þverflautuleikaranum Gunillu von Bahr þar sem hún leik- ur ýmis verk og brot úr verkum eftir Vivaldi." Gissur Guð- mundsson ellilífeyrisþegi Björn Matthíasson hagfræðingur Mest les ég bókmenntir um spíritisma og annað þess hátt- ar. Einnig bækur um hollefni og heilsurækt. Gríp stundum í bók um spilakapla. Núna er ég að lesa Heilsuhrínginn. “ Nýlega setti ég á íslensku djass- plötuna Hinsegin blús og þar á undan hlustaði ég á bandaríska djasstrompetleikarann Wynton Marsalis á plötunni Hothouse flow- ers.“ MYNDIN í TÆKINV Hilmar Björnsson íþróttakennari Eg bara man ekki hvað hún hét, það var einhver vestri. Ég nota myndbandstækið mjög lítið, það er alveg nóg að reyna að fylgjast með á báðum sjónvarpsstöðvunum.“ A Eg nota myndbandstækið mest til að horfa á uppfærslur á óperum og síðast horfði ég á Ævin- týri Hoffmanns með Placido Dom- ingo í aðalhlutverkinu. Það var mjög góð uppfærsla.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.