Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 39
______ -lAEI/IAS aiaAJaviuoflOM MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989 0' se C 39 SÍMTALID... ER VIÐ ÁGÚST GEIRSSONSÍMSTJÓRA OG RITSTIÓRA SÍMASKRÁRINNAR Málhreinsun 26000 Póstur og sími. — Góðan daginn, gæti ég feng- ið að tala við ritstjóra símaskrár- innar? Jú andartak. Já. — Komdu sæll Ágúst, Kristín Maija Baldursdóttir heiti ég, blaðamaður á Morgunblaðinu. Mig langaði aðeins að spjalla við þig um símaskrána? Það er alveg velkomið. — Hvað tekur langan tíma að ganga frá einni símaskrá, og hvernig gengur þetta fyrir sig? Það tekur nú allt árið. Á hvetj- um vinnudegi eru breytingar og ný númer færð inn í símaskrártölv- una og þær upplýsingar fara strax til þeirra sem vinna í 03. Fimm starfsmenn vinna reglulega við símaskrána og sjá um daglegar færslur og breytingar og í upplýs- ingum vinna svo rúmlega 20 stúlk- ur. Þar eru tólf tölvuskjáir sem tengdir eru við símaskrána og allt sem sett er í tölvuna er tilbúið til setningar í prentsmiðjunni. — Er þetta ekki frekar „þurrt" starf? Þetta er nú hluta- starf hjá mér, ég er fyrst og fremst símstjóri í Reykjavík. Það er svona hliðar- starf að sjá um útgáfu símaskrár- innar og vera rit- stjóri hennar. — Ætli þetta sé mest lesna bókin á íslandi? Ég geri ráð fyrir því og við verðum með hana núna í 150 þúsund eintökum. — Þú rekst senni- lega oft á sérkenni- leg nöfn? Það er nú eitt af því sem við höfum þurft að glíma við í sambandi við útgáfu skrárinnar. Við höfum streist á móti alls konar erlendum nöfnum sem verslanir, veitingahús og fyrirtæki hafa vilj- að fá í skrána. En ef þau eru firma- skráð þá getum við ekki neitað þeim. — Er ekki eðlilegra að þafa íslensk nöfn á íslenskum fyrirtækj- um? Mér finnst það bara sjálfsögð krafa, auk þess sem gert er ráð fyrir því í lögum. En ég minnist þess þegar Keiluhöllin við Óskjuhlíð var opnuð, þá vildi for- ráðmaður hennar kalla hana Bow- linghöllina í íslensku símaskránni, sem við ekki vildum. En þá kom hann með íslenska nafnið og lýsti því yfir skömmu síðar að hann væri sérstaklega ánægður með það nafn. — Svona getur það verið. Já þetta er svona málhreinsun- arstefna, ég erfði hana frá forvera mínum. — En svona í gamni, hvert er áhugamál ritstjórans? Ég er golfáhugamaður, spila mikið golf með minni konu og geri það eins oft og ég get. — Þú spilar nú ekki mikið núna í þessari tíð? Það er nú ekki meira en rúmur mánuður síðan. ég spilaði síðast golf. — Nú jæja, bara í kafsnjó? Nei nei, það var alveg autt eftir ára- mótin upp á Korp- úlfsstöðum og fjöldi manns að spila. — Ja þú segir nokkuð. En nú ætla ég ekki að tefja þig lengur, ég þakka þér bara kærlega fyrir rabbið. Jú það var lítið. Ágúst Geirsson símstjóri. komst i m.inr hlaupsins og tvivegis undir AfW* ItIma .rril nl.rtii ■lunlllT nn«'. „ Uu meir. rt. " im *n.um^«* „ \\ 46.W •* nl hV*, mK* in*. Vl*.n*» " ,1 1«»*« j •»•*'*' Ch*'ir* 1 • *f'‘- l hýá Biarna mn nictTö Bi.m' b®1' ■*r ,r*m LrtTt-im bettl .pyrw «* h.,uv»t.«r"l túmW" h^t«*r.n*vJ kr-’S-J“si,r=."2 -jsjsias 400 metra TZS b-A' p sckúndum Hann hvarf jafn snögglega og hann kom þetta náttúrubarn sem enginn hafði roð við á hlaupa- brautinni. Stundum kom hann beint af sjónum í keppni, en var samt sigursæll og setti ný met. Þetta var Bjarni Stefánsson sem sennilega hefði skipað sér í röð fremstu spretthlaupara heims hefði hann fengið þá þjálfun sem jafnok- ar hans fengu, og fá nú. Að sögn manna æfði Bjami ekki mikið, var á línubáti á sumrin og kom stundum beint af sjónum í hlaupin, en náði engu að síður góð- um árangri. „Að öðrum ólöstuðum var hann besti fijálsíþróttamaður- inn í byijun 8. áratugarins, og auk þess var hann skemmtilegur fé- lagi, og laus við allt stærilæti,“ HVAR ERU ÞAV NÚ? BIARNISTEFÁNSSON SPRETTHLAUPARI • • Onnum kafinn jyrir austan sögðu menn sem fylgst höfðu með Bjarna. Á Ólympíuleikunum í Miinchen 1972 sýndi hann glæsilegan árang- ur í 400 metra hlaupi þegar hann setti íslandsmet sem stóð i 12 ár, og mátti þá lesa eftirfarandi um hann í blöðunum: „Bjarni er geysi- legt hlauparaefni og þessi rúmlega tvítugi menntaskólanemi gæti enn bætt árangur sinn veruléga, nyti hann leiðsagnar bestu þjálfara sem nú eru uppi í veröldinni.“ Bæjarstjóri En tíðarandinn var annar þá en nú og menn ekki beinlínis hvattir til að leggjá allt í sölurnar fyrir frama á íþróttabrautinni. Bjarni tók aftur þátt í Ólympíuleikunum 1976 en hætti fljótlega eftir það aðeins 26 ára gamall, en þá var hann í lögfræðinámi í Háskólanum og kominn með fjölskyldu. Hann fluttist til Eskifjarðar ’83, árið sem hann útskrifaðist, og starfaði fyrst í þijú ár sem fulltrúi sýslumanns, en tók síðan við stöðu bæjarstjóra. Þar býr hann nú ásamt konu sinni, sem er forstöðumaður leikskólans, og dóttur og unir sér vel. Starf hans er annasamt, en lifandi og skapandi, þannig að lítill tími er til að láta sér leiðast. „Ef leiðinleg atvik koma upp þá er maður fljótur að gleyma þeim í öllu amstrinu. En þetta er sólar- hringsstarf, ef maður er ekki að vinna það, þá er maður að hugsá um það, nú og svo eru menn að gauka að manni góðum ráðum þess á milli,“ sagði Bjami. Þau hjónin eru bæði Reykvíking- ar og segjast stundum sakna eins og annars úr höfuðborginni, „en þegar við erum komin í bæinn, þá gerum við lítið af öllu því sem átti að gera fyrir sunnan. Og þannig var það reyndar einnig meðan við bjuggum þar! * í körfúbolta Bjarni segist ekki neita því að fiðringur fari um hann þegar hann horfi á alla kappana í sjónvarpinu, og vissulega væri hann tilbúinn til að endurtaka þetta allt saman, því íþróttirnar hefðu verið mikil lífsfyll- ing. Það er lítið um spretthlaup hjá Bjarna núna, en hins vegar hleypur Bæjarstjórinn Spretthlauparinn er ánægður með starf sitt sem er annasamt, en lifandi og skapandi. hann úti þegar tími gefst, og það sem meira er, kominn á kaf í körfu- boltann! „Körfuboltinn er mjög merkileg menningarstarfsemi hér. Við erum hérna „old boys“ sem æfum saman og keppum við strákana uppi á Héraði, og eftir leiki er svo kakó og pönnukökur með ijóma. Til að vera gjaldgengur í þessum menn- ingarhópi verða menn helst að standast „120 regluna" sem er samanlagður aldur og líkams- þyngd.“ Hvort Bjarni muni áfram stunda körfubolta á Eskifirði verður tíminn að leiða i ljós.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.