Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 40
40 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
ORKUKLÚBBUR POLARIS - HEILSUBÓT í
SUMARLEYFINU
Sumarleyfið er kjörið tækifæri
til þess að byggja upp sál og
líkama. Orkuklúbbur Polaris er
starfræktur í fyrsta sinn nú í sumar.
Par verða á dagskrá íþróttir og heilsurækt
aföllutagiog við allrahæfi.
Leiðbeinendur eru þau Erla Rafnsdóttir
og Magnús Teitsson. Ibiza er staðurinn
fyrir allt það fólk sem vill hressa upp á
líkamann og koma endurnýjað heim.
STÓRKOSTLEG BAÐSTRÖNO
SVALANDI HAFGOLA
Gististaðir Polaris eru allir staðsettir við sjóinn,
á hinni rómuðu Bossaströnd -
Playa d’en Bossa. Þar er allt
til alls, veitingastaðir, diskótek,
iðandi mannlíf, vatnsrennibrautir, stór-
kostleg líkamsræktaraðstaða og svalandi
hafgola sem dregur úr mestu sumarhitunum.
Líttu inn hjá okkurog fáðu bækling með
öllum nánari upplýsingum. Þú geturlíka
fengið skemmtilega kynningarmynd
með þér heim.
FERÐASKRIFSTOFA
KIRKJUTORGI4 SÍMI 622 011
VISA farkort til ferðalagsins.
UlHUIUHIlHtHIHIHHHmm
-Etf/a tfjfy/dííÍHVl/-
SÓLARORKA OG SKRAUTLEGT MANNLÍF
A
hverju sumri streymir fólk á öllum aldri til Ibiza, nýtur
hinnar einstöku veðurblíðu eyjarinnar og tekur þátt í
fjölskrúðugu mannlífinu.
Á Ibiza kann fólk að njóta lífsins til hins ýtrasta.
BAKÞANKAR
ífréttum var
þetta helst
Það er nú aldeilis hvað fólk
er orðið leitt á ráðamönnum
þjóðarinnar. Fyrir vikið eru allir
orðnir ópólitiskir. Okkur er orð-
ið hundsama í hvaða flokki
hver er, bara að
guð gefi okkur
einn fréttatíma
án þess að þurfa
að hlusta á við-
tal við eina eða
fleiri mannvits-
brekkur lands-
kjörnar.
Svo eru þeir
orðnir svo likir í útliti. Stertir,
stertilegir, ekki sterkir sterkleg-
ir, ef það skyldi verða prentvilla.
Að visu eru þeir sterklegir,
hávaxnir og allir tiltölulega
myndarlegir menn í sjón, miðað
við hvað það er erfitt að vera
íslendingur og maturinn dýr.
Enda ekki sá fréttatími í sjón-
varpi, að það sé ekki mynd af
þeim í ráðherrabústaðnum, eða
rúgbrauðsgerðinni að éta.
Yfirleitt eru þeir með kaffi og
með því. Eða þeir eru með
smekklega dékoreruð kaffihlað-
borð eins og í leiðinlegri ferm-
ingarveislunum.
Fastur liður eins og venjulega
í fréttunum er eitthvað á þessa
leið: Stjórnmálamaður A eða B
eða G eða D eða S stígur útúr
bifreið á fjórum hjólum með
stýri og púströri. Hann er i
enskum rykfrakka með Bur-
berry-trefil. Auðvitað ætti hann
og starfsbræður hans allir að
vera með Álafosstrefla,
íslenska álafosstrefla á
islenska flokksformannahálsa.
Þessa vélsaumuðu með engu
kögri úr þeli og togi sem Rúss-
arnir slást um.
Áfram með fréttamyndina
daglegu. Stertilegi stjórnmála-
maðurinn skellir bílhurðinni
ekki of fast og stikar hröðum
en ákveðnum skrefum (í skóm
númer fjörutíu og sjö yfirleitt)
upp tröppur. Byijar i tröppu
númer tvö að losa um rykfrak-
kann svo hann flaksi kæruleys-
islega á heimsmannsvísu, þegar
hann snarast innúr dyrunum
á, segjum ráðherrabústaðnum.
Jafnframt fær maður betur að
sjá hvaða fóður er í frakkanum.
Það kemst enginn langt sem er
i vattfóðruðu, hvað þá gæru-
fóðruðu.
Svo kemur nákvæm skýrsla
í myndinni þegar hann fer úr
frakkanum og hengir hann upp
á þartilgerðan snaga. Opnar
hvatskeytlega dyr og við erum
stödd í hápunkti myndarinnar:
Við blasir herbergi fullt af hæg-
indastólum með ráðherrum og
flokksleiðtogum sitjandisk, eins
og Málfríður Einarsdóttir ríthöf-
undur tók til orða.
Þeir fylla út i þessa gömlu
stóla sem voru smiðaðir undir
smávaxnari leiðtoga sem í
bernsku höfðu ekki annað að
borða en stöku sauðskinnsskó.
Þarna sitja sumsé stór-
skornu ráðherrarnir og flokks-
leiðtogarnir í litlu stólunum,
sumir í hláturskasti, aðrir í
miðjum brandara, afgangurinn
með túlann fullan af ijóma-
pönsum.
Hvað er verið að sýna okkur?
Að flokksleiðtoginn sem i það
og það skiptið er í aðalhlutverk-
inu sé lifandi? Að hann og hin-
ir leiðtogarnir séu í góðu ástandi
líkamlega, ekki með gubbupest-
ina og á allan hátt viðræðuhæf-
ir og jafn traustvekjandi og þeir
voru í gærkvöldi?
Það er ekki verið að sýna
okkur neitt.
Og það er ekki þessum fótó-
genu ráðamönnum einum um
að kenna hvað þeir eru alltaf í
sviðsljósinu á óviðkunnanlegan
og ópólitískan hátt. Sökin er að
mestu leyti hjá fréttafólki sem
fréttir ósköp lítið. Bara allt gott
þakka þér fyrir.
1111111 > • II tf ftl I • III
eftir Sigríði
Halldórsdóttur