Morgunblaðið - 21.05.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MINIUINGAR SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989
C 29
Jón GunnarArna-
son — Kveðjuorð
Við hittumst á brú yfir lítinn læk
í Flatey á Breiðafirði fyrir 16
árum. Jón Gunnar sendi mér tón-
inn. Hann var svolítið óþægilegur,
í senn ögrandi og skemmtilegur.
Það liðu vikur ef ekki mánuðir þar
til við hittumst á ný. Eftir það
lágu leiðir okkar saman sem fóst-
bræður án blóðbanda.
Þótt við Jón Gunnar ættum ótal-
mörg sameiginleg áhugamál var
hann samt sem áður ný vídd í
mínum heimi, og hélt ég þó að ég
hefði kynnst ýmsu. í samanburði
við Jón Gunnar var ég fjötraður
en hann gat flogið.
Haustið 1975 dvaldi Jón Gunnar
einsamall um nokkurt skeið í
Vertshúsinu í Flatey. Þá var ég
einbúi í Vorsölum. Við hittumst
til skiptis í morgunmat í Vorsölum
eða Vertshúsi og notuðum morgn-
ana til skrafs og ráðagerða. Jón
Gunnar hafði teikniblöðin ætíð
meðferðis og skráði með teikning-
um frásagnir eða hugmyndir á
sinn húmoriska máta eða leysti
vandamál fyrirætlana með vinnu-
teikningum.
Þessa haustdaga var veðurblíða
í Flatey. Skansmýrin skipti um lit
á hverri nóttu. Haustlitirnir tóku
sífelldum breytingum, sumir
styrktust aðrir dofnuðu. Við fylgd-
umst grannt með mýrinni og áferð
hennar. Æ síðan hefur þetta haust
verið undarlegur vökudraumur í
minningunni þar sem einfaldleik-
inn og hljóðlátt haustið léku stór
hlutverk. Og það var í þessari
haustveröld Flateyjar sem okkur
dreymdi nýja drauma um búsetu
og byggð í Vestureyjum.
Eyjamar og náttúra þeirra var
okkar ævintýraland og land sem
bjó yfir óteljandi möguleikum.
Möguleikum til fjölþætts atvinnu-
og menningarlífs og lífsstíls sem
var fíjór og fijálslegur. En ekki
var setið við orðin tóm. Jón Gunn-
ar og nánustu vinir hans sóttu um
húsið Klausturhóla sem er í eigu
ríkisins. Þar átti að koma sér fyr-
ir og vinna að listsköpun. Listiðja
í Flatey átti að verða þungamiðjan
en aðeins ein af mörgum stoðum
undir nýja atvinnuhætti.
Næsta sumar var Jón Gunnar
kominn með smiðju í Sláturhúsinu
í Flatey. Þá fyrst kynntist ég völ-
undinum Jóni Gunnari. Hann
kunni ráð við öllu, gat smíðað allt
og hannað og bjó til verkfæri ef
vantaði. Frumleikinn var óendan-
legur. Hann var tilbúinn að endur-
meta alla hluti hvort sem þeir
voru nýir eða gamlir. Notagildi,
form og efni, lá augljóst fyrir hon-
um. Og þannig þurfti líka að end-
urmeta aðstæður í eyjunum. Nota
það sem nýtilegt var en kasta því
sem úrelt var, finna nýjar og betri
leiðir til þess að gera hlutina.
Kringum þessar hugmyndir
safnaðist ágætur kjarni fólks með
mismunandi reynslu, menntun og
áherslur. Ekki vantaði áhugann
að hrinda verkefnum í fram-
kvæmd, en við urðum að fá að-
stöðu. Ég sótti um eyðijörðina
Hergilsey og í Flatey hófum við
undirbúning að vélvæddu tré-
smíðaverkstæði, prentstofu Flat-
eyjar, vinnustofum og baðhúsi og
við Jón byggðum reykhús. Margt
fleira var í bígerð, stórskemmtilegt
og fijótt. Er lánið lék ekki við
okkur í þessum áætlunum og við
réðum ekki við ofurmátt þröngsýni
og sérhagsmuna.
Jón Gunnar hætti við öll sín
áform í Flatey. Tækin sem hann
hafði aflað og beðið höfðu í
Reykjavík til þess að fara á
trésmíðaverkstæði fóru þess í stað
í stærstu listasmiðju á Islandi hjá
Myndhöggvarafélaginu á Korp-
úlfsstöðum, prentvél var hafnað
og járn- og listasmiðja Jóns Gunn-
ars var tæmd og verkfærin flutt
suður.
A þessum árum vann Jón Gunn-
ar stöðugt að sinni listsköpun.
Hann hafði gert Flateyjar-Frey og
komið honum fyrir í hvammi inni
á Tortu í Flatey og 1974 setti
hann upp verk sitt „Að gera sólina
bjartari". Það var á þessum árum
sem sólin, geislar hennar og birta
varð Jóni að óþijótandi yrkisefni
í listinni. En það var táknrænt að
að þessi verk Jóns Gunnars í Flat-
ey fengu ekki að vera í friði. Ögr-
unin sem Freyr bjó yfir varð fólki
að falli. Freyr var skemmdur og
byssuglaðir menn höfðu spegla
Jóns Gunnars, sem gerðu sólina
bjartari, að skotmarki. Þetta ljós-
fælna lið þoldi ekki birtuna af
verkum og andagift Jóns Gunnars.
Skipbrotið í Flatey varð veru-
legt áfall fyrir okkur öll sem lagt
höfðum hjarta okkar að veði í þær
hugsjónir. Við Jón Gunnar vorum
sannfærðir um að þarna hafí Flat-
ey og Flateyjarhreppur misst af
góðu tækifæri til að verða að blóm-
legri byggð menningar og lista.
Listsköpun Jóns Gunnars beið
þó engin skipbrot. Hann hafði
virkjað sólina og fór síðar að glíma
við aðdráttaraflið. Hann fann sér
jaðarsvæði í tilverunni sem hent-
uðu honum afar vel. Hann vann á
mörkum tveggja heima, þar sem
einhver spenna var, á milli hins
ráðna og óráðna, á milli birtu og
skugga, á milli listahandbragðs
og abstrakt hugmyndar. Áhugi
hans á vísindum, á eðli efnis, komu
fram í listaverkum hans. Honum
var ekki aðeins eðlislægt spennu-
svæði í myndlist, sem löngum hef-
ur einkennt verk mestu lista-
manna, heldur og var honum eðlis-
lægt spennusvæði í mannlífí. Hið
óráðna eða óvissan var tromp í
tilveru Jóns Gunnars, tromp sem
hann átti ætíð á hendi. Hið lítilfjör-
lega í mannlegum samskiptum
varð spennandi þegar hann hafði
klætt það í búning óvissunnar,
kastað út einu litlu óvissutrompi.
Jón Gunnar var töframaður eða
réttara sagt galdramaður. Hann
Haraldur Guðjónsson
Fæddur 26. júní 1920
Dáinn 13. maí 1989
Á morgun, mánudag, fer fram
frá Fossvogskapellu útför tengda-
föður míns, Haraldar Guðjónsson-
ar, sem lést í Landakotsspítala
laugardaginn 13. maí sl.
Haraldur var fæddur í
Reykjavík 26. júní 1920, sonur
þeirra sæmdarhjóna Guðjóns Guð-
mundssonar kaupmanns að Kár-
astíg 1 hér í borg og konu hans
Lilju Gamallíusardóttur sem nú
kveður son sinn en Guðjón lést
fyrir allmörgum árum.
Haraldur var þriðji elsti af hópi
11 systkina og eru fjögur nú látin,
og er því enn eitt skarð sett í
barnahóp Lilju.
Haraldur ólst upp í föðurhúsum
við ást og umhyggju sinna góðu
foreldra, en hóf mjög ungur, eða
aðeins 16 ára, störf hjá Agli Vil-
hjálmssyni hf. sem verslunarmað-
ur og starfaði þar nær allan sinn
starfsaldur að undanskildum 3
árum sem hann starfaði hjá Olíufé-
laginu Skeljungi.
Haraldur var glæsimenni, en
fámáll og ekki vanur að flíka til-
finningum sínum, en hjartahlýr og
ljúfmenni hið mesta.
Haraldur var tvígiftur og eign-
aðist 6 börn, 4 í fyrra hjónabandi
og tvö í seinna hjónabandi.
Lífíð lék ekki við Harald því
tveir synir létust mjög ungir,
drengur sem lést aðeins 6 mánaða
og miðlungurinn Örlygur lést að-
eins 18 ára af slysförum.
Eftirlifandi börn af fyrra hjóna-
bandi eru: Hlöðver sjómaður í
Vestmannaeyjum og Auður Dóra
bankastarfsmaður gift undirrituð-
um og eiga 3 syni. Af seinna
hjónabandi: Henning starfsmaður
á Stöð 2, giftur Sigríði Ólafsdóttur
og eiga 2 dætur og Edda húsmóð-
ir í Garðabæ gift Snorra Sigurðs-
syni bifvélameistara og eiga 3
dætur.
Haraldur var því áttfaldur afi,
einnig átti hann eitt barnabarna-
barn en dóttursonur er giftur og
býr í Englandi.
Fyrir rúmum 17 árum kynntist
Haraldur mjög góðri konu, Sigríði
Jónsdóttur, og hafa þau verið í
sambúð síðan og búið að Hjarðar-
haga.
Sigga reyndist Haraldi hin besta
eiginkona og bjó honum fallegt
heimili. það var ákaflega gott að
koma í heimsókn í Hjarðarhagann
og finna þá hlýju, sem þar ríkti
og kærleika sem var milli þeirra.
Þegar maður rifjar upp minn-
ingar um góðan dreng kemur svo
margt upp í hugann að erfitt er
að festa það á blað, en sú stund
sem ég átti er ég sat hjá tengda-
föður mínum er hann kvaddi þenn-
an heim streymdu minningar fram
um fyrstu kynni og síðan hugsun-
in um síðustu mánuði og þó aðal-
lega síðustu dagana hvernig sjúk-
dómurinn er Haraldur lést úr get-
ur orðið sterkur og mannkynið
máttvana gegn. Ég fann einnig
fyrir þakklæti og fann og vissi að
sá sem öllu ræður var viðstaddur
og í huga minn kom 23. sálmur
Davíðs, Drottinn er minn hirðir
og sú hugsun að Kristur Jesú dó
fyrir mannkynið svo mannkynið
gæti eignast eilíft líf. Með þetta í
huga kvaddi ég tengdaföður minn
Harald Guðjónsson og bið honum
blessunar á nýjum og betri stað.
Ég votta aldraðri móður og
Siggu, sem kveðja góðan dreng,
börnum hans og afabörnunum 8,
mína dýpstu samúð og bið Guð
að styrkja þau í sorg sinni.
Friðrik Oskarsson
sameinaði krafta sína og hugar-
orku, ekki aðeins til þess að beisla
geisla sólar og ráða í aðdráttaraf-
lið, heldur og að beisla hugmyndir
og gefa þeim afl, orð, form eða
efni. Og völundurinn var alltaf að
verki, kröfuharður við sig og aðra.
Hann notfærði sér einnig galdra-
tákn og náði valdi á þeim. Galdra-
rúnir fengu nýtt útlit og nýja
merkingu og allt var beislað í form
kraftsins og hreinleikans.
Vegna töfra sinna var Jón
Gunnar hættulegur maður. í
kringum hann var ætíð líf og þrótt-
ur og spenna óvissunnar. Jafnvel
háspenna-lífshætta. Lognmolla,
aðgerðarleysi og væl voru dauða-
syndir. Hann var hættulegur mað-
ur vegna þess að hann hafði sterk
áhrif á fólk. Það komst enginn
undan þeim áhrifamætti og hann
gat sprengt öryggin í fólki. Sumir
þola illa slíkan ofurmátt og flýja
af hólmi, en fyrir fjölmarga sem
ekki flýðu var Jón Gunnar ekki
aðeins listamaðurinn heldur læri-
faðir líka, auk þess að vera yndis-
legur og afburða skemmtilegur
félagi.
Lífsþrótturinn, lífsgleðin og
gamansemi Jóns Gunnars var ein-
stök. Frásagnarlist var honum í
blóð borin og í vinahópi var hann
hrókur alls fagnaðar. Sögur og
tilsvör Jóns Gunnars var alltaf
leiftrandi og skemmtileg. Jafnvel
þegar honum leið sem djöfullegast
nú í vetrarlok.
Við, þrír góðir vinir Jóns Gunn-
ars, vorum í heimsókn hjá honum
á Borgarspítala. Tekinn var tappi
úr flösku og við skáluðum fyrir
Jóni og lífinu. Það var glatt á
hjalla þessa stuttu samverustund
og það hýrnaði yfir Jón Gunnari.
Hann ræddi um þá nauðsyn fyrir
langlegusjúklinga að hafa þar og
góðan matsölustað í glerhýsi á
þaki Borgárspítala þar sem hægt
væri að hafa stjörnusjónauka og
skoða himingeiminn í stað þess
að rýna á hvíta veggi. Við lyftum
glösunum aftur og Jón sagði glott-
andi: „Hvað skyldi Halldór á
Kirkjubóli segja við þessu?“
Kannski er Jón Gunnar eini
maðurinn sem hefur vísvitandi
gert sólina bjartari. Hann fór ekki
troðnar slóðir og þess vegna, held
ég, að hann hafí lifað ríkulegra
lífi en gengur og gerist. Ævintýri
Jóns Gunnars í lífí og störfum
voru með eindæmum og ég leita
í minningunni og fínn ekki eitt
augnablik þegar lífínu var ekki
lifað eins og hver stund væri hin
síðasta, af miklum lífsþrótti, í
lífsgleði, án firringar, án örvænt-
ingar allt til hinstu stundar.
Jón Gunnar Árnason er efalítið
nánasti vinur minn og félagi á
lífsleiðinni. Vinátta okkar var fijó
og sterk, aldrei vottur af leiðind-
um. Okkur veittist auðvelt að sigla
saman í lífsins ólgusjó og samræð-
umar við Jón voru mér mikil upp-
spretta frumleika, fróðleiks og
skemmtunar. Nú hafa leiðir skilist
við annað og meira vatnsfall en
læk í Flatey. Og ég þykist þess
fullviss að öðlingurinn, Jón Gunn-
ar, sem skóp hin fegurstu skip og
gerði sólina bjartari hafi siglt með
viðhöfn yfir móðuna miklu. Ég
harma fráfall góðs drengs og af-
burða listamanns.
Guðmundur P. Ólafsson
Birting
afmælis-
ogminning-
argreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjóm blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafharstræti
85, Akureyri.
Blómastofa
Friöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,-einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Legsteinar
MARGAR GBRÐIR
Momorex/Gmít
Steinefnaverksmiöjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjöröur
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 681960