Morgunblaðið - 21.05.1989, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.05.1989, Blaðsíða 31
C 31 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 Dr. Gunnar Böðvarsson prófessor, Corvallis Okkur langar til að minnast með fáeinum fátæklegum orðum Dr. Gunnars Böðvarssonar fyrrv. pró- fessors við Oregon State University í bænum Corvallis í Bandaríkjunum, en hann lést þar þann 9. maí síðast- liðinn. Fregnin barst fljótt meðal okkar vinanna, sem höfðum bundist tryggðarböndum meðan á námsdvöl okkar stóð í Corvallis. Var okkur við brugðið þó svo að vitað hafði verið skömmu áður við hveiju mætti búast. Var það ekki síst þeim Gunnari og Tove að þakka hversu samheldinn þesssi vinahópur varð. Kynni okkar Helgu af þeim Gunnari og Tove hófust haustið 1979 þegar við fluttumst til Corvall- is er ég hóf þar framhaldsnám í byggingarverkfræði. Þar kynnt- umst við góðu fólki. Ógleymanlegar eru stundirnar sem við áttum á heimili þeirra hjóna í matarveislum og kaffiboðum. Sífellt spurðist Gunnar fyrir um nýjustu fréttir að heiman og var aðdáunarvert hversu vel Gunnar fylgdist með eftir þetta langa dvöl að heiman. Helst var rætt um stjórnmálaþróunina og þá voru efnahagsmálin honum jafnan hugleikin. Gladdist hann ávallt hjartanlega þegar fréttir bárust að heiman um góð aflabrögð eða önnur hagstæð skilyrði. Gunnar var hlaupagarpur mikill og hraustmenni. Dáðist maður allt- af að hreysti hans þegar hann, tæplega sjötugur maðurinn, skokk- aði alltaf rúmlega 10 kílómetra á hvetjum degi. Ávallt var gaman að sitja úti í garði á Alta Vista Drive og ræða málin við Gunnar enda var hann víðsýnn og vel að sér á flestum sviðum mannlífsins. Eftir að við Helga komum heim til Islands aftur héldum við stöðugt sambandi við þau hjónin. Sérstak- lega er minnisstæð heimsókn þeirra til íslands í júní 1986 og við hitt- umst allur Corvallis-vinahópurinn hjá Guðna og Svansý. Þá var gam- an að taka eftir hversu þeim fannst þau vera hálfgerð amma og afi barnanna okkar allra enda hafði manni liðið í heimsóknum á heimili þeirra eins og hjá foreldrum, svo hlýleg voru þau ávallt í garð okkar. Einnig er mér minnisstæð heim- sókn mín til Corvallis sumarið 1987 í framhaldi af námskeiði er ég sótti í Kalifomíu. Gunnar hafði þá nýlega átt við erfið veikindi að stríða en hann vildi endilega fá mig í heim- sókn og fann ég hversu hann gladd- ist þegar við ræddum þjóðmálin heima og ég gat sagt honum frá , góðærinu sem þá ríkti. Ekki er mér síður minnisstæð hugulsemin í garð Helgu og barnanna en það varð að kveðja mig með gjöfum og hlýjum kveðjum til þeirra til að bæta upp að þau gátu ekki komið. Gunnar og Tove voru samrýnd hjón og hefur verið unun að finna hversu traust og sterk Tove hefur verið eftir að veikinda Gunnars varð vart. Elsku Tove, við kveðjum nú mann sem maður þakkar Guði fyrir að hafa átt þess kost að kynnast. Við biðjum Guð að blessa þig og styrkja um leið og við sendum þér, Guð- rúnu, Kristjönu, Erni og Eyvindi okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning um góðan mann. Flosi, Helga, Finnur Marinó og Agnes Rún. Þann 9. maí síðastliðinn lést Gunnar Böðvarsson prófessor, að heimili sínu í Corvallis í Oregon- fylki á vesturströnd Bandaríkjanna, 72 ára að aldri. Gunnar var einn merkasti vísindamaður okkar íslendinga. Hann eyddi fyrri hluta langrar starfsævi hér á íslandi sem einn aðalbrautryðjandi okkar í jarðhita- rannsóknum, en seinni hlutanum í kennslu og rannsóknir við ríkis- háskóla Oregonfylkis í Banda- ríkjunum. Ég kynntist Gunnari fyr- ir um 10 árum er ég stundaði nám undir handleiðslu hans og ætla ég að minnast hans með nokkrum orð- um. Gunnar Böðvarsson var fæddur í Reykjavík 8. ágúst 1916. Hann lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1934, fyrrihlutaprófí í vélaverk- fræði frá Tækniháskólanum í Munchen 1936 og Dipl.Ing.-prófi í stærðfræði, kraftfræði og skipavél- fræði frá Tækniháskólanum í Berlín 1943. Gunnar dvaldist síðan'i Kaup- mannahöfn til stríðsloka, en þar kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Tove Christensen. Gunnar og Tove fluttu heim til Íslands árið 1945, þá hóf Gunnar störf hjá Rafmagnseftirliti ríkisins, sem stuttu síðar var breytt í Raf- orkumálaskrifstofuna. Á næstu tveimur áratugum gegndi Gunnar síðan forystuhlutverki í rannsókn- um á jarðhita á íslandi sem yfir- verkfræðingur jarðhitadeildar Raf- orkumálaskrifstofunnar og Jarð- borana ríkisins. Þær rannsóknir eru m.a. undirstaða þess að í dag nýta um þjóðarinnar jarðhita til hús- hitunar. Hlé gerði Gunnar á þessari vinnu þegar hann dvaldi árin 1955-1957 í CalTech háskólanum í Kalifomíu í Bandaríkjunum. Þar kynntist hann ýmsum nýjungum og lauk dvölinni með því að hann tók doktorspróf í jarðeðlisfræði. Árið 1964 urðu tímamót á ævi Gunnars er hann fluttist, ásamt fjöl- skyldu sinni, til Corvallis, þar sem honum hafði boðist að starfa sem gistiprófessor. Ég tel að í upphafí dvalarinnar hafí ætlun Gunnars verið að snúa fljótt heim aftur. En örlögin höguðu því öðruvísi. í Cor- vallis fann Gunnar betri aðstæður til vísindastarfa en hann átti kost á heima á íslandi. Það teygðist því á dvölinni og Gunnar og íjölskylda festu þar rætur. Gunnar var síðan prófessor í stærðfræði og jarðeðlis- fræði við Oregon State háskólann í um 21 ár, en prófessor emeritus frá 1985. Einnig varð Gunnar heið- ursdoktor við Háskóla íslands í júní 1988. Ég kynntist Gunnari 1978 er ég hóf nám undir hans handleiðslu. Gunnar var vinsæll kennari, enda var hann sanngjarn við nemendur og hjálpfús, þó hann færi sjaldnast hefðbundnar leiðir í kennslunni. Það var því ekki að ástæðulausu að nemendur, jafnt sem starfsfólk há- skólans, talaði með sérstakri virð- ingu um Gunnar. Samhliða kennslustörfum var Gunnar mjög virkur við rannsókn- ar- og ritstörf. Það sem mér fannst gera Gunnar að þeim einstaka fræðimanni, sem hann var í reynd, var hve sjálfstæður hann var í hug- myndum sínum og það að hann fór jafnan ótroðnar slóðir við rannsókn- ir. Jafnframt var hugmyndaauðgi hans viðbrugðið og í mörgum tilfell- um reyndist hann verulega á undan sinni samtíð. Einnig má nefna að vinnusemi hans og afköst voru með ólíkindum. Þó Gunnar dveldi langdvölum vestanhafs, var hann uppruna sínum ætíð trúr. Þetta endurspegl- aðist í rannsóknarverkefnum hans sem mörg hver tengdust jarðhita á Íslandi. Einnig hélt hann tengslum við menn á íslandi með bréfaskrift- um og símtölum. Gunnar var gæfusamur í einka- lífinu. Þau Tove eignuðust þtjú börn: Elst er Guðrún stærðfræðing- ur, þá Kristjana rithöfundur og bókmenntafræðingur, en yngstur er Öm sem er hagfræðingur. Öll búa þau vestanhafs. í Corvallis bjó Tove þeim Gunnari hlýlegt heimili í gömlu húsi í skógivaxinni hæð. Heimili Gunnars og Tove hefur ætíð staðið opið öllum þeim íslend- ingum, sem dvalið hafa um lengri eða skemmri tíma í Corvallis, við nám eða störf. Sérstaklega hefu’- námsmönnunum verið mikill styrk- ur af gestrisni þeirra og hjálpsemi. Síðustu fjögur árin hafði Gunnar átt í baráttu við þann óvin sem að lokum varð yfírsterkari. Af mikilli þrautsegju hélt hann þó ótrauður áfram að sinna hinum fjölmörgu hugðarefnum sinum og verkefnum, og var svo allt fram á þetta ár. En fljótt skipast veður í lofti. Ég var svo gæfusamur að fá að læra og vinna undir handleiðslu Gunnars og fá að kynnast vísinda- störfum hans frá fyrstu hendi. Við fráfall hans myndast skarð sem seint yerður fyllt, en vísindastörf hans munu lifa ásamt minningum í hugum þeirra sem kynntust Gunn- ari. Hvíli hann í friði. Guðni Axelsson. Fregnin um lát Gunnars Böðv- arssonar kom ekki á óvart. Hann hafði barist við erfiðan sjúkdóm og vitað var fyrir skömmu að hveiju dró. Samt var þetta reiðarslag. I hugann kemur myndin af Gunnari hlaupandi sína daglegu 10 kíló- metra, helst upp brekkur, ímynd hraustleikans. Við kynntumst Gunnari og Tove á námsárum okkar í Corvallis. Það var oft leitað í heimilishlýjuna til þeirra. Alltaf höfðu þau tíma til að ræða vandamálin, gefa góð ráð og aðstoða okkur. Hlýjan og vinsemdin sem mætti okkur þar var ómetanleg og létti heimþrána. Sérstaklega minnisstæðar eru stundirnar þegar Gunnar lét hugann reika til liðins tíma. Hann var góður sögumaður og varpaði yfirleitt öðru ljósi yfíf atburðina en maður hafði áður fengið. Eftir rúmlega 20 ára veru erlendis var makalaust hvað hann fylgdist vel með gangi mála á ís- landi og aldrei var hægt að greina annað en fína og fágaða íslensku í máli hans, jafnvel ekki á tæknimál- inu. Gunnar var vel að sér á flestum sviðum mannlífsins, þekking hans var alls ekki einskorðuð við hans eigin fræðigrein eins og margra vísindamanna. Við erum þakklát örlögunum fyr- ir að fá að kynnast Gunnari. Hann var einstakur maður sem vakti virð- ingu vegna kunnáttu sinnar og víðsýni en ekki síður vegna per- sónuleika síns. Gunnar og Tove voru mjög sam- rýnd .hjón og máttu varla hvort af öðru sjá. Þessir síðustu tímar hafa verið mjög erfiðir fyrir Tove. Hún hefur staðið við hlið Gunnars og stutt hann af fremsta megni. Elsku Tove, við vit.um hvað missir þinn er mikill og sendum þér, Kristjönu, Guðrúnu, Erni og Éyvindi okkar innilegustu samúðarkveðjur. Siggi, Stína og Gunnar. t Eiginmaður minn, HARALDUR GUÐMUNDSSON, til heimilis að Hjaltabakka 8, Reykjavfk, lést þann 6. maí i Landakotsspítala. Útför hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd ættingja, Lilja Bjarnadóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir og tengda- sonur, GYLFI ÞORBERGUR GUNNARSSON rafvírkjameistari, Logafold 43, Reykjavík, andaðist í gjörgæsludeild Borgarspítalans fimmtudaginn 18. maí. Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 24. mai kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Flugbjörgunarsveitina, Reykjavík. Helga Árnadóttir, Friða Gylfadóttir, Gunnar Þorbergur Gylfason, Guðrún Sigurðardóttir, Gunnar Þ. Hannesson, Sigurður Gunnarsson, Óli Ragnar Gunnarsson, Heimir Gunnarsson, Hólmfríður Guðmundsdóttir, Árni Þór Þorgrímsson. t Móðursystir mín, GUÐRÍÐUR JÓHANNESSON (áður NORÐFJÖRÐ), verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. maí kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Jakob Löve. t Elskuleg eiginkona mín, INGRID KRISTJÁNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 23. maí kl. 15.00. Fyrir hönd barna okkar, tengdabarna, barnabarna og systra hinn- ar lótnu, Jónas Þ. Dagbjartsson. t SIGURSTEINN ÞÓRÐARSON, Sjafnargötu 6, er lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 14. þ.m., verður jarð- sunginn mánudaginn 22. maí kl. 15.00 frá Dómkirkjunni. Fyrir hönd vandamanna, Inga Rósa Sigursteinsdóttir, Þorvarður Elíasson. t Maðurinn minn, HARALDUR GUÐJÓNSSON, Hjarðarhaga 54, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. maí kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Sigriður Jónsdóttir. t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ERNA JÓNSDÓTTIR, Háaleitisbraut 107, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. maí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á Krabba- meinsfélagið. OddurJónsson, Jóna Oddsdóttir, Jón Þórarinsson, Gunnar Oddsson, Þórdts Gunnarsdóttir, Elin Oddsdóttir, Hannes Þorsteinsson, Erna Heiðrún Jónsdóttir, Gunnhildur Vala Hannesdóttir. t Innilegar þakkir þeim, er vottuðu okkur samúð og vinarhug við fráfall PÁLMA JÓSEFSSONAR fyrrverandi skólastjóra. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Skjóls. Elín Sigurðardóttir, Kristín Pálmadóttir, Kristinn Bjarnason, Pálmi Guðmundsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.