Morgunblaðið - 21.05.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.05.1989, Blaðsíða 36
36 C MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 KVEHSKQR' [ „ pab eralveg vist ab éjáþd ekki l nxu&u i' þinni st<3£rá^" Ást er... .. .að láta hann vita um ná- vist þína. TM Reg. U.S. Pat Off —all rights reserved ° 1989 Los Angeles Times Syndicate fM ffc ZF Heyrðu kona. Hvar keypt- ir þú þessi egg? Nei, samvistum okkar er ekki lokið. Einvera er ill- þolanleg, en þó betri en þrotlaust þras þitt... HÖGNI HREKKVÍSI VESTLJf2VE;LLlt? , HVEF2T þó i LOöAWDl ! HMM... KANNSKI &BTUM VIÐ 6BRT SAMKOMULA6...?" Naftigifta- ruglingur Ágæti Velvakandi. * Eg var áðan að lesa hugleiðingar um bjórkomuna 1. marz sl. í Lesbók Morgunblaðsins 22. apríl sl.: „Úr krúsum skal hann drukkinn dauður“ eftir Hjalta Jón Sveinsson. Þýzkalandspistill, var fyrirsögn efst á síðu. Eg læt dóm um greinina liggja milli hluta. Reyndar var hún fim- lega rituð, enda höfundur mennta- maður, ritstörfum vanur, áður rit- stjóri Eiðfaxa við góðan orðstír. En hissa varð ég á þeim nafn- giftaruglingi, sem mörgum sinnum gætti í greininni og er með ólíkind- um, að maður, kunnugur á Þýzka- landi og í Mið-Evrópu, láti slíkt frá sér fara. Gamall kunningi greinar- höfundar var nefnilega farinn að auglýsa mjöð, sem bruggaður var undir frægu merki frá (!) MUnchen í Bæheimi; (2) vildi og stuðla að því að innleiða bæheimska bjór- menningu á íslandi; og taugaó- styrkir suðurþýzkir sveitapiltar voru látnir syngja (3) bæheimsk alþýðulög í sjónvarpi fyrir fleira fólk en nam fastagestum á sveita- knæpunni heima (4) í Bæheimi, o.s.frv. Sannleikurinn er sá, eins og flest- ir ættu að vita, þótt landfræðiþekk- ingu íslendinga virðist stöðugt hraka, þrátt fyrir ailar utanferðirn- ar og ferðalög erlendis — að Miinc- hen er í Bayern (Bæjaralandi) á Suður-Þýskalandi, og þar ætti fólk- ið, bjórinn og alþýðulögin þess vegna að vera bæversk eða eitt- hvað í þeim dúr. Bæheimur (Böh- men) er aftur á móti einn helzti hluti Tékkóslóvakíu, og þar er heimabruggið og annað tilheyrandi náttúrulega bæheimskt. Það er raunar ekki nýtt, að flask- að sé á þessum heitum í mæltu máli og rituðu hér á landi, en þó tók út yfir allan þjófabálk eftir miðja þessa öld, þegar blaðamenn hérlendis tóku að styðjast mjög við heimildir á enskri tungu — og ævin- týralandið Bavaría (enska heitið á Bæjarlandi) skaut upp kollinum, þótt fáir virtust vita, hvar hola ætti því niður á korti innan um öll þau dularfullu lönd, sem fyrir voru. Aðalsteinn Signrðsson Á FÖRNUM VEGI Isafjörður: Starfsaldur verkafólks lítils metinn VERKFALL háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna var viða til umræðu daginn sem verkfallið leystist. I beitingarskúrum Norð- urtangans á Isafirði voru Qórir landmenn af línubátunum að ganga frá lóðum eftir vertíðina. Þeim fannst það athyglisvert ef nú væri farið að borga mönnum fyrir að fara í verkfall. Að ekki sé nú talað um ef kennarar eiga svo að fá uppbót fyrir að vinna núna vegna röskunarinnar af verkfallinu. Bjarni Gestsson sagði að þetta væri mjög jákvætt fyrir verka- lýðsbaráttuna, þessir samningar væru leiðandi og það mundu sjó- menn notfæra sér í næstu samning- um. Þeim fannst ekki að langskóia- gengnir menn ættu að hafa mikið hærri laun en hinir. Menn virtust gleyma því að þeir ómenntuðu hefðu borgað fyrir hina menntunina og til þess ætti að taka í laununum. Laun í verkfalli út í hött Sævar sagði að laun í verkfalli væri alveg út í hött, þetta kæmist bara í tísku. Hann var hneykslaður á að veðurfræðingar skyldu ekki sinna skyldum sínum betur en raun væri í verkfalli. Margir litlir bátar hafa verið að róa og það er komið aðgæsluveður hjá þeim löngu áður en kemur að stormviðvörun. Ætti að gangajafht yfír alla Guðbjöm sagði að þessir samn- ingar yrðu fordæmi. Það ætti að „Segiði þessum fínu mennta- mönnum fyrir sunnan að sjó- mennirnir á Gissuri hvíta, sem eru að koma úr róðri, séu búnir að vera að síðan klukkan þrjú í nótt og að laun þeirra séu um 2.500 krónur. Sjómenn fá engar aldursuppbætur eða bónus, eins og tíðkast í landi.“ Guðbjörn Jósefsson ganga jafnt yfir alla hvernig störf væru metin en ekki hvort fólk kæmu úr háskóla eða ekki. Ingi sagði að það sem væri að verða óraunhæfast væri vinnutím- inn. Verkalýðsstéttirnar þyrftu sífellt að vinna lengri vinnutíma undir meira álagi vegna alls kyns bónusgreiðslna meðan menntafólk- ið fengi metna tíma til launa sem enginn vissi hvort það ynni eða ekki. En mesta óréttlætið er kannski að verkafólk og sjómenn fá starfsaldur lítið metinn. Sjómenn reyndar alls ekki. Þannig væri há- seti eftir 25 ára starf til sjós með Yíkverji skrifar Víkvetji brá sér á þingpalla í vikunni. Verið var að ræða skýrslu sem fjallaði um jafnrétti kynja að lögum — en ekki í reynd. Ragnhildur Helgadóttir var í ræðu- stól. Hún tryggði — þá hún sat í ríkisstjóm — lengingu fæðingaror- lofs í áföngum, en það nær sex mánuðum á næsta ári. Lenging fæðingarorlofsins var mikið réttlæt- is- og framfaraspor. Ragnhildur vék að sjónvarps- mynd Svövu Jakobsdóttur, rithöf- undar, sem sýndi kjör vinnustúlkna í sveit á fyrstu áratugum aldarinn- ar. Einstæð móðir, sem ræðst sem kaupakona á frumstætt sveitaheim- ili, neitar að þjóna öðmm en sér og barni sínu, eftir að hafa staðið langan og strangan vinnudag með bónda og vinnumanni — og skilað dagsverki sínu sem þeir. Síðan spurði Ragnhildur, efnis- lega eftir haft: Hversu margar konur skila fullu dagsverki á vinnumarkaði í dag og eiga eftir þjónustu- eða heimilis- störfin þegar heim kemur? xxx Víkveiji er þeirrar skoðunar að öll aðbúð fólks — vinnuað- staða, húsnæði, fæði og klæði, að- staða til menntunar, heilsugæzla, tómstundir og tækifæri til að sinna áhugamálum — sé gjörbreytt til hins betra frá því á morgni aldar- innar. íslendingar verða ekki allra karla og'kerlinga elztir fyrir ekki neitt. Annað mál er að nútíma sam- félag fámennrar þjóðar krefst starfskrafta allra þegna sinna, kvenna sem karla, ef og þegar at- vinnu- og efnahagslíf þjóðarinnar er heilbrigt. Hin hliðin á þessu máli er og sú að nútíma kona á sama rétt og nútíma karl til að nýta hæfileika sína og menntun í atvinnulífinu, ef hún kýs svo að gera. Þar ofan í kaupið krefst lífsmáti íslendinga á líðandi stundu þess, oftast, að fyrirvinnur heimilis séu tvær. Kona, sem vinnur utan heimilis fullan vinnudag, en þarf að sinna börnum og búi að honum loknum, vinnur sennilega lengri vinnudag en vinnulöggjöf leyfir. Sem betur fer deila flest hjón með sér heimilisverkum — sem og fyrirvinnu heimilis — og eru sam- stiga í lífsbaráttunni. Samt er það íhugunarefni, ekkert síður en sögu- efni Svövu Jakobsdóttur, hvort ekki séu of margar undantekningar frá þessari meginreglu í samtíð okkar. Og hvað um hin einstæðu foreldrin? | Ragnhildur Helgadóttir sagði í þingræðu þeirri, sem Víkveiji hlustaði á, að það væri mikilvægt stefnumál hennar og samheija hennar, að styrkja stöðu fjölskyldna og heimila í samfélaginu. Fjölskyld- an væri hornsteinn þjóðfélagsins og mikilvægt væri að gæta hags- muna hennar í umróti þjóðfélags- breytinga, gjörbreyttra þjóðlifs- hátta. Hún sagði og, sem Víkveija fannst athyglisvert, að baráttan fyrir jafnstöðu kynjanna væri jafn- framt í reynd barátta fyrir velferð og rétti barnanna í samfélaginu. Þetta er örygglega kórrétt hjá þing- manninum. Barnanna vegna er mikilvægt að foreldrar eigi kost sem flestra sam- verustunda með þeim, ekki sízt fyrstu ævimisserin, og reyndar mun lengur. Þess vegna á samfélagið að gefa þeim tækifæri til að annast böm sín í heimahúsum, fyrstu árin, ef þau kjósa svo. Máske er það og ódýrara fyrir samfélagið en að byggja og reka dýrar stofnanir til þess arna. Fáir þingmenn vóru viðstaddir þessa jafnréttisumræðu. Sama gilti um ráðherrana, aðra en félagsmála- ráðherra. Áhuginn var greinilega ekki til staðar. Sýslumaðurinn í sögu Svövu situr greinilega ekki á ráðherrastól.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.