Morgunblaðið - 21.05.1989, Page 33

Morgunblaðið - 21.05.1989, Page 33
C 33 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR SUNNUDAGUR 21. MAÍ 1989 Nýirlögreglumenn og brunaverðir Nýlega voru 43 lögregluþjónar víðs vegar að af landinu útskrifaðir úr Lögregluskóla ríkisins að loknu 2 vetra námi. Þetta er fyrsta útskrift úr skólanum undir stjórn Bjarka Eliassonar skólastjóra. Morgunblaðið/Júllus 12 brunaverðir hafa nýverið lokið námi af hæstu gráðu sem býðst í faginu hérlendis. Myndin var tekin af brunavörðunum, sem hafa starfað allt að 5 árum í slökkviliðinu, ásamt slökkviliðs-, vara- slökkviliðsstjóra og leiðbeinendum á námskeiðinu. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Guðmundur Sigurðsson á Aslandi með nýjar baunaspírur. Flúðir: Nýjar baunaspírur á markað í hverri viku Selfossi. „FÓLK kann greinilega að meta það hve spírurnar eru meinholl- ar,“ sagði Guðmundur Sigurðs- son garðyrkjubóndi á Áslandi á Flúðum í Hrunamannahreppi en hann hóf nýlega ræktun bauna- spíra í garðyrkjustöð sinni. Hann og kona hans, Helga HaUdórs- dóttir segja spírurnar hafa feng- ið góðar viðtökur. Spírurnar eru ræktaðar af munk-baunum firá Asíu og sendar ferskar á markað frá Áslandi einu sinni í viku. Ræktunarferill baunaspíranna er stuttur, 6 dagar. Þær eru ræktaðar við mikinn raka og frekar hátt hitastig. Til að árangur við ræktunina verði sem bestur þarf að huga vel að þessum þáttum auk hreinlætis. Baunaspírurnar innihalda hlut- fallslega meira magn af alhliða næringarefnum en flestar fæðuteg- undir. Baunaspíran tífaldar næring- argildi sitt og vel kæld varðveitir hún næringuna í 6 - 8 daga. Spírurnar eru notaðar bæði hráar' í salöt eða hraðsteiktar, soðnar í ýmsa rétti. Vegna þess hversu þær eru hitaeiningasnauðar hafa þær orðið vinsælar sem megrunarfæða. Fyrir forfallna „nartara" eru baun- aspírumar himnasending og böm sem komast upp á lag með að borða hráar spírur jafna þeim á við sæl- gæti. — Sig. Jóns. Bandaríkjamenn óttast aukaverkanir hjartalyfs: Lyfið er mjög lítið notað hér á landi - segir Árni Kristinsson, sérft*æð- ingur í hjartasjúkdómum Bandarískir sérfræðingar teþ'a að lyfið Tambocor, sem gefið er við hjartsláttartruflunum, auki líkur á hjartaáfalli og vara við notkun þess. Lyfið er skráð hér á landi, en að sögn Árna Kristinssonar, hjartasérfræðings, er það mjög lítið notað. Fylgst er náið með þeim sjúklingum, sem lyfíð fá, þar sem vitað hefiur verið um mögulegar hliðarverkanir þess. Ibandaríska dagblaðinu Int- emational Herald Tribune þann 27. apríl síðastliðinn er greint frá því, að heilbrigðis- yfirvöld í Bandaríkjunum telji lyfin Tambocor og Enkaid auka líkur á hjartaáföllum og dauða og ráðleggi læknum að hætta að gefa lyfin við hjartsláttar- truflunum. Aukaverkanir ly- fjanna komu fram við rann- sóknir, þar sem hluta sjúklinga var gefinn þessi lyf, en annar hluti fékk pillur með engri verk- an. Af 730 sjúklingum, sem fengu lyfín tvö á tíu mánaða tímabili, létust 56 eða fengu alvarlegt hjartaáfall, á móti 22 sjúklingum, sem fengu lyf- leysu. Rannsóknin á verkjan lyfjanna hefur staðið frá 1987 og 1500 sjúklingar tekið þátt í henni. Sjúklingamir höfðu áður fengið hjartaáfall. Áætlað var að rannsókninni lyki 1992 og verður henni nú fram hald- ið, en í stað þess að hún nái til þriggja lyfja, Tambocor, Enkaid og tilraunalyfsins moricizine, mun hið síðast- nefnda eitt verða rannsakað. Það sýndi svipaða verkan og hin lyfin tvö, en ekki sömu hættulegu aukaáhrifin. Ámi Kristinsson, sérfræð- ingur í hjartasjúkdómum, sagði að honum væri kunnugt um að einn tíundi hluti þeirra sjúkl- inga, sem er gefíð lyfið Tambocor, fengi frekari hjart- sláttartruflanir, eða að lyfíð gæti komið tmflunum af stað. Hins vegar væri lyfíð oft hið eina, sem verkaði á hjartslátt- artmflanir hinna 90%. „Við höfum vitað þetta frá því að lyfíð var skráð hér 1984, enda er fylgst vel með sjúklingum í hjartarafsjá þegar lyfjagjöfín hefst. Þetta lyf er annars mjög lítið notað og ég get nefnt sem dæmi, að enginn minna sjúkl- inga fær nú þetta lyf að stað- aldri,“ sagði Ámi Kristinsson. í frétt Herald Tribune er haft eftir dr. Frank E. Young, yfírmanni Heijbrigðismála- stofnunar Bandaríkjanna, að Tambocor og Enkaid væri hægt að nota áfram í neyðartilfellum, en dregið yrði úr notkun ly- fjanna í þeim tilfellum, þar sem sjúklingur væri ekki í bráðri hættu. Þá benda sérfræðingar á, að til séu yfír tylft viður- kenndra lyfja, sem gefín em gegn hjartsláttartruflunum. Straumur við Reykjanesbraut þar sem vinnustofur myndlistarmanna verða í framtíðinni. Hafiiarfiörður: Myndlistarmenn fá vinnustofiir í Straumi BÆJARSTJÓRN Hafearflarðar og hópur myndlistarmanna ætla á næstunni að gera samning um ráðstöfun á Straumi við Reykjanesbraut og hvernig kostnaði vegna endurbóta á húsinu verður skipt. Bæjar- stjómin ákvað fyrir skömmu að afhenda myndlistarmönnum húsið undir vinnustofur. Myndlistarmennirnir munu sjálfir vinna að endurbót- um á húsinu og hafa þegar hafist handa og rifið allt innan úr því. Guðmundur Ámi Stefánsson bæj- arstjóri Hafnarfjarðar sagði að vinnuframlag myndlistarmannanna kæmi í staðinn fyrir leigu, en þeir kosta endurbætur að verulegu leyti á þeim hluta húsnæðisins sem þeir nota. Hugmyndir eru uppi um að skipta húsinu í tólf til fjórtán hluta og að Hafnarfjarðarbær fái tvo til þrjá þeirra til ráðstöfunnar og mynd- listarmennimir aðra hluta hússins. Ekki liggur enn fyrir hvemig rekstr- arkostnaði verður skipt. Guðmundur Ámi sagði að stefnt væri að því að ganga frá samningum á næstu vikum svo hægt verði að hefjast handa að fullum krafti við endurbætur á húsinu. Þá hefur íslenska álverið lýst sig reiðubúið að láta gera upp og af- henda Hafnarfjarðarbæ sumarhúsið Gerði, sem er ofan við Reykjanes- braut, með því skilyrði að þvi verði ráðstafað fyrir listamenn. Sverrir Olafsson, einn myndlistar- mannanna, sagði að Straumur væri í ágætu ástandi, en ýmislegt þyrfti að lagfæra. Hann sagði að þama yrðu að litlum hluta fastar vinnustof- ur en flestar yrðu gestavinnustofur með tilheyrandi íbúð sem yrði ráð- stafað til skamms tíma í einu. „Þetta framtak Hafnarfjarðarbæj- ar er stórmerkilegt. Þeir afhenda þama stóran hluta af húseigninni sem er um 8-900 fermetrar. Þetta er ævintýri líkast og það er stað- reynd að Hafnarfjarðarbær og Kópa- vogur hafa staðið í fararbroddi hvað varðar málefni listamanna á undanf- ómum árum," sagði Sverrir. Gert er ráð fyrir að fyrstu mynd- listarmennimir geti byrjað að vinna í Straumi seinni hluta sumars. Unnið að endurbótum á Straumi. Morgrinblaðið/Emella.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.