Morgunblaðið - 10.06.1989, Page 1
56 SIÐUR B OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
129. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989
Prentsmiðja Morgxinblaðsins
Sovéska fulltrúaþingið:
Á torgi hins
himneska
friðar eftir
blóðbaðið
Myndina tók Stefán
Úlfarsson, fréttarit-
ari Morgunblaðsins
í Kína, morguninn
eftir blóðbaðið
mikla en hér sést
hvar einn stúdent-
inn hefhr hengt her-
fang sitt á stöng:
Hermannahúfii, skó,
belti og byssusting.
Stúdentinn stendur
fyrir framan Zhong
Nan Hai, sem er
aðsetur leigtoga
þessa fjölmennasta
ríkis heims, þar sem
gífurleg valdabar-
átta hefiir verið háð
nú síðustu daga, og
leiddi til þess að
harðlínumenn
sendu herinn gegn
umbótasinnum sem
kröfuðust aukins
lýðræðis og frelsis í
Kína.
Erlendu skuldirnar
greiddar með nýjum
Moskvu. Reuter.
ERLENDAR skufdir Sovétnianna eru 53 milljarðar doiiara og sljórn-
völd geta ekki staðið í skilum með afborganir nema með því að taka
ný lán. Kom þetta fram í umræðum á sovéska fulltrúaþinginu í gær en
þá vísaði Míkhaíl Gorbatsjov sovétleiðtogi einnig á bug orðrómi um
að hætta væri á, að honum yrði steypt af stóli.
„Getum við sokkið dýpra í skulda-
fenið?“ spurði Níkolaj Ryzhkov for-
sætisráðherra þegar hann svaraði
áskorunum sumra þingmanna um
að tekin yrðu meiri lán á Vesturlönd-
um til að auka innflutning neyslu-
varnings. Upplýsti Ryzhkov í fyrsta
sinn, að Sovétmenn skulduðu 53
milijarða dollara erlendis og þyrftu
að greiða af þeim í afborganir og
vexti 18,7 milljarða árlega. Sagði
hann, að gjaldeyristekjur ríkisins
yrðu 25 milljarðar dollara á árinu
og þar af færu 21,2 milljarðar í inn-
flutning. Þá væru eftir 3,8 milljarðar
upp í afborganir. Það, sem á vant-
aði, yrði að fá lánað á Vesturiöndum.
Gorbatsjov gerði að umtalsefni í
sinni ræðu orðróm um yfirvofandi
v^ldarán og sagði, að slíkar kviksög-
ur væru út í hött. Bað hann þing-
menn að taka ekki þátt í söguburðin-
um. Rithöfundurinn Valentín Rasp-
útín og sagnfræðingurinn Roy
Medvedev telja hins vegar, að mikil
valdabarátta eigi sér stað milli helstu
ráðamanna og þeir benda á, að í
hvert sinn sem Gorbatsjov bregði sér
af bæ sé eins og stefna flokks og
stjórnar falli í gamla farið.
Sjá „Verður ..." á bls. 20-21.
Herinn boðar atlögn gegn
andófsmömium í Shanghai
- en kínverskir námsmenn segjast ekki munu gefast upp fyrr en yfir lýkur
Peking, Hong Kong. Reuter.
DENG Xiaoping, helstur ráðamaður í Kina, kom fram í sjónvarpi í gær
en þá hafði ekkert til hans sést í þijár vikur. Lofaði hann framgöngu
hersins og minntist þeirra, sem fallið hefðu í atlögunni gegn „gagn-
byltingarmönnum". Ekki hafa borist fréttir um mótmæli í Peking en
í Shanghai komu 40.000 manns saman í gær til að krcfjast lýðræðis
og minnast þeirra, sem herinn myrti. Segjast námsmenn ætla að gera
borgina að miðstöð andófsins gegn yfirvöldum en hersljórnin í Nank-
ing, sem tekur einnig til Shanghai, segist ætla að „kveða uppreisnina
niður“. Er óttast, að Alþýðuherinn láti þar fljótlega til skarar skríða.
Deng, sem er 84 ára að aldri, var
þreytulegur að sjá og óstyrkur þegar
hann birtist á sjónvarpsskjánum
ásamt Li Peng forsætisráðherra og
Yang Shangkun forseta, sem báðir
eru harðlínumenn. Lofaði hann Al-
Palme-réttarhöldin:
Hefiir hinn ákærði
fjarvistarsönnun?
Stokkhólmi. Reuter.
Réttarhöldin í Palme-málinu tóku óvænta stefiiu í gær þegar nýtt
vitni kvaðst geta veitt sakborningnum, Christer Pettersson, örugga
Qarvistarsönnun. Sagði vitnið, eða maðurinn, að hann hefði séð
Pettersson á brautarstöð í úthverfi Stokkhólms áður en hálftími var
liðinn frá morðinu á Olof Palme
Lögreglan og verjandi Petters-
sons voru í gær að kynna sér fram-
burð mannsins en reynist hann trú-
verðugur getur hann gjörbreytt
gangi málsins. Palme var skotinn
kl. 23.21 en Pettersson segist hafa
farið heim með lestinni kl. 23.46.
Hafi hann sofnað á leiðinni, misst
af áfangastaðnum og ekki vaknað
fyrr en á endastöð Iestarinnar. Þar
hafi hann farið út og beðið annarr-
ar.
„Ég man eftir honum á brautar-
stöðinni þessa nótt,“ segir vitnið.
„Hann sat á bekk og reykti og virt-
ist þreytulegur. Ég er viss um, að
þetta var 28. febrúar því morgun-
inn eftir sagði útvarpið frá morð-
inu.“
Vitnið er reiðubúið að koma fyr-
ir réttinn en saksóknarinn ætlar
að leiða fram önnur vitni, sem bera
að Pettersson hafi beðið fyrir utan
kvikmyndahúsið, sem Palme og
kona hans sóttu, og síðan fylgt
þeim eftir.
þýðuherinn fyrir að hafa barið niður
„gagnbyltingaröfl, sem ætluðu að
uppræta kommúnistaflokkinn og
sós’íalismann". Erlendir sendimenn
segja augljóst, að kínversku ráða-
mennirnir, sem flestir eru um átt-
rætt að Li Peng undanskildum, séu
að reyna að snúa klukkunni við og
hverfa aftur til kúgunarinnar á sjötta
áratugnum. „Vandinn er bara sá að
þjóðin sjálf hefur breyst,“ sagði einn
þeirra.
Rúmlega 40.000 manns komu
saman til mótmælafundar í Shanghai
í gær til að krefjast lýðræðislegra
stjórnarhátta og frelsis. Minntist
fólkið fallinna félaga og voru margir
hvítklæddir en það er litur sorgarinn-
ar í Kína. „Lýðræðisandinn mun aldr-
ei slokkna" var letrað á einn kröfu-
borðann og á öðrum stóð: „Reiði,
reiði, reiði vegna glæpaverka hers-
ins.“ Námsmenn, sem haft var síma-
samband við frá Hong Kong, sögðu,
að þeir væru að endurreisa samtökin
eftir fjöldamorðin í Peking og ætluðu
að gera Shanghai að miðstöð barátt-
unnar. „Við munum beijast þar til
yfir lýkur," sagði einn námsmann-
anna.
Yfirherstjórnin í Nanking-héraði,
sem Shanghai tilheyrir, tilkynnti í
gær, að herinn myndi brátt búast til
að „kveða uppreisnina niður og
greiða þeim þungt högg, sem hafa
staðið fyrir henni“. Efast fáir um,
að við þau orð verði staðið enda
líklegt, að öldungarnir í Peking telji
sig ekki eiga annarra kosta völ úr
því sem komið er. Um 100 skriðdrek-
ar og fjöldi herbíla fóru í gær frá
Peking en ekki var vitað hver til-
gangurinn var með þeim liðsflutning-
um.
Sjá „Harðlínumenná bls. 21.
Rúmenía:
Ungbarna-
dauðinn vex
París. Reuter.
RÚMENSKIR valdamenn lifa í
vellystingum praktuglega en á
fæðingarheimilunum missa mæð-
umar bömin sín vegna skorts á
lyflum og umönnun. Kom þetta
fram í gær á mannréttindaráð-
stefiiu 35 þjóða í París.
Kanadiski sendiherrann William
Bauer sagði að rúmensku fulltrúarn-
ir á ráðstefnunni svifust einskis í
vonlausri vöm fyrir kúgunina og ein-
ræði Nicolaes Ceausescus forseta.
Úthugsaðar gagnárásir, undanfærsl-
ur og lygar væru brögðin sem þeir
beittu.
Bauer sagði, að í Rúmeníu væru
nýfædd börn ekki skráð fyrr en þau
væru orðin mánaðargömul. „Það er
gert til að tölur um ungbamadauða
líti betur út, barnið er ekki til sem
einstaklingur fyrr en eftir mánuð.“
Vestrænir sérfræðingar segja, að
Rúmenía sé eina Evrópulandið þar
sem ungbarnadauðinn vex stöðugt.
Reuter
Konungdæminu borgið
FYRSTI hrafiiinn, sem klakist hefiir út í Lundúnaturni (Tower
of London) í meira en 300 ár, var sýndur almenningi í gær og
gátu hjátrúarfullir Bretar þá loksins dregið andann léttara því
að samkvæmt þjóðtrúnni líður konungdæmi í Bretlandi undir
lok, verði hrafnalaust í Turninum. „Konungdæminu og Englandi
er borgið,“ sagði John Wilmington, konunglegur hrafnahaldari,
sem er með hrafiisunganum á myndinni. A 17. öld ákvað Karl
konungur II að losa sig við fuglana en sagan segir, að honum
hafi þá verið ráðlagt að halda nokkrum þeirra til að stoftia kon-
ungdæminu ekki í hættu.