Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 44
MÓRGUNBLAÐIÐ RAUÓARDAGUR110. JÚN’Í 1989 Til sölu 5-6 herbergja einbýlishús í Kópavogi í Vesturbæ. Steinsteypt. Forstofa, húsbóndaherb., gesta- snyrting, saml. stofur, geymsla, rúmg. eldhús og þvottahús. Á efri hæð er hol, baðherb., 3 herbergi og geymsla. Gott háaloft. Stór bílskúr. Góð lóð. Útsýni. Verð 8,9 millj. Upplýsingar í síma 43294. VIÐ BYGGJUM TÓNLISTARHÚS Dregið 17. júní Við treystum á þig Ferðahappdrætti Samtaka um byggingu tónlistarhúss Stundum skeður það ótrúlega Til Velvakanda. Vaxandi kynslóð, hinn viðkvæmi gróður eins og heyrist stundum sagt um unga fólkið, er búin ýmsum hæfileikum sem venjulega koma í ljós við það nám sem menntakerfið býður uppá. Sumir njóta þess að læra öll sín skólaár án þess að taka nokkuð sérnám, virðast ekki kæra sig um það eða hafa ekki hæfileika í það, enda segir máltækið svo lengi lærir sem lifir, og hverfa svo að námi loknu í heim hins aimenna borgara. Þessir tveir hópar ungrar kynslóðar, hinir almennu þegnar og svo hinir sem uppgötva sína hæfileika í námi öðrum til gleði og ánægju, sýna að móðir náttúra mótar ekki alla í sama formið. Enda er slíkt löngu vituð speki allar göt- ur síðan hinn vitri maður eða Homo sapiens kom fram á sjónarsviðið á sínum tíma. Nokkru eftir að menntakerfi fóru víða um heim að ryðja sér til rúms, breytast og mót- ast í tímana rás hefur fjölmargur maðurinn fengið að njóta sinna námshæfileika, sama hvort í hlut hefur átt verðandi prestur, vísinda- maður einhvers ákveðins sviðs, læknir eða tónlistarmaður. Viðkom- andi menntastofnun hefur mótað og slípað þetta fólk og gert það að miklum hæfileikamönnum. Síðan hefur þetta fólk átt kost á ýmsum möguleikum í framhaldsnámi og endanlegu lífsstarfi. Sumt af þessu fólki hefur kosið að stunda sérnám til að aðstoða sína minnstu bræður og systur, að bera fyrir bijósti heilsu þeirra og daglegar þarfir og aðstoðar sína minnstu bræður og systur eftir föngum. Þeir sem hafa stundað slíkt framhaldsnám ná oft árangri í að lækna og greiða fyrir þessum aðil- um svo þeir geti lifað betur en áður og jafnvel fundið til fölskvalausrar hamingju enda þótt viðkomandi vandamál sé ekki alveg úr sög- unni. Það er trúa mín að einhvern tíma í framtíðinni takist að finna allsheijarlausn fyrir sérhvern er minna má sín en samferðamennirn- ir. Jafnvel að hægt verði að fyrir- byggja mörg mein í fæðingu því stundum skeður það ótrúlega. Gunnar Sverrisson > ORLOFSHÚS Á SPÁNI Stjórnvöld höfuðóvinurinn Til Velvakanda. Almenn óánægja ríkir með það ástand sem nú er hjá þjóðinni, ekki síst vegna þess að flestir gera sér ljóst að um heimatilbúinn vanda er \/iltu tryggja þér sólríka framtíð í hlýju og notalegu lúxus- umhverfi við ströndina COSTA BLANCA, þar sem náttúrufeg- urðin er hvað mest á Spáni? VERÐ FRÁ ÍSL. KR. 1.900.000,- AFBORGUNARKJÖR. Á og við LAS MIMOSAS er öll hugsanleg þjónusta sem opin er alla daga, m.a. veitingastaðir, diskótek og 18 holu golfvöllur. SÉRSTAKUR KYNNINGARFUNDUR með myndbandasýningu á Laugarvegi 18, laugardag 10. og sunnudag 11. júní frá kl. 13.00-17.00. Kynnisferð til Spánar 21.-28. júní. Örfá sæti laus. ORLOFSHÚS SF., Laugavegi 18, 101 Reykjavík, símar 91-17045 og 15945. iltu komast í sumarfrí til vinsælustu sólarstranda Spánar fyrir verulega lægra verð? Á morgun, sunnudag, kynnirVeröld þérnýjan möguleika í sumarfríinu, sem gerir þér kleift að komast í fríið fyrir miklu lægra verð. SJÁ NÁNAR HÉR í MORGUNBLAÐINU Á BLAÐ- SÍÐUM 9,31 og 29c ÁMORGUN M R D fl tf 1Ð S10 01N -r mm Austurstræti 17, sími 622200 Víkverji Nú leyfist okkur náðarsamleg- ast að éta ætar kartöflur um sinn eftir ómetið sem við höfum mátt leggja okkur til munns að undanförnu. Erlendu krtöflurnar eru víst alveg að koma að fenginni blessun forsprakka einokunarversl- unarinnar. Stundum er því líkast sem menn- irnir sem eiga þarna hagsmuna að gæta séu beinlínis að storka okkur neytendum. Þannig sá Víkveiji fyr- ir skemmstu hvar framkvæmda- stjóri Agætis lýsti yfir í frétt um að innflutningur á kartöflum væri „ótímabær" eins og hann orðaði það. Hann sá ekki betur en að enn- þá væri til „nóg af boðlegum inn- lendum kartöflum". „Boðlegum?" Fullboðlegum í ís- lendinginn, væri réttara að orða það. En hlálegt er það ef þeim sem stjórna þessum málum tekst nú líka með bölvaðri þvermóðskunni að venja okkur íslendinga af kartöfl- um. Kaldhæðinn breskur blaðamað- ur, sem heldur úti dálki í helg- arblaði The Guardian, ræður mönn- Misjaftalega búið að öldr- uðu fólki Til Velvakanda. Ég hlustaði á dögunum á við- tal við ráðamenn Reykjavíkur- borgar um öldrunarmál og fannst ekki mikið til um. í þætt- inum var talað við 90 ára gamla hreyfíhamlaða konu sem fékk heimilishjálp einu sinni í viku og ef þann dag bar upp á helgidag þá féll sá dagur úr. Hafði hún ekki fengið heimilishjálp í heilan mánuð. Þetta er ekki nógu gott. Ég ei- öldruð og er hreyfihöm- luð. Ég bý í Garðabæ og konan sem sér um heimilishjálp hjá mér mundi ekki láta falla niður dag þótt helgidagur væri og að auki annast hún allar sendiferðir sem þarf að fara fyrir mig. Mér finnst að félagsmálaráð í Garðabæ greiði vel fyrir sínum þegnum og geri vel við sitt fólk og hafi það mínar þakkir. Anna að ræða. í vor var þjóðfélagið lam- að af verkföllum svo vikum og mánuðum skipti. Þessi verkföll voru gerð í þeim tilgangi að bæta upp tekjumissi en stolið hafði verið af krónunni með gengissigi í langan tíma. En hver er nú árangurinn þegar upp er staðið? ASÍ sló veru- lega af kröfum sínum í þeirri von að stjórnvöld myndu halda verðlagi niðri og voru gefin um það loforð og fögur fyrirheit af ráðamönnum. Nú, nokkrum vikum síðar, hefur allt verið svikið og nú dynja verð- hækkanir yfir rétt eins og öllu hafi verið sleppt lausu. Lítið fer fyrir kjarabótunum frá því í vor á móti þessum ósköpum. Hér áður fyrr litu verkamenn á atvinnurekendur sem sína höfuð- andstæðinga í baráttunni fyrir bættum kjörum. Nú er þetta breytt. Nú eru það stjórnvöld sem eru'höf- uðandstæðingar launþegans. Gerðir eru kjarasamningar sem báðir aðil- Hvítasunnufólk Kæri Velvakandi. Ég undirritaður vil láta þá skoð- un mína í ljós, að aðferðir þær sem hvítasunnufólk notar til tjáskipta sín á milli á samkomum sínum eru einkar forvitnilegar. Jafnframt langar mig til þess að þakka því fyrir veittan stuðning í leit minni að hamingjuríku lífi. Björn Siguijónsson skrifar um frá því að vera mikið á ferð og flugi í sumar, þó einkanlega á flugi. Hann upplýsir að eftir að sovéskar orrustuþotur höfðu grandað kór- esku farþegaflugvélinni hafi svo- hljóðandi tillaga verið borin fram og samþykkt í Alþjóðaflugmála- stofnuninni: „Ekkert ríki má ráðast með vopnum gegn farþegavél þá hún er á lofti.“ Dálkahöfundurinn segir réttilega að hér sýnist ekki til mikils mælst, en bætir þá við: „Gallinn er sá að 52 þjóðir, og þar á meðal Sovét- menn og Bandaríkjamenn, hafa neitað að staðfesta tillöguna. Far- þegavélar eru því enn ekki frið- helgar að alþjóðlögum." Hann botnar klausuna með þeirri meinlegu athugasemd að ijúpan hafi það sem sagt umfram flugfar- þega að vera þó friðuð hluta af árinu. xxx Er Víkveiji einn um það að finnast orðið „stórmenni" hálf vandræðalegt um forystumenn okk- ar og maka þeirra? Undirritaður heyrði útvarpsmann nota það í sam- ar, launþegi og vinnuveitandi, sætta sig við og báðir standa við sinn samning eins og lög gera ráð fyrir. En þá koma stjórnvöld til skjalanna og standa fyrir aðgerðum sem lækka raungildi krónunnar og þar með eru samningarnir sem svo mik- ið var haft fyrir að koma í höfn ónýtir orðnir og hefja verður samn- ingaviðræður og verkfallsaðgerðir á ný. Sú stjórn sem nú situr hefur far- ið illa að ráði sínu og því nær engu góðu komið til leiðar. Ljóst er að hún er óvinsæl orðin með afbrigð- um. Þessi stjórn Steingríms Her- mannssonar kaus að kenna sig við félagshyggju. Sú félagshyggja hef- ur fyrst og fremst lýst sér í því að níðst hefur verið á láglaunamannin- um. Nokkrir framsóknargæðingar geta þó líklega hrósað happi því þeir hafa margir verið vel aldir á kostnað almennings. Jóhann bandi við páfáheimsóknina. Hann nafngreindi nokkra landa okkar sem voru í móttökunefndinni en lét sér nægja að taka afganginn saman í kippu undir safnheitinu „annað stórmenni". Kannski það séu atburðir síðustu viku sem valda því að Víkveija finnst þessi nafnbót í svipinn að minnsta kosti dálítið langsótt. Varla mun öllum til dæmis hafa fundist sem það væri mikill „stórmennsku- bragur“ á öllum þeim þjóðkunnu kempum sem voru kvaddir til vitnis í brennivínsmálinu. Þá finnst Víkveija það óneitan- lega skoplegt þegar svo er komið skjallinu í þessu landi okkar að ekki einu sinni stórmennistitillinn þyki nógu fínn fyrir gildustu jarl- ana. Þegar Tíminn birti þriggja dálka forsíðumynd af Steingrími og páfanum hét fyrirsögnin „Höfðingj- ar mætast!“ xxx jóðviljinn upplýsti í helgarblaði sínu um daginn í tilefni af heimsókn páfa að sá góði maður væri „óítalskur".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.