Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.06.1989, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGAKDAGUR ÍO.^ÚNÍ J,9^9 11 Séra Olafiir Skúlason kveður Bústaðasöfiiuð Eins og kunnugt er tekur séra Ólafur Skúlason við embætti biskups Islands 1. júlí nk. Hann mun því kveðja Bústaðasöfnuð við messu sunnudaginn 11. júní. Hefst guðs- þjónustan kl. tvö síðdegis, en í hálfa klukkustund fyrir messuna mun kór kirkjunnar og hljóðfæraleikarar ásamt einsöngvurum flytja tónlist. Séra Ólafur hefur verið sóknar- prestur Bústaðaprestakalls í aldar- fjórðung. Séra Óskar J. Þorláksson, fyrrum dómprófastur setti hann í embætti á nýársdag 1964. Þá fór allt starf safnaðarins fram í Réttar- holtsskólanum, bæði messur og barnaguðsþjónustur auk funda í Kvenfélagi, Bræðrafélagi og Æsku- lýðsfélagi. Stjómarfundir og nefnda fóru aftur á móti fram á heimili prestshjónanna, Ebbu Sigurðardótt- ur og séra Ólafs, og þar voru börn skírð í stofu þeirra og brúðhjón gef- in saman flestar helgar. Þar var vit- anlega einnig skrifstofa prestsins og öll samtöl hans við sóknarbömin fengu þar inni, ef viðkomandi vom ekki sóttir heim. Það var því stór stund, þegar sóknarpresturinn, sem nú er að kveðja söfnuð sinn og kirkju, tók fyrstu skóflustunguna að Bústaða- kirkju árla morguns 7. maí 1966 og síðan var haldið áfram eftir því sem fé hrökk til og var vel unnið bæði að söfnun og framkvæmdum og al- mennur stuðningur við smíðina gerði það mögulegt að vígja glæsilega Bústaðakirkju fyrsta sunnudag í aðventu 1971 og er kirkjan nú með fegurstu guðshúsum og starfsað- staðan á allan hátt til fyrirmyndar. Og á sunnudaginn verða vígðir nýir gluggar í listaverki Leifs Breiðfjörð, sem em í kór kirkjunnar og verða sem altaristafla, og krossinn úr hömmðu gleri verður vonandi kom- inn á sinn stað í haust. Kirkjuna teiknaði Helgi Hjálmarsson í fyrstu í samvinnu við húsameistara ríkis- ins, Hörð Bjarnason, en síðan annað- ist hann einn allar teikningar. Það kom sér líka vel, að Bústaða- kirkja býður upp á góða aðstöðu alhliða starfs, sem hefur verið hið blómlegasta í söfnuðinum og með auknum umsvifum séra Ólafs hafa fleiri svið færst inn í kirkjuna, eins og meðan hann var formaður Presta- félags íslands og frá því hann varð dómprófastur 1976 hefur miðstöð Reykjavíkurprófastsdæmis verið í Bústaðakirkju og hið stóra safnaðar- heimili vel nýtt fyrir margskonar fundi og námskeið auk þess sem skrifstofa prófastsdæmisins hefur verið þar. Það er því mikil saga, sem skráð hefur verið þennan aldaríjórðung, sem liðinn er frá því séra Ólafur tók við sóknarprestsembættinu. Og mun sá ekki sístur, að kirkjusókn hefur verið með því besta sem þekkist hér um slóðir og eindrægni forystu- manna og safnaðar hin ljúfasta. Sést það ekki síst á því, að fram að síðasta aðalsafnaðarfundi höfðu að- eins verið þrír sóknarnefndarfor- menn, sá fýrsti Axel L. Sveins, síðan Guðmundur Hansson og eru báðir látnir og rúma tvo áratugi hélt Ás- björn Bjömsson um stjórnartaumana af lipurð og þrótti. Verður honum einnig þakkað við messuna á sunnu- daginn. og safnaðarfulltrúar hafa aðeins verið tveir öll þessi ár, fyrst Hákon Guðmundsson og síðan Öttó A. Michelsen, en hann tók við af Ásbirni sem formaður. Og safnaðar- fulltrúi, hinn þriðji í sögu safnaðar- ins, er Helgi Eysteinsson. Að lokinni guðsþjónustunni á Slrigaskór barna Gulir, grænir og bláir Stærðir: 21-28 Verð kr. 39(1.- UUmGS5>SIMI:62m sunnudaginn verður prestshjónunum þakkað í kirkjunni, en þáttur frú Ebbu mun vart síðri en manns henn- ar. Síðan verður gengið í safnaðarsa- lina, þar sem góðgjörðir verða fram reiddar í boði sóknarnefndarinnar og tóm gefst til að rifja upp liðna viðburði og samskipti frá aldaríjórð- ungnum, þar sem þjónusta prests kemur við sögu. Einnig mun orga- nistinn, Guðni Þ. Guðmundsson, og fólk hans auka við gleði með tónlist sinni. (Frá sóknarncfnd Bústaðaprestakalls) •4 u ú getur sparað tugi þúsunda í sumarleyfinu j, ð á Costa del Sol eða Benidorm Á morgun, sunnudag, kynnum við þér hjá Veröld nýjan valmöguleika í sumarleyfinu og hvernig þú getur komist í fríið á ódýrari hátt, en fengið samt sem áður gulltryggt sumarleyfi. SJÁ NÁNAR HÉR í MORGUNBLAÐINU Á BLAÐ- SIÐUM 9,31 og 29c AMORGUN ii FERfiRMIflSTOBtN W, Austurstræti 17, sími 622200 íllÉlllti BYGGINGAMARKAÐUR jVESTURBÆJAR HRINGBRAUT 120 SÍMI 91-28600 OPIN BÚÐ ALLA LAUGARDAGA FRÁ 10.00-16.00. MÁLN- ING, BYGGINGAVÖRUR, VERKF/ERI, TEPPI, DÚKAR, FLÍSAR, HREINLÆTISTÆKI, PÍPULAGNAEFNI, INNRÉTTINGAR, PARKET, KLÆÐNINGAR. STÓRGLÆSILEG BYGGINGAVÖRUVERSLUN AÐ HRINGBRAUT 120. VEL BYGGT í BORG OG B/E

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.