Morgunblaðið - 10.06.1989, Page 46

Morgunblaðið - 10.06.1989, Page 46
^Í6 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989 Vinnie Jones hefur verið seldur til Leeds, í 2. deild, og margir leikmenn 1. deildar geta því andað léttar. ■ VJNNIE Jones, hinn umdeildi miðherji Wimbledon, var í gær seldur til Leeds, sem leikur í 2. deild, fyrir 650.000 pund. Sam Hammam, forstjóri Wimbledon, sagði að Jones heði viljað fara persónuiegum ástæðum. Hann sagði einnig að eftir að Jones „skallaði“ Kevin Ratclifife, í leik Wimbledon og Everton, hefði áhugi félaga aukist verulega. „Næstu tvo daga höfðu sex eða sjö lið samband og vildu vita hvort hann væri á lausu,“ sagði Hamm- am. ■ GEORG Graha.ni, fram- kvæmdastjóri Arsenal, hlaut titill- inn framkvæmdastjóri ársins. M TALANDI um framkvæmda- stjóra, þá hefur framkvæmdastjóri Charlton, Lenny Lowence, sem tókst hið ótrúlega; að halda Charl- ton í deildinni, skrifað undir tveggja ára samning við liðið. ■ COVENTRY er búið að kaupa Franz Carr, frá Nottingham For- est fyrir 500 þúsund pund. Þykja þetta góð kaup, því Carr er gífur- lega fljótur framheiji, og hefur jafn- vel verið talinn almesti hlaupagikk- urinn í ensku deildinni. ■ JOHN McCIelland hefur verið seldur frá Watford til Leeds fyrir 150.000 pund. McCIelIand er n-írskur landsliðsmaður, og hefur þótt fantagóður vamarmaður. ■ MANCHESTER United j-^eiddi fram öllu meiri fjárupphæð, eða 750 þúsund pund, fyrir hinn 27 ára gamla Michael Phelan, sem var hjá Norwich. Phelan heim- sótti Old Trafiford á dögunum og var alveg yfir sig hrifinn af öllum aðstæðum. KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Detroit vann aftur Sigraði Lakers 108:105 í æsispennandi leik. Magic Johnson fór meiddur af leikvelli DETROIT Pistons gerði sér lítið fyrir og sigraði meistaranana, Los Angeles Lakers, 108:105 í æsispennandi leik í annarri við- ureign liðanna í úrslitakeppni bandarísku NBA-deildarinnar. Leikurinn fór fram í Detroit í fyrrakvöld. Þar með hefur Detroit 2:0 forystu í einvíginu en næstu þrír leikir munu fara fram í Los Angeles. Lakers hafði yfirhöndina framan af og var yfir 62:56 í hálfleik. Heimamenn sóttu síðan í sig veðrið og staðan var orðin 75:75 þegar Lakers varð fyrir afdrifaríku áfalli. Magic Johnson meiddist og þurfti að fara af leikvelli. Snemma í ijórða og síðasta leik- hluta náði Detroit góðri forystu með frábærum leikkafla og skoraði þá 12 stig gegn einu stigi Lakers. En leikmenn Lakers gáfust ekki upp. Með mikilli baráttu tókst þeim að minnka muninn í 106:104 þegar tuttugu og ein sekúnda var eftir. Detroit missti boltann þegar átta sekúndur voru eftir og James Wort- hy fiskaði strax tvö vítaskot. Þar með hafði Los Angelesliðið tæki- færi á að jafna. En Worthy hitti aðeins úr öðru skoti sínu og Isiah Thomas gulltryggði Detroit síðan sigurinn með tveimur stigum úr vítaskotum í lokin. Joe Dumars átti stórleik og skor- aði 33 stig fyrir Detroit en Isiah Thomas gerði 21. James Worthy og Michael Cooper voru stigahæstir hjá Lakers með 19 stig. Næstu þrír leikir verða í Los Angeles. Leikmenn Lakers verða aldeilis að taka á honum stóra sínum ef þeir ætla sér að vinna titil- inn þriðja árið í röð. Aðeins tvisvar áður hefur það komið fyrir, að lið hafi unnið titilinn eftir að hafa tap- að tveimur fyrstu leikjunum í loka- keppninni í NBA-deildinni. Lið Detroit er þekkt fyrir sterka vöm og hér er Magie Johnson umkringdur í vítateig liðsins. Magic meiddist í leiknum og óvíst hvort hann verður með í þriðja leiknum. TENNIS / OPNA FRANSKA MEISTARAMÓTIÐ HANDBOLTI Edberg og Chang í úrslit Chang sá yngsti sem náð hefur að leika til úrslita Stefan Edberg fær það erfiða hlutverk að hemja hinn unga Michael Chang í úrslitaleik opna franska meistaramótsins. ÞAÐ verða Stefan Edberg frá Svíþjóð og Michael Chang frá Bandaríkjunum sem mætast í úrslitum á opna franska meist- aramótinu ítennis. Chang sigr- aði Sovétmanninn Andrei Chesnokov í undanúrslitum og Edberg vann Boris Beckerfrá Vestur-Þýskalandi. Chang, sem er aðeins 17 ára, er sá yngsti sem náð hefur í úrslit á mótinu. Mats Wilander var hálfu ári yngri er hann lék til úr- slita 1982. Chang hefur því ekki mikla reynslu en það kemur ekki að sök. Hann lék mjög vel gegn Chesnokov og sigraði , 6:1, 5:7, 7:6 og 7:, í rúmlega ijögurra tíma leik. Chang var þó ekki jafn vinsæll með áhorfenda á Roland Garros vellinum og þegar hann sigraði Lendl. Chang kvartaði undan dóm- gæslu hvað eftir annað og því var það Chesnokov sem var hvattur til dáða af áhorfendum. Það var þó ekki nóg því Chang lék af öryggi og festu og náði að fylgja góðri byijun eftir. Edberg sigraði Becker í skemmti- legum og spennandi leik, 6:3, 6:4, 5:7, 3:6 og 6:2 og komst þar með í úrslit í fyrsta sinn. Hann byrjaði vel en síðan gekk allt á afturfótun- um. Becker vann tvo leiki, en Ed- berg var sterkari á endasprettinum. „Það verður erfitt að leika gegn Chang. Maður má ekki leika of aftarlega, heldur að sækja að net- inu,“ sagði Edberg, sem sigraði á Wimbledon-mótinu í fyrra. í úrslitum í kvennaflokki mætast Steffi Graf frá V-Þýskalandi og Arantxa Sanchez frá Spáni og er þar búist við öruggum sigri Graf. Þess má geta að þær leika báðar tvo úrslitaleiki í dag. Graf í tvíliða- leik, ásamt Gabrielu Sabatini, og Sanchez í tvenndarleik ásamt Poracio De LA Pena frá Argentínu. Leikið a laugardög- um í vetur Leikir í 1. deild hefjastkl. 16.30 Íslandsmótið í handknattleik 1989 hefst laugardaginn 7. október. Leikirnir í 1. deild karla fara allir fram á laugardögum kl. 16.30. Ákveðið hefur verið að 10 umferðir verði spilaðar fyrir ára- mót og þrjár strax eftir áramót, en síðan fímm síðustu umferð- imar strax að lokinni heims- meistarakeppninni sem fram fer í Tékkóslóvakíu í lok febrúar. FELAGSLIF Aðalfundur dómara Aðalfundur Handknattleiks- dómarasambands íslands fer fram í íþróttamiðstöðinni í Laugar- dal 19. júní nk. kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. ' 23. LEIKVIKA- 11. juní 1989 í 1 | X12 ,ekld b*?, nepp0' Lauqardagur kl. 20:15 Leikur 1 ReynirS. - Stjarnan Leikur 2 Augnablik - Hafnir Leikur 3 Grindavík Breiðablik Leikur 4 Árvakur - Víkverji Leikur 5 Vídir - Í.K. Leikur 6 Selfoss- Víkingur Ó. Leikur 7 Í.B.V. Stokkseyri Leikur 8 Þróttur R. - Njardvík Leikur 9 Tindastóll - K.S. Leikur 10 Leiftur - Völsungur Leikur 11 Höttur - Leiknir F. Leikur 12 Þróttur N. - Huginn Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002 Ath, breyttan lokunartíma! Ath; TVÓFALDUR POTTUR Um helgina Knattspyrna Laugardagur: 1. d. kv Þór A.-íA..........14 1. d. kv KR-Stjarnan........14 1. d. kv Valur-UBK.........14 4. d. B. Geisli—Flölnir......14 4. d. D. SM—Neisti...........14 4. d. D. UMSEb—Efling........14 4. d. D. HSÞb-Hvöt...........14 4. d. E. KSH—Leiknir F.......14 Sunnudagur: Bikark. Reynir—Stjarnan.....14 Bikark. Augnablik—Hafnir....14 Bikark. Grindvik-UBK.........14 Bikark. Árvakur—Víkverji.....14 Bikark. Víðir-ÍK........... 14 Bikark. Selfoss—VíkingurÓl...14 Bikark. ÍBV—Stokkseyri.......14 Bikark. Þróttur R,— Njarðvík.14 Bikark. Tindastóll-KS........14 Bikark. Leiftur—Völsungur....14 Bikark. Höttur—Leiknir F....14 Bikark. Þróttur N.—Huginn....14 Golf Golfklúbbur Mosfellssveitar heldur opið golfmót í dag. Leiknar verða 18 holur með eða án forgjafar og hefst mótið kl.9.00. Öldungamót á Nesvelli hófst í morgun og verða leiknar 36 holur í dag og á morgun. Skráning í mótið fer fram í klúbbhúsinu. Golfklúbbur Reykjavíkur stendur fyrir opnu móti í Grafarholti í dag. Leiknar verða 18 holur með forgjöf. Golfklúbburinn Keilir stendur fyrir opnu kvennamóti i golfi í Hafnarfirði í dag. Ræst verður út frá kl. 10. TENNIS Einar ráðinn þjálfari TSÍ Tennissamband Islands hefur ráðið Einar A. Sigurgeirsson sem þjálfara í sumar. Einar hefur búið í Ástralíu frá fjögurra ára aldri, en fluttisttil íslands sl. haust. Einar byrjaði að spila tennis 14 ára gamall heima hjá sér í Perth í Ástralíu. Hann fluttist til Sidney 1986 og bjó þar hjá frægum tennis- kennara, Don Champion. Þar fág- aði hann tennisslátt sinn og kynnt- ist einnig viðskiptalegri hlið máls- ins. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir tennisþjálfun og átt velgengni að fagna í leik sínum. I vetur var hann í háskóla í Alabama á fríum skólagjöldum vegna tennisíþróttar- innar. Hann tók þátt í nokkrum mótum fyrir skólann sinn og fyrir skömmu lék hann til úrslita á Gulf South Conference. Kennslan hefst 12. júní og fer hún fram á planinu við gervigrasið Einar A. Sigurgeirsson, nýráðinn þjálfari TSÍ. í Laugardal þar sem komið verður upp flórum völlum. Námskeiðin eru öllum opin en hvert þeirra er fjórir tímar á tveimur vikum. Skráning fer fram hjá ÍSÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.