Morgunblaðið - 10.06.1989, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989
Valt í slippn um
í fyrrakvöld átti það óhapp sér
stað hjá Dráttarbraut Siglu-
fjarðar, að báturinn Magnús
EA frá Grímsey, sem verið var
að draga út, fór út af sleðanum
og lagðist á hliðina. Vel gekk
að koma bátnum aftur á réttan
hjöl og var krani notaður til
þess verks. Nokkur borð brotn-
uðu en að öðru leyti urðu litlar
skemmdir á bátnum.
Morgunblaðið/Matthías
Stálvinnslan hf. selur
flokkunarvél til Japans
Kaupmannahöfn, frá Hirti Gíslasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
STALVINNSLAN hf. í Reykjavík
hefur nú náð samningum um sölu
á flokkunarvél fyrir síld, makríl
og skyldar fisktegundir til Jap-
ans. Samningar þessir náðust
fyrir milligöngu umboðsmanns
Stálvinnslunnar á Nýja-Sjálandi.
Flokkunarvélar af þessu tagi frá
Stálvinnslunni eru nú í notkun
F allhlífarstökksmót:
40 manna
stjarna
yfirFlúðum
Alþjóðlegt fallhlífarstökksmót
verður haldið á Islandi í fyrsta
sinn dagana 18. til 25.júní. Það
er Fallhlífarsamband íslands sem
stendur fyrir mótinu sem fer
fram á Flúðum. Að sögn Sigurðar
Baldurssonar, eins af forkólfum
sambandsins, hefur undirbúning-
urinn staðið síðan í ágúst á
síðasta ári og sé óhætt að segja
að undirtektir meðal útlendinga
hafi verið frábærar, en alls koma
70 stökkvarar frá 12 löndum, þar
á meðal ýmsir af þekktustu
stökkvurum heims, svo sem
Jerry Bird og Larry Boudreau.
„Þetta verður meira mót en
keppni þótt menn séu alltaf að
reyna með sér, mótsdaganna verða
Twin Otter flugvélar í reglulegum
ferðum yfir mótssvæðið með stök-
kvara og áætlað er að fyrsti 40 -
manna stjarnan yfir íslandi verði
myndaður meðan að á mótinu
stendur,“ sagði Sigurður Baldurs-
son.
Sigurður sagði að lokum að
vænst væri mikillar þátttöku og að
á Flúðum væri ákjósanleg aðstaða
til fallhlífarstökks. „Eitt af því sem
boðið verður upp á er það sem við
köllum farþegastökk, farþeginn
verður spenntur framan á kennara,
fer í 30 sekúndna fijálst fall og
stjórnar síðan fallhlífinni undir leið-
sögn kennarans á leiðinni niður,“
sagði Sigurður.
víða um heirn, flestar í Danmörku
og á Irlandi, en markaður fyrir
þær er einnig töluverður í Nor-
egi.
Þráinn Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri Stálvinnslunnar,
STAVA eins og hún heitir erlendis,
sagði í samtali við Morgunblaðið á
sjávarútvegssýningunni í Bella
Center í Kaupmannahöfn, að hann
byndi vonir við frekari viðskipti í
austurlöndum í kjölfar þessa. „Ég
hef ætíð náð árangri á þeim mörk-
uðum, sem ég hef á annað borð
komist inn á.“ Hann sagði að þegar
ísinn hefði verið brotinn í Dan-
mörku, hefði salan orðið mikil, nú
væru yfir 20 flokkunarvélar frá
STAVA í Hirtshals, Skagen, Es-
bjerg og víðar. Svipaða sögu mætti
segja um írland, þangað væru nú
komnar um 20 vélar. Hann hefði
kynnt vélina á sjávarútvegssýning-
unni í Þrándheimi í fyrra og nú
Því var stolið laust eftir hádegi
í bakgarði húss við Frakkastíg þar
sem eigandinn, tólf ára stúlka á
heima. Skömmu síðar mættu tvær
vinkonur eigandans manninum á
ferð með hjólið. Þær gáfu sig á tal
við hann, söguðust þekkja eigand-
ann, sýndu honum að þær kynnu á
lásinn og báðu hann að sieppa hjól-
inu. Þá æstist maðurinn og hafði í
hótunum við telpurnar sem urðu
hræddar og forðuðu sér. Þær
hringdu á Iögreglu og fóru með
henni í eftirlitsferð um nágrennið
en þá var maðurinn á bak og burt.
Sama kvöld barst svo lögreglu
tilkynning úr Vesturbænum um
væru 7 vélar seldar þar, flestar um
borð í fiskiskip.
„Þetta er árangur þrotlausrar
vinnu og mikils kostnaðar. Því er
ánægjulegt að sjá hve áhuginn er
mikill og hve viða,“ segir Þráinn.
STAVA sýnir hér einnig nýja
flokkunarvél fyrir lifandi lax og'sil-
ung. Vélin flokkar fiskinn eftir
stærð, þannig að þegar hann er
settur í ker eða kvíar er betur hægt
að velja saman heppilegar stærðir
og þannig spara verulega fóðrun.
Einnig er hægt að flokka fiskinn
fyrir slátrun, þannig að aðeins verði
slátrað þeim fiski, sem er af réttri
stærð.
„Með þessu geta menn sparað
um hálfa milljón króna á mánuði
með markvissari og réttari fóðrun
og munar miklu um það. Vélin hef-
ur verið í notkun frá áramótum í
íslenskri fiskeldistöð og hefur
reynst afburðavel,“ segir Þráinn.
hjólum. Þegar lögreglan kom að
læsti maðurinn sig inni í íbúð sinni
og var ekki til viðtals. Lögreglan
hafði á brott með sér hjólin tvö,
kom öðru í réttar hendur en varð-
veitir hitt uns eigandinn vitjar þess.
Að sögn Ómars Smára Armanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns er
talsvert um að reiðhjólum sé stolið
í borginni og taldi hann fulla ástæðu
til að hvetja fólk til að ganga þann-
ig frá hjólum sínum að óráðfvandir
falli ekki í freistni. Á dögunum
hélt lögrelgan árlegt uppboð á reið-
hjólum sem eru í óskilum í vörsiu
hennar. Á annað hundrað reiðhjóla
seldist.
Lögreglan:
Sjötugur gmnaður um
að stela reiðhjólum
LÖGREGLAN í Reykjavík lagði á fimmtudagskvöld hald á tvö kvenn-
mannsreiðþj61 sem maður um sjötugt hafði tekið ofrjalsri hendi og
flutt heim til sín. Ekki er vitað um eiganda annars hjólsins, sem er
blátt af gerðinni Savannah, en hitt er nú komið i réttar hendur.
mann sem virtist sanka að sér reið-
Þorsteinn vill Davíð á þing:
„Engin krossferð
í gangi með það að
koma mér á þing“
— segir Davíð Oddsson, borgarstjóri
ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist telja það
eðlilegt og að hann sé þess mjög hveljandi að Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, komi til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur
fram í viðtali tímaritsins Þjóðlífs við Þorstein. Orðrétt segir Þor-
steinn: „Ég vil að Davíð komi til liðs við okkur á þingi. Mér finnst
það sjálfsagt mál. Það hafa fyrri borgarstjórar Sjálfstæðisflokksins
gert og kominn tími til að Davíð geri það lika.“
„Þetta hefur ekki verið rætt með
neinum formlegum hætti og hjá
flokknum er það þannig að það eru
flokksmennimir sem taka ákvörðun
um það hvort menn fara á þing eða
ekki,“ sagði Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins spurði hann hvort hann
ætlaði að sinna liðsköllun formanns
flokksins og gefa kost á sér á lista
Sjálfstæðisflokksins til næstu al-
þingiskosninga.
Davíð benti á hinn bóginn á að
það væri alþekkt staðreynd að borg-
arstjórar væru þingmenn einnig.
„Reyndar hélt Bjami Benediktsson
því fram á sínum tíma, að það
væri ekki hægt að vera borgar-
stjóri án þess að sitja jafnframt á
þingi. Það kann nú að hafa verið
þannig þá, en ég hugsa nú að það
sé hægd; nú,“ sagði Davíð. „Ég hef
enga ákvörðun tekið," sagði Davíð,
„og satt best að segja þá er engin
krossferð í gangi með það að koma
mér á þing.“
Þorsteinn er í viðtalinu spurður
hvort Sjálfstæðisflokkurinn stefni
að því að mynda einn ríkisstjórn
að afloknum næstu alþingiskosn-
ingum. Hann segir flokkinn hafa
verið víðsfjarri að ná slíku fylgi, en
hins vegar geti verið að aðstæður
séu að breytast talsvert, ekki síst
eftir yfirlýsingu Ólafs Ragnars
Grímssonar um að stjómin stefni
að því að sitja áfram. Þorsteinn
segir það vera ljóst að margt ftjáls-
lynt fólk sem treyst hafi Alþýðu-
flokki og Framsóknarflokki fyrir
atkvæði sínu, muni ekki fara „með
þessum flokkum á bólakaf í áfram-
haldandi vinstri ríkisstjóm til þess
að auka miðstýringu. Það getur vel
verið að þarna sé að koma upp staða
sem kalli á sterka borgaralega ríkis-
stjórn undir forystu sjálfstæðis-
manna," segir Þorsteinn.
Þorsteinn segir að fyrsta skrefið
sem Sjálfstæðisflokkurinn vilji
stíga, næst þegar hann fer í ríkis-
stjórn, sé að leiðrétta rekstrarskil-
yrði undirstöðuatvinnuveganna
með almennum aðgerðum. „Það
þarf að ganga lengra en gert hefur
verið í að leiðrétta raungengi krón-
unnar,“ segir Þorsteinn og síðar
segir hann: „Ef við höldum áfram
á þessari braut, þá versna lífskjörin
og hagur heimilanna. Vitaskuld
kostar það tímabundna fórn að leið-
rétta rekstrarstöðu atvinnuveg-
anna. En þar verða verðmætin til
og einungis með öflugu atvinnulífi
getum við bætt lífskjörin."
Landsbankinn:
Vextir hækka á hluta
óverðtryggðra lána
BANKARAÐ Landsbankans
samþykkti á fiindi sínum í gær
að hækka vexti af hluta óverð-
tryggðra útlána frá og með 11.
Hjón villast
í óbyggðum
HJÁLPARSVEITARMENN frá
Laugarvatni fiindu í gærmorgun
hjón úr Kópavogi, sem villst
höfðu á leiðinni frá Meyjarsæti
norður af Þingvöllum að Hlöðu-
felli.
Hjónin lögðu af stað á þriðjudag-
inn og var farið að sakna þeirra á
miðvikudagskvöld. Björgunarsveitir
af Suðurlandi fóm í kjölfar þess
að leita þeirra og fundust þau í
gærmorgun upp undir Langjökli.
Hjónin, sem vom á gönguskíðum,
höfðu þá verið á ferðinni í þijá sólar-
hringa og töldu björgunarsveitar-
menn að þau hefðu gengið um 140
kílómetra.
Sprengjuhótun
í Flugleiðavél
SKÖMMU fyrir hádegi í gær
barst flugumferðarsljórn á
Fornebu-flugvelli við Osló aðvör-
un um að sprengja væri um borð
í flugvél Flugleiða, sem átti að
fara að leggja af stað til Keflavík-
ur.
Um klukkustundarseinkun varð
á fluginu á meðan lögregla gekk
úr skugga um að í vélinni væri
enga sprengju að finna.
júní nk. Víxilvextir hækka ur
28% í 31% og vextir af yfirdrátt-
arlánum hækka úr 31,5% í 34,5%.
Frá og með 21. júní hækka vext-
ir af óverðtryggðum skuldabréf-
um úr 30,5% í 33,5% og vextir
af afurðalánum i íslenskum krón-
um úr 27,5% í 30,5%.
Bankaráðið samþykkti ennfrem-
ur að hækka vexti af almennum
sparisjóðsbókum úr 15% í 17% og
vexti af Einkareikningi úr 14% í
16%.
Hætt var við hækkun vaxta af
' verðtryggðum skuldabréfum sem
eru nú 7,25% hjá Landsbankanum.
Búnaðarbankinn hækkaði vexti af
slíkum lánum úr 7,25% í 8,25%
fyrir skömmu og hjá öðrum banka-
stofnunum eru algengir vextir af
verðtryggðum skuldabréfum á bil-
inu 7,75%-9,25%.
Iðuim kaup-
ir Lögberg
BÓKAFORLAGIÐ Iðunn hefiir
keypt Bókaforlagið Lögberg.
Lögberg verður rekið áfram á
sama hátt og verið hefur.
Nú er unnið að frekari útgáfu
handrita í samvinnu við Árnastofn-
un og listaverkabóka sem gefnar
eru út í samvinnu við Listasafn
ASÍ. Lögberg og Árrnastofnun
vinna að útgáfu Stjórnar og Kon-
ungsbókar Eddukvæða og hjá Lög-
bergi og Listasafni ASÍ er væntan-
leg bók um Hring Jóhannesson list-
málara. Fleiri listaverkabækur eru
í undirbúningi auk annarra bóka.
Sverrir Kristinsson hefur áfram
yfirumsjón með útgáfu Lögbergs.