Morgunblaðið - 10.06.1989, Síða 14

Morgunblaðið - 10.06.1989, Síða 14
14 HÍÓRGUNBLAÐID LÍÍjIÍáÍiIÍAGÍÍr 10. JÚNí' 1989 Epla-góðgæti með þeyttum rjóma Tveir gimilegir eplaréttir sem bæði má bera fram með kaffinu og nota sem eftirrétti. Fyrst kemur: (mynd nr. 1) Epla „omeletta“, fyrir 4-5 500 g epli (gul), 100 g púðursykur, 1 tesk. kanill. 3 egg, 1 tesk. sykur, 1 tesk. vanillusykur, 1 matsk. kartöflumjöl, Svo kemur hér: (mynd nr. 2) Eplakaka Unnu 2 frekar súr epli, 2 egg, 300 g sykur, 2 dl gróft saxaðir valhnetu- kjamar, 2 dl rúsínur, 134 dl matarolía, 150 g hveiti, 2 tesk. lyftiduft, 2 tesk. kanill. Örlítið af flórsykri til að strá yfír kökuna. 214 dl ijómi og ijómi til að þeyta. Afhýðið eplin, skerið þau í litla bita og sjóðið þau í púðursykrin- um. Látið krauma við vægan hita þar til eplin eru mauksoðin. Látið eplamaukið í eldfasta skál og strá- ið kanil yfír. Hrærið saman eggjum, sykri og vanillusykri. Bætið kartöflu- mjölinu út í ásamt ijómanum og hellið þessu yfír eplamaukið. Bak- ið í um 180 gráðu heitum ofni í um 50 mínútur (skemur í blásturs- ofni). ískældur þeyttur ijómi borinn með, eða mjúk-ís. Kakan er bezt ef hún er borðuð volg. Afhýðið eplin og skerið þau í litla ferninga. Hrærið saman egg og sykur þar til létt og ljóst. Bætið þá út í eplateningum, hnetum, rúsínum og matarolíu. Blandið hveitið með lyftidufti og kanil og hrærið þessu varlega saman við eggjahræruna. Látið í kringlótt, smurt kökuform og bakið í um 1 klst. í 175 gráðu heitum ofni. Þegar kakan er full bökuð, látið hana kólna aðeins og stráið svo flórsykri yfír hana. Berið kökuna fram volga með þeyttum ijóma eða mjúk-ís. Verði ykkur að góðu, Jórunn. Þingkonum Kvenna- listans skiptút Á vorfiindi Kvennalistans, sem haldinn var í Skálholti um síðustu helgi, var ákveðið fyrirkomulagið við að skipta út þingkonum list- ans. Kristín Halldórsdóttir og Guðrún Agnarsdóttir munu víkja fyrir Önnu Ólafsdóttur Björnsson og Guðrúnu Halldórsdóttur. Anna mun koma inn á þing strax í haust en vegna anna getur Guðrún Halldórsdóttir ekki tekið við af Guð- rúnu Agnarsdóttur fyrr en um ára- mót. Nokkuð skiptar skoðanir hafa verið að undanförnu um þetta fyrir- komulag innan Kvennalistans og urðu töluverðar umræður um málið á vorfundinum. Þeim umræðum lykt- aði með fyrrgreindri niðurstöðu. Avenida 9 Julio, breiðast af strætum Buenos Aires. Á því miðju er hvít steinsúla, sem reist var á 400 ára afinæli borgarinnar árið 1936. Kvöld í Buenos Aires eftirlngólf Guðbrandsson Nóttin hangir í greinum tijánna. Bráðum leggst hún yfir breiðstræt- in og hvolfist yfir mannhafið á leið frá vinnu og streymir niður í jörðina á Avendia de Mayo í „subte“, eins og þeir kalla neðanjarðarbrautina. Hver trúir að loftið sé svona hreint í milljónaborg og mátulega svalt? Buenos Aires stendur undir nafni, „Borg hins góða lofts“. Umferðin ryðst ekki áfram eins og í París, hún líður fram eins og lygn elfur, eins og „Silfurfljot, Rio de la Plata“, en á bökkum þess stendur þessi höfuðborg suðurhvelsins. Dyraverðir fínu hótelanna vísa gestum upp í nýjar límosínur, en aðrir leigubílar flestir eru forngripir á okkar mælikvarða. Samt trúirðu ekki verðinu, þegar bílstjórinn segir 60 ástralir, sem jafngildir 40 krón- um fyrir ferð milli hverfa, og hváir ósjálfrátt, — Como? Áróðursspjöldin brosa af veggj- unum með Viva Menem! og Arg- entína — futuro para todos! — framtíð fyrir alla og fallegum lit- myndum af forsetaefnum. Kosning- ar fara í hönd. Bankarnir eru lokað- ir og allir seðlar búnir. Peningum fæst allt í einu ekki skipt. Enginn fárast yfir því nema fáráðir útlend- ingar. Nú verður gengið ekki fellt meir. Þig minnir að J)ú hafir líka heyrt þetta heima á Islandi. Tvö hundruð ára afmælis frönsku byltingarinnar er veglega minnzt í ár í Frakklandi og víðar um heims- byggðina. Senn minnast menn þess, að 500 ár eru liðin frá því að Kolum- bus fann Suður-Ameríku, sem er 33 sinnum stærri en Pýreneaskag- inn. Samt héldu Spánveijar og Port- úgalir að þeir gætu stjórnað þessum heimshluta eins og hverri annarri hjáleigu. Þeim sást yfir að fólk skýt- ur rótum í nýju umhverfi, rétt eins og jarðargróður, séu lífsskilyrðin hagstæð. Franska stjómarbyltingin átti sér bergmál í Suður-Ameríku. Það voru ekki stríðshijáðir frum- byggjarnir, sem risu upp og kröfð- ust frelsis, heldur afkomendur land- nemanna frá Evrópu, sem höfðu fundð miklu meiri landgæði en þeir þekktu úr heimalandinu og vildu njóta auðsins og erfiðis síns sjálfir. A 15 árum, frá 1810—1825, losaði öll Suður-Ameríka sig úr viðjum spænsks herradóms. Þessir sögulegu atburðir og stað- reyndir standa þér ljóslifandi fyrir sjónum, þar sem þú situr inni á Café Tortoni yfir ilmandi bolla. Kaffihúsin eru ríkur þáttur í lífi los Portenos, eins og íbúar Buenos Air- es eru nefndir í daglegu tali. Án kaffihúsa væri engin Buenos Aires. Þau gegna meira fræðslu- og skemmtihlutverki en sjónvarpið og koma líkast til í stað þess. Sama gegnir um steikarhúsin og aðra veitingastaði. Þeir eru eins og klæðaskerasaumaðir á lífsmunstrið. Asalaust fas fólksins kemur þægi- lega á óvart, ekkert kapphlaup við tímann. Tónlistin er lágstillt, tal fólksins einnig. Engir glymskrattar æpandi á þig úr hveiju horni. Hvílíkur léttir, þú varpar öndinni af feginleik. Spænskan hefur annan hljóm hér en á Spáni, tónn hennar annar, mýkrí, melódískur, seiðandi. Áhrif ítölskunnar eru greinileg í Ingólfur Guðbrandsson „ Andrúm þess stíls, sem mótaði mannlíf Evrópu millistríðsáranna, þekki ég aðeins af bók- um Tomasar Mann, Stefans Zweig, Laxness og annarra snilldar- höfiinda. Sú veröld er nú horfin Vestur-Evr- ópu og ég hélt hún væri að eilífu týnd og glötuð. En hún býr enn og blómstrar í Buenos Air- es.“ tungutakinu. Nöfn eru ítölsk og frönsk, ekki síður en spænsk. Italir voru líka langfjölmennastir í hópi 6 milljóna, sem fluttust til Argentínu frá Evrópu í seinna landnáminu á árunum 1860—1930. Alls staðar þessi ítalsk-franski hreimur og keimur. Nöfn verzlan- anna - boutiques - í Floridastræti Santarelli, Pellegrini, Emilio Bian- co, Ted Lapidus, L’Epoque. Líklega er hægt að gera hér heimsins bestu kaup í leður- og skinnavörum, ull- arflíkum, skartgripum og antík. En það er nú ekki efst í huga. Hér er allt falt en án þeirrar ágengu áreitni sölumennskunnar, sem annars læt- ur þig hvergi í friði. Hér siturðu loksins og trúir því varla. Café Tortoni var eins og annað heimili frægra rithöfunda, Cólon-leikhúsið í Buenos Aires er talið í röð frægustu óperuhúsa í heimi. Á risastóru sviði þess hafa komið íram mestu snillingar söng- og danslistar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.