Morgunblaðið - 10.06.1989, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989
Teodor Shanin, prófessor og sérfræðingur um sovésk málefni:
Sovéskir umbótasinnar leggja
mikla áherslu á siðferðisleg gildi
Hagsögufélag íslands bauð
fyrir skömmu hingað til lands
Teodor Shanin, prófessor í fé-
lagsfræði og sérfræðingi í hag-
sögu við háskólann í Manchest-
er. Shanin er forseti félagsvís-
indadeildar háskólans og hefur
ritað margar bækur um sér-
grein sína; þróun bændasam-
félaga. Hann flutti tvo fyrir-
lestra í Lögbergi, hinn fyrri um
smábændur og bændahagkerfi
en sá síðari fjallaði um per-
estrojku, umbótastefhuna í Sov-
étríkjunum þar sem Shanin
hefur stundað rannsóknir.
Shanin fæddist í Vilnius í Lettl-
andi 1930 en fluttist ungur til
ísraels. A sjötta áratugnum
lauk hann doktorsprófi við há-
skólann í Birmingham í Bret-
landi og hefur stundað kennslu
þar i landi síðan. Shanin hefur
góð tengsl við ýmsa áhrifamenn
innan sovésku vísindaakade-
míunnar og nokkra af helstu
ráðgjöfum Míkhails Gor-
batsjovs. Hann hefur ferðast
víða um heim og aðstoðar nem-
endur í mörgum löndum.
Shanin hefur átt mikinn þátt í
því að rannsókiiir og kenningar
sovéska hagfræðingsins Alek-
sanders Tsjajanovs á þriðja og
fjórða áratugnum voru kynntar á
Vesturlöndum. Tsjajanov var
andvígur því að samyrkjubúskap
yrði komið á með valdbeitingu en
Stalín hafði aðrar skoðanir og
varð Tsjajanov að gjalda fyrir það
með lífi sínu 1937. Nú er aftur
farið að lesa rit hans í Sovétríkjun-
um og var það Shanin sem kynnti
þau fyrir um 600 áhugasömum
embættismönnum og fræðimönn-
um er hann hélt fyrirlestur í
Moskvu 1987. Undanfarna mán-
uði hefur málgagn Sovétstjórnar-
innar, Ísveztíja, birt viðtöl við
Shanin um nýsköpun í landbúnaði
og umbætur í Kína.
Er blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Shanin kom fram að
hann er bjartsýnn á framgang
perestrojkurinar enda þótt ekkert
hafi enn miðað í efnahagsumbót-
um og lífskjörum reyndar hrakað
í stjórnartíð Gorbatsjovs. Hann
sagði afturhaldsmenn einfaldlega
ekki geta bent á neina aðra leið
út úr ógöngunum. Mesta hindrun-
in væri andstaða embættismanna
neðarlega í valdastiganum. Þótt
ókyrrðin í jaðarlýðveldunum, þ. á
m. Eystrasaltslöndunum, ylli erf-
iðleikum fyrir Gorbatsjov þá væri
harla ósennilegt að herinn tæki
völdin; engar hefðir væru fyrir
herforingjabyltingum í rúsneskri
sögu.
„Á Vesturlöndum hefur mönn-
um hætt við að einfalda ástandið
í Sovétríkjunum á Brezhnev-
Morgunblaðið/RAX
Teodor Shanin: „Eg er bjart-
sýnn þrátt fyrir efnahagserfið-
leikana; sovéskir afturhalds-
menn geta einfaidlega ekki
bent á aðrar lausnir en per-
estrojku.“
tímanum. Þeir sáu fyrir sér tvo
pólitíska hópa í landinu, annars
vegar afturhald flokksbrodda og
meðreiðarsveina þeirra, hins veg-
ar andófsmenn á borð við Sak-
harov. Það gleymdist að auk þess-
ara tveggja var stór hópur emb-
ættismanna og menntamanna
Sem ekki reis upp gegn öllu kerf-
inu en vildi þó róttækar breyting-
ar, þybbaðist oft við þegar
harðlínuofstækið gekk úr hófi.
Margir þessar manna uppskáru
andúð flokksbroddanna og voru
stöðvaðir á framabrautinni. Þessir
umbótasinnar telja Gorbatsjov
tvímælalaust sinn mann.
Armenski hagfræðingurinn
Abel Aganbegian er dæmigerður
fyrir þennan þriðja hóp. Hann er
einn af höfundum umbótastefn-
unnar og nú meðal nánustu ráð-
gjafa Gorbatsjovs. Á Brezhnev-
árunum var hann ungur kominn
í feita stöðu hjá valdamikilli stofn-
un, gat nýtt sér hlunnindi eins og
utanlandsferðir og fleira því líkt
auk þess sem frekari frami var
tryggður. Yfirmenn hans urðu
furðu lostnir og síðar fokvondir
þegar hann á sjöunda áratugnum
sagði upp, sagðist fremur vilja
sinna fræðilegum rannsóknum og
sótti um starf í Síberíu. Þeim
fannst hann vera svikari; skildi
hann ekki hvað hann hafði það
gott?
Aganbegian nýtti vel tímann í
Síberíu en þar átti sér stað mikil
þensla í efnahagslífinu og skortur
var á sérfræðingum af öllu tagi.
Á tuttugu ára ferli sínum þar
heimsótti hann aragrúa af verk-
smiðjum og samyrkjubúum, ræddi
við starfsfólk á vinnustöðunum.
Hann varð yfirmaður Rannsókna-
stöðvar í hagfræði í Novosibirsk
og síðar félagi í sovésku vísinda-
akademíunni. Smám saman varð
stofnun hans bijóstvirki umbóta-
viðleitni í efnahags- og félagsmál-
um. Aganbegian og Tatjana
Zaslavskaja, yfirmaður félagsví-
sindadeildar stofnunarinnar, mót-
uðu drög að perestrojkunni, sem
Gorbatsjov tók síðan upp á arma
sína.
Vesturlandamenn mega ekki
standa í þeirri villutrú að umbóta-
sinnarnir ætli sér að fara sömu
leiðir og hefðbundin markaðsþjóð-
félög. Markaðslausnir í sovéskum
landbúnaði eru t.d. lítt nothæfar;
sjálfstæð bændastétt er ekki tii
lengur. Þeir hyggjast finna þriðju
leiðina en það er afar óljóst hvar
þeir enda. Eg hygg að einhvers
konar blandað hagkerfi verði
lausnin. Ef til vill verður komið á
ijölflokkákferfi einhvern tíma á
næstu öld en þess ber að gæta
að Rússar hafa enga reynslu af
vestrænu lýðræði. Rússneskur al-
menningur er hræddur við slíkar
hugmyndir, telur að þær myndu
leiða til upplausnar ríkisins.
Umbótasinnar telja ekki að allt
hafi mistekist í Sovétríkjunum;
þeir segja t.d. að unnin hafi verið
stórvirki í menntamálum síðustu
70 árin. Það einkennir mjög alla
umræðu þeirra hve siðferðislegum
gildum er haldið á loft og þau
mikið rædd; markmiðið má ekki
aðeins vera aukinn hagvöxtur
heldur bætt kjör í margvíslegum
skilningi, betra líf landsmanna,"
sagði Teodor Shanin.
HAWÞAUGL YSINGAR
Nauðungaruppboð
Þriðjudaginn 13. júní 1989
fara fram nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum í dómsal
embættisins, Hafnarstræti 1, og hefjast þau kl. 14.00:
Á áhaldahúsi, Hafnarkanti, Suðureyri, þingl. eign Suðureyrarhrepps,
eftir kröfu Útvegsbanka islands. Annað og síðara.
Fjarðarstræti 27, austurenda, ísafirði, þingl. eign Hjálmars Kjartans-
sonar, eftir kröfu Bæjarsjóðs ísafjarðar. Annað og síðara.
Hjallavegi 1, 2. hæð, Flateyri, þingl. eign Rúnars Garðarssonar, eft-
ir kröfu Byggðastofnunar. Annað og síðara.
Hvilft, Flateyrarhreppi, þingl. eign Gunnlaugs Finnssonar, eftir kröfu
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga.
Nesvegi 2, Súðavík, þingl. eign Jónbjörns Björnssonar, eftir kröfu
Jöfurs hf. Annað og síðara.
Rómarstíg 10, Suðureyri, þingl. eign Suðureyrarhrepps, eftir kröfum
Tryggingastofnunar rikisins og Verslunarbanka (slands. Annað og
síðara.
Suðurgötu 11, ísafirði, þingl. eign Niðursuðuverksmiðjunnar hf., eft-
ir kröfu lönþróunarsjóðs. Annað og síðara.
Sætúni 3, Suðureyri, talinni eign Elfars Jóns Friðbertssonar, eftir
kröfu Iðnlánasjóðs. Annað og síðara.
Bæjarfógetinn á ísafirði.
Sýsiumaðurínn i isafjarðarsýslu.
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Gróðursetning í Grafarvogi
Sjálfstæðisfélagið í Grafarvogi gengst fyrir gróðursetningu í Grafar-
vogshverfi kl. 13.00 laugardaginn 10. júní.
Þeir, sem hafa hug á að taka þátt í uppgræðslu okkar ágæta hverf-
is eru beðnir um að mæta við Sjúkrastöðina Vog kl. 13.00 laugardag-
inn 10. júní.
Stjórgin.
Ólafsfirðingar -
Eyfirðingar
Almennur fundur um sjávarútvegsmál verður haldinn á Hóteli Ólafs-
fjarðar þriðjudaginn 13. júní kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Gunnar Þór Magnússon setur fundinn.
2. Halldór Blöndal alþingismaður flytur ávarp.
3. Arnar Sigurmundsson, formaður samtaka fiskvinnslustöðva, og
E>orsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri, ræða stöðu fisk-
vinnslu og útgerðar.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Ólafsfirði.
Sumarferð Varðar 1989
Hin árlega sumarferð Varðar verður farin laugardaginn 1. júli nk.
Fariö verður um Suðurland, i Skálholt, Þjórsárdal, Skriðufellsskóg,
Galtalæk, Gunnarsholt, Eyrarbakka og Óseyrarbrú.
Aðalfararstjóri verður Höskuldur Jónsson, forseti Ferðafélags íslands.
Ræðumenn: Þorsteinn Pálsson og Sveinn Runólfsson, landgræðslu-
stjóri. Nánar auglýst siðar.
Ferðanefnd Varðar.
Hella
íslenskur metnaður og menning
Þuríður Pálsdóttir,
óperusöngkona, og
Kristinn Björnsson,
framkvæmdastjóri,
verða framsögu-
menn á almennum
fundi í Laufafelli á
Hellu miðvikudags-'
kvöldið 14. júni nk.
(fært aftur um einn
dag frá fyrri áætlun)
kl. 21.00. Umræðu-
efnið verður íslensk-
ur metnaður og
menning en fundurinn er á vegum kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks-
ins og sjálfstæðisfélaganna á Suðurlandi. Fólk er hvatt til þess að
mæta á fundinn og taka þátt í líflegum og jákvæðum umræðum um
stöðu og stefnu mála eða bera fram fyrirspurnir.
Á fundinum mun Rangvellingakórinnn syngja nokkur lög undir stjórn
Önnu Magnúsdóttur.
Kjördæmisráð Sjálfstæöisflokksins á Suðurlandi
og sjálfstæöisfélaganna.
fÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
ÍSLANÐS
ÖLDUGÖTU 3
SÍHAR11798 og 19533.
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Laugardag 10. júní kl. 09: Sögu-
slóðir Njálu.
I þessari ferð gefst tækifæri til
þess að heimsækja þá staöi,
sem koma við sögu í Njálu um
leið og sagt verður frá atburð-
um. Verð kr. 1.500. Fararstjóri:
Gunnar Guðmundsson frá Heið-
arbrún.
Sunnudag 11. júní:
a) Kl. 10 - Höskuldarvellir -
Einihlíð - Straumsvík.
Ekið að Höskuldarvöllum. Geng-
ið meðfram Einihlíðum að Mark-
helluhóli, en þaðan er stefnan
tekin i Straumsvík. Verð kr. 800.
b) Kl. 13. Gjásel - Straumsel -
Straumsvík.
Ekin Krýsuvíkurleið og gengið
að Gjáseli og Straumseli, síðan
til Straumsvíkur. Verð 800 kr.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiöar við
bíl. Frítt fyrir unglinga og börn
innan 15 ára.
Miðvikudaginn 14. júní kl. 20.:
Heiðmörk - hugað að cjróðri í
reit Ferðafélagsins. Okeypis
ferð.
Árbók Ferðafélagsins 1989 er
komin út.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Ferðafélag íslands
gengst fyrir göngú- og kynning-
arferð j* Elliðaárdalinn laugar-
daginn 10. júní. Gönguferðin er
liður í dagskrá íþróttadags
Reykjavíkurborgar. Brottför kl.
13.00 frá Fossvogsskóla.
Foreldrar eru hvattir til að koma
í létta gönguferð með börn sín
og kynnast unaðsreit Elliðaár-
hólmans. Fararstjóri: Þórunn
Þórðardóttir.
Ferðafélag íslands.
Bænastund verður í Grensás-
kirkju i dag, laugardag kl. 10.00.
Allir velkomnir.
Krossinn
Auðbrekku 2,200 Kópavogur
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Samkoma á morgun kl. 14.00.
Ath. breyttan samkomutíma.
[|ilj Útivist
Sunnudagsferð 11. júní kl. 13
Landnámsgangan
Létt ganga fyrir alla frá Elliðaár-
brú um Ártúnshöfða, Gullinbrú,
Gufunes og Eiðsvik i Blikastaða-
kró. Þetta er 2. ferð i landsnáms-
göngunni sem frestað var í janú-
ar. Leggjabrjóts og Þingvallaferð
er frestað vegna óhagstæðs
göngufæris til 3. september i
haust.
Sunnudagsferðin er um fallega
gönguleið. Mikið lifriki i Blika-
staðakró. Tilvalin fjölskylduferð.
Verið með í landsnáms-
göngunni. Viðurkenning veitt
fyrir góða þátttöku. Verð kr.
500, frítt fyrir börn með fullorðn-
um. Brottförfrá BSÍ, bensínsölu.
Sjáumst.
Útivist, ferðafélag.