Morgunblaðið - 10.06.1989, Qupperneq 37
,MpRPHNBLAÐjÐ LAljGAROApup 10t
37
Minning:
Svava Amórsdóttir
Fædd 1. ágúst 1919
Dáin 3. júní 1989
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
(V. Briera)
Mig langar að minnast ömmu
minnar, Svövu Arnórsdóttur, sem
lést á Landspítalanum þann þriðja
júní síðastliðinn.
Það er mikil gæfa að eiga ömmu
sem jafnframt er manns besta vin-
kona, en þannig var amma, besta
vinkona barnabarna sinna.
Amma var þeim hæfileikum
gædd að geta brúað kynslóðabilið,
og sjá hlutina frá sjónarhorni mínu.
Á erfiðum stundum unglingsáranna
þegar mér fannst ég vera ein og
yfirgefin og misskilin af öllum, gat
ég þó alltaf leitað til ömmu. Hún
skildi vandamálin svo ofurvel og
átti svo góð ráð.
Já, alltaf frá því ég man fyrst
eftir mér var stórt pláss í hlýju
hjarta ömmu tileinkað bamabörn-
unum, sem nú eru orðin sautján
talsins. Á heimili hennar var ávallt
sérstakur staður ætlaður okkur,
sem amma útbjó og fyllti af bókum
og leikföngum sem valin vom af
alúð og skilningi á því hvað böm
vilja.
Ávallt stóð heimili ömmu mér
opið og þangað leitaði ég mikið og
alltaf fór ég þaðan ríkari bæði af
andlegum og veraldlegum gæðum.
Gjafmildi ömmu var einstök, hún
var alltaf að kaupa eitthvað fallegt
til að gleðja aðra.
Það em margar góðar minningar
sem ég á um ömmu mína, hún var
ákaflega glaðlynd og hress kona
og þrátt fyrir mikil veikindi var allt-
af stutt í glettnína.
Margar góðar stundir sátum við
saman og skröfuðum langt fram á
nótt, um allt milli himins og jarðar,
rétt eins og jafnöldrur. Og það var
margt sem ég lærði á þessum sam-
tölum sem ég fæ ömmu seint full-
þakkað.
Það sem mér er efst í huga á
þessari stundu er þakklæti, þakk-
læti til guðs fyrir að hafa gefið
mér yndislega ömmu sem gaf mér
svo margt. En nú er amma komin
á betri stað, þar sem henni líður
vel, en minningin um hana lifir og
mun lifa í bijóstum okkar.
Ég kveð elskulega ömmu mína.
Gerður
Fyrirlestur um
húsgagnahönnun
DANSKI innanhússarkitektinn
Bárt Henriksen heldur fyrir-
lestur í Epal Faxafeni 7,
Reykjavík, mánudaginn 12. júní
nk.
Yfirskriftin er: „Hvad forstár
man ved godt mebeldesign." Bárt
Henriksen vinnur fyrir danska
húsgagnafyrirtækið Fritz Hansen
og starfar þar í nefnd sem ákvarð-
ar hvaða hlutir eigi að fara í fram-
leiðslu.
Ennfremur sér hann um hönnun
á sýningarbásum og öllum sýning-
um á vegum Fritz Hansen og fyr-
ir það hefur hann hlotið viðurkenn-
ingar. Fyrirlesturinn hefst klukk-
an 17.30.
VELORFID
VINSÆLA.
□ ZENOAH 220 er léttasta orfið á
markaðnum.
Algengir notkunarstaðir:
- HEIMAGARÐAR
- SUMARBÚSTAÐALÓÐIR
Meðal notenda:
- SVEITARFÉLÖG
- ATVINNUMENN
Notaðu ZENOAH vélorf þar sem þú
getur ekki beitt sláttuvélinni, t.d. í kringum
tré, við girðingar eða veggi, á grófgert gras eða
illgresi og á þýfðu eða ójöfnu landi. Kraftmikil, létt
og lágvær. Fáanleg með tveggja eða fjögurra
línu haus.
Góð varahluta- og viðhaldsþjónusta
Opið á laugardögum 10-4
□ ZENOAH 431 er léttbyggt vélorf
sem atvinnumenn nota alian
liðlangan daginn við erfiðar /'/
aðstæður.
FYLGIHLUTIR:
Verkfærasett
Axlarband
Sláttudiskur
Eurocard Visa Raðgreiðslur
Athugið að fyrirtækið er flutt úr Kópavogi
í Nútíðina, Faxafeni 14, Skeifunni
Opið á laugardögum 10-16
G.Á. Pétursson hf.
liátluféla
markaðurlnn Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80
1 \ / /
/ —
J
' V.
í \ 1 1
J
\ \
l\ s ✓
^ J
1N J •.
_ \
V
y
\ \ Nl
\ \
'\ \ /
Gullfalleg garðhúsgögn í sumarbúsfað-
inn, blómagarðinn eða garðstofuna.
Sterk og góð. Þau eru litekta og þola að
standa úti allan órsins hring. Seljum
einnig bœðí lítil og stór blómaker, ein
mest seldu blómaker í Evrópu.
Gœðavara ó góðu verði.
Þriggja óra óbyrgð.
SÝNING LAUGARDAG
0G SUNNUDAG KL. 10-16.
GJCatkEJ
• FAXAFEN 12 • SÍMI 38000 •