Morgunblaðið - 10.06.1989, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1989
47.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þorvaldur Örlygsson skorar hér annað mark KA framhjá Þorfínni Hjaltasyni, markverði KR.
KR-ingum skellt
á Akureyri
BARÁTTUGLAÐIR KA-piltar
unnu verðskuldaðan sigur á
KR-ingum í gærkvöldi, 4:1.
Dugnaður og barátta var aðall
norðanmanna, fagur samleikur
var sjaldséður á mölinni en
hrós skulu þeirfá, KA-ingar,
fyrir leikgleði sína og vilja.
Leikurinn fór fjörlega af stað,
leikmenn beggja liða voru ákaf-
ir og vildu mikið. Þannig komst
KR yfir þegar á 6. mínútu er Pétur
Pétursson skoraði
Magnús Már laglega beint úr
skrifarfrá aukaspyrnu, rétt ut:
Akureyri an vítateigs KA. í
fullu samræmi við
baráttu sína jöfnuðu KA-piltar
mínútu síðar, einnig eftir auka-
spyrnu. Ormarr Örlygsson sendi
fyrir mark KR og þar kom aðvíf-
andi Bjarni Jónsson og skoraði með
föstu skoti, 1:1.
Næstu mínútur var hart barist,
KR-ingar sóttu itieira án þess að
ná alveg fram, en það voru Norðan-
menn sem það gerðu er Þorvaldur
Örlygsson skoraði af miklu harð-
fylgi, 2:1, og þannig var staðan í
leikhléi.
KA byijaði síðari hálfleik vel og
átti nokkrar hættulegar sóknir sem
KR, með Pétur Pétursson sem aðal-
mann, svaraði með tveimur afar
hættulegum sóknum. Er tólf mínút-
ur voru eftir lék Anthony Karl lag-
lega upp vinstri kantinn og átti
fasta sendingu fyrir mark KR. Þasc,
kom Gauti Laxdal og afgreiddi bolt-
ann viðstöðulaust í netið. Jón Grét-
ar skoraði svo skömmu fyrir leiks-
lok laglegt mark, eftir að Stefán
Ólafsson hafði unnið boltann við
vítateig KR.
Gyllilega verðskuldaður sigur KA
var staðreynd og þeirra bestu menn
voru Þorvaldur Örlygsson, er átti
stórleik, Anthony Karl og Haukur
Bragason sem greip mjög vel inní
þegar á þurfti að halda.
Pétur Pétursson á hrós skilið.
Þegar hann er í knettinum gerir
hann allt rétt, skilar boltanum vel
frá sér og er mjög ógnandi.
Færin forgörð-
um hjá Fylki
Krístinn Jens
Sigurþórsson
skrifar.
FYLKISMENN voru allt annað
en lánsamir uppi við mark ÍA
manna í gærkvöldi og miðað
við dauðafærin sem liðið fékk
hefði það átt að skora þrjú
mörk. Ólafur Gottskálksson,
markvörður Skagamanna, stóð
sig hins vegar eins og hetja og
varði hvað eftir annað meist-
aralega.
Skagamenn áttu þó mun meira
í fyrri hálfleiknum og réðu lög-
um og lofum á miðjunni. Þeir fengu
samt ekki nema eitt umtalsvert
marktækifæri í fyrri
hálfieiknum, en þá
komst Aðalsteinn
Víglundsson inn í
sendingu sem ætluð
var markmanninum en skot hans
fór í hliðarnetið.
faém
FOLX
■ ÞORFINNUR Hjaltason
byrjaði ekki vel í fyrsta leik sínum
með KR. Þorvaldur, sem lék áður
með Völsungi, fékk á sig fjögur
mörk gegn KA.
■ BRÆÐURNIR Í Jiði KA:
Ormarr og Þorvaldur Örlygssyn-
ir fóru báðir útaf í leiknum við KR
í gær. Ormarr á 80. mínútu og
Þorvaldur þremur mínútum síðar.
■ DALVÍK sigraði Austra, 2:0,
í leik jiðanna í B-riðli 3. deildar í
gær. Örvar Eiríksson og Guðjón
Antóníusson (víti) gerðu mörk
Dalvíkinga.
■ HOLLENSKI landsliðsmað-
urinn Ruud Gullit skrifaði í gær
undir nýjan samning við AC Mílanó
og batt þar með enda á vangaveltúr
um hvort hann væri á förum frá
félaginu. Samingurinn gildir til árs-
ins 1993 en ekki var gefið upp hve
mikið Gullit mun fá í laun á þessum
tíma. Samningur Marco van Bast-
en rennur út á næsta ári, en hann
hefur verið orðaður við spánska
félagið Barcelona. Forráðamenn
AC Milanó sögðust þó vona að
hann yrði áfram hjá félaginu, enda
stæðu samningaviðræður yfir.
Á 63. mínútu braut Alexander
Högnason gróflega á Erni Valdi-
marssyni, og átti ágætur dómari
leiksins, Gunnar Ingvason, enga
aðra úrkosti en að sýna honum
rauða spjaldið.
Eftir það þyngdu Fylkismenn
sóknirnar og tveimur mínútum síðar
fékk Baldur Þór Bjarnason upplagt
tækifæri til að koma Fylki yfir, en
skot hans fór yfir.
Nokkrum mínútum síðar björg-
uðu Skagamenn naumlega á línu.
Boltinn var gefinn strax fram þar
sem Aðalsteinn Víglundsson tók við
honum, geystist upp kantinn, og
eftir góða fyrirgjöf lá knötturinn
fyrir fótum Haraldar Ingólfssonar,
sem skoraði af öryggi.
Eftir þetta pökkuðu Skagamenn
í vörnina, og ef ekki hefði verið
fyrir Ólaf Gottskálksson í markinu,
hefði Guðmundur Magnússon,
Fylki, átt að skora a.m.k. tvö mörk,
en akróbatískir tilburðir Ólafs björ-
guðu á síðustu stundu.
Morgunblaðiö/RAX
ÖRIM Valdimarsson, Fylki, var tvívegis sparkaður niður í leiknum í gær-
kvöld. Í fyrra skiptið varð Alexander Högnason að víkja af leikvelli fyrir að
hafa brotið gróflega á honum en í seinna skiptið varð Örn að yfírgefa völlinn
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Stefnum beint
til Ítalíu
- sagði Sigi Held í samtali við Sport-Bild.
í SÍÐASTA hefti vestur-þýska
íþróttabiaðsins Sport-Bild er
stutt viðtal við Siegfried Held,
landsliðsþjálfara, ítilefni af
jafnteflinu við Sovétmenn á
Lenínleikvanginum íMoskvu.
Þar er hann spurður út í
möguleika íslands á að kom-
ast í lokakeppni heimsmeist-
arakeppninnar á Ítalíu næsta
sumar.
Held sagði að auðvitað hefði
stefnan nú þegar verið sett
beint á heimsmeistarakeppnina á
Ítaiíu og að tíminn fram að leikn-
um gegn Austurríki yrði að nýt-
ast vel.
„Við höfum krækt f þijú stig;
5 stig hafa tapast, en þar sem
þrír af þeim fjórum leikjum sem
við eigum eftir í undankeppninni,
eru á heimavelli, þá verður að líta
svo á að möguleikar okkar á að
ná öðru sætinu í riðlinum séu
betri en hinna,“ sagði Siegfried
Held.
Hann benti á að liðið hefði á
að skipa nokkrum atvinnumönn-
um, og taldi upp Ásgeir Sigurvins-
son, Arnór Guðjohnsen, Sigurð
Grétarsson og Sigurð Jónsson.
Aðspurður um fyrrum leikmenn
Bayern Uerdingen, sagði Held að
Atli Eðvaldsson væri fyrirliði liðs-
ins, en Lárus Guðmundsson kæm-
ist ekki í liðið.
Held sagði einnig í viðtalinu
að stutt keppnistímabil á íslandi
og fáir leikir kæmu niður á gæð-
um knattspyrnunnar.
Fylkir—IA 0:1
íslandsmótið í knattspyrau, 1. deild,
Árbæjarvöllur, föstudaginn 9. júní
1989.
Mark ÍA: Haraldur Ingólfsson (71.
mín.).
Rautt spjald: Alexander Högnason
(63. mín.).
Lið Fylkis: Guðmundur Baldursson,
Valur Ragnarsson, Gústaf Vífilsson,
Pétur Óskarsson, Gísli Hjálmtýsson,
Ólafur Magnússon, Guðmundur Magn-
ússon, Hilmar Sighvatsson, Anton K.
Jakobsson, Baldur Þor Bjarnason og
Öra Valdimarsson (Óskar Theódórsson
82. mín.).
Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Öm
Gunniaugsson, Heimir Guðmundsson,
Alexander Högnason, Sigurður B.
Jónsson, Karl Þórðarson, Sigursteinn
Gíslason (Július P. Ingólfsson 79.
mín.), Bjarki Pétursson, Aðalsteinn
Viglundsson (Haraldur Hinriksson 85.
mín.), Guðbjörn Tryggvason og Har-
aldur Ingólfsson.
Ölafur Gottskálksson IA. Þor-
valdur Örlygsson KA.
Guðmundur Baldursson og
Hilmar Sighvatsson Fylki.
Aðalsteinn Víglundsson ÍA.
Pétur Pétursson KR. Anthony
Karl Gregory og Haukur
Bragason KA.
2. DEILD
Sigur í
þriðju tilraun
IBV sigraði Leiftur í gær, 3:1, í
leik liðanna í Vestmannaeyjum.
Þetta var þriðja tilraun heima-
manna til að koma leiknum á en
honum hafði verið
Frá Sigfúsi frestað tvívegis.
Guömundssyni Öll mörkin komu
'Vest' í fyrri hálfleik og
mannaeyjum fyrsta á 23
mínútu. Þá gaf Eyjamaðurinn Hlyn-
ur Stefánsson fyrir mark Leifturs.
Tómas Ingi Tómasson sendi knött-
inn að markinu og þar var Ingi
Sigurðsson sem renndi honum yfir
línuna.
Leiftursmenn voru þó ekki á því
að gefast upp og á 40. mínútu jafn-
aði Gústaf Omarsson — lyfti boltan-
um yfir Adolf Óskarsson í marki
ÍBV.
Heimamenn náði svo að gera
útum leikinn fyrir hlé. Sigurlá*-^
Þorleifsson skoraði eftir sendingu
frá Hlyni Stefánssyni og Tómas
Ingi skoraði úr vítaspyrnu sem var
dæmd á Þorvald Jónsson, markvörð
Leifturs, fyrir að bijóta á Hlyni.
KA—KR 4-ÍT
KA-völlur, íslandsmótiö í knattspymu,
1. deild, föstudaginn 9. júní 1989.
Mörk KA: Bjami Jónsson (7.), Þor-
valdur Örlygsson (27.), Gauti Laxdal
(78.), Jón Grétar Jónsson (88.)
Mark KR: Pétur Pétursson (6.)
Dómari: Ólafur Sveinsson — dæmdi'
ágætlega.
Áhorfendun 930.
Lið KA: Haukur Bragason, Steingrím-
ur Birgisson, Erlingur Kristjánsson,
Halldór Halldórsson, Ormarr Örlygsson
(Stefán Ólafsson 80.), Þorvaldur Örl-
ygsson (Ámi Hermannsson 83.), Bjami
Jónsson, Gauti Laxdal, Jón Grétar
Jónsson, Anthony Karl Gregory, Öm
Viðár Amarson.
Lið KR: Þorfínnur Hjaltason, Stefán
Guðmundsson, Jóhann Lapas, Gylfi
Aðalsteinsson, Willum Þór Þórsson,
Sigurður Björgvinsson, Gunnar Odds-
son, Þorsteinn Halldórsson, Bjöm
Rafnsson (Steinar Ingimundarson 23.),
Rúnar Kristinsson (Hilmar Bjömsson
30.), Pétur Pétursson.
1.DEILD
VALUR 4 3 10 4: 0 10
KA 4 2 2 0 7: 2 8
FH 4 2 11 4:2 7
lA 4 2 0 2 4: 5 6
ÞÓR 4 12 1 3: 4 5
FYLKIR 4 1 1 2 5: 5 4
FRAM 4 112 3:6 4
KR 4 112 5: 9 4
ÍBK 4 0 3 1 3:4 3
VÍKINGUR 4 1 0 3 2:3 3