Morgunblaðið - 10.06.1989, Page 48
V^terkurog
k J hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Efstir á blaði
FLUGLEIDIR
LAUGARDAGUR 10. JUNI 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
P
1
Hæstiréttur:
Tveir fikni-
efnasalar
(læmdir
fangelsi
HÆSTIRÉTTUR hefiir dæmt
tvo menn til fangelsisvistar íyrir
fíkniefnabrot. Franklín Kr.
Steiner, 42 ára gamali, var
dæmdur til 20 mánaða fangels-
isvistar en í nóvember 1986
fundust 163,5 grömm af am-
fetamíni á heimili hans í
Reykjavík. Franklín hefur áður
hlotið þunga refsidóma hérlend-
is og erlendis íyrir fíkniefna-
l>rot.
Staðfest var refsiákvörðun hér-
aðsdómara. Sannað þykir, þrátt
fyrir neitun Franklíns, að hann
hafi ætlað að selja efnið í ágóða-
skyni. í maímánuði síðastliðnum
var hann dæmdur til níu manaða
fangelsisvistar í sakadómi í ávana-
og fíkniefnamálum eftir að um 100
grömm af amfetamíni og 300
grömm af hassi fundust í fórum
hans. Hann undi þeim dómi.
Þá staðfesti Hæstiréttur niður-
stöðu héraðsdómara um tveggja
ára fangelsisvist yfir Jóhannesi
Karlssyni, 28 ára gömlum, fyrir
að hafa, ásamt breskum manni,
smyglað til landsins frá banda-
ríkjunum 56 grömm af kókaíni.
Mennimir voru handteknir í mið-
bæ Reykjavíkur með efnið í fórum
sínum í febrúarmánuði síðastliðn-
um. Bretinn var dæmdur í saka-
dómi til 14 mánaða fangelsisvistar
og áfrýjaði ekki.
Tekinná 155
-km hraða
LÖGREGLAN mældi fólksbifreið
á 155 km hraða á Kjalarnesi um
klukkan 22.30 á föstudagskvöld.
Ökumaður bifreiðarinnar, sem
er um þrítugt, var sviptur öku-
leyfi á staðnum.
Morgunblaðið/RAX
Æfíngin skapar...
Hópur aldrafðra skemmti sér konunglega við ýmsar íþróttaiðkanir á gervigrasvellinum í Laugar-
dal fyrir skömmu. Um var að ræða hinn fyrsta af þremur svokölluðum íþróttadögum aldraðra í
sumar. Þessir dagar eru haldnir á vegum Félags áhugamanna um íþróttir aldraðra sem stofiiað
var fyrir 2 árum. Hinir öldruðu komu frá öllum tíu félagsmiðstöðvum aldraðra í Reykjavík.
Síldarvinnslan á
Neskaupstað:
Ekki fæst
leyfi til
bátaskipta
Sjávarútvegsráðuneytið veitti
ekki heimild til þess að Síldar-
vinnslán á Neskaupstað keypti
Júlíus Geirmundsson IS og úrelti
í staðinn Barða NK, að sögn Finn-
boga Jónssonar framkvæmda-
stjóra Síldarvinnslunnar. „Ráðu-
neytið leit svo á að með þessu
móti færu of fáir rúmmetrar í stað-
inn fyrir þá sem kæmu inn, þar
sem nýr Júlíus Geirmundsson
kæmi í rauninni í staðinn fyrir
Barða," sagði Finnbogi í samtali
við Morgunblaðið.
Verið er að smíða nýjan Júiíus
Geirmundsson í Noregi í stað gamla
Júlíusar Geirmundssonar og kemur
hann til landsins í ágúst næstkom-
andi. Finnbogi sagði að eigendur
Júlíusar Geirmundssonar hefðu
skuldbundið sig til að láta hann
hverfa varanlega úr rekstri þegar
nýi togarinn kæmi til landisns. „Við
megum kaupa heldur stærra skip en
Júlíus Geirmundsson ef það er nýtt,
eða yngra en 12 ára, en við megum
ekki kaupa Júlíus. Barði er orðinn
14 ára gamall og eftir 2 til 3 ár
þarf að gera eitthvað í sambandi við
endumýjun okkar skipa.“
Viðræður um sameiningu fiögurra banka langt komnar:
Samningsaðila greinir enn
á um kaupverð hlutabréfanna
Viðræður á viðkvæmu stigi í gærkvöldi
í ALLAN gærdag stóðu viðræður
milli bankaráðsformanna og
bankastjóra Verzlunarbankans,
Iðnaðarbankans og Alþýðubank-
ans annars vegar og viðskiptaráð-
herra og aðstoðarmanna hans hins
vegar um kaup bankanna þriggja
á hlut ríkisins í Útvegsbankanum
og samciningu bankanna fjögurra
í einn stóran einkabanka. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins gerðu bankamir viðskiptaráð-
herra tilboð í fyrradag, en hann
hafði ýmsar athugasemdir við það
og greinir samningsaðila einkum
á um kaupverðið. Samningamenn
vildu lítið tjá sig um gang viðræðn-
anna í gærkvöldi, en sögðu að þær
væm á afar viðkvæmu stigi. Við-
ræður stóðu enn á öðmm tímanum
í nótt.
Bankaráð Landsbankans:
Vaxtahækkun tekur ekkí gildi
BANKARÁÐ Landsbanka íslands féll í gær frá því að hækka nú
vexti af verðtryggðum útlánum úr 7,25% í 7,75%, en um það hafði
ráðið tekið ákvörðun í fyrradag. Ákvörðun um vaxtahækkunina var
frestað til fúndar bankaráðsins mánudaginn 19. júní, en þá er næst
heimilt að breyta vöxtum. Steingrímur Hermannsson, forsætisráð-
herra, segir að ríkisstjórainni hafi tekist að fá Landsbankann til
að hætta við vaxtahækkun sína.
Vaxtahækkunin var samþykkt í
bankaráðinu á fimmtudag með
þremur atkvæðum fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks,
gegn atkvæðum fulltrúa Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags. En á
fundinum í gær, sem boðað var til
með skömmum fyrirvara, var frest-
unin samþykkt með atkvæðum
ríkisstjómarflokkanna þriggja,
Framsóknarflokks, Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags, en tveir full-
trúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.
Pétur Sigurðsson, formaður
bankaráðs Landsbankans, sagði að
meirihluti þess hefði óskað eftir
þessum fundi í gær, þar sem ákveð-
ið var að fengnum meirhlutavilja
að fresta lögmætri ákvörðun fyrri
fundar. „Það er ljóst að það er
auðvitað vegna beitingar ríkis-
stjórnarvalds, þrátt fyrir að við eig-
um samkvæmt nýsamþykktum lög-
um frá Alþingi að sjá um þetta.
Mér varð sú spurning á vörum í
dag (gær), hvort þeir myndu þá
um leið gæta þess að tryggja
Landsbanka íslands að hann stæði
upp úr fjárhagslega, en við höfum
rekið hann með fleirihundruð millj-
óna króna halla fyrstu flóra mán-
uði ársins. Við því hafa ekki feng-
ist nein svör, en væntanlega gefur
fjármálaráðherra þau næstu daga,“
sagði Pétur.
Kristinn Finnbogason, fulltrúi
Framsóknarflokksins í bankaráð-
inu, sagði að það væri algjör mis-
skilningur að ríkisstjómin hafi sett
bankaráðinu stólinn fyrir dyrnar.
Þessari ákvörðun hefði ekki verið
breytt, það væri bara ekki búið að
tímasetja hana.
Valur Arnþórsson, bankastjóri
Landsbankans, sagði aðspurður
rétt vera að hann og forsætisráð-
herra hefðu rætt saman: „Eg skildi
ekki sámtalið við forsætisráðherra
þannig að hann væri að leggja að
mér að taka þessa ákvörðunina eða
hina, enda var það ekki í mínum
höndum,“ sagði Valur. „Hann lýsti
almennt sínum viðhorfum til vaxta-
málanna í þjóðfélaginu og lagði
reyndar mjög þunga áherslu á það
hversu vaxtakostnaðurinn væri
þungbær fyrir atvinnulífið. Ég segi
það hiklaust fyrir mitt leyti. Það
má öllum vera ljóst að ég tek ekki
við fyrirmælum frá aðilum utan
bankaráðsins í þessum efnum og
þó ég vilji taka tillit eftir því sem
hægt er til stefnu ríkisstjórna í
vaxtamálum á hveijum tíma, þá
hlýt ég að fara eftir eigin sannfær-
ingu í þeim efnum, enda breytti ég
í engu afstöðu minni á bankaráðs-
fundinum í dag (í gær) frá því sem
verið hafði í gær (í fyrradag). Það
er hins vegar að sjálfsögðu banka-
ráðsins að ákveða vexti í samræmi
við lög og bankaráðið ákvað á fund-
inum að fresta þessu eina atriði
vaxtaákvarðana. Það hefur því
enginn stórviðburður gerst.“
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, sem ekki gat
setið bankaráðsfundinn í gær þar
sem hann var ijarverandi úr bæn-
um, sagði að sér kæmu þessi vinnu-
brögð gjörsamlega í opna skjöldu.
„Mér þykir Landsbankinn heldur
setja ofan við slíkar handatiltektir
að ijúka saman á fund sólarhring
eftir að ákvarðanir eru teknar til
þess að taka þær aftur. Það er
stjórnarmeirihlutinn, þeir sem
ganga erinda ríkisstjómarinnar og
taka við fyrirskipunum frá henni,
sem gerir þetta,“ sagði Sverrir
Hermannsson.
Um er að ræða að bankarnir kaupi
76% hlut ríkisins í bankanum. Nafn-
verð hlutabréfanna er um 760 millj-
ónir króna, og vill ráðherra fá um
það bil tvöfalt nafnverðið. Bankarnir
eru hins vegar ekki tilbúnir að fara
svo hátt. Agreiningur um andvirði
bréfanna byggist einkum á mismun-
andi mati manna á stöðu skuldara
Útvegsbankans. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins myndu bankarn-
ir allir kaupa jafnan hlut í Útvegs-
bankanum. Alþýðubanka, Verzlunar-
banka og Iðnaðarbanka yrði um leið
breytt í eignarhaldsfélög og banka-
rekstur þeirra rynni inn í hinn nýja
einkabanka, sem fengi nýtt nafn.
Að sameiningu bankanna fjögurra
lokinni, sem yrði einhvern tímann á
þessu ári, myndi nýi bankinn auka
hlutafé sitt og eignarhaldsfélögin
kaupa jafna hluti, þannig að þegar
upp yrði staðið ætti hvert félag um
30% í bankanum. Fiskveiðasjóður á
nú rúm 10% í bankanum, en áætlað
er að hlutur hans myndi minnka með
því að hann keypti engin bréf er
hlutaféð yrði aukið. Aðrir aðilar
myndu svo eiga fáeina hundraðshluta
af hlutafénu.
Ef af sameiningu verður mun nýi
bankinn verða sá næststærsti á
landinu, með um þriðjung allra
bankaviðskipta. Það er hins vegar
ljóst að dregið yrði úr umfangi starf-
semi þeirrar, sem bankamir fyórir
halda nú úti. Útibú yrðu sameinuð
og þeim fækkað og starfsfólki einn-
ig. Frá íjölmörgum öðrum lausum
endum þarf að ganga, svo sem hliðar-
rekstri einstakra banka. Þar má
nefna verðbréfamarkaði, fjármögn-
unarfyrirtæki, hlutdeild í greiðslu-
kortafyrirtækjum og fleira.