Morgunblaðið - 30.06.1989, Side 9
MORGíJNBUAÐIEX; í PÖSíPOÐXGCHÍiSft.' J0NÍ) i 98ð 0 9
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
Amerískar
draumfarir
gamanmynd
Campus Man ★
Leikstjóri Ron Casden. Handrit
Matt Dorff, Alex Horvat, Geof-
frey Baere. Aðalleikendur John
Dye, Steve Lyon, Kim Delaney.
Bandarísk. RKO Pictures .1987.
Bíóhöllin 1989. 94 mín. Öllum
leyfð.
Dyer er verðandi kaupsýslumað-
ur og háskólanemi sem í blank-
heitum sínum fær það þjóðráð að
gefa út almanak — prýtt fáklædd-
um körlum, svona til tilbreytingar.
Hann bjargar fjármálunum en kem-
ur dýfingameistaranum, og aðalfyr-
irsætunni, vini sínum Lyon í slæma
klípu. En þetta fær allt snurðu-
lausan enda.
Dáðlaus vitleysa, dulítið svekkj-
andi því oft vantar ekki mikið uppá
að hún nái sér á flug og breytist í
satíru á ameríska drauminn. Þess
í stað, gengur hér allt svo óskaplega
vel upp að mann flökrar. Það vant-
ar löngum herslumuninn góða, svo
þokkalegir leikarar, einsog Wilho-
ite, vafra um sviðið einsog höfuð-
sóttarrollur, segjandi setningar með
ólíkindum bögulegar. En þessi fáu
augnablik sem tökuvélunum er beitt
að dýfingunum eru heillandi.
Aulabárðar í
útilegu
gamanmynd
The Great Outdoors ★ ★ 'k
Leikstjóri Howard Deutch.
Handrit John Hughes. Aðalleik-
endur Dan Aykroyd, John Candy.
Bandarísk. Universal 1988.
Laugarásbíó 1989. 90 mín. Öllum
leyfð.
Þau sælu og einföldu og elsku-
legu hjónakorn, John Candy og frú
eru tæpast búin að koma sér fyrir
í afskekktum bjálkakofa í lang-
þráðu sumarfríi er ský dregur fyrir
sólu. Á tröppunum er mættur rass-
verkurinn í fjölskyldunni, Aykroyd
mágur hans, óþolandi toppfígúra,
„uppi“ í verstu merkingu þess orðs.
Breytist fríið í martröð fyrir Candy
vesalinginn sem verður löngum bit-
bein kaldhæðni mágsins, en þeir
eiga fátt sameiginlegt annað en
lítilsvirðinguna sem þeir bera hvor
fyrir öðrum.
Myndin er búin til í kringum sér-
staka gamanleikhæfileika þeirra
Aykroyds og Candys, sem eiga að
baki langa samvinnu. Og þeir
bregðast ekki frekar en fyrri dag-
inn. Það gerir hinsvegar handrit
unglingamyndamannsins Hughes,
hann ætti að halda sig frekar á
troðnum slóðum, þar sem hann
þekkir hvern krók og kima. Þessi
fjölskylduafþreying er ljári sveiflu-
kennd, flakkar frá drephlægilegum
farsaatriðum einsog sjóskíðaferð
Candys niðurí hrútleiðinlega aula-
fyndni. Og lokauppgjörið er illbæri-
legt.
U msátur shr ellir
Hrollvekja
Assault On Precinct 13 ★ ★ ★
Leikstjóri og handritshöfundur
John Carpenter. Aðalleikendur
Austin Stoker, Darwin Joston,
Laurie Zimmer. Bandarísk.
Overseas Filmgroup 1976. Skífan
1989. 91 mín. Bönnuð yngri en
16 ára.
Ein besta mynd Carpenters frá
B-myndatíma hans, byggð á Rio
Bravo, kunnum Hawks-vestra, sem
sýndur var í sjónvarpi ekki fyrir
alls löngu. En villta vestrið er ekki
það umhverfi sem Carpenter valdi
endurgerðinni, heldur niðurnítt
glæpahverfi í Los Angeles. Sögu-
sviðið það sama, lögreglustöð, en
að þessu sinni er hún nánast
ómönnuð vegna flutninga er ijöl-
menn glæpaklíka sest um hana í
skjóli myrkurs og algjörs ■ sam-
bandsleysis við umheiminn. Vill hún
koma fram hefndum á manni sem
leitað hefur þar skjóls. Eru nú góð
ráð dýr og grípur lögreglustjórinn
til þess að vopna þann gálgamat
sem situr í dýflissunni.
Carpenter, sem gerði þessa mynd
fyrir smáaura, tekst að magna
hreint ótrúlega spennu á vænstu
skeiðum myndarinnar og innilokun-
arkenndin hríslast um áhorfandann.
Aðstæður löggæslumanna eru
þrúgandi og umhverfið grátt og
grimmt. Því verður ekki neitað að
ofbeldið er mikið en oftast beitt af
hugsun og merkingu. Ókunnir leik-
arar skila öllum aðalhlutverkunum
með ágætum og er fengur í að fá
þessa kunnu mynd til að lífga uppá
úrvalið á myndbandaleigunum.
Ogeð og ofbeldi
spennumynd
Danger Zone II: Reaper’s
Revange 'k
Leikstjóri Geoflrey G. Bowers.
Handrit Dulaney Ross Clement.
Aðalleikendur Jason Williams,
Robert Random. Bandarísk. Sko-
uras Pictures 1988. Steinar 1989.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Reaper er foringi mótorhjólaklíku
með ýmislegt misfagurt á sam-
viskunni. Nýsloppinn úr fangelsi,
en þar sat hann fyrir atbeina harð-
jaxlsins, löggunnar Wade. Og nú
skal hefna. Reaper rænir sætu
dúkkunni hans Wade, heldur með
hana til Mexíkó, þaðan sem hann
stýrir genginu. Wade kemur í kjöl-
farið. Og nú vitnum vér í umsögn
á kápu: „Loksins standa þeir and-
spænis hvor öðrum erkifjendurnir
Wade og Reaper. Þeir eiga óupp-
gerðar sakir.“
Það gerir manni erfitt fyrir að
skrifa um slíkar myndir þar sem
þær eru svo ófrumlegar, marg-
tuggnar og ómerkilegar að maður
gleymir þeim jafnskjótt. Það situr
ekkert eftir af sýningu þessarar
annað en óþarfa sóðaofbeldi og við-
bjóður sem er hér eingöngu subbu-
skapsins vegna.
Pabbi stingur
undan
drama
The Comeback ★ 'k
Leikstjóri. Aðalleikendur Robert
Urich, Chynna Phillips, Mitchell
Anderson. Bandarísk sjónvarps-
mynd. CBI 1989. Steinar 1989.
Bönnuð yngri en 12 ára.
Hér segir af kvennabósanum og
gömlu fótboltastjömunni Urich,
sem kemur hálfútbrunninn á æsku-
slóðir í St. Paul-Minneapolis, eink-
um til að endurvekja tengsl við son
sinn liðlega tvítugan. Þetta gengur
bærilega og allt virðist vera að
ganga gömlu kempunni í haginn
þegar kvensemin verður honum rétt
einu sinni ijötur um fót. Og nú er
það verðandi tengdadóttir sem fell-
ur fyrir karli.
Dæmigerð sjónvarpsmynd í
vandaðri kantinum. Fagmannleg að
allri gerð, vel útlítandi og leikurinn
sómasamlegur. En í rauninni af-
skaplega innihaldsrýrt tuddatað,
einsog þeir segja gjarnan þarna
fyrir vestan. Myndinni er greinilega
ætlaður sami viðskiptavinahópur og
heldur uppi Sönnum sögum og þeim
systrum öllum. Hégómi í glans-
pappír.
Dreifbýlisdraumar
drama
Fyrirheitna landið — The Prom-
ised Land ★ ★ 'k
Leikstjóri og handrit Michael
Hoffman. Aðalleikendur Kiefer
Sutherland, Meg Ryan, Jason
Gedrick, Tracy Pollan.
Bandarísk. Westron 1988. Bíó-
höllin 1989. Hi-Fi. Bönnuð yngri.
en 12 ára. 110 mín.
Það sem kemur kannski hvað
mest á óvart við þessa litlu, snotru
skoðun á æskufólki í smábæ í
Bandaríkjunum er að henni stjórnar
breski leikstjórinn Hoffman, sem á
aðeins eina mynd að baki, Restless
Natives. Sú mynd er örugglega fall-
in í gleymsku og dá hjá þeim fáu
sem ösnuðust á hana. En Hoffman
finnur hér samnefnara með ungl-
ingum um allan heim. Líkt og Skot-
arnir í Restless Natives eru fjór-
menningarnir í Fyrirheitna landinu
að leita að betri ævi. Sutherland
er ráðvilltur og hjálparlaus og leitar
styrks hjá götustelpunni Ryan og
verður það hans banabiti. Gedrick
lætur sér nægja lögregluþjónsemb-
ætti á krummaskuðinu, Pollan er
sú eina sem stefnir hærra, þó það
sé reyndar tvísýnt undir örlagarík
lokin.
Myndin er tilgerðarlaus einsog
söguhetjurnar, flöt einsog umhverf-
ið. Gætir sín að spenna ekki bogann
um of svo árangurinn er eilítið for-
vitnileg mynd með enn áhugaverð-
ari persónum, sem sitja þó ekki
lengi í minningunni. Sutherland er
fær í flestan sjó, hér leikur hann
af dempaðri innlifun einmana,
vatnsgreiddan sveitadreng og Ryan
gefur honum lítið eftir í hlutverki
stelpufrussunnar sem hann giftist
og verður hans banabiti. Þau Pollan
og Gedrick hafa heldur bragðminni
hlutverk sem þau skila þó með
prýði. Öll umgjörð myndarinnar er
vel unnin og einstaklega vel við
hæfi. Það hafa sjálfsagt fáir áhuga
á að alast upp í slíku umhverfi og
jarðvegurinn ekki frjór fyrir sálina.
Samtök íslenskra myndbandaleiga:
VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
26.
27.
28.
29.
30.
31.
32.
33.
34.
35.
36.
37.
38.
39.
40.
4) Big ............................... (Steinar)
3) MidnightRun .................... (Laugarásbíó)
—) RealMan ............................ (Steinar)
—) The Great Outdoors ............. (Laugarásbíó)
1) RedHeat ............................. (Myndbox)
5) Nico ............................. (Steinar)
7) ShyPeople ........................ (Myndbox)
2) Deadly Pursuit ...................... (Bergvík)
10) LessthanZero ...................... (Steinar)
6) Coming to America ................ (Háskólabió)
23) Vibes ............................................. (Skifan)
—) Empireof theSun ............................... (Steinar)
8) Bull Durham .............................. (Háskólabfó)
—) Sleep Well Professor Oliver .... (Laugarásbíó)
—) Suvorn to Silence ........................... (Arnarborg)
—) WhoGet’sthe Friends ........................... (Steinar)
18) Ironweed ........................ (Bíóhöllin)
—) TwotoTango ........................... (Skífan)
36) Cop .............................. (Myndbox)
24) Three O’Clock High ............. (Laugarásbfó)
13) HouseoftheRisingSun ............... (Steinar)
—) The Right to Die ................... (Myndform)
15) Appointment with Death ........... (Myndbox)
12) The Dancer’s Touch ............. (Laugarásbíó)
—) JohnnybeGood ..................... (Háskólabfó)
9) Switching Channels .............. (Bfóhöllin)
19) Saigon .............................(Steinar)
—) Tennessee Buck ........................(Skífan)
★) Crocodile Dundee 2 .............. (Háskólabió)
14) The Blue Iguana .............. (Laugarásbíó)
—) MonkeyShines ..................... (Háskólabíó)
27) She’s Having a Baby ............ (Laugarásbfó)
—) DangerZone2 ......................... (Steinar)
—) Campus Man ...................... (Bíóhöllin)
—) Metal Force ...................... (Myndform)
★) Planes, Trains & Automobiles .. (Háskólabfó)
20) Moonwalker .................... (Bióhöllin)
20) ManonFire ........................ (Bíóhöllin)
20) Red Nights .......................... (Skffan)
22) Little Nikita ....................... (Skífan)
(—) táknar að myndband er nýtt á listanum.
(★) táknar að myndband kemur inn á listann aftur.
aÍ °»
Hér færðu
obbolítinrí' kafíirjóma
út 1 kaífiö þitt