Morgunblaðið - 29.07.1989, Qupperneq 1
48 SIÐUR B OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
170. tbL 77. árg.
LAUGARDAGUR 29. JULI 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Leiðtogar pólska kommúnistaflokksins:
Flokkurinn verður
að skipta um nafii
Bylgju verkfalla spáð vegna fyrir-
hugaðra verðhækkana á nauðsynjum
Varsjá. Reuter.
WOJCIECH Jaruzelski hershöfð-
ingi, forseti Póllands, sagði er
hann setti tveggja daga fiind
miðstjómar pólska kommúnista-
flokksins í gær, að forysta flokks-
ins yrði að ræða stöðu flokksins
opinskátt og af hreinskilni og
draga lærdóm af þeirri niðurlæg-
ingu, sem flokkurinn hefði beðið
í nýafstöðnum þingkosningum.
Miðstjórnarmenn tóku Jaruzelski
á orðinu og létu gamminn geysa.
„Landsmenn eru flestir búnir að fá
meira en nóg af flokknum, stefnu
hans og framferði flokksforystunn-
ar,“ sagði Marian Orzechowski, for-
maður þingflokks kommúnista-
flokksins og hugmyndafræðingur
stjórnmálaráðsins. Hann er talinn
til þeirra sem þykja líklegir arftakar
Jaruzelskis sem flokksleiðtoga, en
búist var við að forsetinn léti af
öllum embættum innan flokksins á
miðstjórnarfundinum.
Janusz Reykowski, umbótasinn-
aður fulltrúi í stjórnmálaráðinu sem
tók þátt í hringborðssamningunum
við Samstöðu, sagði að kommún-
istaflokkurinn hefði fengið á sig
óorð og yrði hann í það minnsta
að skipta um nafn. „Landsmenn
tengja flokkinn við allar ógöngur
þjóðarinnar, við efnahagskreppu,
stalínisma, skrifræði, við hroka og
getuleysi yfirvalda til að ráða fram
úr erfiðleikum,“ sagði Reykowski.
Heimildarmenn hermdu að
Reykowski hefði kynnt hugmyndir
um breytingar á forystu flokksins
og skipulagi hans. Búist er við
skipulagsbreytingum á aukaþingi
flokksins, sem fyrirhugað er í sept-
ember eða október.
Hagfræðingar spáðu því í gær
að ný áætlun stjórnvalda um að
láta framboð og eftirspurn ráða
verði á matvælum, en hún verður
kynnt í næstu viku, geti leitt til
þreföldunar á verði nauðsynjavara.
Sögðu þeir að ráðstafanirnar kynnu
að leiða til efnahagslegs hruns og
flóðbylgju verkfalla. Leiðtogar
hinna opinberu verkalýðsfélaga,
OPZZ, spáðu miklu andófi og sögð-
ust ekki eiga annarra kosta völ en
styðja væntanlegar mótmælaað-
gerðir verkamanna.
Harmi slegnir
Reuter
Harmi slegnir ættingjar farþega suður-kóresku þotunnar sem brotlenti í Trípólí fá ekki hamið sorg sína er
þeir koma til fundar við yfirmenn kóreska ríkisflugfélagsins í gær. Með þotunni fórust 78 menn en um
120 komust lífs af. Samtök flugfarþega hafa krafist þess að DC-10 þotur verði kyrrsettar vegna tíðra óhappa.
Sjá „Krafist kyrrsetningar ... “ á bls. 20.
Deiiur Sri Lanka og Indlands að leysast:
Indverskir hermenn kall-
aðir á brott frá Sri Lanka
Kólombó. Reuter.
STJÓRN Rajivs Gandhis í Indlandi
hefur ákveðið að verða við ósk
forseta Sri Lanka, Ranasinghe
Premadasa, og kveðja hersveitir
sínar á brott frá landinu. I sameig-
inlegri tilkynningu stjórna land-
anna í gær sagði að brottflutning-
urinn yrði hafinn í dag, laugar-
dag. Utanríkisráðherra eyríkisins
mun fljúga til Nýju Delhí, höfúð-
borgar Indlands, í dag til að semja
um það hvernig bundinn verði
endi á hernaðaraðgerðir Indveij-
anna sem barist hafa við róttækan
Svíþjóð:
Lífstíðardómurinn
harðlega gagnrýndur
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
DAGBLÖÐ hafa harðlega gagnrýnt lífstíðardóminn yfir Christer
Pettersson fyrir morðið á Olof Palme forsætisráðherra 28. febrúar
1986 á þeim forsendum, að kviðdómurinn hafi eingöngu stuðst við
líkindi í úrskurði sínúm.
í forystugreinum norrænna
blaða er sakfellingardómur kvið-
dómendanna harmaður og bent á,
að hinir löglærðu dómarar hafi
ekki látið sannfærast af líkunum,
sem bentu til sektar Petterssons,
og því talið rétt og skylt að sýkna
hann. Samkvæmt einróma skoðun
lögfræðinga og dómara í Svíþjóð
hafi löglærðu dómendurnir dæmt
réttilega í málinu. Það er samdóma
álit sérfræðinganna, að dómurinn
í þessu viðkvæma máli sé byggður
á einstaklega veikum grunni.
Háttsettir norskir dómarar
sögðu í gær, að réttarmorð hefði
verið framið í Svíþjóð, og hefði það
skaðað réttaröryggi þar í landi og
tiltrú fóiks til dómstólanna.
Norska bláðið Verdens Gang
segir um dóminn: Hvernig sem
málinu lyktar fyrir æðra dómstigi,
mun atburðarásin fyrir héraðs-
dóminum gera Palme-morðið að
martröð fyrir sænsku þjóðina. Fær
hún aldrei með vissu að vita sann-
leikann í málinu?
Dagbladet í Ósló segir, að nú sé
með réttu hægt að spyija, hvort
málið verði nokkru sinni til lykta
leitt. Vafaatriðin varðandi sekt
Petterssons muni jafnvel lifa af
hugsanlega sakfellingu fyrir æðra
dómstigi.
Danska blaðið Poiitiken segir,
að vöntunin á sýniiegri ástæðu til
morðsins nægi ein til að viðhalda
vafanum um, hver myrt hafi Palme.
Pettersson sé ekki sannfærandi í
hlutverki manns, sem myrði stjórn-
málaskörung á borð við Palme.
Berlingske Tidende segir, að eft-
irtektarvert sé, að báðir löglærðu
dómararnir hafi skilað séráliti, en
leikmennirnir sakfellt Pettersson
skilyrðislaust. Þetta sé þó hvatning
fyrir sakborninginn til að áfrýja
dómnum.
Jafnvel Helsingin Sanomat og
Hufvudstadsbladet í Helsinki tala
um réttarmorð og skert réttarör-
yggi í Svíþjóð eftir hinn umdeilda
dóm héraðsdómsins í Stokkhólmi.
Sá dómur verði lengi ræddur, ekki
aðeins í Svíþjóð, heldur alls staðar
á Vesturlöndum, bæði með tilliti
til réttarreglna og málsmeðferðar-
innar.
skæruliðahóp aðskilnaðarsinna
Tamíla á norð-austurhluta Sri
Lanka. Auk þess verður rætt um
mögulegar leiðir til að tryggja
frið og ró í Tamíla-héruðunum
iramvegis.
„Nágrannar okkar í Indlandi hafa
viðurkennt og staðfest að þeir virða
sjálfstæði Sri Lanka,“ sagði Premad-
asa forseti er hann skýrði frá sam-
komulaginu við Indlandsstjórn.
Ríkisstjórn Sri Lanka fyrirskipaði
útgöngubann í landinu öllu í gær og
fram á sunnudag þar sem búist var
við að marxistasamtök úr röðum
helstu þjóðar landsins, Sinhalesa,
sem nefna sig Frelsisfylkingu al-
þýðunnar (JVP), myndu efna til
átaka er tvö ár voru liðin frá komu
indversku hermannanna. Yfirvöld
sögðu að átta manns hefðu fallið á
nokkrum stöðum í landinu er örygg-
isverðir skutu á fólk sem ætlaði að
hundsa útgöngubannið.
Mikil spenna hefur ríkt í Sri Lanka
vikum saman vegna yfirlýsinga
stjórnvalda í Indlandi sem hafa sagt
að hersveitirnar yrðu ekki kallaðar
heim fyrr en búið yrði að stilla til
friðar í norð-austurhéruðunum og
tryggja réttindi þjóðarbrots Tamíla
í Sri Lanka. Premadasa forseti bað
fyrir skömmu Indveija að hætta að-
gerðum gegn skæruliðunum þar sem
ríkisstjórnin á nú í samningaviðræð-
um um frið við leiðtoga Frelsistígra
Tamíls Eelams eins og skæruliða-
samtökin nefna sig.
Indversku sveitirnar, alls 45.000
manns, komu til landsins að beiðni
stjórnvalda í Sri Lanka vegna blóð-
ugra óeirða sem Frelsistígrarnir
efndu til í því skyni að fá kröfum
sínum um sjálfstæði Tamíla-héraðs-
ins framgengt. Tamiiar eru um 13%
af 16 milljónum íbúa landsins og
hafa kvartað undan yfirgangi Sin-
haiesa, meirihluta landsmanna. 50
milljónir Tamíla búa í Indlandi og
styðja þeir ættmenn sína í Sri Lanka
með ráðum og dáð.
Indverska herliðið hefur fengið
völdin í Tamíla-héruðum Sri Lanka
í hendur hófsömum Tamíla-hreyfing-
um og óttast að Frelsistígrarnir
muni ná yfirhöndinni þegar ind-
versku hersveitirnar verða á brott.
Olía fer
lækkandi
London. Reuter.
OLÍUVERÐ hefúr lækkað í
vikunni sem nemur einum
Bandarikjadollar á fatið.
Astæðan er offramleiðsla
ýmissa olíuríkja.
Að sögn sérfræðinga Nation-
al Westminster bankans mun
meðalverð á olíufati vera 15,90
dollarar, eða einum dollar
lægra en sl. föstudag.
Ginanjar Kartasasmita,
olíuráðherra Indónesíu, hvatti
aðildarriki OPEC, samtaka
olíuframleiðsluríkja, til þess að
framleiða ekki umfram kvóta,
sem þau féllust á fyrr á árinu.
Hann sagði í gær að ýmislegt
benti tii þess að svipað ástand
væri að skapast og i fyrrahaust
þegar mikil birgðasöfnun leiddi
til verðhruns en þá fór olíufatið
niður i 10 dollara.