Morgunblaðið - 29.07.1989, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGÁRDAGUR 29. JÚLÍ 1989
Mm
FOLX
■ SIGURÐR Grétarsson skor-
aði jörnunarmark Luzem, 2:2, í
leik gegn Bellinzona í svissnesku
1. deildarkeppninni.
■ UNGLINGALANDSLIÐIÐ í
knattspyrnu tapaði tveimur fyrstu
leikjum sínum á móti í Ungveijal-
andi. 1:9 fyrir Ungveijum og 2:4
fyrir Frökkum. Guðmundur
Benediktsson frá Þór á Akureyri
- skoraði öll þijú mörk liðsins.
■ VÉLHJÓLAÍÞRÓTTA-
KLÚBBURINN heldur aðra mót-
orcrosskeppni sumarsins á morgun.
Keppt verður á nýju svæði sem
klúbburinn fékk úthlutað frá Hafn-
arfjarðarbæ og hefst keppnin kl.
14. Brautin sem keppt verður á er
í Seldal sunnan við Hvaleyrar-
vatn, beygt er út af Reykjanes-
braut við kirkjugarðinn.
>
Um helgina
Knattspyrna
Laugardagur:
1. deild kvenna
ÍA-ÞórA.......................kl.14
2. deild karla
Einheiji-Tindastóll..........kl. 14
3. deild karla A
BÍ-ÞrótturR...................kl.14
3. deild karla B
Dalvík-Huginn................kl. 14
Kormákur-Au stri.............kl. 14
ReynirÁ-ValurRf..............kl. 14
4. deild karla B
Pjölnir-Emir.................kl. 14
4. deild C
VíkingurÓ.-Hafnir.............kl.14
4. deild D
5. M.-TBA....................kl. 14
UMSE-b-Neisti.................kl.14
Efling-Hvöt...................kl.14
4. deild E
Sindri-LeiknirF...............kl. 14
Mánudagur:
1. deild karla
Valur-FH.................. kl.20
2. deild karla
Stjaraan-Völsungur............kl.20
UBK-ÍR...................... kl.20
Víðir-Leiftur............... kl.20
Frjálsar íþróttir
Meistaramót íslands í fijálsum
íþróttum fer fram i Laugardal laugar-
dag, sunnudag og mánudag. Keppni
hefst kl. 14 laugardag og sunnudag
en kl. 18:30 á mánudaginn.
Golf
Landsmótið í golfí hefst á Hólms-
velli í Leiru með keppni í 2. og 3. flokki
karla og 2. flokki kvenna á mánudags-
morgun.
Tennis
íslandsmótið í tennis heldur áfram
á Víkingsvöllum í Fossvogi um helg-
ina. Keppt verður í unglingaflokkum
og á mánudag hefst forkeppni í einliða-
leik karla og kvenna.
FRJALSAR / MEISTARAMOT
Einar Vilhjálmsson í harðri
keppni við Siggana tvo
Keppa um landsliðssæti í spjótkasti fyrir Evrópubikarkeppnina í Dublin
Einar Vilhjálmsson.
Sigurður Einarsson.
Sigurður Matthíasson.
Vésteinn Hafsteinsson.
MEISTARAMÓT íslands í
frjálsíþróttum fer fram nú um
helgina í Laugardal og verða
allir fremstu frjálsíþróttamenn
landsins með, enda keppt í
mörgum greinum um sæti í
landsliði Islands sem keppir
um verslunarmannahelgina í
Evrópubikarkeppninni íDublin.
Keppni í spjótkasti, sem fram
fer á morgun, verður líklega
hápunktur mótsins þar sem
Einar Vilhjálmsson, Sigurður
Einarsson og Sigurður Matt-
híasson koma til með að berj-
ast um sigur og landsliðssæti.
Einar Vilhjálmsson er kominn til
landsins gagngert til þess að
taka þátt í Meistaramóti íslands.
Hann vann fjórða besta afrekið í
heiminum i fyrra er hann kastaði
84,66 á meistaramótinu. Sigurður
Einarsson hefur hins vegar kastað
lengst íslensku spjótkastaranna í
ár, eða 82,10 metra og mun það
vera 11. besta afrekið í heiminum
í ár. Sigurður Matthíasson hefur
tekið góðum framförum í ár og
kastað 78,10 metra. Sá árangur
hefði dugað í 73. sæti í heiminum
í fyrra.
Vésteinn Hafsteinsson er einnig
kominn til landsins til þess að taka
þátt í meistaramótinu. Hann setti
giæsilegt íslandsmet í kringlukasti
(67,64 m) snemma sumars en hefur
ekki gengið eins vel að undanförnu.
Hann mun væntanlega fá harða
keppni í kringlukastinu frá Eggert
Bogasyni sem sótt hefur í sig veð-
rið að undanförnu.
Pétur Guðmundsson keppir í
kúluvarpi og spumingin er hvort
honum tekst að varpa yfir 20 metra.
Guðmundur Karlsson hefur hoggið
nærri íslandsmetinu í sleggjukasti
í sumar og mun gera eina atlöguna
enn að því.
Mikil og spennandi keppni getur
orðið í hlaupum vegna landskeppn-
innar og koma t.d. líklega 4-5
hlaupai-ar til með að bítast um sig-
urinn í 800 og 5.000 metrum. Hið
sama er að segja um þrístökk og
hástökk karla. Metþátttaka. er í
mótinu, að jafnaði 15 keppendur í
grein og t.d. 20 í 1.500 karla, en
alls eru 170 keppendur skráðir til
leiks í mótið, sem frjálsíþróttadeild
ÍR sér um.
Mótsetning hefst kl. 14 í dag,
en spjótkastskeppnin hefst kl.
15.25.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
HANDBOLTI / LANDSLIÐIÐ
Bubka í ársfrí
Sergei Bubka, heims- og
Ólympíumeistari í stangar-
stökki, hefur ákveðið að taka sér
ársfrí frá keppni, eftir því sem
Vyacheslav Yufrikov, landsliðs-
þjálfari Sovétríkjanna, skýrði frá á
dögunum. Yufrikov sagði að þrátt
fyrir þessa ákvörðun Bubka gæti
verið að hann tæki þátt í nokkrum
Grand Prix mótum, svona rétt til
þess að halda sér í æfingu. Bubka
hyggst síðan mæta af endurnýjuð-
um krafti til keppni á Evrópumeist-
aramótinu og Vináttuleikunum í
Bandaríkjunum á næsta ári
Sovéski stangarstökkvarinn
Rodion Gataullin, sem til skamms
tíma átti heimsmetið í stangar-
stökki innanhúss, fær því tækifæri
til þess að sýna hvað í honum býr,
en hann hefur lengi staðið í skugga
Bubka. Gataullin mun keppa á Evr-
ópubikarkeppninni í Gateshead í
Englandi í næstu viku. „Við viljum
sjá hvernig Gataullin stendur sig í
alvarlegri keppni. Út frá frammi-
stöðu hans á Evrópubikarkeppninni
munum við ákveða hvort að hann
taki þátt í heimsmeistarakeppninni
í Barcelona í haust, sagði Yufrikov.
Allir með í undir-
wtnk mmékmmáá BLssi ilfi
Dunmgi tyrir rnvi
Vestur-þýska liðið Oscther búning landsliðsins.
Dortmund, sem Sigurður Að sögn Jóns Hjaltalíns, form-
Sveinsson mun Ieika með næsta anns HSÍ, er aðeins formsatriði
vetur, hefur gengið að kröfum að ganga frá málum við spænska
HSÍ þess efnis að Sigurður geti liðið Granollers varðandi lands-
tekið þátt í öllum undirbúningi liðsmanninn Geir Sveinsson. Það
íslenska landsliðsins fýrir heims- er því ljóst að allir landsliðsmenn-
meistarakeppnina í Tékkóslóvakíu irnir, sem þátt tóku í B—heims-
í febrúar 1990. Eins hafa HSÍ og meistarakeppninni síðasta vetur,
franska liðið Paris Asnieres kom- munu gefa kost á sér í undirbún-
ist að samkomulagi um að Júlíus ing íslenska landsliðsins fyrir
Jónasson verði laus í allan undir- A—keppnina í Tékkóslóvakíu.
~i/k\ æ*-1^ k /4ÍÉ
bar nepp*
Laugardagur kl.13:25 w W
30. LEIKVIKA- 29. júli 1989 m X m
Leikur 1 Bayern M. - Núrnberg
Leikur 2 St. Pauli - W. Bremen
Leikur 3 Leverkusen - Dortmund
Leikur 4 Kaiserslautern- Gladbach (teningur)
Leikur 5 B. Uerdingen - Homburg (teningur)
Leikur 6 Stuttgart - Karlsruher
Leikur 7 Bochum - Köln
Leikur 8 Frankfurt - Waldhof M.
Leikur 9 Dusseldorf - H.S.V.
Leikur 10 Ikast - Bröndbv Uanm
Leikur 11 Brönshöi - A.G.F. Uanm
Leikur 12 Tromsö - BrannNor
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULINAN s. 991002
Ath. lokun sölukerfis 1 mm il (æp
GETRAUNIR
Teningi kastað um tvo leiki
Tveir leikir úr þýsku úrvalsdeildinni sem áttu að fara fram í dag voru
fluttir til og leiknir í gærkvöldi. Samkvæmt reglugerð frá dómsmála-
ráðuneytinu um starfsemi íslenskra getrauna skal áður auglýstur lokun-
artími sölukerfis gilda þegar tilfelli sem þessi koma upp. Því verður kast-
að upp teningi um eftirtalda leiki á getraunaseðli 30. leikviku.
Leikur nr. 4:
Kaiserslautern — Bor Mönchengladbach.
Leikur nr. 5:
Bayer Uerdingen — Homburg
KNATTSPYRNA
Everton hættir við
að fara til Kína
Forráðamenn Everton tilkynntu Líðið átti að leika gegn kínverska
í gær hætt yrði við fyrir- landsliðinu í knattspyrnu á
hugaða keppnisferð til Kína vegna „Verkamannavellinum" í Peking
ógnaraldarinnar, sem þar hefur en á þeim velli hafa hersveitir
ríkt. haft bækistöðvar undanfarnar
Var þessi ákvörðun tekin vegna vikur.
tilmæla frá brezkum yfirvöldum.
ípfémR
FOLK
■ FRANZ Beckenbauer, lands-
liðsþjálfari V-Þýskalands, spáirþví
að Asgeir Sigurvinsson og félagar
hans hjá Stuttgart leggi Karlsru-
he að velli, 2:1, á Neckar-leikvellin-
um í dag. Meistarabaráttan er haf-
in í V-Þýskalandi.
■ ÁSGEIR Sigurvinsson, sem
mun stjórna spili Stuttgart, og fé-
lagar hans fóru á hótel í gær til
að undirbúa sig fyrir nágrannaslag-
inn.
■ REIKNAÐ er með metaðsókn
í V-Þýskalandi, þegar Bundesligan
hefst. Það er svo mikið um það að
nágrannalið mætist í fyrstu um-
ferðinni.
■ BECKENBA UER hefur spáð
þvi að Maurizio Gaudino, leikmað-
ur Stuttgart, verði sá leikmaður
sem eigi eftir að vera mest í sviðs-
ljósinu í Bundesligunni. „Gaudino
er snjall leikmaður. Það sýndi hann
undir lok síðasta keppnistímabils,“
sagði Beckenbauer.