Morgunblaðið - 29.07.1989, Page 19

Morgunblaðið - 29.07.1989, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989 19 Morgunblaðið/Arnór Sjólyst, annað húsanna sem hverfur næstu daga. I baksýn má sjá gömlu símstöðina. Garður: Gömul íbúðarhús rifin Garði. Að undanförnu hefir sveitar- sjóður Gerðahrepps fest kaup á þremur gömlum íbúðarhúsum, Sjólyst, Steinboganum og húsi sem Una Guðmundsdóttir átti og stendur á sjávarkambinum skammt frá höfninni. Ákveðið hefir verið að rífa tvö fyrrnefndu húsin og hefir verktaki í bænum fengið það verkefni. Yngri kynslóðin í bænum hafði af þessu fregnir og notaði tækifærið á meðan vinnuvélarnar eru ókomnar og braut allar rúður í húsunum. í Gerðahverf- inu skammt frá fyrrnefndum húsum stendur gamla símstöðin. Ekki_ hefir verið búið þar að undanförnu. í sak- leysi sínu héldu krakkamir að þetta hús ætti einnig að rífa og brutu í því flestar rúður. Arnór Norrænt sálfræðinga- þing hefst í Reykja- vík á mánudaginn NORRÆNA sálfræðingaþingið verður haldið í Reykjavík dagana 31. júlí til 4. ágúst nk. Slík þing eru haldin annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum. Síðast var þetta þing haldið hér á landi fyrir tíu árum. Þessi þing eru stærstu og helstu samkomur norrænna sálfræðinga. Um 300 sálfræðingar hafa látið skrá sig á þingið. Á þinginu verða haldin 14 nám- skeið um sérfagleg sálfræðileg málefni og þar að auki verða flutt- ir nokkrir fyrirlestrar. Stjórnendur námskeiðanna eru sálfræðingar úr röðum virtra fræðimanna á Norð- urlöndum, Bretlandi og Banda- ríkjunum. Þingið verður haldið í húsakynn- um Háskóla íslands og verður setn- ingarathöfn í Háskólabíói 31. júlí kl. 10.00. Formaður undirbúnings- nefndar er Húgó Þójisson formaður Sálfræðingafélags íslands. íslensk ljóð i danskri þýðingu í bókaverslunum hér: Ljóðin hafa öðl- ast nýjavídd þessa daga á Islandi - segir Poul Kristensen sem gaf ljóðasaftiið út í Danmörku ALMENNA bókafélagið hefur fest kaup á þúsund eintökum af safiii íslenskra ljóða í danskri þýðingu. Bókin „Strejftog i Islands poesi gennem vaart sekel“ kom út'í Danmörku fyrir sjö árum. Henni er ætlað að varpa ljósi á íslenska ljóðlist frá þessari öld. íslandsvinur- inn Poul P.M. Pedersen, sem lést árið 1983, valdi og þýddi kvæði eftir 28 skáld í bókina sem prentuð var hjá Poul Kristensen og gefin út af forlagi hans. Poul Kristensen hefiir dvalist hér á landi nokkra undanfarna daga í boði Norræna félagsins og Morgunblaðið átti við hann orð. „Helge Larsen, fyrrverandi menntamálaráðherra, hafði frum- kvæði að útgáfu þessarar bókar og fékk Poul P.M. Pedersen til að velja ljóð og þýða,“ segir Kristens- en. „Áður hafði Pedersen staðið að útgáfu fjögurra bóka um íslenska nútímaljóðlist. Þegar þetta ljóðasafn kom út var hann 84 ára gamall og það gladdi hann mjög að sjá þýðingar sínar komnar á bók. Hann átti náið samstarf við mörg skáldanna sem eiga kvæði í bókinni og var afar þakklátur Gylfa Þ. Gíslasyni fyrrverandi mennta- málaráðherra fyrir góðan stuðning gegnum tíðina." Aðspurður segir Kristensen að ljóðasafnið íslenska hafi selst álíka vel eða slælega í Danmörku og aðrar ljóðabækur þar í landi. „Dan- ir sýna óbundnu máli mun meiri áhuga en ljóðum af ástæðum sem ég kann ekki að nefna. Þó dettur mér í hug sú skýring að dönsk skáld af yngri kynslóðinni yrkja tíðum inn á við, um eigin tilfinning- ar, svo að altént veitist mönnum eins og mér heldur erfitt að botna í ljóðunum. Oft seljast ljóðabækur í nálægt 400 eintökum í Danmörku og hreyfast lítið úr hillum verslana eftir það.“ Algengt er að ljóðabækur seljist í milli 1.000 og 2.000 eintökum hér á landi að sögn Kristjáns Jó- hannssonar hjá Almenna bókafé- laginu. Hann segir að í Banda- ríkjunum þar sem 200 milljónir manna búa þyki gott ef 2.000 ein- tök seljast af kvæðakveri. Almenna bókafélagið hefur keypt þúsund bóka upplag af dönsku þýðingunum og ætlunin er að sögn Kristjáns að dreifa ljóða- safninu á hefðbundinn hátt í bóka- Morgunblaðið/RAX Poul Kristensen prentari og bókaútgefandi. verslanir. Hann segir að það gæti nýst við dönskukennslu og verði sérstaklega kynnt fyrir kennurum og félagsmönnum í Norræna félag- inu. „Ljóðrænn kraftur og dýpt nýtur sín auðvitað best á frummálinu,“ segir Poul Kristensen, „en ég vona að þýðingarnar hafi einnig gildi fyrir íslenska leséndur. í því sam- bandi gæti ég einmitt trúað að skemmtilegt væri að nota ljóða- safnið við dönskukennslu. Þessi ljóð hafa öðlast nýja vídd fyrir mér dagana hér á Islandi, mér finnst ég hafa séð eigin augum margar myndanna sem skáldin draga upp. Þetta á við um ljóð Matthíasar Johannessen, „Þing- vellir við Öxará". Þar fer hann fallegum brðum og þróttmiklum um tíma og eilífð, dauða og upp- risu. Þetta á líka við um ljóðin þar sem tengsl manns og náttúru virð- ast ótjúfanleg, eins og í fyrsta kvæði bókarinnar, „Siglingu inn Eyjafjörð", eftir Davíð Stefánsson. HhiuhrH SEM HAIBA UELLI Sjóstanga- veiðimót á Siglufirði Sijjlufirði. Árlegt sjóstangamót fer fram á Siglufirði 4.-6. ágúst næstkom- andi. Þegar hafa 24. keppendur skráð sig til leiks og enn er tekið á móti þátttökutilkynningum á Hótel Höfn á Siglufirði. Á síðasta móti var meðalafli keppenda 240 kíló. Matthías. V^terkurog k-J hagkvæmur auglýsingamiðill! ,fljá ÓS fást sterkar og fallegar hellur til að gera hvers kyns stéttir og bflastæði. Ég mæli með hellunum frá ÓS og byggi þau meðmæli á reynslunni. Þær eru framleiddar úr öldu hráefni og góðir kantar gera það verkum að allar línur verða reglulegar. Hellunum er pakkað í plast og þeim ekið heim í hlað. í fáum orðum sagt: Gæðavara og góð þjónusta.“ Markús Guðjónsson, skrúðgarðyrkjumeistari, eigandi Garðavals. ósa/isíA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.