Morgunblaðið - 29.07.1989, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 29.07.1989, Qupperneq 21
MORGlMBLA'ÐIÐ LíMJGARÐAGUR' m JÓLI 11989 21 Sovétríkin: Þýskt „heimaland“ stofnað á næstunni við Eystrasalt? SOVÉSK stjórnvöld hafa látið í veðri vaka, að hugsanlegt sé, að komið verði á fót sérbyggð fyrir þær tvær milljónir manna af þýsk- um uppruna sem búa í Sovétríkjunum, að því er segir í frétt frá AP-fréttastofunni. Byggðin yrði í nágrenni borgarinnar Kalíníngrad (áður Königsberg í Austur-Prússlandi) við Eystrasalt. „Sovétmenn eru í alvöru að gera um það, hversu langt skuli ganga áætlanir um þýska byggð, sem mundi draga til sín erlent fjárfest- ingarfé,“ sagði Helmut Kohl kansl- ari Vestur-Þýskalands í útvarpsvið- tali um síðustu helgi. „í gangi eru umfangsmiklar umræður í stjóm sovéska kommúnistaflokksins, stjórnmálaráðinu og ríkisstjórninni í að koma á fót sérstökum byggðum fyrir minnihlutahópa, og Þjóðver- jarnir eru taldir mikilvægur minni- hluti,“ sagði Kohl. í viðtalinu hikaði Kohl við að halda því fram, að umræðurnar snerust um að gera Kalíníngrad að „sjálfsstjómar- svæði“ þýskættaðra Sovétmanna. Lettland Litháen Eystrasalt Kalíníngrad / (Königsberg) y Gdansk Hvíta-Rússland Pólland „En eitthvað í þá áttina,“ sagði hann. Vestur-þýska dagblaðið Die Welt sagði í síðasta helgarblaði sínu, að sovésk stjórnvöld ættu í „leynivið- ræðum við vestræna sérfræðinga um möguleika á stofnun fríverslun- arsvæða" í nágrenni Leníngrad, á Kalíníngrad-svæðinu við Eystrasalt og í Síberiu. Die Welt sagði að slíkt svæði kynni að laða að vestur-þýsk og bandarísk fyrirtæki, sem vildu hjálpa þýska minnihlutanum að koma sér fyrir. Kalíníngrad er á milli Póllands og sovétlýðveldisins Litháens. Borgin hét Königsberg, áður en hún komst undir stjórn Sovétríkjanna eftir síðari heimsstyijöldina, þegar Sovétmenn óg Pólveijar skiptu Austur-Prússlandi á milli sín. Kalíníngrad og héraðið umhverfis hana er enn lokað svæði innan Sov- étríkjanna, líklega af því að þar em hernaðarlega mikilvægar flota- stöðvar við Eystrasaltsströndina. Sjálfstætt fríverslunarsvæði þar gæti ýtt undir sjálfstæðiskröfur Eystrasaltsríkjanna þriggja; Eist- lands, Lettlands og Litháens. Sovésku Þjóðveijarnir, sem forð- um vom oft nefndir „Volgu-Þjóð- veijar," eru um tvær milljónir tals- ins og margir þeirra afkomendur landnema sem komu til landsins á 18. öld. Flestir þeirra vilja búa áfram í Sovétríkjunum. Stórir hópar þeirra voru fluttir nauðungarflutn- ingum frá Bessarabíu og hémðun- um umhverfis Volgu til Kazakhstan í Mið-Asíu á árum seinni heims- styijaldarinnar. Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum: Hrökklast Amish-fólkið burt vegna ásóknar ferðamanna? Reuter Amish-fólkið, sem flúði trúarofsóknir í Þýskalandi fyrir um 250 árum, gæti senn hrökklast burt á eineykisvögnum sínum frá Pennsylvaníu-ríki vegna velmegunar og ásóknar ferðamanna. Ferðamannaþjónustan er orð- in mikil atvinnugrein og hefiir skapað velmegun í Pennsyl- vaníu-ríki í Bandaríkjunum, einkum í Lancaster County, þar sem fólk af hinum strangtrúaða Amish-trúflokki hefiir búið frá því það flúði trúarofsóknir í Þýskalandi fyrir 250 árum. Nú er það velmegunin, en ekki of- sóknir, sem stofha lifhaðarhátt- um þessa fólks í hættu. Samt eru það einmitt lifnaðarhættimir - rafinagnsleysið, eineykisvagn- amir, handiðnin og fornlegur klæðnaður Amish-fólksins - sem laða um fimm milljónir ferða- manna á ári hveiju til Lancaster County. Tekjurnar af ferða- mönnunum nema árlega um 400 milljónum Bandarikjadala, eða 23,2 milljörðum ísl. kr. Lítum á þorpið Intercourse, sem er miðsvæðis á landi Amish-fólks- ins í Lancaster County, sem skipt- ist í 90 kirkjusóknir. Sjá má eineyk- isvagna á fullri ferð út úr þorpinu snemma á laugardagsmorgnum því Amish-fólkið veit að það má engan tíma missa vilji það ekki eyða deg- inum í umferðaröngþveitinu sem skapast er bifreiðar ferðamanna flykkjast út á göturnar. Ferðamennirnir og allt sem þeim fylgir, svo sem vegirnir, bygging- arnar og þjónustufyrirtækin, gætu orðið til þess að Amish-fólkið þyrfti að flytja á brott til að geta lifað í friði og ró. Almælt er í Lancaster County að Amish-fólkið hafi sent „sveitir útsendara“ til að kanna einangruð landsvæði, þar sem vel- megunin er ekki jafn mikil. Fregn- ir herma að bændur úr röðum Amish-fólksins hafi tryggt sér for- kaupsrétt á stórum hluta ræktar- lands í Kentucky-ríki. „Þetta er land Drottins og við viljum þjóna því sómasamlega," sagði bóndi í Pennsylvaníu, John Lapp að nafni, sem senn verður að bregða búi þar sem gera á veg um jörð hans. „Ásælist hins vegar einhveijir aðrir íandið förum við vitaskuld eitthvert annað,“ bætti hann við. Langt er síðan Amish-fólkið sá hvað verða vildi. í forystugrein sem birt var í mánaðarriti í Lancaster árið 1973 var ferðamannaþjón- ustunni líkt við Trójuhestinn: „Einu sinni var þetta ung skepna og fög- ur ásýndum . . . þegar á leið fór það framhjá okkur að hún gerðist óviðráðanleg, en enginn sem ein- hvers mátti sín reyndi að spyrna á móti.“ Nokkrum árum síðar ritaði 74 ára gamall bóndi úr röðum Amish- fólksins bók, „Líf bænda og breyt- ingarnar", þar sem fjallað er um afkvæmi þessarar skepnu: Um- ferðaröngþveitið, hótelin, veitinga- húsin og bensínstöðvarnar. Bónd- inn bendir á að mesta hættan felst í því að gífurlegt landsvæði fer á ári hveiju undir framkvæmdir vegna ferðamannaþjónustunnar og hefur þetta valdið svo mikilli hækk- un á verði jarðnæðis að Amish-fólk hefur neyðst til þess að flytja til annarra svæða. Bændur, sem ekki eru í Amish- trúflokknum, hafa selt verktökum jarðir sínar og fengið metverð fyrir þær. Bændur úr röðum Amish- fólksins, sem vilja kaupa jarðir handa sonum sínum, geta ekki boðið jafn hátt verð. Þeir hafa hvað eftir annað skipt jörðum sínum til að mæta fólksfjölguninni, en Am- ish-fólkinu hefur fjölgað um helm- ing á tveimur áratugum. Um 200 Amish-mönnum tókst ekki að tryggja sér jarðnæði í fyrra. Senn líður að því að landbúnaður verður ekki helsti atvinnuvegur Amish-fólksins. Um helmingur Amish-manna rekur litlar verslanir eða starfar við byggingarfram- kvæmdir fjarri heimilum sínum. Menn af eldri kynslóðinni líta á þetta sem upphafið að endalokun- um og tala um að tímabært sé fara burt frá Lancaster County. „Aðeins þeir Amish-menn, sem eiga stór og arðbær fyrirtæki, verða eftir. Eftir nokkurn tíma ganga þeir úr kirkjunni," sagði bóndi úr röðum Amish-fólksins. „Velmegun hefur oft orðið kristn- um mönnum að falli, en aldrei of- sóknir," bætti hann við. The Economist Reuter Nýr forsætisráð- herra Japans? Ryutaro Hashimoto, fram- kvæmdastjóri Frjálslynda lýð- ræðisflokksins í Japan, er nú talinn líklegasti eftirmaður Sosuke Unos, sem sagði af sér forsætisráðherraembætti fyrr í vikunni. Hashimoto, sem er 51 árs gamall, hefur þó ekki enn tilkynnt formlega að hann verði í framboði en þingmenn sljórn- arflokksins kjósa eftirmann Unos 8. ágúst næstkomandi. Hashimoto er talið til tekna að hafa ekki tengst Recruit-fjár- málahney kslinu. New York Times: Bloch játar á sig njósnir New York-borg. Reuter. BANDARISKI stjórnarendrekinn Felix Bloch, sem grunaður er um njósnir, hefiir játað fyrir bandarísku alríkislöregiunni (FBI) að hann hafi stundað njósnir fyrir Sovétríkin um árabil og þegið háar fjárfúlg- ur fyrir vikið. Skýrt var frá þessu í bandaríska blaðinu New York Times í gær. Edúard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, þvertók hins vegar fyrir að Bloch væri eða hefði verið á mála hjá Sovétmönnum. Bloch mun hins vegar hafa neitað hvorki verið handtekinn né ákærð- að láta í té frekari upplýsingar um ur. Hann var háttsettur embættis- athæfi sitt og mun Bandaríkjastjórn maður í utanríkisráðuneyti Banda- skorta nægar sannanir til þess að ríkjanna þar til hann var sendur í geta höfðað mál á hendur honum. leyfi hinn 22. júní. Allt frá því að Hefur blaðið þetta eftir ónafn- ráðuneytið skýrði frá því í síðustu greindum embættismanni, sem viku, að hann væri grunaður um fengist hefur við málið. njósnir fyrir Sovétríkin, hefur verið Bloch, sem er 54 ára gamall, fylgst með Bloch hvert fótmál, en sætir nú rannsókn FBI, en hefur hann dvelst nú í New York-borg. * Í *SUMARHÚSINU VEISLA í jeppa á fjaUi eða í sumarhúsinu. ] Ekkert mál ef þú hefur G-þeytirjómann meðferðis. Skál og gaífall duga til að þeyt’ann. Hvort þú snarar svo fram heilli i'jómatertu eða írsku kaffi fer eftir tilefninu. Á * G-PE YTIRJÓMI! - dulbúin ferðaveisla F E R Ð Á L A G I N U

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.