Morgunblaðið - 29.07.1989, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29, JÚLÍ 19,89,
25
Morgunblaðið/Sverrir
Hjónin Tómas Tómasson og Helga Bjarnadóttir eigendur Hard Rock Cafe lengst til vinstri með starfs-
fólki staðarins og afmælistertunni.
Afinælisdagskrá í Veitinga-
staðnum Hard Rock Café
AFMÆLISDAGSKRÁ stendur yfir í veitingastaðnum Hard Rock
Café í Kringlunni fram á sunnudag. Staðurinn var opnaður 25. júlí
1987 og eru gestirnir orðnir um 320 þúsund á þeim tveimur árum
sem liðin eru.
Uppákomur eru öll kvöld meðan sýning sem starfsfólkið tekur þátt
á dagskránni stendur, m.a. dans- í. Ollum afmælisgestum er boðið
upp á afmælistertu.
Átján Hard Rock Café-veitinga-
staðir eru í heiminum og var staður-
inn í Reykjavík 12. í röðinni en sá
Jýrsti var opnaður í London í júní
1971.
Minnmgargjöf til
Háskóla íslands
Féð nýtt í þágu vísindastarfsemi
HÁSKÓLA íslands barst nýlega peningagjöf að upphæð 260.000
kr. til kaupa á vísindaritum. Gjöfin er gefin í minningu hjónanna
Einars Ásmundssonar og Jakobínu Þórðardóttur og tveggja lát-
inna sona þeirra, Magnúsar og Ásmundar. Gefendur eru börn og
bamabörn þeirra hjóna. Það var ósk þeirra Einars og Jakobínu
að Qárhæð þessi rynni til Háskóla íslands og yrði fé þetta nýtt í
þágu vísindastarfsemi Háskóla íslands til styrktar og uppbygging-
ar atvinnulífs þjóðarinnar.
Einar Ásmundsson, betur
þekktur sem Einar í Sindra, fædd-
ist að Fróðá þann 23. ágúst 1901.
Hann var elstur bama þeirra Ás-
mundar Sigurðssonar og Katrínar
Arndísar Einarsdóttur, sem kom-
ust til fullorðinsára. í stríðslok hóf
hann innflutning á efni og vélum
til iðnaðar, og 1950 hóf hann söfn-
un og útflutning brotajáms. Hann
færði stöðugt út kvíamar og stofn-
aði mörg systuriyrirtæki, sem
skiptust eftir starfssviðum:
Sindra-smiðjuna, Sindra-stál,
Sindra-húsgögn og Einar Ás-
mundssonar Import-Export. Á sjö-
unda áratugnum hófust fram-
kvæmdir á nýrri lóð við Borgartún
og fluttist starfsemin smám saman
þangað. Einar var og áhugasamur
um félagsmál. Hann var mikil
fylgjandi stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins og einn af stofnendum Heimd-
allar, félags ungra Sjálfstæðis-
manna. Hann starfaði einnig í
samtökum iðnaðarmanna og var í
stjórn Meistarafélags jámiðnaðar-
manna.
Jakobína Hansína Þórðardóttir
fæddist á Akranesi 7. mars 1904.
Foreldrar hennar vora Þórður
Stefánsson beykir í Reykjavík og
Sigríður Jónsdóttir. Einar og Jak-
obína eignuðust átta börn, Asgeir,
Ásmund, Þórð, Sigríði, Óskar
Helga, Magnús, Ragnar og Björn.
Ásmundur og Magnús létust af
slysföram ungir að áram.
Við brautskráningu kandídata í
Háskólabíói þann 24. júní sl. þakk-
aði rektor Háskólans, dr. Sig-
mundur Guðbjarnason, þennan
hlýhug til skólans. Sjá.lfur hefur
rektor verið mikill talsmaður þess
að efla beri tengsl Háskólans og
atvinnulífs í landinu og er þessi
gjöf því ánægjulegur vitnisburður
um gagnkvæman skilning á mikil-
vægi æðri menntunar fyrir atvinn-
ulíf í landinu.
(Fréttatilkynning)
—
Islenskt gæðablómkál
BLÓMKÁL! Nafnið gefur fyrirheit. Kálið er kennt við blóm, ekki bara á íslensku heldur einnig
á mörgum öðram tungumálum. Bretar snúa nafninu við og kalla kálið kálblóm, cauliflower.
Og kálið rís alveg undir nafni. Það er mikið gæðakál. Ég hlakkaði alltaf til þess tíma, þegar
kálið væri sprottið og við gætum farið að borða blómkál, en nú þegar blómkál fæst allt árið,
mætti ætla að sú tilhlökkun væri úr sögunni. En við getum enn hlakkað til. Islenska kálið er mun betra
en hið innflutta.
Lengi vel borðaði ég helst blómkál með smjöri og margir era þeir, sem aldrei borða blómkál öðra vísi en
í súpu. En nú er ég búin að leggja smjörið á hilluna og borða blómkálið með alls konar bragðsterku
grænmeti, svo sem chillipipar, lauk og tómötum og ekki spillir að hafa ost með. Ef við fáum okkur svo
gott brauð með réttinum, eram við með öll höfuðnæringarefnin í máltíðinni.
Blómkál með
grænmetissósu
A ferskur chillipipar (ljós-
grænn)
1 dl vatn
1 msk. matarolía
1 stór, græn paprika
1 meðalstór laukur
3 meðalstórir tómatar
'A dl vatn
A tsk. salt
1 lítill blómkálshaus
1. Kljúfið chillipiparinn, takið úr
honum hvert einasta fræ. Skerið
síðan í sneiðar.
2. Setjið vatnið í lítinn pott og
sjóðið chillipiparinn í því í 5
mínútur. Hellið vatninu af.
3. Setjið matarolíu í pott, afhýðið
og saxið laukinn, setjið í pottinn
og sjóðið við hægan hita í 5
mínútur.
4. Takið fræ og stilk úr paprik-
unni, skerið síðan í sneiðar og
sjóðið með lauknum í 5 mínútur.
5. Hellið sjóðandi vatni á tómat-
ana, latið þa'vera í því í 1 mínútu,
fjaríægið þá hýðið. Setjið tómata
og • chillipipar með lauknum og
paprikunni í pottinn. Meijið tóm-
atana örlítið, setjið síðan vatnið
út í.
6. Skiptið blómkálinu í greinar,
þvoið það, setjið síðan ofan á
grænmetið í pottinum. Stráið
salti yfir kálið. Setjið lok á pott-
inn og sjóðið við hægan hita i 7
mínútur.
Meðlæti: Nýbakað brauð.
Athugið: Einnig er hægt að sjóða
blómkálshausinn heilan, og þá
sér í öðram potti og hella síðan
grænmetismauki yfir hann. Heill
blómkálshaus þarf um 5 mínút-
um lengri suðu en kál í greinum.
Hægt er að hafa annars konar
útfærslu á þessum rétti, t.d. má
bæta þessu við:
1 egg
y2tsk. paprikuduft
’/itsk. brauðrasp
100 g mjólkurostur, sú tegund
sem þið eigið.
1. Þeytið eggið lauslega með
paprikudufti, setjið síðan brauðr-
asp út í.
2. Rífið ostinn og bætið í.
3. Setjið blómkáls/grænmetis-
réttinn á eldfast fat. Hellið eggja-
hrærunni yfir.
4. Hitið bakaraofn í 210°C, blást-
ursofn í 190°C, setjið í miðjan
ofninn og bakið í 10 mínútur.
Piparbrauð
1 dl rúgmjöl
1 dl hveitiklíð
5 dl hveiti
1 tsk. salt
1 tsk. sykur
A msk. fínt þurrger
1 msk. rósapipar (rauður pip-
ar)
1 eggjahvíta
1 dl heitt vatn úr krananum
1 dl köld mjólk
1 eggjarauða
A tsk gróft salt
1. Setjið rúgmjöl, hveitiklíð,
hveiti, salt, sykur og þurrger í
skál.
2. Setjið rósapiparinn í plastpoka
og meijið örlítið með kökukefli.
Seljið saman við mjölið.
3. Blandið saman heitu vatni og
kaldri mjólk. Blandan á að vera
fingurvolg. Setjið síðan eggja-
hvítu út í og hrærið út í mjölið.
4. Leggið hreint stykki yfir skál-
ina og latið þetta lyfta sér a'volg-
um stað í 30-60 mínútur.
5. Takið deigið úr skálinni, setjið
á hveitistráða borðplötu. Mótið
síðan lengju úr brauðinu á þykkt
við vínarpylsu. Skerið í 12-15 cm
bita.
6. Setjið örlítið volgt vatn út Á
eggjarauðuna og penslið brauðin
með því.
7. Stráið ögn af salti yfir.
8. Raðið brauðunum á bökunar-
pappír á bökunarplötu. Látið
lyfta sér a'volgum stað í 30-40
mínútur.
9. Hitið bakaraofn í 210°C, blást-
ursofn í 190°C, setjið í miðjan
ofninn og bakið í 10-12 mínútur.