Morgunblaðið - 29.07.1989, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989'
27
Morgunblaöid Valdimar Knstmsson
Daníel Jónsson vann það ágæta afrek að sigra í fimmgang-i unglinga þótt hann keþpi enn í barna-
flokki. Hér hampar hann verðlaununum ásamt þeim Hjörnýju Snorradóttur, Theódóru Mathiesen,
Auðunni Kristjánssyni og Gísla Geir Gylfasyni.
Guðmar Þór Pétursson sem er aðeins tíu ára sigraði í flórgangi
barna og varð jafhframt stigahæstur keppenda í barnafiokki.
íslandsmótið í hestaíþróttum í Borgarnesi:
Margir kallaðir en fáir útvaldir
Það var í mörg hornin að líta hjá Ámunda Sigurðssyni fram-
kvæmdastjóra mótsins og hér gaumgæfir hann hvort nokkuð
vanti í verðlaun mótsins.
_________Hestar_______________
Valdimar Kristinsson
Þá er tólfta íslandsmótinu I
hestaíþróttum lokið og verður
ekki annað sagt en það hafi far-
ið fram úr björtustu vonum. Það
voru félagar í íþróttadeildum
Faxa og Dreyra sem sáu um
framkvæmd mótsins en hesteig-
endafélagið Skuggi í Borgarnesi
sá um allan undirbúning móts-
svæðisins sem þeir lögðu til.
Eru þeir Skuggafélagar komnir
með afbragðsgóða aðstöðu til
mótahalds og sýnt þykir að mikil
lyftistöng sé fyrir íþróttadeildir að
fá íslandsmótin. Mótsstaðurinn
Vindás er rétt fyrir utan Borgarnes
þar sem er hesthúsahverfi Borg-
nesinga. Var öll aðstaða fyrir mó-
tið til mikillar fyrirmyndar. Kepp-
endur létu vel af völlunum og móts-
gestir rómuðu áhorfendabrekkuna
sem er torfi þakin klöpp. Félags-
heimilið reyndist vel á mótinu en
þar er góð aðstaða fyrir veitinga-
sölu og fullnægjandi hreinlætisað-
staða. Framkvæmd mótsins gekk
að mestu vel fyrir sig, eitthvað
teygðist þó á dagskránni á laugar-
dag og föstudag. Ástæðuna má
sjálfsagt rekja til þeirra algengu
mistaka að dagskráin hafi verið
tímasett áður en ljóst var hver
þátttaka í mótinu yrði.
Tvísýn keppni í flestum
greinum
Keppni í flestum greinum móts-
ins var jöfn og spennandi og bar
þar að sjálfsögðu hæst baráttan
um íslandsmeistartitilinn í tölti
fullorðinna. Trausti Þór Guð-
mundsson sem var efstur eftir for-
keppnina á Muna frá Ketilsstöðum
háði þar harða keppni við Rúnu
Einarsdóttur á Dimmu frá Gunn-
arsholti en varð að láta í minni
pokann en úrslit réðust þó ekki
fyrr en á yfirferðinni sem var
síðasta atriði úrslitanna. Þetta mun
í þriðja skiptið sem kona vinnur
þennan eftirsótta titil. Áður hefur
Olil Amble orðið íslandsmeistari í
tölti en hún var fyrst til að vinna
titilinn í tvígang.
Tæplega er hægt að tala um að
einhver einn keppandi hafi verið
stjama mótsins að þessu sinni.
Allir sigurvegarar þurftu að hafa
• V.
mikið fyrir að ná titlunum og bar
keppnin þess greinileg merki. Sig-
urbjörn Bárðarson sem verið hefur
sigursælasturá íslandsmótunum
sigraði nú í tveimur greinum auk
þess sem hann var stigahæstur í
Islenskri tvíkeppni og stigahæsti
keppandinn á mótinu. Guðni Jóns-
son vann nú sinn fyrsta íslands-
meistaratitil í fimmgangi á Atlas
frá Gerðum og Reynir Aðalsteins-
son sigraði annað árið í röð í hlýðni-
keppninni.
Margir ungir og efnilegir kepp-
endur voru í yngri flokkunum og
geta jafnvel nokkrir þeirra staðið
undir því að kallast góðir og má
þar til dæmis nefna þá Guðmar
Þór Pétursson og Daníel Jónsson
sem eru báðir ungir að árum og
miklir keppnismenn. Fleiri mætti
nefna en þetta skal látið duga að
sinni.
Nýjung reynd í
úrslitakeppninni
Sú nýbreytni var nú reynd að
kynna stöðuna í úrslitum að loknu
hveiju atriði úrslitanna. Voru nokk-
uð skiptar skoðanir manna á því
hvort rétt væri að gera þetta en
ýmsir vildu meina að þetta gæti
hugsanlega boðið upp á hlutdrægni
dómara. Ósagt skal látið um það
en óneitanlega hleypir þetta fyrir-
komulag meiri spennu í keppnina
og hefur það sjálfsagt verið til-
gangurinn með þessari tilhögun.
Þáttur dómara á þessu móti
vakti mikið umtal og tóku margir
djúpt í árinni í gagnrýni sinni. Var
það mikið misræmi milli einstakra
dómara sem virtist fara helst fyrir
brjóstið á mörgum. Óneitanlega
munaði oft nokkru en hafa ber í
huga að í forkeppni er strikuð út
hæsta og lægsta einkunn og sé lit-
ið yfir dómana sem gefnir voru út
þar sem gat að líta niðurstöður
hvers dómara fyrir sig er ékki
hægt að sjá mikið um sláandi mun
og heldur ekki að einhver einstakur
dómari skeri sig áberandi úr. En í
úrslitum þar sem ekki er strikað
út hefur hver dómari sitt vægi
sama hvort hann er á skjön við
hina dómarana eður ei. í úrslita-
keppninni var of mikið um að dóm-
ari væri með keppanda í neðsta
sæti meðan aðrir voru með þann
sama í fyrsta eða öðru sæti eða
öfugt. Greinilegt er að túlkun dóm-
ara á því hvað er vel gert og hvað
ekki var ekki sú sama í mörgum
tilfellum. Það mætti halda að hið
svokallaða dómaravandamál væri
eilífðarvandamál því ekki kemur
maður svo á mót að ekki sé verið
að býsnast yfir þessum eða hinum
dómaranum. Er því ekki óeðlilegt
að spurt sé hvort sú fræðsla og
endurhæfing sem dómurum býðst
sé nægjanleg eða þá hvort rétt sé
að henni staðið. í umræðu um þessa
hluti má það heldur ekki gleymast
að hér er um óvinsælt hugsjóna-
starf að ræða og sjálfsagt takmörk
fyrir því hvað hægt er að ieggja á
fólk.
Að síðustu er rétt að þakka
bæði aðstandendum mótsins og
keppendum fyrir gott íslandsmót
því fullyrða má að tekist hafi að
halda þeim gæðastimpli sem náðist
á síðasta móti sem haldið var í
Mosfellsbæ. Fróðlegt verður að
fylgjast með hverjir fá það erfiða
en eftirsótta hlutverk að halda
íslandsmót að ári liðnu.
Heildarúrslit Islandsmótsins
urðu sem hér segir:
Tölt
1. Rúna Einarsdóttir, Geysi á Dimmu frá
Gunnarsholti,87.47.
2. Trausti Þór Guðmundsson, Herði á
Muna frá Ketilsstöðum, 86.19.
3. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki á Skelmi
frá Krossanesi, 84.27.
4. Erling Sigurðsson, Herði á Snjalli frá
Gunnarsholti, 82.88.
5. Baldvin Ari Guðlaugsson, Sleipni á
Trygg frá Vallanesi, 82.88.
Fjórgangur
1. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki á Skelmi,
58.09.
2. Rúna Einarsdóttir, Geysi á Dimmu frá
Gunnarsholti, 51.60.
3. Baidvin Ari Guðiaugsson, Sleipni á
Trygg frá Vallanesi, 51.60.
4. Sigríður Benediktsdóttir, Fáki á Ár-
vakri frá Enni, 51.17.
5. Einar Öder Magnússon, Sleipni á Þokka
frá Syðra-Langholti, 48.79.
Isiensk tvíkeppni
Sigurbjörn Bárðarson, Fáki á Skelmi
138.16.
Fimmgangur
1. Guðni Jónsson, Fáki á Atlasi frá Gerð-
um, 56.60.
2. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki á Skjanna
frá Kýrholti, 56.60.
3. Einar Öder Magnússon, Sleipni á Fálka
frá Kýrholti, 56.20.
4. Eiríkur Guðmundsson, Geysi á Þráni
frá Mosfelli, 54.80.
5. Tómas Ragnarsson, Fáki á Snúði frá
Brimnesi, 55.80.
Gæðingaskeið
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki á Snarfara
frá Kjalardal, 111.5.
2. Erling Sigurðsson, Herði á Þrótti frá
Tunguhálsi, 110.
3. Reynir Aðalsteinsson, Faxa á Tvisti frá
Smáhömrum, 106.5.
Skeiðtvíkeppni
Erling Sigurðsson, Herði á Þrótti 156.20.
Hlýðnikeppni B
1. Reynir Aðalsteinsson, Faxa á Tvisti frá
Smáhömrum, 47.50.
2. Þórður Þorgeirsson, Geysi á Berki frá
Vallanesi, 46.51.
3. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki á Skjanna
frá Kýrholti, 42.
Hindrunarstökk
1. María Dóra Þórarinsdóttir, Andvara á
Y1 frá Hemlu.
2. Sigurbjöm Bárðarson, Fáki á Hæring.
3. Sigurður V. Matthíasson, Fáki á
Greiða.
Stigahæsti keppandinn
Sigurbjörn Bárðarson, Fáki 348.26.
Tölt - unglingar
1. Halldór Viktorsson, Gusti á Herði frá
Bjarnastöðum, 76. •
2. Jóhannes Ævarsson, Sörla á Sörla frá
Hrólfsstöðum, 72.53.
3. Gísli Geir Gylfason, Fáki á Prinsi frá
Kýrholti, 69.87.
4. Hjörný Snorradóttir, Fáki á Þyrni frá
Söðulsholti, 69.07.
5. Berglind Árnadóttir, Herði á Loga frá
Stokkhólma, 68.53.
Fjórgangur - unglingar
1. Halldór Viktorsson, Gusti á Herði frá
Bjamastöðum, 46.07.
2. Hjörný Snorradóttir, Fáki á Þyrni frá
Söðulsholti, 46.07.
3. Gísli Geir Gylfason, Fáki á Prinsi frá
Kýrholti 44.37.
4. Aron Sverrisson, Faxa á Drang frá
Skarði, Landsv. 44.54.
5. Jón Þ Steindórsson, Fáki á Sörla frá
Ragnheiðarstöðum, 43.86.
Islensk tvíkeppni unglinga
Halldór Viktorsson, Gusti á Herði 122.07.
Fimmgangur - unglingar
1. Daníel Jónsson, Fáki á Glettu frá Gýgj-
arhóli, 46.20.
2. Hjömý Snorradóttir, Fáki á Nökkva,
46.20.
3. Theódóra Mathiesen, Herði á Trausta
frá Stóra-Lambhaga, 42,60.
4. Auðunn Kristjánsson, Fáki á Sif frá
Keldudal, 44.20.
5. Gísli Geir Gyifason, Fáki á Hauki frá
Presthúsum, 43.20.
Hlýðnikeppni unglinga
1. Edda Sólveig Gísladóttir, Fáki á Seifi
frá Hafsteinsstöðum.
2. Gunnar Reynisson, Faxa á Brellu frá
Sigmundarstöðum.
3. Hjömý Snorradóttir, Fáki á Þyrni frá
Söðulsholti.
Stigahæsti keppandi unglinga
Hjömý Snorradóttir, Fáki 181.64.
Tölt - börn
1. Daníel Jónsson, Fáki á Geisla frá
Kirkjubóli, 68.80.
2. Guðmar Þór Pétursson, Herði á Limbó
frá Holti, 70.40.
3. Edda Rún Ragnarsdóttir, Fáki á Örv-
ari frá Ríp, 69.60.
4. Sigríður Pétursdóttir, Sörla á Þokka
frá Ríp, 65.07.
5. Björgvin_ Sigursteinsson, Faxa á
Svartni frá Ásum, 62.40.
Fjórgangur - börn
1. Guðmar Þór Pétursson, Herði á Vini
frá Sauðárkróki, 44.37.
2. Edda Rún Ragnarsdóttir, Fáki á Örv-
ari frá Ríp, 43.01.
3. Sigurður V. Matthtasson, Fáki á Kol-
baki frá Árgerði, 42.50.
4. Einar Reynisson, Faxa á Hreinni og
Beinni frá Sigmundarstöðum, 41.31.
5. Þóra Brynjarsdóttir, Mána á Gram frá
Ingveldarstöðum, 43.69.
íslensk tvíkeppni - börn
Edda Rún Ragnarsdóttir, Fáki á Örvari
112.61.
Hlýðnikeppni barna
1. Guðinar Þór Pétursson, Herði á Vini
frá Sauðárkróki.
2. Sigrfður Pétursdóttir, Sörla á Þokka
frá Ríp.
3. Guðríður Hallgrímsdóttir, Mána á
Neista frá Vestra-Geldingaholti.
Stigahæsti keppandi barna
Guðmar þór Pétursson, Herði 132.07.
___________Brids_____________
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids
Rólegt var í Sumarbrids sl. fimmtu-
dag. 44 pör mættu til leiks og var spil-
að í 3 riðlum. Úrslit urðu (efstu pör):
A-riðilI
Ragnar Bjömsson —
Þórarinn Árnason 254
Gróa Guðnadóttir —
Guðrún Jóhannesdóttir 244
Jón Guðmundsson —
Úlfar Guðmundsson 243
Guðmundur Kr. Sigurðsson —
BjörnÁmason 241
Alfreð Kristjánsson —
Guðmundur Sigursteinsson 238
Sigríður Ingibergsdóttir —
Jóhann Guðlaugsson 236
B-riðill
Guðbrandur Guðjohnsen —
Magnús Þorkelsson 203
Bjami Pétursson —
Sævin Bjarnason 183
Hjálmar S. Pálsson —
Sveinn Sigurgeirsson 173
Albert Þorsteinsson —
Jón Hersir Elíasson 166
Eiður Guðjohnsen —
Gunnar Bragi Kjartansson 160
Rúnar Lámsson —
Sigurður Lámsson 158
C-riðilI
Hrólfur Hjaltason —
Sverrir Ármannsson 197
Guðmundur Páll Arnarson —
HelgiJónsson 178
Vilhjálmur Sigurðsson —
ísak Örn Sigurðsson 176
Sigurleifur Guðjónsson —
ValdimarElíasson 168
Ingólfur Böðvarsson —
Sigríður Ottósdóttir 161
Anna Þóra Jónsdóttir —
JacquiMcGreal 159
Og eftir 24 spilakvöld í Sumarbrids,
er staða efstu spilara:
Þórður Bjömsson 321, Murat Serdar
302, Lárus Hermannsson 220, Óskar
Karlsson 220, Anton R. Gunnarsson
191, Jakob Kristinsson 169, Gylfí Bald-
ursson 156, Hjördís Eyþórsdóttir 151,
Lovísa Eyþórsdóttir 150, Guðlaugur
Sveinsson 143, Gunnar Bragi Kjartans-
son 143, Sigurður B. Þorsteinsson 136,
Jón Hersir Elíasson 135, Eiður Guð-
johnsen 124, Guðrún Jóhannesdóttir
122, Albert Þorsteinsson 116 og Sævin
Bjarnason 112.
Alls hafa 238 spilarar hlotið stig á
þessum 24 spilakvöldum, þaraf 50 kon-
ur. Meðalþátttaka er um 47 pör á
kvöldi eða tæplega 200 spilarar viku-
lega.
Spilað verður fram undir miðjan
september, eða þar til féllögin í
Reykjavík fara að hugssa sér til hreyf-
ings í haust.
Allt spilaáhugafólíT er velkomið í
Sumarbrids, meðan húsrúm leyfir.
Húsið opnar kl. 17 þriðjudaga og
fimmtudaga og hefst spilamennska í
hveijum riðli um leið og hann fyllist.
Vonlítið er að mæta eftir kl. 19 til
þátttöku, og iðulega hefst spila-
mennska í síðasta riðli um kl. 18.30-
18.45.