Morgunblaðið - 29.07.1989, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JULÍ 1989
33
------------------------------
að vinna við vegagerð hjá móður-
bróður sínum, Jóhanni Hjörleifs-
syni, og eftir það varð vegagerðar-
vinna hans aðalstarf. Hann var svo
sem kunnugt er vegaverkstjóri um
árabil hér á Snæfellsnesi, tók við
því starfi af föðurbróður sínum
Stefáni Kristjánssyni frá Ólafsvík.
Hjörleifur naut ekki neinnar
skólamenntunar í æsku utan venju-
legs barnaskólanáms. Aðstæður
leyfðu ekki slíkt. Hann var gott ■
dæmi um það hvernig sjálfsmennt-
un á traustum menningarheimilum
getur nýst þeim er leggja sig fram
á því sviði, enda held ég að skortur
á skólagöngu hafi ekki háð honum
í margháttuðum störfum hans.
Hjörleifur giftist árið 1943 eftir-
lifandi konu sinni Kristínu Hans-
dóttur frá Selhól á Hellissandi. Þau
hófu búskap það ár í sambýli við
foreldra hans í Hrísdal, en síðar
reistu þau þar íbúðarhús og stofn-
uðu nýbýli og þar bjuggu þau uns
þau fluttust til Ólafsvíkur.
Þeim hjónum varð átta barna
auðið. Einn dreng misstu þau er
hann var á öðru ári, en hin systkin-
in eru uppkomin og hafa stofnað
sín heimili. Eru þau öll hin mann-
vænlegustu.
Þau Hjörleifur og Kristín áttu sér \
fagurt heimili í Olafsvík og nutu
sín þar vel listrænir hæfileikar konu
hans.
Mér í fersku minni er ég fyrst
sá Hrísdalsbræður, þá Hjörleif,
Kristján og Sigfús. Það var á
íþróttamóti ungmannafélaganna á
Snæfellsnesi á Hraunflöt í Helga-
fellssveit fyrir 50 árum. Þeir bræð-
ur voru í fremstu röð íþróttamanna
í héraðinu á þeim árum og þar var
sannarlega glæsilegur hópur. Mér
hefir alltaf fundist síðan að þannig
hljóti garpar landnámsalda að hafa
litið út.
Síðar átti ég eftir að kynnast
Hjörleifi frekar er ég tengdist ætt-
inni og varð sannarlega ekki fyrir
vonbrigðum með mannkosti hans
við nánari kynni. Hann var mikið
ljúfmenni. Vildi hvers manns vanda
leysa og var ætíð reiðubúin að veita
hjálparhönd ef hann gat því við
komið.
Mér er sagt að hann hafi í mörgu
líkst móðurafa sínum, Hjörleifi
Bjömssyni á Hofsstöðum. Hann var
mikill ferðamaður og hafði gaman
af að segja frá ýmsu er fyrir kom
í þeim efnum þó að aðstæður væru
breyttar frá tíð afa hans og bílar
teknir við hlutverki fararskjótans.
Þó hafði hann í ríkum mæli erft
veiðimannseðlið frá afa sínum.
Hann hafði mikið yndi af hvers
konar veiðiskap. Gat hann alveg
gleymt öllu öðru þegar hann sagði
sögur af veiðiferðum sínum.
Hjörleifur var mikill heimiiisfaðir
svo sem hann átti kyn til og bar
mikla umhyggju fyrir börnum
sínum og barnabörnum og var þeim
góður félagi.
Við vinir hans og venslamenn
þökkum af alhug öll gömlu kynnin
og geymum minningarnar um góð-
an dreng.
Guð styrki konu hans og vanda-
menn í sorginni og blessi þeim allar
minningarnar.
Þráinn Bjarnason
Hjörleifur Sigurðs-
son fv. héraðssijóri
frá Hrísdal — Minning
Fæddur9. maí 1919
Dáinn 23. júlí 1989
Hjörleifur Sigurðsson, vinur
minn og frændi, er látinn. Hann
fékk hjartaáfall og lést á leið i
sjúkrahús. Útför hans fer fram í
dag frá Fáskrúðarkirkju, Mikla-
holtshreppi, í sveitinni þar sem hann
fæddist og átti heima í rúm 50 ár.
Hjörleifur fæddist á Hjarðarfelli
í Miklaholtshreppi. Foreldrar hans
voru Sigurður Kristjánsson bóndi
og Margrét Hjörleifsdóttir, kona
hans. Þau hófu búskap í Hrísdal í
sömu sveit, þar sem þau bjuggu til
dauðadags.
Sigurður og Margrét í Hrísdal
voru öllum sem þeim kynntust eftir-
minnileg fyrir glæsileika, sterkan
persónuleika og hæfileika til að
gera lífið bjart í kringum sig. Þau
settu sterkan svip á mannlífið á
Snæfellsnesi og viðar á þessu tírna-
bili, sem ekki gleymist. Þau eignuð-
ust 11 mannvænleg börn, sem öll
komust upp og hafa erft hæfileika
foreldra sinna. Síðastliðið haust var
skrifað um 100 ára minningu þeirra
Hrísdalshjóna, Margrétar og Sig-
urðar.
Hjörleifur ólst upp í þessum stóra
systkinahópi í Hrísdal og var elstur
þeirra. Systkinahópurinn í Hrísdal
vakti athygli fyrir sérlega glæsilegt
yfirbragð. Það er bjart yfir fjöl-
skyldunni í Hrísdal, fasið hlýlegt
og traust. Hjörleifur bar vel þessi
einkenni alla ævi. Hann var karl-
menni að burðum, hár vexti, bjartur
yfirlitum og samsvaraði sér vel,
glæsilegur ungur maður. Hrísdals-
bræður voru allir góðir íþrótta-
menn. íþróttafélag Miklaholts-
hrepps var á þessum árum í farar-
broddi á íþróttamótum, með þá
bræður fremsta í fiokki. Hjörleifur
og Sigfús voru landskunnir íþrótta;
menn á árabili í sögu íþróttanna. í
íslenskri glímu voru Hrísdalsbræður
í broddi fylkingar.
Hjörleifur gekk í gegnum venju-
legt skólanám, eins og þá var venj-
an. Um 1930, 11 ára að aldri, fór
Hjörleifur í vegavinnu, sem varð
hans lífsstarf. Naut hann þar m.a.
handleiðslu frænda sinna, Jóhanns
Hjörleifssonar, vegaverkstjóra,
móðurbróður síns, sem síðar varð
yfirverkstjóri Vegagerðarinnar, og
Sigurðar Jóhannssonar, vegamála-
stjóra. Var Hjörleifur hamhleypa til
starfa og naut sín vel við vegagerð,
sem var á þeim árum átakavinna.
Að leggja vegi um vegleysur og
byggja brýr yfir ár og læki var hlut-
verk sem féll vel að manngerð Hjör-
leifs Sigurðssonar. Hann var nátt-
úrubarn, hafði yndi af útiveru og
naut þess vel að takast á við erfið
verkefni og hafði til þess bæði
kraft, áræði og meðfædda verk-
lagni. Hann varð flokksstjóri í vega-
gerð árið 1950 og verkstjóri 1958.
Hann gekk í gegnum öll stig verk-
stjóraþjálfunar og lauk þeim 1957.
Hjörleifur hóf verkstjórn í vega-
gerð á Norð-Austurlandi, m.a. á
Langanesi. Þrjú ár starfaði hann í
Árnessýslu og Reykjanesi, m.a. við
lagningu Þrengslavegar. Hann tók
við verkstjórn í Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu þegar Jónatan
Lífgjarnsson vegaverkstjóri féll frá
og tók við hlutverki Björns Hildi-
mundarsonar og varð vegaverk-
stjóri í Snæfellsnes- og Hnappadals-
sýslu allri er faðir minn, Stefán
Kristjánsson, hætti störfum vegna
aldurs. Síðar var þessu starfsheiti
breytt í „héraðsstjóri".
Hjörleifur lét af störfum árið
1984, að eigin ósk. Hafði hann þá
starfað nær óslitið að vegagerð frá
því að hann var unglingur 1930 —
eða í 54 ár — þar af verkstjóri og
héraðsstjóri frá 1958, eða í 26 ár.
Hjörleifur var vinsæll í starfi og
átti gott með að umgangast fólk.
Vinnufélagar hans báru til hans
hlýjan hug og mátu hann mikils.
maí sl. þar sem hamingja og gleði
sat í fyrirrúmi.
Hann var yfirvegaður í hugsun og
vildi leysa öll störf sín í sátt og
samlyndi. Yfirmenn hans báru til
hans fyllsta traust.
Vegagerð á íslandi hefur ávallt
verið erfið. Landslagi á okkar kæra
landi er þannig háttað. Nútíma-
tækni leysir þessi mál auðveldar í
dag en áður var. Þessi fullkomnu
tæki voru ekki til staðar fyrr en nú
á síðustu tveimur áratugum. Hæfni
verkstjóra við vegagerð hefur því
ávallt haft mikla þýðingu á íslandi.
Við vegagerð á Snæfellsnesi eru
fyrir hendi allar þær torfærur sem
vegagerðarmenn verða að glíma
við. Hjörleifur Sigurðsson, vega-
verkstjóri, stóðst vel það próf að
leysa þessi verkefni. Þrátt fyrif íjár-
magn af skornum skammti má
hvarvetna sjá merki um stórvirki í
vegagerð á þessum slóðum, og átti
Hjörleifur sinn stóra hlut í að leysa
þau á farsælan hátt.
Hinn 23. júní 1943 var mesti
hamingjudagur í lífi Hjörleifs. Þann
dag kvæntist hann eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Kristínu Hansdóttur
frá Selhól, Hellissandi. Þau hófu
búskap í Hrísdal, stofnuðu nýbýli,
Hrísdal II, þar sem þau áttu heimili
í 33 ár. Þrátt fyrir fjarveru hús-
bóndans á sumrin vegna starfa við
vegagerð var búskapur þeirra hjóna
farsæll á þessum árum. Reyndi þar
á afburða hæfni Kristínar til allra
starfa. Þau eignuðust 8 börn, en
þau eru: Sigurþór, kvæntur
Magndísi Alexandersdóttur, búsett
í Stykkishólmi. Sigurður Grétar,
sem þau misstu í bernsku 1946.
Sigurður Grétar, kvæntur Elly
Reneé Guðjohnsen, búsett í
Reykjavík. Ríkharður, kvæntur
Ingu Birnu Lúðvíksdóttur, búsett í
Ólafsvík. Edda Björk, tvígift, síðari
eiginmaður hennar, Þorvaldur
Elíasson, lést í febrúar 1989, bú-
sett í Þorlákshöfn. Jóhann Bjarni,
kvæntur Særúnu Helgadóttur, bú-
sett í Borgarnesi. Hjörleifur Krist-
inn, kvæntur Magdalenu Hinriks-
dóttur, búsett í Stykkishólmi. Björn
Ægir, kvæntur Ragnhildi Thorlac-
ius, búsett í Reykjavík. Barnabörnin
eru 21. Öll eru börn þeirra efnis-
fólk, sem erft hafa bestu kosti for-
eldra sinna og bera vitni um gott
uppeldi í föðurranni. Hafa foreldr-
arnir ávallt vakað yfir velferð
þeirra.
Hjörleifur og Kristín fluttust til
Ólafsvíkur 1976 og byggðu nýtt
vandað hús að Miðbrekku 1, þar
sem þau hafa átt heima síðan.
Heimili þeirra er glæsilegt, ber sér-
kennum þeirra beggja vitni, hlýlegt
og traust. Listhæfileika Kristínar
ber hvarvetna fyrir augu. Það leik-
ur bókstaflega allt í höndum henn-
ar, hvort sem um er að ræða hús-
stjóm, útsaum, leirbrennslu, mynd-
list o.fl. Hefur hún staðið fyrir nám-
skeiðum í Ólafsvík og vakið sjálf-
straust hjá fólki, ekki síst konum,
á þessum vettvangi. Á listahátíðum
í Olafsvík hafa verk eftir Kristínu
vakið mikla athygli.
Þau hjón, Hjörleifur og Kristín,
hafa tekið virkan þátt í félagslífi í
Ólafsvík, vinsæl og vel látin, enda
fylgt þeim birta og gleði, sem bæt-
ir mannlífið.
Síðustu fjögur árin starfaði Hjör-
leifur sem aðalvigtarmaður hjá
Ólafsvíkurhöfn, umsvifamikið starf,
ekki síst um hávetrarvertíð. Þetta
trúnaðarstarf fórst honum vel úr
hendi og naut hann trausts, jafnt
viðskiptamanna sem yfirmanna.
Hann ákvað að láta af störfum um
sl. áramót og var ætlun þeirra hjóna
að njóta efri ára í rólegheitum í
samvistum við hinn stóra hóp ást-
vina og huga betur að ýmsum
áhugamálum, eftir því sem heilsa
og kraftar Ieyfðu. Og í hópi ástvina
var haldið upp á sjötugsafmælið 9.
Verkalokin gerðu ekki boð á und-
an sér. Hann fór í friði, sáttur við
lífið, hafði skilað sínu lífsstarfi með
fullum sóma.
Hjörleifur hefur í gegnum árin
71 • . ; J / 1 i TTTi i i .i i/ '■
verið einn af mínum traustustu vin-
um. Það hefur verið mér mikils virði
að eiga hlýja vináttu og traust þessa
frænda míns, sem á öilum tímum
hefur verið reiðubúinn til starfa og
viðræðna um lausnir á ýmsum mál-
um, sem upp koma á löngum starfs-
ferli. Nú þegar hann er allur er
skarð fyrir skildi.
Ég vil með þessum fátæklegu
línum flytja bestu þakkir mínar og
ijölskyldu minnar fyrir trausta vin-
áttu og góð samskipti og samstarf
við vin minn og félaga Hjörleif Sig-
urðsson. Birta fylgir minningunni
um hann.
Ég flyt Kristínu og börnunum
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og bið góðan Guð að blessa þeim
minninguna.
Minning hans lifir.
Alexander Stefánsson
í dag verður til moldar borinn
frá Fáskrúðarbakkakirkju frændi
minn og vinur, Hjörleifur Sigurðs-
son frá Hrísdal. Kallið kom óvænt
og aldrei ei-um við viðbúin, þó svo
að við höfum vitað að síðastliðin
10 ár hafi blundað með honum sá
sjúkdómur sem lagði hann að velli,
svo snöggt að morgni sunnudagsins
23. júlí sl. Þetta er lífsins gangur
og því lögmáli verðum við að lúta.
Hjörleifur fæddist 9. maí 1919 á
Hofstöðum í Miklaholtshreppi, son-
ur heiðurshjónanna Margrétar O.
Hjörleifsdóttur og Sigurðar Krist-
jánssonar síðar bónda í Hrísdal. Þau
hjón eignuðust 11 börn og var Hjör-
leifur elstur þeirra, þá Kristján, sem
einnig er latinn, Sigfús, Kristjana
Elísabet, Áslaug, Valdimar, Elín
Guðrún, Olga, Magdalena Margrét,
Anna og yngst Ásdís.
Hjörleifur ólst upp í stórum
systkinahópi við mikið ástríki for-
eldranna, sem voru mjög samhent
um að koma börnum sínum til
manns, sem þeim tókst svo sannar-
lega vel.
Ekki var um langa skólagöngu
að ræða á þeim árum, sem Hjörleif-
ur var að alast upp, en hann fékk
þá menntun sem þá tíðkaðist. Hann
fór snemma að vinna til að létta
undir með foreldrum sínum því að
í þá daga runnu þær tekjur sem
einhver í fjölskyldunni vann sér inn
til heimilisins. Hann mun ekki hafa
verið nema um 10 ára gamall, þeg-
ar hann fór fyrst í vegavinnu, til
móðurbróður síns, Jóhanns Hjör-
leifssonar. Störf við vegagerð og
samgöngur urðu síðar hans aðal-
starf, fyrst sem vörubifreiðastjóri
og flokkstjóri síðan vegaverkstjóri
fráárinu 1958.
Á unglingsárunum var hann oft
vetrarmaður bæði á Hjarðarfelli hjá
föðurbróður sínum, Guðbjarti
bónda, og eins í Bjarnarhöfn í
Helgafellssveit. Hjörleifur kvæntist
23. júní 1943 Kristínu Hansdóttur
frá Hellissandi, fædd 4. desember
1922. Hefja þau þá búskap í tvíbýli
við foreldra hans í Hrísdal og búa
fyrstu árin í sama húsi, en síðar
byggja þau sitt eigið hús. Þau Hjör-
leifur og Kristín eignuðust átta
börn. Þau eru: Sigurþór f. 1943,
maki Magndís Alexandersdóttir;
Sigurður Grétar f. 1945 d. 1946;
Sigurður Grétar f. 1947, maki Ellý
Jóhansen; Ríkharður f. 1950, maki
Inga Birna Lúðvíksdóttir; Edda
Björk f. 1951, maki Þorvaldur Elís-
son d. 1989; Jóhann Bjarni f. 1952,
maki Særún Helgadóttir; Hjörleifur
Kristinn f. 1957, maki Magðalena
Hinriksdóttir; Björn Ægir f. 1963,
sambýliskona Ragnhildur Thorla-
cius.
Heimili þeirra Hjörleifs og
Kristínar var lengst af í Hrísdal epa
til ársins 1976 að þau flytja til Ól-
afsvíkur og reisa sér stórt og gott
hús á Miðbrekku 1. Þessar breyt-
ingar komu til af því að Vegagerð
ríkisins var að færa aðsetur sitt til
Ólafsvíkur. Hjá Vegagerðinni var
hann síðan vegaverkstjóri til ársins
1985. Frá árinu 1985 og fram til
síðustu áramóta starfaði Hjörleifur
við Ólafsvíkurhöfn sem hafnarvörð-
ur og vigtarmaður.
Hér í Ólafsvík undi hann hag
sínum vel, átti fallegt og myndar-
legt heimili sem þau hjónin voru
samhent með að búa sér. Til þeirra
var ávallt gott að koma og alltaf
var maður þar velkomin.
En eflaust hefur hugur hans oft
reikað til æskustöðvanna og oft var
skroppið í sveitina þegar færi gafst.
Nú síðast fyrir hálfum mánuði átt-
um við yndislega helgi á æskustöðv-
unum í Hrísdal, þar sem haldið var
niðjamót hjónanna Margrétar og
Sigurðar í Hrísdal. Það verða okkur
ógleymanlegar stundir þar sem
hann mætti, hrókur alls fagnaðar,
með flesta sína afkomendur.
Ég og ijölskylda mín eigum eftir
að sakna frænda og vinar, því ekki
verður lengur bankað á þvottahús-
dyrnar, opnað og spurt „Er ekki
einhver heima?“ Oft var setið í eld-
húsinu og spjallað, hann var þá allt-
af jafn hress og skemmtilegur. Mér
fannst þá oft að ég heyrði og sæi
afa minn í Hrísdal þegar Hjörleifur
var að segja frá einhveiju, því þeir
feðgar höfðu alveg sérstaklega
skemmtilegan frásagnarhæfileika.
Elsku Stína mín, við sendum þér
og allri fjölskyldunni okkar inni-
legustu samúðarkveðjur og erum
með ykkur í huganum á erfiðri
stundu. Megi góður guð styrkja
ykkur og blessa.
Gréta
Sú harmafregn barst að morgni
síðastliðins sunnudags að mágur
minn, Hjörleifur Sigurðsson fyrrum
vegaverkstjóri, væri látinn.
Hjörleifur fæddist á Hofstöðum
í Miklaholtshreppi 9. maí 1919,
sonur hjónanna Sigurðar Kristjáns-
sonar frá Hjarðarfelli og Margrétar
Oddnýjar Hjörleifsdóttur frá Hof-
stöðum. Á Hofstöðum er hann með
foreldrum sínum uns þau flytjast í
Dal í sömu sveit og síðan í Hrísdal
árið 1932 og við þann stað var
hann jafnan kenndur síðan.
Hjörleifur var elsta barn þeirra
Hrísdalshjóna. Það lætur því að
líkum að hann vai'ð snemma að
taka til hendi og aðstoða foreldra
sína við bústörfin á heimilinu. Þau
systkinin urðu ellefu og því augljóst
að mikið þurfti til framfærslu þess
stóra hóps. Það kom því í hlut elstu
bræðranna að afla tekna utan heim-
ilis. Hjörleifur var aðeins ellefu eða
tólf ára gamall er hann fór fyrst
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlót og
útför
HÖNNU ELSU JÓNSDÓTTUR,
Meðalholti 4,
Reykjavík.
Herdís Þorsteinsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
SÓLMUNDAR JÓHANNESSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar A-6 Borgarspítala.
Lifið heil.
Sigríður G. Elíasdóttir
og fjölskylda.