Morgunblaðið - 29.07.1989, Page 43
KNATTSPYRNA / VALLARMAL
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989
43
Þessi mynd vartekin í
landsieik á Laugardals-
vellinum. Eftir nýjar
reglur hjá UEFA geta
áhorfendur ekki staðið
á stæðunum á móti
stúkunni á Laugardals-
vellinum. Aðeins má
selja miða í númeruð
sæti. Miklar breytingar
verða að gera á Laugar-
dalsvellinum, ef hann á
að vera löglegur.
Laugardalsvöllurinn ólöglegurfyrir HM 1994:
HM-leikir verða aðeins
leiknir á völlum sem eru
með númeruð sæti
„Þetta verður vandamál hjá okkur, en
ég tel þetta rétta stefnu hjá FIFA," ^
segir Ellert B. Schram, formaður KSÍ
„ÞETTAer rétt stefna og að-
gerðir sem þessar eru gerðar
til þess að þeir sem koma á
knattspyrnuvellina hafa það
sem þægilegast," sagði Ellert
B. Schram, formaður Knatt-
spyrnusambands íslands, þeg-
ar hann var spurður um sam-
þykkt alþjóða knattspyrnusam-
bandsins FIFA - um að að allir
leikir í undankeppni heims-
meistarakeppninnar í Banda-
ríkjunum 1994 geti aðeins farið
fram á leikvöllum sem bjóða
áhorfendum eingöngu upp á
sæti og það númeruð sæti.
forkeppni heimsmeistarakeppn-
innar 1994, sem hefst 1992, sagði
hann: „Við munum óska eftir
undanþágu fyrir næstu heims-
meistarakeppni. Um að fá að leika
á vellihum við þær aðstæður sem
eru fyrir. Með undanþágu munum
við vinna tíma til að byggja völl-
inn upp.“
Sem betur fer hefur ekkert al-
varlegt óhapp komið upp á Laug-
ardalsvellinum og við munum
segja frá því þeger sótt verður
um undanþágu,“ sagði Júlíus.
essar reglur taka gildi 1992,
en þá hefst undankeppnin.
„Auðvitað verður þetta geysilegt
vandamál fyrir okkur hér á íslandi.
Við eigum enga leikvelli sem hafa
upp á að bjóða góðar aðstæður fyr-
ir áhorfendur. Laugardalsvöllurinn
tekur um 3.500 áhorfendur í sæti,
sem eru þó ekki númeruð. Það gef-
ur auga leið að ef númeruð sæti
verða sett í stúkuna á Laugardals-
vellinum mun hún taka innan við
3000 áhorfendur í sæti. Það yrði
fámennt á landsleikjum í Laugar-
dalnum við óbreyttar aðstæður,“
sagði Ellert B. Schram, formaður
KSÍ.
- Ellert sagði að þar sem KSÍ ætti
ekki Laugardalsvöllinn væri það
mál borgaryfirvalda að athuga
málin. „Við hjá KSÍ höfum bent
borgaryfirvöldum á að það verði að
gera bragarbót á Laugardalsvellin-
um. Það er ljóst að aðsókn á knatt-
spyrnuleikjum myndi stóraukast ef
áhorfendum yrði boðið upp á full-
koma aðstæðu þar sem vel færi um
þá,“ sagði Ellert, en hann er ein-
mitt formaður þeirrar nefndar hjá
Knattspymusambandi Evrópu,
UEFA, sem tekur út leikvelli og
samþykkir að leiknir séu stórleikir
á þeim.
„Við hjá FIFA gerum allt til að
ró og spekt verði á knattspymu-
leikjum - eftir harmleikina sem
hafa orðið undanfarin ár. Allir al-
þjóðlegir leikir eiga fara fram við
bestu aðstæður og það er stefnan
að allir alþjóðlegir leikir félagsliða
og landsleikir verði leiknir á völlum
sem bjóða aðeins upp á sæti. Það
verður ekki selt inn á stæði á leik-
völlum,“ sagði Sepp Blatter, ritari
FIFA.
„Vandamál sem við
verðum að taka á“
- segirJúlíus Hafstein, formaður íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkur. „Sækjum
um undanþágu fyrir Laugardalsvöllinn"
Við gerum okkur fyllilega
grein fyrir því að þetta er
vandamál sem við verðum að taka
á. Ég hef rætt við Ellert B.
Schram, formann Knattspyrnu-
sambands íslands út af þessu
máli,“ sagði Júlíus Hafstein, form-
aður íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur.
Nei, við munum ekki fara í það
að byggja upp sérstakan þröngan
knattspymuvöll. Hann mun koma
upp í framtíðinni. Það er ákveðið
að gera miklar endurbætur á
Laugardalsvellinum - bæði vegna
aðstöðu fyrir áhorfendur og einnig
verður aðstaða fyrir frjálsar
íþróttir endurbætt. Það verður að
gera fyrr en síðar,“ sagði Júlíus.
Þegar Júlíus var spurður um
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Fylkir skelKi Þór
ÚRSLIT
3. DEILD A:
Afturelding — ÍK..................0:7
— Ómar Jóhannsson 3, Hörður Magnússon
2. Steindór Elísson, Júlíus Þorfmnsson.
Grótta — Grindavík................0:2
— Þórarinn Ólafsson, Hjálmar Hallgríms-
son.
Víkveiji — Lciknir................3:0
Svavar Hilmarsson 2, Bergþór Magnússon.
Reynir S. — Hveragerði............2:3
Ævar Finnsson, Valdimar Júlíusson —
Kristján Theódórsson 2, Ólafur Jósefsson.
3. DEILD B:
Magni — Þróttur N.................3:2
Jón Ingólfsson, Heimir Ásgeirsson, Reimar
Helgason — Guðbjartur Magnason, Hörður
Rafnsson.
4. DEILD B:
Geislinn — Haukar.................1:6
Ingvar Pétursson — Kristján Kristjánsson,
Hermann Guðmundsson, Páll Poulsen,
Gauti Marinósson, Valdimar Sveinbjöms-
son, Helgi Eiríksson.
4. DEILD D:
Æskan — HSÞ-b.....................6:4
Baldvin Hallgrímsson 3, Gunnar Berg 2,
Stefán Rögnvaldsson - Viðar Siguijónsson
3, Stefán Guðmundsson.
m
Valur Ragnarsson, Örn Valdi-
marsson, Baldur Bjarnason,
Fylkir, Baldvin Guðmunds-
son, Þór.
FYLKISMEIMN gerðu góða ferð
til Akureyrar í gærkvöldi - þar
sem þeir náðu að skelia Þórs-
urum, 3:1. Við þetta æsist leik-
urinn á botni 1. deildar, þar
sem fjögur félög eru með tíu
stig; Keflavík, Víkingur, Fylkir
og Þór. „Þetta voru mjög dýr-
mæt þrjú stig fyrir okkur. Við
komum hingað til að gefa allt
sem við áttum í leikinn og vinna
sigur. Það tókst og nú er bara
að fylgja þessu eftir og rífa sig
frá botninum,“ sagði Valur
Ragnarsson, fyrirliði Þórs.
Leikurinn fór rólega á stað, enda
aðstæður ekki góðar - völlurinn
rennandi blautur og var því knatt-
spyman eftir því. Fylkismenn voru
ákveðnari í byijun
Reynir og fékk Baldur
Eiríksson Bjamason fyrsta
s,knf‘3r tækifæri leiksins -
fraAkureyn . 2g_ mín_ Baldvin
Guðmundsson, markvörður Þórs, sá
við honum og stökk eins og köttur
og gómaði knöttinn á elleftu
stundu. Aðeins þremur mín. seinna
skoraði Örn Valdimarsson glæsi-
mark fyrir Fylki, 0:1.
Örn fékk knöttinn 20 m frá marki
og var hann ekki að tvínóna við
hlutina - heldur sendi þrumufleyg
að marki Þórs. Knötturinn skall á
þverslánni og þeyttist þaðan í netið
út við stöng.
Gústaf Víflisson bætti öðm marki
við, 0:2, eftir að varnarmenn Þórs
höfðu sofnað á verðinum, en á
síðustu sek. fyrri hálfleiksins náði
Þorsteinn Jónsson að minnka mun-
inn, 1:2, fyrir Þór. Seinni háifleikur
var bragðdaufur og þegar sex mín.
voru til leiksloka gulltryggði Baldur
Bjamason sigur Fylkis, 1:8.
Örn Valdimarsson skoraði glæsi-
mark á Akureyri.
ÍÞRÓmR
FOLK
H ÞÓRSARAR hafa fengið
Bandaríkjamann við liðs sig í
körfuknattleik. Það er Brad Hag-
wood, 28 ára, svartur á hörund.
Hann er 2,06 m hár.
■ ÓLAFUR Hilmarsson hefur
gengið til liðs við Þór í handknatt-
leik, en hann lék með KA. Þá mun
Sigurður Pálsson, sem lék með
Haukum, einnig leika með Þórslið-
inu.
Þór-Fylkir 1 : 3
íslandsmótið i knattspymu 1. deild, Akureyrarvöllur, föstudagur 28. júlí.
Mark Þórs: Þorsteinn Jónsson (45.).
Mörk Fylkis: Öm Valdimarsson (29.), Gústaf Vífelsson (35.), Baldur Bjarnason (84.).
Gul spjöld: Baldur Bjamason (65.), Luca Kostic (55.), Ólafur Þorbergsson (57.)
Rautt spjald: Ólafur Þorbergsson (83.)
Dómari: Gísli Guðmundsson.
Áhorfcrndur: 617.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Luca Kostic, Nói Björasson, Þorsteinn Jónsson (Bjami
Sveinbjörnnson 70 min.), Bqan Tanevski, Birgir Karlsson, Július Tryggvason, Sveinn
Pálsson, Hlynur Birgisson, Ólafur Þorbergsson, Kristján Kristjánsson (Sœvar Ámason
63.).
Lið Fylkis: Guðmundur Baldursson, Valur Ragnarsson, Gústaf Vffilsson (Jón B. Guð-
mundsson 60.), Pétur Óskarsson, Guðmundur Magnússon (Ólafur Magnússon 77.), Hilm-
ar Sighvatsson, Anton Jakobsson, Baldur Bjarnason, Örn Valdimarsson, GIsli Hjálmtýs-
son, Loftur Ólafsson.