Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 1

Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 1
80 SIÐUR B/C 171. tbl. 77. árg. SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sri Lanka: Mikíð mannfall í mótmæla- aðgerðum gegn Indverjum Kólombó. Reuter. MÓTMÆLAAÐGERÐIR vegna tregðu indverskra stjórnvalda til að halda á brott með her sinn frá Sri Lanka kostuðu a.m.k. 140 manns lífið á eyjunni á föstudag, að sögn þarlendra yfirvalda og var mannfallið mun meira en í fyrstu var talið. Ranasinghe Premadasa forseti hvatti landsmenn í sjónvarpsávarpi til að sýna stillingu og benti á að samkomulag hefði nú tekist um brottflutning indversku hermannanna sem kvadd- ir voru til hjálpar 1987 gegn uppreisnarmönnum Tamíla; fyrstu hermennirnir fóru úr landi þegar í gær. Kynsvall í sendiráðinu? Washington. Reuter. MICHAEL Cooke, sendiherra Ástralíu í Bandaríkjunum, gagnrýndi í gær blaðafregn Washington Times um kyn- svall í sendiráðinu í Washington í nóv- ember síðastliðnum, en þvertók þó ekki fyrir að einhver fótur væri fyrir fregn- inni. Að sögn blaðsins tóku þrjár vænd- iskonur þátt í kynsvalli í sendiráðinu ásamt hópi miðaldra karla og hafði hver kvennanna mök við að minnsta kosti þijá karla. Rússar kaupa sokkabuxur í erg og gríð Lundúnum. Daily Telegraph. SOVÉSK verslunarnefhd lauk á föstu- dag búðarápi í Lundúnum fyrir 100 milljónir sterlingspunda. Aðallega var verslað við stórversiun Marks og Spen- cer í Knightsbridge, en gárungar í Lundúnum kalla verslunina nú Marx og Spencer. Meðal annars voru keypt 1.700.000 skópör, 50 milljónir sokka- buxna og 5.000 tonn af kaffi. Getum hefúr verið leitt að því að dijúgur hluti þessarar „munaðarvöru" eigi að renna til námamanna, sem nýverið luku verk- föllum með loforð um bætt lífskjör upp á vasann. Batman ekki við bama hæfi Lundúnum. Reuter. BRESKA kvikmynda- eftirlitið bannaði á föstudag börnum yngri en tólf ára að sjá kvikmyndina Batman (Leðurblökumanninn), sem nú fer sigurför um heiminn. „Hluti mynd- arinnar er mjög óhugnanlegur — ólíkt sjónvarpsþáttun- um eða teiknimyndasögunum, sem ég las sem strákur," sagði James Ferman, formaður kvikmyndaeftirlitsins. „Jack Nicholson í hlutverki Jókersins er fúll- ur kvalalosta og á einum stað skvettir hann sýru framan í [leikkonuna] Jerry Hall og finnst það hinn besti brand- ari.“ Fulltrúar Warner Brothers, sem eru framleiðendur myndarinnar, voru síður en svo miður sín þegar þeir fengu fregnirnar: „Þetta er frábært og fúll- komlega í samræmi við eðli inyndarinn- ar... Þessi Batman fer ekki á kreik fyrr en tekur að skyggja." Stjórnvöld á Sri Lanka hafa fyrirskipað útgöngubann í landinu en marxistasam- tök, sem beijast gegn stjórninni, hvöttu og neyddu í sumum tilvikum fólk til að reyna að bijóta bannið. Tugþúsundir manna héldu út á göturnar á föstudag og hrópuðu: „Ind- verskir hermenn, farið heim!“ Mest var um átök um miðbik landsins og sögðu heimildar- menn innan hersins að 128 manns hefðu týnt lífi er hermenn skutu á mótmælagöng- ur. Yfirvöld brutu aðgerðirnar á bak aftur af mikilli hörku og var m.a. skotið á 5.000 manna mótmælahóp úr þyrlum fiughersins. Útvarp landsins sagði í gær að þeim sem þrytu bannið yrði refsað harðlega og sögðu sjónarvottar að ekki hefði komið til nýrra átaka. Erlendir stjórnarerindrekar álíta að Premadasa forseta hafi mistekist að snúa vörn í sókn í baráttunni gegn marxistasam- tökunum Frelsisfylkingu alþýðunnar (JVP) með því að krefjast tafarlauss brottflutnings 45.000 manna liðs indversku stjórnarinnar. FYRR OFTÍ KÁTT Landbúnctbur á krossgötum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.