Morgunblaðið - 30.07.1989, Page 3
EFNI
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989
3
Landbúnaðurá kross
götum
►Fyrr var oft í koti kátt — en
nú stendur þessi gamalgróni undir-
stöðuatvinnuvegur frammi fyrir
stórfelldari vanda en nokkru sinni
fyrr./lO
Hugsað upphátt
►Friðrik Sóphusson, vararform-
aður Sjálfstæðisflokksins skrif-
ar/14
Útlönd
►Stríðið í Afghanistan dregst á
langinn/16
Bheimili/
FASTEIGNIR
► 1-16
Þjónustumiðstöð fyrir
aldraða
►Nú er risið á horni Garðastrætis
og Vesturgötu í Reykjavík hús
með 26 ibúðum sem einnig er þjón-
ustumiðstöð og heilsugæslustöð.
Grétar Halldórsson verkfræðingur
gerir grein fyrir byggingu húss-
ins/8
Suðurland:
Yíðtæk upplýsingaöflun
hafln uin j arðskj álftavirkni
Samnorrænt tilraunaverkeftii um skjálftaspár komið til firamkvæmda
Selfossi.
UNNIÐ er að því á vegum jarðeðlisfræðideildar Veðurstofu Islands
að setja upp kerfi til öflunar upplýsinga um jarðhræringar á Suðurl-
andi. Um er að ræða átta stöðvar sem settar verða upp í Árnes-
og Rangárvallasýslu. Hér er á ferðmni samnorrænt tilraunaverk-
efhi sem er framlag Norðurlandanna til tilrauna í heiminum í þá
átt að spá fyrir um jarðskjálfta. Auk þessa er unnið að þenslumæl-
ingum með fullkomnum tækjum djúpt í borholum á Suðurlandi.
Morgunblaðið/Sverrir
Ragnar Stefánsson jarðskjálftáfræðingur (t.h.) og Stefán Snorri
Stefánsson tæknifræðingur við nýja kerfiið.
Fyrsta stöðin í nýja gagnasöfn-
unarkerfinu var sett niður á
Bjarnastöðum í Ölfusi um miðjan
mánuðinn en hefur verið tekin upp
og er nú til nánari tækjaprófunar
í Reykjavík. Stöðin á Bjarnastöðum
er fyrsta skrefið í uppsetningu
kerfisins og á henni verður hug-
búnaðurinn reyndur sem þróaður
hefur verið og þau tæki sem notuð
verða í kerfinu. Hinar stöðvarnar
verða settar upp í september og
er gert ráð fyrir að kerfið fari í
gang þegar líður á veturinn. Þær
verða staðsettar á Heiðarbæ í Þing-
vallasveit, Sölvholti í Flóa, Ásmúla
í Ásahreppi, Gýgjarhólskoti i Bisk-
upstungum, Haukadal við Heklur-
ætur og Miðmörk undir Eyjafjöll-
um. Loks verður ein stöð annað-
hvort í Skarði á Landi eða á Saurbæ
í Holtum.
Tölvur stöðvanna tengjast allar
sjálfvirkt móðurtölvu á_ jarð-
skjálftadeild Veðurstofu íslands.
Móðurtölvan vinnur úr upplýsing-
um sem stöðvarnar senda til henn-
ar um breytingar á jarðskorpunni
og hræringar sem þær skynja hver
á sínum stað.
Að sögn Ragnars Stefánssonar
jarðskjálftafræðings munu stöðv-
arnar gefa mun meiri og itarlegri
upplýsingar en jarðskjálftamælar
hafa gert hingað til. Þær eru hann-
aðar þannig að við þær má bæta
búnaði til að gera aðrar jarðeðlis-
fræðilegar mælingar svo sem halla-
mælingar, þyngdarmælingar og
útstreymi á lofttegundum. Allar
slíkar mælingar tengjast breyting-
um í jarðskorpunni.
Ragnar sagði að með þessu kerfí
fengjust á skjótvirkan hátt upplýs-
ingar um breytingar á spennu í
jarðskorpunni til að nota sem
skjálftaviðvörun. „Þetta er á til-
raunastigi hvar sem er í heiminum.
Við teljum okkur ekki geta sagt
fyrir um jarðskjálfta en viljum
vinna að því að geta gert það,“
sagði Ragnar Stefánsson. Hann
sagði einnig að með þessu kerfi
fengist mjög gagnleg reynsla fyrir
íslendinga og aðra. Upplýsingum
væri safnað á einn stað og unnt
að lesa meira úr þeim með því að
koma þeim á aðgengilegt form.
Veðurstofan hefur auk þessa
verkefnis staðið að þenslumæling-
um á bergi djúpt í borholum og
notað til þess fullkominn og dýran
búnað sem bandarísk stofnun kost-
ar. Þessar mælingar hafa verið
gerðar á sjö stöðum á Suðurlandi
en litið er á landshlutann sem til-
raunasvæði í þessum rannsóknum.
Undanfarnar vikur hafa komið
fram smá hreyfingar í Hellisheið-
inni, út af Reykjanesi, í Krísuvík
og í Kötlu en þær eru ekki taldar
gefa neitt sérstakt til kynna.
„Þetta kerfi gerir að verkum að
við fáum mjög hratt upplýsingar
um ástand og breytingar á jarð-
skorpunni á Suðurlandi. Ekki bara
að það hafi orðið skjálftar heldur
einnig um nákvæm upptök þeirra
og krafta sem koma þeim af stað,“
sagði Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur. Hann lagði á
það áherslu að þó unnið væri í
þessu þá væru menn ekki að leysa
málin. Það væri mikilvægt að
kanjia styrkleika bygginga á Suð-
urlandi og styrkja þau hús sem
talið er að séu veik fyrir að ein-
hverju leyti. Þó áhersla væri lögð
á rannsóknir þyrfti að huga að
þessum fyirbyggjandi þáttum og í
því efni þyrfti ríkið að koma til
aðstoðar.
— Sig. Jóns.
Sigurður Jónsson með viðurkenninguna sem hann hlaut
Grindavík:
Islendingur heiðraður
Æðsta viðurkenning á sínu sviði
Grindavík
Goðsagnir í liafandi lífi
► Hér segir frá þremur þjóðsagna-
persónum — laxakónginum Þór-
arni Sigþórssyni, hundadömunni
Sigríði Pétursdóttur á Olafsvöllum
og Ingimar Bjarnasyni vatna- og
hestamanni á Jaðri í Suðursveit/1
Mtinchhausen
► Sitthvað satt og logið um þann
góða barón sem nú hefur verið
festur á kvikmyndafilmur og sýnd-
ur í Stjömubíó þessa dagana/6
Smekkleysa í New
York
►Þijár íslenskar hljómsveitir voru
á dögunum í New York á vegum
útgáfufyrirtækisins Smekkleysu.
Blaðamaður Morgunblaðsins
fylgdistmeð/14
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 2/4/bak Fjölmiðlar 16c
Dagbók 8 Minning 18c
Leiðari 18 Stjörnuspeki 19c
Helgispjall 18 Brids /19c
Reykjavíkurbréf 18 Myndasögur 19c
Karlar 30 Minning 20c
Fólk i fréltum 30 Bió/dans 22c
Útvarp/sjónvarp 32 Velvakandi 24c
Mannlifsstr. 8c Samsafnið 26c
Mennstr. llOc Bakþankar 27c
Minning 12c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4
SIGURÐUR Jónsson tæknileg-
ur framkvæmdastjóri útvarps-
og sjónvarpsstöðvar varnarliðs-
ins hlaut nýlega æðstu viður-
kenningu sem veitt er starfs-
mönnum útvarps- og sjónvarps-
stöðva á vegum bandariska
hersins.
Viðurkenningin er kennd við
Tom Lewis sem var fyrsti
yfirmaður utvarps- og sjónvarp-
skerfis hersins og er veitt árlega
þeim starfsmanni sem þykir hafa
skarað fram úr við störf á þessu
sviði. Sigurður var valinn úr hópi
8.000 starfsmanna sem starfa við
stofnunina.
Sigurður lærði útvarpsvirkjun
í Bandaríkjunum og hóf störf við
útvarps- og sjónvarpsstöðina árið
1959 og varð þar með fyrs.ti út-
lendingurinn sem var ráðinn á
þessu sviði af Bandaríkjaher. Auk
þess að starfa á Keflavíkurflug-
velli er Sigurður tæknilegur ráð-
gjafi bandaríska flotans um rekst-
ur útvarps og sjónvarps í Evrópu,
Nýfundnalandi og á Bermúdaeyj-
um.
Sjónvarpsstöð varnarliðsins
sendir nú út á 6 rásum allan sólar-
hringinn þar af er útsending
Stöðvar 2 send út þegar hún er
ótrufluð. Útvarpið sendir út á
tveimur rásum.
Sigurður sagði að hann liti á
verðlaunin sem viðurkenningu
fyrir störf íslendinga sem starfa
hjá varnarliðinu.
FÓ
Snæfellsnes:
Bændur andvígir
lokun sláturhússins
Stykkishólmi.
BÆNDUR á Snæfellsnesi eru algerlega andvígir því að sláturhúsið
í Stykkishólmi verði lagt niður. Var ályktun þessa efnis samþykkt
einróma á almennum bændafundi um þetta mál sem haldinn var að
Skildi í Helgafellssveit fyrir skömmu. Fundurinn skoraði á alþingis-
menn og aðra forystumenn héraðsins að koma í veg fyrir að slátrun
verði hætt í Stykkishólmi, jafiiframt því sem þeir kusu tvo bændur,
Hrein Bjarnason á Berserkseyri og Magnús Guðmundsson á Gríshóli,
til að fylgja málinu eftir. Þá fór fúndurinn fram á það við Sturlu
Böðvarsson sveitarsljóra í Stykkishólmi að hann aðstoðaði þá við
að ná fram farsælum málalokum og varð hann við því.
IStykkishólmi er nú eina slátur-
húsið í Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu en ekki er ýkjalangt síðan
slátrað var á átta stöðum í sýsl-
unni. Sláturhúsið í Hólminum hefur
á undanförnum árum verið endur-
bætt til að fullnægja kröfum yfir-
valda og er með betri sláturhúsum
landsins. Sláturfélag Snæfellinga
hf. er skráður eigandi þess en helstu
hluthafar eru Hólmkjör hf. í Stykk-
ishólmi, Kaupfélag Stykkishólms,
Verslunarfélagið Grund og Kaup-
félag Grundarfjarðar.
Hin síðustu ár hefir Hólmkjör
hf. eitt sér haldið uppi rekstri húss-
ins og lagt í það mikla peninga, eða
svo skiptir milljónum. Vegna
ýmissa aðstæðna sér Hólmkjör hf.
enga möguleika á því að halda þess-
um rekstri áfram án verulegrar
aðstoðar. Skuldir sem hvíla á slátur-
húsinu eru ekki langt frá 30 milljón-
um og nú er svo komið að beðið
hefir verið um uppboð á því vegna
skulda.
Snæfellskir bændur hafa af þess-
um þungar áhyggjur og boðuðu
bændasamtökin hér í sýslunni til
fundarins að Skildi. Var fjölmennt
á fundinum. Kristinn B. Gíslason
stýrði fundinum og málshefjandi
var Tryggvi Gunnarsson bóndi á
Brimilsvöllum. Mættir voru fram-
kvæmdastjóri Hólmkjörs, Benedikt
Lárusson, og Sturla Böðvarsson
bæjarstjóri í Stykkishólmi. Skýrðu
þeir málin frá sjónarhóli Hólmkjörs
og bæjarins og lýsti Sturla vilja
sínum til að stuðla að því að þessi
starfsemi félli ekki niður.
Allir sem til máls tóku lýstu
áhyggjum yfir hvernig komið væri
og nauðsyn þess að bregðast sem
fyrst og alvarlegast við vandanum
og láta ekki falla niður slátrun í
húsinu í haust. Voru þeir á einu
máli um að til þyrfti að koma fjár-
hagsaðstoð í einhveiju formi og
Stofnlánadeild landbúnaðarins
þyrfti að koma inn í málið með nið-
urfellingu skulda eða'annarri hjálp.
Páll Pálsson á Borg lýsti þeirri skoð-
un sinni að það væri hart að leggja
niður fyrsta flokks sláturhús með
besta kjötkæli landsins.
- Árni
r