Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 4

Morgunblaðið - 30.07.1989, Side 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐl® SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989 ERLENT INNLENT Olía við Rockall? Setlög, sem sennilega innihalda olíu, er að finna á Hatton-Rock- all-svæðinu. Þeir, sem unnu úr sameiginlegum rannsóknum ís- lendinga og Dana á hafsbotninum á þessu svæði, telja ástæðu til að rannsaka hann betur með tilliti til olíuleitar. Þriggja milljarða tap á fískvinnslunni Samkvæmt athugun Samtaka fiskvinnslustöðva er nú um 4,2% tap á fiskvinnslunni og á síðasta ári tapaði hún þremur milljörðum króna. Gengið lækkað Seðlabankinn hefur fengið heimild til að lækka gengi krón- unnar um 2,25%. Halldór Ás- grimsson sjávarútvegsráðherra segir að þar með sé staðið við fyrirheit frá kjarasamningagerð, um að afkoma fískvinnslunnar verði tryggð á samningstímanum. íslandsbanki um áramót Einkabankinn, sem verður til við samruna Útvegsbanka, Verzl- unarbanka, Iðnaðarbanka_ og Al- þýðubanka, mun heita íslands- banki. Hluthafafundir Alþýðu- Verzlunar og Iðnaðarbanka sam- þykktu samrunann með yfirgnæf- andi meirihluta atkvæða og eftir hluthafafund Útvegsbanka 1. ágúst verður ekkert í vegi sam- runans, sem mun eiga sér stað um áramót. Sigurður Jónsson til Arsenal Sigurður Jónsson, landsliðs- maður í knattspymu, hefur geng- ið til liðs við Englandsmeistarana Arsenal. Hann hefur leikið með Sheffield Wednesday í Englandi. Glaðningur um mánaðamótin Ríkissjóður sendir landsmönn- um um 3.600 milljónir króna í pósti um mánaðamótin. Þama er um að ræða endurgreiðslur á of- greiddum tekjuskatti, bamabæt- ur, bamabótaauka og húsnæðis- bætur. Frá ferðaskrifstofum ber- ast þær fréttir að ásamt fúlviðri á sunnanverðu landinu hafí þessi glaðningur haft þau áhrif að pant- anir á sólarlandaferðum taka kipp. Nýbyggingu bjargað Ríkisstjómin hefur samþykkt 35 milljóna aukaflárveitingu til að leggja hitaleiðslur í nýbyggingu Þjóðarbókhlöðunnar. Þannig á að veija húsið skemmdum í vetur. Bandaríkjamenn kosta vatnsveitu Utanríkisráðherra, Jón Bald- vin Hannibalsson.hefur undirrit- að samning við Vatnsveitu Suður- nesja um Iagningu og fekstur nýrrar vatnsveitu. Bandarísk stjórnvöld munu kosta fram- kvæmdina og greiða til þess rúm- lega hálfan milljarð króna. Hraðfiystihús PatreksQarðar gjaldþrota Stjóm Hraðfrystihúss Patreks- ijarðar hefur ákveðið að óska eft- ir gjaldþrotaskiptum í kjölfar þess að Hlutafjársjóður hafnaði beiðni fyrirtækisins um aðstoð. ERLENT Takmörkuð sjálfssljórn Eystrasalts- ríkja Æðsta ráð Sovétríkjanna sam- þykkti á fímmtudag tillögur sem miða að því að auka sjálfsstjóm Eystrasaltsríkjanna þriggja á vettvangi efnahagsmála. Hugsan- legt er talið að svipaðar umbætur sigli í kjölfarið í öðram lýðveldum Sovétríkjanna. Á þriðjudag Iauk einum alvarlegustu vinnudeilum í sögu Sovétríkjanna er kolanámu- menn á Donbas-svæðinu snem aftur til vinnu eftir að þeim hafði verið heitið svipðum kjarabótum og námamönnum í Síberíu áður. Thatcher breytir stjóm sinni Margaret Thatcher, for- sætisráðherra Bretlands, gerði miklar breytingar á ríkisstjóm sinni á mánu- dag. Mesta at- hygli vakti að Sir Geoffrey Howe var látinn vílqa úr embætti utanríkisráð- herra en við þeirri stöðu tók lítt þekktur maður, John Major. George Younger vék úr embætti vamarmálaráðherra en við starfí hans tók Tom King, sem áður hafði farið með málefni Norður- írlands. Dómur í Palme-málinu Christer Pett- erson var á mánudag dæmdur í lífstíðarfang- elsi eftir að kviðdómur í Stokkhólmi hafði komist að þeirri niður- stöðu að hann væri morðingi Olofs Pahne, fyrram forsætisráð- herra Svíþjóðar. Líklegt þykir að dómnum verði hnekkt við áfrýjun til Hæstaréttar. Miðstýring endurvakin í Kína Kínversk stjómvöld skýrðu frá því á fímmtudag að afráðið hefði ver- ið að „leiðrétta" stefnuna hjá öll- um þeim fyrirtækjum er störfuðu á sviði utanríkisviðskipta auk þess sem þeim yrði fækkað verulega. Var yfírlýsing þessi túlkuð á þann veg að horfíð yrði á ný til miðstýr- ingar fyrri ára. Þúsundir manna hafa verið handteknar í herferð stjómvalda gegn lýðræðissinnum og hafín er skipuleg áróðursher- ferð gegn erlendum menningar- áhrifum. Uno segir af sér Sosuke Uno sagði á mánu- dag af sér sem forsætisráð- herra Japans eftir að flokkur hans, Fijáls- lyndi lýðræðis- flokkurinn, hafði beðið mikinn ósigur í kosningum til efri deildar Japansþings. Ósigurinn er einna helst rakinn til söluskatts sem flokkurinn kom á auk þess sem ráðamenn innan hans hafa tengst alvarlegum hneykslismál- um. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings: V ar nar málafr um varp stjómar Bush samþykkt Framlög til geimvarna og nýrra eldflaugakerfa skorin niður Washington. Reuter. SAMÞYKKT var í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á fostudag að veita 305,4 milljarða dala vamarmálafrumvarpi George Bush Bandaríkja- forseta brautargengi. Það var þó ekki samþykkt fyrr en búið var að feUa út áætlun um smíði færanlegra kjamorkuflauga og minnka fjárframlög tíl smíði B-2, sprengjuvélarinnar torséðu, og geimvama- áætlunarinnar. Nú þurfa nefndir beggja þing- deilda, fulltrúadeildar og öldunga- deildar, að koma sér saman um málamiðlanir og samræmingu framvarpanna, eins og þau vom afgreidd frá deildunum og er talið að forsetinn muni enn geta fengið þingmenn til þess að hækka ijár- framlög til þeirra áætlana, sem Hvíta húsinu em mest að skapi. * ^ Amiðvikudag samþykkti deildin að leyfa hönnun og tilraunir með MX-kjamorkuflaugar, sem eru færanlegar, en ekki má hefja upp- setningu eldflaugakerfísins. Sovét- menn hafa þegar tekið í notkun tvö færanleg kerfí langdrægra eld- flauga: SS-25, sem skotið er af sérstökum skotpallsbflum, og SS- 24, sém skotið er af jámbrautar- vögnum. Fyrr í vikunni ákvað fulltrúa- deildin að skera niður framlög til smíði torséðu sprengjuvélarinnar B-2, en hún er þeiiii eiginleikum gædd að nær ógerlegt er að greina hana á ratsjá. Framlög til geim- vamaáætlunarinnar voru einnig lækkuð stórlega en þrátt fyrir nið- urskurð lifðu báðar áætlanimar meðferð þingsins af. í staðinn ákvað þingið að veija þeim ijármunum, sem þar spöruð- ust, í margs konar áætlanir aðrar. Margar þeirra eru reyndar í litlu samræmi við óskir hersins og er mál manna í Washington, að lítið hafí orðið um efndir þingmanna á þeim loforðum að láta hagsmuni heima í héraði ekki ganga fyrir öryggishagsmunum landsins. Var með þessum hætti komið í veg fyr- ir að loka þyrfti flölda verksmiðja, er framleiða hergögn, sem herinn telur að litlu gagni koma eða beinlínis vera til óþurftar. Reuter Grænfriðungar hindra eldfla ugarskot Bandaríski flotinn hugðist á föstudag gera tilraun með nýja, kraft- mikla eldflaug af gerðinni Trident-2 en varð að hætta við skotið vegna aðgerða Grænfriðunga. Liðsmenn samtakanna, sem vilja banna allar siglingar með kjamavopn, neituðu að halda fleytum sínum á brott af alþjóðlegu hafsvæði undan strönd Florida-ríkis en flotinn hafði bannað allar siglingar þar meðan tilraunin færi fram. Á mynd- inni eru Grænfriðungar um borð í gúmbáti sínum, skömmu eftir að þeim hafði tekist að festa fána sinn við fjarskiptamastur kjamorku- kafbátsins USS Tennessee. Lengst til vinstri sést mastrið en sjálfur báturinn er undir yfírborðinu. Samskipti Evrópubandalagsins og EFTA: Mikil vinna að baki en flest ágreiningsefhi óútkljáð FYRSTA áfanga viðræðna Evrópubandalagsins (EB) og Fríverslun- arsamtaka Evrópu (EFTA) um hina svokölluðu þriðju leið í sam- skiptum aðildarríkjanna lauk í síðustu viku. Með þessum viðræðum var ætlað að tína til þau efiiisatriði sem gagnkvæmur vi(ji væri til að ræða nánar. í þessu skyni voru settir saman Qórir starfshópar sem hver um sig fjallaði um afinarkað svið. Fimmta hópnum, sem hélt fiind í síðustu viku í Brussel, er falið að það hlutverk að gera tiUögur um fyrirkomulag samstarfeins. Með viðræðum og vinnu þessa árs er verið að undirbúa formlegar viðræður EFTA og EB en stefiit er að þvi að þær hefjist í byrjun næsta árs. Samkvæmt heimildum í Brussel hefur starf hópanna gengið vel fyrir sig en innan EFTA em það fyrst og fremst Svisslendingar sem hafa fyrirvara um óskilyrt frelsi til handa þegnum sínum og annarra aðildarríkja EFTA og EB. Enn sem komið er hefur ekki reynt á af- stöðu aðild- arríkja EB en talið er líklegt að þjóðimar í norðanverðri Evrópu séu hlynntar sem nánustu samstarfí en aðildarríkin í sunnan- verðu bandalaginu telji ýmislegt brýnna en eyða dýrmætum tíma í langar og flóknar samningaviðræð- ur við EFTA-ríkin Fyrsti hópurinn fjallaði um óhindrað vöraviðskipti. Á fundum hópsins var m.a. rætt um landa- mæraeftirlit, opinber innkaup, und- irboð og tollabandalag. Jafnframt var fjallað um flutninga hættulegra efna, samræmingu heil- brigðiskrafna sem og upplýsinga- tækni og fjarskipti. Ljóst er að fríverslun með landbúnaðarvörur er ekki á dagskrá. Fríverslun með físk er illsamræmanleg fískveiði- stefnu EB en þó má telja líklegt að hún verði tekin upp í formlegum viðræðum á næsta ári. Hvað ísland varðar er talið líklegt að niðurstað- an geti orðið einhvers konar útvíkkun á bók- un sex í fríverslunar- samningi ís- lands og EB sem fjallar um innflutningsívilnanir á íslenskum sjávarafurðum til EB. Innan hóps tvö var fjallað um óhindrað þjónustuviðskipti m.a. bankamál, tiyggingar, verðbréfa- markaði, íjármagnshreyfíngar og skattamál. Heimildir herma að ekk- ert beri á milli bandalaganna tveggja í þessum málaflokkum og vilji mun vera fyrir hendi innan EFTA að taka upp óhindrað þjón- ustuviðskipti. Þriðji hópurinn fyallaði. um atvinnu- og búsetufrelsi fólks. íslendingar og Svisslending- ar hafa fyrirvara á um þessi at- riði. íslendingar vilja fá svipuð ákvæði og era í sams konar samn- ingum á milli Norðurlandanna. Þau gera ráð fyrir að íslenskum stjórn- völdum sé heimilt að takmarka búsetu útlendinga og störf annað- hvort í tilteknum landshlutum eða atvinnugreinum í samráði við önn- ur aðildarríki að samningnum. Fjórði hópurinn var kenndur við svonefnd jaðarmálefni og fjallaði m.a. um menntamál, rannsóknir og þróun auk þess sem rætt var um umhverfismál félagsleg mál- efni, samgöngur, fyrirtækjalög- gjöf, neytendavemd og ferðamála- þjónustu. Innan EFTA er áhugi fyrir sem víðtækustu samstarfi á þessum sviðum. Samningar um kostnaðarhlutdeild og stjórnun verða að öllum líkindum erfíðir. Ljóst er að í störfum sínum hafa þessir fjórir hópar fyrst og fremst farið yfír möguleg samstarfssvið og mun flestum ágreiningsefnum hafa verið vísað til fímmta hóps- ins, sem er undir forystu Svisslend- inga. Sá hópur hefur nýlega hafið störf en hlutverk hans verður að gera tillögur um fyrirkomulag sam- starfsins, nauðsynlegar stofnanir, tengsl við núverandi stofnanir og áhrif á löggjöf og lagasetningu. Hópurinn á fyrir höndum sérlega flókin viðfangsefni. Jafnvel þótt EFTA-ríki létu af fyrirvörum sínum gagnvart yfírþjóðlegum stofnunum og afsali fullveldis er ósamið um áhrif þeirra á ákvarðanir innan EB sem varða samstarfssviðin. BAKSVIÐ eftir Kristófer M. Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.