Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 8
MORGUNBLABIÐ
DAGBÓK
fcj _»
SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989
T T1 A /~i ersunnudagur30.júlí, 10. sunnudagur eftir
I UxxvJrTrinitatis. 211. dagurársins 1989 kl. 4.38 og
síðdegisflóð kl. 17.02. Sólarupprás í Reykjavík kl. 4.27 og
sólarlagkl. 22.38. Sólin er í hádegisstað kl. 13.34 ogtungl-
ið er í suðri kl. 11.44. (Almanak Háskóla íslands.)
Guð er oss hjálpræðisguð, og Drottinn alvaldur bjargar
frá dauðanum. (Sálm. 68,21.)
ÁRNAÐ HEILLA
r| ára afrnæli. Næstkom-
ÖU andi þriðjudag verður
sextugur Sigurður A. Krislj-
ánsson fyrrum innheimtu-
maður Asgarði 121, hér í
Rvík. Þann dag, 1. ágúst,
ætlar hann og kona hans,
Svala Aðalsteinsdóttir, að
taka á móti gestum í Holiday
Inn milli kl. 16 og 19.
HJÓNABAND. í Langholts-
kirkju voru fyrir nokkru gefin
saman í hjónaband Kristín
Alexíusdóttir og Steingrím-
ur Davíðsson. Heimili þeirra
er í bænum Kalmar í Svíþjóð.
Sr. Sigurður Haukur Guð-
jónsson gaf brúðhjónin sam-
an.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 50 ÁRUM
Meðan Reykvíkingar
njóta sólskinsins upp á
hvem dag eins og verið
hefur undanfarið verða
þeir að hafa hemil á
vatnsnotkuninni og láta
ekki vatn renna til garð-
vökvunar. Bæjarverk-
fræðingur hefur með
auglýsingu hvatt bæj-
arbúa til að eyða ekki
vatninu að óþörfu. Vegna
langvarandi þurrka hef-
ur vatnið í Gvendar-
brunnum minnkað. Er
nauðsynlegt að spoma
við allri óþarfa vatns-
eyðslu því hér getur hæg-
lega skapast vandræða
ástand. í gær var sjórinn
suður í Skeijafirði rúm-
lega 17 stiga heitur og
var þar hinn mesti fjöldi
baðgesta og talið að um
350 hafi verið þar þegar
flest var.
MINNINGARKORT
MINNINGAKORT MS-
félagsins fást á eftirtöldum
stöðum: Á skrifstofu félags-
ins að Álandi 13. í apótekum:
Kópavogsapótek, Hafnar-
fjarðarapótek, Lyíjabúð
Breiðholts, Árbæjarapótek,
Garðsapótek, Háaleitisapó-
tek, Holtsapótek, Lyfjabúðin
Iðunn, Laugavegsapótek,
Reykjavíkurapótek, Vestur-
bæjarapótek, Apótek
Keflavíkur, Ákraness Apótek
og Apótek Grindavíkur. í
Bókabúðum: Bókabúð Máls
og menningar, Bókabúð Foss-
vogs í Grímsbæ. Á Akranesi:
Verslunin Traðarbakki.
FRÉTTIR/MANNAMÓT
GENÍS hf. heitir hlutafélag
sem stofnað hefur verið hér
í Reykjavík og tilk. um stofn-
un þess í nýju Lögbirtinga-
blaði. Tilgangur þess er að
vinna að verkefnum á sviði
efnavinnslu og líftækni, þ.e.
tilraunum, þróunarvinnu,
framleiðslu og sölu á skyldum
afurðum segir í tilk. Stofn-
endur þess eru einstaklingar
og fyrirtæki svo sem Háskóli
íslands og meðal hlutafélaga
Pharmaco og Delta svo og
Iðntæknistofnun íslands.
Hlutafé er 3,2 milljónir kr.
Formaður stjómar Genís er
Hallgrímur Jónasson Víði-
vangi 17 í Hafnarfirði.
FERÐASKRIFSTOFA. Þá
er í Lögbirtingi tilk. um stofn-
un Ferðaskrifstofunnar Atl-
antik hf. hér í Reykjavík.
Tilgangurinn er m.a. öll al-
menn ferðaþjónusta og skyld-
ur rekstur. Hlutafé er kr. 12
millj. Stjórnarformaður er
Böðvar Valgeirsson Grunda-
landi 13 hér í Reykjavík.
AKUREYRARLÖGREGL-
AN. Bæjarfógetinn á Akur-
eyri auglýsir í nýju Lögbirt-
ingablaði lausar stöður í lög-
regluliðinu á Akureyri. Um
er að ræða þijár stöður lög-
reglumanna og stöðu lög-
regluvarðstjóra en hann á að
starfa á Dalvík. Umsóknar-
frest um stöðurnar setur bæj-
arfógetinn til 16. ágúst.
FÉL. eldri borgara. í dag
sunnudag er opið hús í Goð-
heimum, Sigtúni 3 kl. 14,
fijálst spil og tafl og í kvöld
kl. 20 verður dansað. Næsta
sumarferð félagsins verður
farin 8. ágúst næstkomandi.
Þetta er 12 daga ferð um
Austurland. Nánari uppl. á
skrifstofunni s. 28812. Frá
1. ágúst til 1. september er
lokað í Goðheimum vegna
sumarleyfa.
VERKAKVENNAFÉL.
Framsókn er að undirbúa
sumarferð fyrir félagsmenn
sína. Verður farið til Vest-
mannaeyja um helgina
12.-13. ágúst nk. Gist verður
á gistiheimili þar í bænum.
Lagt verður af stað frá skrif-
stofunni í Skipholti 50A,
laugardaginn 12., og komið
aftur í bæinn seinnipart
sunnudagsins. Á skrifstof-
unni s-. 688930 eru gefnar
nánari uppl. og skráning þátt-
takenda.
SKIPIN______________
REYKJAVÍKURHÖFN:
í dag, sunnudag er Skógar-
foss væntanlegur að utan, en
hann kemur við á Suðumesj-
um. Skemmtiferðaskipið Vas-
co da Gama verður hér í dag
daglangt. í fyrrakvöld fór
Tinganes á ströndina og
beint út.
HAFNARFJARÐAR-
HOFN: í gær var ísnes
væntanlegt að utan og Ljósa-
foss í ferð á ströndina. Þá
voru í gær tveir frystitogarar
væntanlegir inn til löndunar
Helga n og Snæfell.
(Morgunblaðið/RAX)
Ljósmyndari Morgunblaðsins var
á ferð fyrir austan Fjall í vikunni
sem leið. Þá bar svo við, er hann
var á veginum milli Eyrarbakka
og Selfoss að hann ók fram á
þessa skepnu sem var á beit við
þjóðveginn. Ekki taldi hann ráð-
legt að fara út úr bílnum, styggð
kæmi að henni og hún ryki út í
veður og vind. Ljósmyndarinn
taldi sig ekki geta slegið föstu,
af hinum miklu hornum og ein-
kennilega vexti þeirra, hvort
heldur skepnan myndi vera rolla
eða hrútur. Fróðlegt gæti það
verið að fá nánari vitneskju um
þessa skepnu. Slíkt væri með
þökkum þegið á Morgunblaðinu.
ÞETTA GERÐIST
30. júlí
ERLENDIS:
1361: Danir taka Visby undir
forystu Valdimars Atterdags.
1619: Fulltrúaþing, hið fyrsta
í Norður-Ameríku, kemur
saman í Jamestown, Virginíu.
1646: Franskt herlið Turen-
nes gerir innrás í Bæjaraland
með stuðningi sænsks hers
Wrangels.
1656: Orrustunni um Varsjá
lýkur.
1709: Sigur hertogans af
Marlborough og Eugens prins
á Frökkum við Toumai
(Belgíu).
1877: Önnur orrustan um
Plevna milli Rússa og Tyrkja.
1930: Loftskipið „R101“ flýg-
ur yfir Atlantshaf.
1934: Kurt von Schuschnigg
skipaður kanzlari í Aust-
urríki.
1948: Ungverski leiðtoginn
Zoltan Tildy neyddur til að
segja af sér.
1967: Jarðskjálftar í Caracas.
1971: Geimfaramir David
Scott og James Irwin lenda í
Apöllo 15 á tunglinu.
1975:Örryggismálaráðstefna
Evrópu hefst í Helsinki.
1976:Tilkynnt að a.m.k.
100.000 hafi farizt í jarð-
skjálfta sem lagði kínversku
borgina Tangshan í rúst.
HERLENDIS:
1841: Embættisnefndin sam-
þykkir Alþingisfrumvarpið.
1863: Áskomn Jóns Ámason-
ar og Sigurðar Guðmunds-
sonar um varðveizlu fom-
minja.
1874: Kristján IX Danakon-
ungur kemur til íslands
ásamt tveimur herskipum.
1880:Árásargrein Gríms
Thomsen á Jón Ólafsson birt-
ist í „ísafold".
1903: F. Anna Borg.
1905: Bændur hópast til
Reykjavíkur að mótmæla
sæsímanum.
1907: Friðrik VIII Danakon-
ungur kemur í heimsókn til
íslands.
1951: D. Magnús Ásgeirsson.
1961: Brúin yfír Homaflarð-
arfljót vígð.
1973: Fyrsta skuttogaranum
hleypt af stokkunum.
Þetta eru Lára Rúnarsdóttir og Bryndís Guð-
mundsdóttir. Þær héldu hlutaveltu til ágóða fyr-
ir Hjálparsjóð Rauða kross íslands og söfnuðu
þær 700 krónum.
ORÐABOKIN
Hvernig förum við
að?
í Morgunblaðinu síðastlið-
inn sunnudag mátti lesa eft-
irfarandi: fær hann ná-
kvæma lýsingu á því hvem-
ig hann skuli bera sig að
við að fá morgunmat. Um
orðasambandið að bera sig
að við eitthvað hnaut ég.
Þetta er fengið óbreytt að
láni úr dönsku, og um það
höfum við rúmlega 200 ára
gömul dæmi í bókum. All-
mörg dæmi eru svo um það
frá síðustu öld og enn lifir
það í munni margra. Engu
að síður þykir þetta ekki
gott mál, enda sést það ekki
í ritum þeirra, sem vanda
mál sitt, og heyrist tæplega
heldur í máli þeirra. Hér
eigum við annað og miklu
betra orðalag, þ.e. að fara
(svo eða svo) að, eins og
danska orðasambandið
bære sig ad med noget er
þýtt í dönskum orðabókum.
I Nýrri danskri orðabók frá
1896 er orðasambandið:
bære sig galt ad þýtt með
orðunum: fara ranpj, að. í
dönsku spyija menn: Hvor-
dan bærer man sig ad med
det? Á íslenzku hljómar
þetta óbreytt þannig:
Hvemig ber maður sig að
við þetta? Hér á vitaskuld
að segja: Hvemig fer maður
(eða fömm við) að við þetta?
I samræmi við það hefði átt
að orða ofangreinda setn-
ingu svo: hvemig hann skuli
fara að við að fá morgun-
mat...
- JAJ.
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 bámr, 5
kul, 8 hafna, 9 sveri, 11 grenj-
ar, 14 verkfæri, 15 skám, 16
auðir, 17 á húsi, 19 biti, 21
sjóða, 22 gamla, 25 fag, 26
lægð, 27 sefi.
LÓÐRÉTT: — 2 liggi á
hálsi, 3 sár, 4 beð, 5 stórlæt-
is, 6 kyrrsævi, 7 fugl, 9 háð-
fugl, 10 með óvæm, 12
hrútlömb, 18 sjá eftir, 20
verkfæri, 21 bókstafur, 23
tveir eins, 24 lítinn sting.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 assan, 5 slaga, 8 karpa, 9 hælir,
11 askar, 14 tík, 15 sálma, 16 aulum, 17 rrr, 19
vann, 21 hala, 22 danglar, 25 kýs, 26 áni, 27 iði.
LÓÐRÉTT: - 2 snæ, 3 aki, 4 nartar, 5 spakar,
6 las, 7 góa, 9 Húsavík, 10 Lálands, 12 kaldari,
13 romsaði, 18 regn, 20 Na, 21 ha, 23 ná, 24 LI.