Morgunblaðið - 30.07.1989, Blaðsíða 16
16
•■^ÖRél^BlAÖIÐ /SUNNUDAOUR' 30r<imí'a989
alabad mundi tryggja sveitum þeirra
örugga fótfestu í Afghanistan og
flýta fyrir falli stjórnarinnar í Kabul.
Um 15,000 skæruliðar settust um
Jalalabad, en þeim varð lítið ágengt
og langt umsátur hófst. Þeir höfðu
aldrei áður einbeitt sér að því að
ráðast á óvininn á einum stað og
beittu viðvaningslegum aðferðum.
Mestöll vopn og skotfæri, sem bár-
ust erlendis frá, voru send til Jal-
alabad, en ekki til ótal hópa víðs
vegar um landið. Engin samstaða
var í forystuliði skæruliða um sam-
ræmdar aðgerðir um landið allt og
aðrir hópar skæruliða héldu að sér
höndum. Kabul-stjórnin gat hins veg-
ar beint herliði sínu á einn stað.
Vígstaða Kabul-hersins var ákjós-
anleg og herinn kunni að færa sér
yfirburði sína í nyt, eins og hermála-
fréttaritari Sunday Times bendir á.
Góður baráttuandi hefur ríkt í helztu
hersveitum stjórnarinnar og færri
hermenn hafa hlaupizt undan merkj-
um en búizt var við, þegar sovézka
herliðið fór úr landi. Margir hermenn
munu hafa hætt við að stijúka vegna
fregna um illa meðferð skæruliða á
stríðsföngum — t.d. meint morð á
föngum í Torkham í janúar.
Ógurleg vopn
__ Nýjar baráttuaðferðir setuliðsins í
Jalalabad höfðu lamandi áhrif á
skæruliða. Þúsundum jarðsprengna
var komið fyrir í allt að tveggja og
hálfs kílómetra fjarlægð frá borg-
inni. Skæruliðar höfðu enga njósn-
ara, sem gátu veitt þeim upplýsingar
um leiðir gegnum sprengjusvæðin,
og þeir féllu unnvörpum þegar þeir
æddu yfir þau til að ráðast á borg-
Loftárás skammt f rá
Jalalabad: lamandi áhríf.
eftir Guðm. Halldórsson
RÉTT ÁÐUR en síðustu her-
sveitir Rússa hörfúðu frá Afg-
hanistan 15. febrúar voru sendi-
menn Bandaríkjanna og fleiri
vestrænna ríkja í Kabul kallað-
ir heim. Sýnt þótti að muja- ...
hecfdin-skæruliðar mundu
vinna skjótan sigur á her Naji-
bullah forseta og marxista-
stjóm hans. Bandaríski sendi-
fulltrúinn, James Glassman,
spáði því við brottförina að
stjómin „yrði horfin í júlí“, en
nú er sá mánuður á enda og
sfjómin heldur enn velli.
Rússar fyrirlitu stjómar-
herinn, en hann hefur
staðið sig betur en búizt
hafði verið við. Aðal-
ástæðan er sú að hann
hefur tekið upp nýjar
hemaðaraðferðir, sem
hafa gefið betri raun en
aðferðir sovézku herfor-
ingjanna. Þær áttu meginþáttinn í
því að stjórnarhernum tókst að af-
létta flögurra mánaða umsátri
skæruliða um Jalalabad, þriðju
stærstu borg Afghanistans, fyrr í
þessum mánuði. Skæruliðar biðu al-
varlegan ósigur og stjómarherinr
virðist hafa litfar áhyggjur af nýjurr
sóknaraðgerðum, sem þeir hafa á
pijónunum.
Einn helzti styrkur stjómarhersins
er sá að hermennimir .óttast að þeii
verði drepnir, ef Najibullah forseti
hrökklast frá völdum. Her stjórnar-
innar hefur einnig notið góðs af
mörgum mistökum andstæðinganna.
Æ betur hefur komið í ljós að her
skæruliða er illa skipulagður, að lítill
agi er í röðum þeirra og að þeim er
illa stjórnað. Þótt rúmir fimm mán-
uðir séu síðan Rússar hörfuðu frá
Afghanistan hafa Þeir ekki mótað
samræmda heildar-hemaðaráætlun.
Að ýmsu leyti stóðu skæruliðar
betur að vígi þegar þeir áttu í höggi
við Rússa. Þá voru þeir aldrei kyrrir
á sama stað og gátu beitt sígildum
aðferðum skæruhemaðar. Ilijóstr-
Skæruliðar skammt frá Jalalabad: stríðið hefur breyzt.
ugt landslagið kom þeim að góðum’
notum og þeir fengu hvarvetna
stuðning. Heilagt stríð — jihad —
gegn trúlausum innrásarlýð samein-
aði þá og það háði Rússum að þeir
þurftu að halda manntjóni í lágmarki.
Öðru vísi stríð
Þegar Rússar voru farnir mótaði
yfirstjórn hersins í Kabul nýja hern-
aðaráætlun, sem hlaut að hafa i för
með sér mikið mannfall og hergagna-
tjón. Ákveðið var að stjórnarherinn
legði höfuðkapp á að halda yfirráðum
yfir borgum á landsbyggðinni og
þjóðvegum. Þar með vom skæruliðar
neyddir til að ráðast á velvarðar,
borgir eða velvarða vegi og taka upp
hefðbundinn hemað, sem þeir þekkja
lítið til og hafa átt erfitt með að
aðlagast.
Skæruliðar einbeittu sér að því að
ná Jalalabad, sem er fyrir austan
Kabul og nálægt bækistöðvum þeirra
í Peshawar, handan landamæranna
í Pakistan. „Bráðabirgðastjórn" sjö
stjórnmálaflokka skæruliða í Pes-
hawar taidi að skjótiir sigur í J;d-
ina. Jarðsprengjurnar ollu því að
skyndiárás kom ekki til greina.
í hvert sinn sem skæruliðamir
hörfuðu og endurskipulögðu lið sitt
lét stjómarherinn rigna yfir þá BM-
21-flugskeytum. Þeir urðu einnig
óþyrmilega fyrir barðinu á gömlum
Antonov-12-flutningavélum, sem
flugher stjórnarinnar breytti í
sprengjuflugvélar. Þessar flugvélar
beittu svokölluðum „klasa“-sprengj-
um, sem spmngu í lofti og dreifðu
smásprengjum yfir stöðvar skæru-
liða. Þær flugu í svo mikilli hæð að
Stinger-loftvarnaflaugar skæmliða
drógu ekki til þeirra.
Ormstu-sprengjuflugvélar af
gerðinni MiG-21 „Fishbed" vörpuðu
líka klasa-sprengjum á skotmarks-
svæði og beittu auk þess vopnum
með leysi-stýribúnaði. Nákvæmar
árásir þeirra gerðu mikinn usla, en
meðaldrægar Scud-B-flaugar stjórn-
arhersins vom jafnvel enn skeinu-
hættari. Um 420 slíkum flaugum var
skotið frá Kabul á stöðvar skæruliða
úmhverfis Jalalábad.
Stjúrnarhermenn á sowéskum skrsðdreka: komú á óvart..
OSIGUR VI0
Strídid íAfghanistan
dregst á langinn
|
d
i
I
i
i
vm
mmm