Morgunblaðið - 30.07.1989, Page 21
ATVINNU RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR -
Kvikmyndaleikarar
Auglýst er eftir kvikmyndaleikurum. Það er kvikmyndafé-
lagið Nýja Bíó sem óskar eftir leikurum í stutta unglinga-
mynd. Sagt er að um sé að ræða leikara í tíu hlutverk og
verða þeir að vera á aldreinum 15-22 ára. Auk þess vantar
stelpu á aldrinum 7-10 ára.
Markaðsstjóri
Innflutnings- og verslunarfyrirtæki í Reykjavík óskar eft-
ir að ráða sölu- og markaðsstjóra. Viðkomandi verður að
viðskiptafræðingur eða með menntun af markaðs- og sölu-
sviði. Reynsla af störfum við markaðsmál er nauðsynleg.
Tónlistarstjóri
Ríkisútvarpið auglýsir laust til umsóknar starf tónlistar-
stjóra. Ráðningartími er til fjögurra ára. Háskólamenntun
og reynsla í stjórnunarstörfum er sögð æskileg.
Hjókrun
Mulabær, sem er þjónustuheimili fyrir aldraða og öryrkja,
óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa í eitt ár. Um
er að ræða 60% starf og er vinnutíminn eftir samkomulagi.
Verkefnin eru sögð fjölbreytt, s.s. almenn hjúkrunarstörf,
heilsufarslegt eftirlit með skjólstæðingum stofnunarinnar og
tengsl við endurhæfingar- og hjúkrunarstofnanir.
RAÐAUGL ÝSINGAR
Dagheimili
Nokkur pláss fyrir börn á aidrinum 4-6 ára eru laus á
skóladagheimili í Skerplugötu, Skeijafirði. Um er að skóla-
dagheimili sem er rekið afforeldrum og mun það hefja starf-
semi í byijun september á komandi hausti.
Fiskvinnsla til sölu
Auglýst er til sölu fiskvinnsla, húsnæði og búnaður, á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Sagt er að fýrirtækið sé í fullum
rekstri og vinna 10 starfsmenn hjá því. Fyrirtækið er sagt
hafa góð erlend viðskiptasambönd og að hagstæð löng lán
hvíli á fyrirtækinu.
Atvinnuhúsnæði
Um 300 fermetra atvinnuhúsnæði er auglýst til leigu í
Ármúlanum. Húsnæðið er innréttað og sagt hentugt fyrir
ýmiskonar skrifstofu- og þjónustustarfsemi. Húsnæðið leig-
ist frá 1. ágúst næstkomandi.
Útboð
Selfosskaupstaður óskar eftir tilboðum í byggingu þriðja
áfanga gagnfræðaskólans á Selfossi. Stjóm Verkamannabú-
staða á Sauðárkróki leitar eftir tilboðum í byggingu 6 íbúða
í þremur parhúsum. Þá er óskað eftir tilboðum í að steypa
upp og gera fokhelt hús fyrir þjálfunar- og ráðgjafamiðstöð
svæðisstjórnar fatlaðra á Áusturlandi, en húsið er á Egilstöð-
um.
SMÁA UGL ÝSINGAR
Ferðalög
Ferðafélag íslands auglýsir í dag nokkrar ferðir um landið.
í dag sunnudag eru t.d. dagsferðir í Þórsmörk, gengið eftir
Esju og gönguferð um Blikdal. Þá auglýsir Ferðafélagið einn-
ig ferðir um verslunarmannahelgina
Angórukanínuungi
Landbúnaður:
Stuðningur hins opin-
bera þarfað koma til
— segir Auðunn Hafsteinsson formaður
Landssambands kanínubænda
AUÐUNN HAFSTEINSSON formaður Lands-
sambands kanínubænda telur að kanínubænd-
ur þurfi að fá tuttugu milljón króna fyrir-
greiðslu frá hinu opinbera ef ekki á að verða
hætta á að rekstur Fínullar hf. stöðvist. Fínull
vinnur fatnað úr ull af angórakanínum. Rætt
hefiir verið um að Framleiðnisjóður kaupi
hlutafé í fyrirtækinu fyrir tíu milljónir og
hafa 5 milljonir af því þegar verið greiddar
en ekki gengið endanlega frá samningum að
sögn Bjarna Einarssonar stjómarformanns
Finullar. Þá hefur einnig verið rætt um að
Byggðastofnun leggi fyrirtækinu til 10 millj-
ónir og hefiir hluti þess fjár verið reiddur
fram.
Bjami segir að útlit sé fyrir að
rekstur Fínullar fari að skila
arði, jafnvel þegar á næsta ári, en
rekstur fyrirtækisins hljóti alltaf að
vera erfiður að sumarlagi þegar sala
er minnst. Auðunn telur að atvinnu-
greinin muni geta gefið mikinn arð
í framtíðinni ef rekstur verksmiðj-
unnar er tryggður nú. Bjarni segir
að vegna þess hve heimsmarkaðsverð
á angóraull hefur verið lágt undan-
farið hafi kanínurækt ekki náð sér
á strik fyrir alvöru á íslandi.
Auðunn var ómyrkur í máli í garð
hins opinbera í samtali við Morgun-
blaðið. Hann sagði að kanínubænd-
um hefði verið otað út í greinina á
sama tíma og loðdýraræktendum.
Hann taldi það því mikinn ábyrgðar-
hluta af hálfu stjórnvalda að fjár-
svelta kanínubaindur um leið og pen-
ingum væri veitt í loðdýrarækt. Hann
taldi fullvíst að ef sú aðstoð sem
rætt hefur verið um fengist myndi
búgreinin ekki þurfa frekari aðstoðar
við af hálfu hins opinbera. Kanínu-
bændur eiga stóran hlut í Fínull auk
Álafoss og Byggðastofnunar. Hann
sagði að ef verksmiðjan legðist niður
væri atvinnugreinin þar með öll
dauðadæmd.
Tækjabúnaður verksmiðjunnar er
keyptur frá Vestur—Þýskalandi og
var í upphafi gert ráð fyrir að þar
yrði einnig helsti markaður fyrirtæk-
isins en það gekk ekki eftir. Að sögn
Bjarna hefur verið unnið að því að
afla fyrirtækinu markaða síðustu tvö
ár og er það starf farið að skila ár-
angri. Meðal annars hefur talsvert
verið selt til Noregs og Banda-
ríkjanna. Þá á fyrirtækið í samning-
um við svissneska aðila um markaðs-
setningu á vörum þess í Sviss og
nágrannalöndum.
Bjarni segir að sala á innanlands-
markaði hafi tekið vel við sér þegar
fyrirtækið fór að auglýsa framleiðsl-
una. Nú er verið að leita leiða til að
auka slitstyrk fatnaðarins.
Auðunn sagði að kanínurækt byði
upp á mikla möguleika fyrir bændur
sem þyrftu að bregða búi. Breyta
mætti næstum því hvaða húsi sem
væri í kanínubú, þess þyrfti þó að
gæta að byija nógu smátt. Hann
sagði jafnframt að kanínubændur
væru nú að prófa sig áfram með að
sleppa gjöf á tilbúnu fóðri og gefa
hey og halda þannig kostnaði í ai-
gjöru lágmarki.
Tálknafiörður:
Frekar skort-
ur á fólki en
atvinnuleysi
Tálknafírði
ATVINNUÁSTAND hefiir verið
hér gott síðastliðin 20 til 25 ár,
eins og fram hefiir komið, og aldr-
ei verið atvinnuleysi svo að frétta-
ritari muni eftir. Siðastliðin 10 ár
hefur togari Hraðfirystihúss
Tálknafjarðar verið gerður út með
góðum árangri og séð húsinu fyr-
ir hráefni. Kvótaskortur hefur þó
valdið því að hann hefiir verið
bundinn við bryggju i einn og
hálfan mánuð i sumar.
Ekki hefur þetta þó komið í veg
fyrir að hægt væri að vinna í
hraðfrystihúsinu. Samið var við
nokkra dragnótarbáta á staðnum um
löndun í húsinu. Afli þeirra hefur
verið góður, stutt að sækja, en nú
er kvótinn búinn hjá þeim flestum
og standa menn frammi fyrir því að
aðeins einn bátur á eftir 80 til 90
tonn af kvóta. Þegar hráefni minnk-
ar hefur því verið mætt með því að
vinna í dýrari pakkningar.
Saltfiskverkunin Þórsberg hf. ger-
ir hér út þijá til fjóra báta og hefur
afli þeirra verið þokkalegur. Auk
þess hafa landað hjá Þórsbergi up-
pundir 15 handfærabátar og mjög
mikil vinna verið þar. Tveir til þrír
bátar hafa landað hjá saltfiskverkun-
arstöðinni Miðvík hf.
Skortur hefur verið á fólki frekar
en hitt og hefur fólk frá Patreksfirði
meðal annars sóst eftir vinnu hér.
Engu fískvinnsluhúsanna verður lok-
að vegna sumarfría. Þá eru gatna- s
gerðarframkvæmdir í fullum gangi
og stendur til að setja bundið slitlag
á síðustu götumar á staðnum næstu
daga.
JOÐBÉ
Höfti:
Ekki bjart yfir
sjávarútvegi
Í augnablikinu er ekki verulega
bjart framundan í sjávarútvegi á
Höfii. Humarvertíð hefur verið
léleg og tíðarfarið hefiir valdið
smábátunum miklum erfiðleikum.
Að sögn Elvars Einarssonar í
Fiskiðjuveri Kaupfélags Aust-
ur-Skaftfellinga eiga bátar tiltöiu-
lega lítið eftir af kvóta. Togari Bor-
geyjar hf., Þórhallur Daníelsson er
nýkominn úr slipp, en einnig er mjög
gengið á hans kvóta. Það sem menn
horfa til á þeim bæ er sfldin, afli
togarans og smábátanna.
Atvinna má ekki minnka úr því
sem er, segir Hallgrímur Guðmunds-
son, bæjarstjóri á Höfn. Verði meiri
samdráttur í fiskvinnslunni mun
bærinn reyna að ráðast fyrr í verk-
legar framkvæmdir en ella. Þar má
til nefna smíði á vatnsgeymi og fram-
kvæmdir við leikskóla, auk annarra
minni verka. Þá verður á næstunni
boðin út bygging á 10 kaupleigufliúð-
um, en íbúðaþörf er knýjandi hér.
í byggingariðnaði er enn nóg að
gera. Fjórtán kaupleiguíbúðir eru í
smíðum og miklár framkvæmdir á
| Stokksnesi fyrir Ratsjárstofnun.
JGG