Morgunblaðið - 30.07.1989, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 30. JÚLÍ 1989
I
Kennara vantar
við Grunnskólann á Suðureyri. Meðal
kennslugreina eru eðlisfræði, danska og al-
menn kennsla.
Upplýsingar gefur skólastjóri, í síma
94-6119, og formaður skólanefndar, í síma
94-6250.
Kennarar!
Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi vantar
kennara í almenna kennslu og ensku. Skólinn
er í 160 km fjarlægð frá Reykjavík.
Upplýsingar veita formaður skólanefndar,
Haukur Sveinbjörnsson, sími 93-56627 og
skólastjóri, Höskuldur Goði, í síma 93-56601.
REYKJKJÍKURBORG
JÍcucmii Stöeácx
Félags- og
þjónustumiðstöðin,
Bólstaðarhlíð 43
Starfsfólk óskast til starfa við heimilishjálp.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
685052 milli kl. 10 og 12 virka daga.
Sölu-
og markaðsstjóri
Fyrirtækið er stórt deildaskipt innflutnings-
og verslunarfyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið sölu- og markaðsstjóra: Stefnu-
mótun og stjórnun sölu- og markaðsað-
gerða. Markaðskannanir, samanburður og
athuganir á stöðu og rekstri deilda fyrirtækis-
ins. Markmiðssetning, kynning og aðstoðvið
deildarstjóra.
Við leitum að viðskiptafræðingi eða manni
með aðra haldgóða menntun af markaðs-
og sölusviði. Reynsla af störfum við mark-
aðs- og sölumál nauðsynleg. Starfið krefst
þess að viðkomandi geti starfað sjálfstætt
og skipulega, sé atorkusamur, hugmyndarík-
ur og eigi auðvelt með mannleg samskipti.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „Markaðsstjóri 27“ fyrir 10. ágúst nk.
Haeva C—^ " neurhf
Grensásvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
BORGARSPÍTALINM
Lausar Stðdur
Starfsfólk
Starfsfólk óskast í ræstingu á Borgarspítal-
ann, Heilsuverndarstöðina og Grensásdeild.
Vaktavinna.
Upplýsingar hjá ræstingarstjóra í síma
696516.
Kennarar
Af sérstökum ástæðum vantar á hausti kom-
anda kennara að Valhúsaskóla á Seltjarnar-
nesi, þ.e. í smíði, 12 klst./v. og í tölvufræði
8 klst./v.
Upplýsingar gefa:
Ólafur H. Óskarsson, skólastjóri, í síma
30871 og Gísli Ellerup, yfirkennari, í síma
16910.
Yfirvélstjóri/
vélstjóri
Yfirvélstjóra og vélstjóra vantar á bv. Dag-
rúnu ÍS 9, sém gerð er út frá Bolungarvík.
Skipið er tæpar 500 brl. Aðalvél af Crepelle-
gerð og 1800 hestöfl.
Umsækjendur þurfa að hefja störf um mán-
aðamótin ágúst/september nk. Nánari upp-
lýsingar gefa Einar K. Guðfinnsson og Har-
aldur Guðfinnsson í síma 94-7200.
Einar Guðfinnsson hf/Baidur hf.
Boiungarvík.
Tónskóli
- skólastjóri
Skólastjóra vantar til starfa við Tónskóla
Suðureyrar. Æskilegt er að sami aðili taki
að sér organistastarf og tónmenntakennslu
við Grunnskólann. Ódýrt húsnæði - ágætir
tekjumöguleikar.
Upplýsingar í síma 94-6122 og 94-6147.
Sveitarstjóri.
„Au pair“ í Svíþjóð
óskast í sveit 10 km fyrir norðan Uppsali.
Bílpróf æskilegt. Starfið felst í að gæta
tveggja drengja, fjögurra og eins árs og taka
þátt í heimilisstörfum. Þarf að geta hafið
störf í sept. og vera minnst í 1 ár. Bréf ásamt
mynd sendist til:
Familjen Blomberg, Klinta, S-755 92 Upp-
sala, Sverige. Sími: +46 18-357017.
Matreiðslumaður
óskast
Um er að ræða vinnu á litlum og persónulegum
veitingastað sem sérhæfir sig í sjávarréttum.
Upplýsingar um nafn og fyrri störf óskast
sendar auglýsingadeild Mbl. merktar:
„Ahugasamur - 7368“
írtG'-
Laust strax
★ Rafeindavirki
Fjölbreytt sölu- og afgreiðslustarf á sér-
hæfðum búnaði hjá traustu og framsæknu
fyrirtæki.
★ Bókari
Sjálfstætt og krefjandi starf við bókhald hjá
heildverslun á Ártúnshöfða.
Skriflegum umsóknum skal skilað é skrif-
stofu okkar hið fyrsta.
Starfsmannastjórnun
Ráðningaþjónusta
FRUITI
Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
T ónlistarkennarar
Laus er staða við Tónlistarskóla Vestmanna-
eyja. Kennslugreinar: Píanó, fiðla og kjarna-
greinar.
Upplýsingar í símum 98-12551 og 98-12396.
Skólastjóri.
Sölustarf
Þekkt fyrirtæki í matvælaiðnaði óskar að
ráða starfskraft í söludeild.
Við leitum að ungum, áreiðanlegum og dug-
legum starfskrafti. Þarf að hafa frumkvæði,
góða framkomu og vera líkamlega hraust(ur).
Æskilegt er að viðkomandi hafi starfsreynslu
við sölu- og/eða þjónustustörf.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
8. ágúst merktar: „E - 8314“.
Lögfræðingur -
framkvæmdastjóri
Húseigendafélagið óskar eftir framkvæmda-
stjóra. Um er að ræða mjög fjöibreytt starf,
sem meðal annars felst í lögfræðiaðstoð við
félagsmenn.
Skriflegar umsóknir sendist til Húseigendafé-
lagsins, Bergstaðastræti 11A, Reykjavík.
Farið verður með allar fyrirspurnir sem trún-
aðarmál.
Húseigenda félagið
REYKJMJÍKURBORG
4.cucm.1 Stádcvi
Háskólamenntaður
starfsmaður óskast
tilað sinna mæling-
um á loftmengun
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur starfar í 2 deildum, heilbrigðis- og umhverfis-
'deild. í umhverfisdeild er einkum unnið að eftirliti með umhverfismengun,
mengun frá fyrirtækjum og mengunarvörnum þeirra, sölu og notkun hættu-
legra efna og eiturefna. Búast má við að starfsemi deildarinnar aukist
smátt og smátt á komandi árum, sérstaklega ef lögbundnar reglur um
mengun og mengunarvarnir verða gefnar út.
í lok þessa árs hyggst heilbrigðiseftirlitið festa kaup á sérbúnum vagni
með sjálfvirkum, tölvustýrðum mælitækjum til stöðugra efnagreininga á
köfnunarefnisoxíði (NOx), kolsýringi (CO) og svifryki ásamt mælingum á
veðurþáttum. Vagninum er ætlað að fylgjast með loftmengun í Reykjavík
og verður aðallega notaður til reglubundinna mælinga. Leitað er að starfs-
manni til að annast þessar mælingar.
Viðfangsefni:
Starfsmanni þessum er ætlað að sjá um
rekstur og viðhald mælibúnaðarins, vinnslu
og túlkun á mæliniðurstöðum, og sinna öðr-
um verkefnum eftir þörfum, aðallega tengd-
um loftmengun.
Kröfur:
Starfsmaðurinn þarf að vera fær um að vinna
með flókin rafeindatæki og annast tölvu-
vinnslu gagna. Hann þarf að vera nákvæmur
í vinnubrögðum og eiga auðvelt með að tjá
sig skriflega og munnlega. Viðkomandi þarf
að vera háskólamenntaður og hafa góða
undirstöðuþekkingu í efnafræði. Starfið
krefst ennfremur þekkingar á sviði tölfræði,
mælitækni, umhverfisheilsufræði, og vist-
fræði.
Starfið veitist frá 1. september nk. eða eftir
nánara samkomulagi. Laun verða samkvæmt
kjarasamningi borgarinnar við viðkomandi
stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið gefa fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
eða deildarstjóri umhverfiseftirlitsdeildar
þess, Drápuhlíð 14, í síma 623022.
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu skal skilað til Heilbrigðiseft-
irlits Reykjavíkur, Drápuhlíð 14, fyrir 20.
ágúst nk.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.