Morgunblaðið - 30.07.1989, Síða 25
MO&GUNBLAÐEÐ ATVIMIMfl/RAÐ/SIMÁ siNNlÁii. BQ./JÚLÍI989)/
25
:
Kennarar
Við Barnaskólann á Selfossi vantar íþrótta-
kennara í heila stöðu og almennan kennara
í heila stöðu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í heimasíma
98-21320 og vinnusíma 98-21500.
Skólanefnd Sandvíkurskólahverfis.
Aðstoðarfólk -
veitingahús
Góður veitingastaður í borginni vill ráða
snyrtilegt, duglegt og brosmilt aðstoðarfólk
til framtíðarstarfa í veitingasal sem fyrst.
Vaktavinna. Lágmarksaldur 18 ár.
Umóknir merktar: „Veitingastaður - 14295“
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir þriðjudags-
kvöld.
Aðalsólbaðsstofan
Óskum eftir hressum, duglegum og sam-
viskusömum starfskrafti í vinnu hjá okkur.
Vinnutími frá kl. 07.00-15.00.
Upplýsingar eingöngu á staðnum, á sunnu-
dag, frá kl. 14.00-18.00 og á mánudag og
þriðjudag frá kl. 08.00-11.00.
Aðalsólbaðsstofan,
Rauðarárstíg 27.
i&l Grunnskólinn
^ á ísafirði
Kennara vantar við Grunnskólann á ísafirði.
Meðal kennslugreina: Sérkennsla, danska,
íþróttir, smíðar og heimilisfræði.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar,
Smári Haraldsson, í síma 94-4017.
Reykjavík
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar til starfa nú þegar og í
ágúst í 50% og 100% vinnu.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, ída
Atladóttir, í símum 35262 eða 689500.
„Au pair“
vantar fyrir fjölskyldu í Connecticut. 2 börn
á skólaaldri. Viðkomandi mun hafa bíl til
umráða. Æskilegur dvalartími 1 ár frá byrjun
sept. nk.
Skrifið til: Mrs. Cashion, 36 Chachester Rd.,
New Canaan, Conn. 06840, USA. Sími:
901-203-972-3041 á kvöldin.
Tónlistarmenn!
í athugun er að ráða tónlistarmann með
kunnáttu á orgel og píanó. Starfið yrði með-
al annars fólgið í kennslu og kórstjórn. Bú-
seta í bænum er skilyrði fyrir ráðningu.
Upplýsingar gefur undirritaður.
Bæjarstjórinn íGrindavík,
sími 92-68111.
Caterpillar-
viðgerðarmaður
Óskum eftir vönum Caterpillar-viðgerðar-
manni. Góðir möguleikar fyrir réttan mann.
Vinsamlegast leggið inn umsóknir á auglýs-
ingadeild Mbl fyrir 4. ágúst merktar:
„TS - 13324“.
Verkfræðistofnun
Háskóla íslands
vill ráða sem fyrst verkfræðing til fræðilegra
rannsóknastarfa á sviði straumfræði og
skyldra greina. Góð reynsla í forritun á PC-
tölvur áskilin.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
nám og fyrri störf sendist Verkfræðistofnun
Háskóla íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107 R.
Meinatæknir
Meinatæknir óskar e'ftir vellaunuðu starfi.
Tilboð og upplýsingar sendist auglýsingadeild
Mbl. fyrir 10. ágúst merktar: „M - 7369“.
„Au pair“
vantar fyrir fjölskyldu á Long Island, New
York. Börn á aldrinum 9 mánaða, 10 og 12
ára.
Upplýsingar í síma 901-516-829-3062.
Rafvirki
Rafvirki óskar eftir vinnu í Reykjavík frá 1.
sept. Hefur unnið töluvert við skiparafmagn.
Upplýsingar í síma 98-11933 í hádeginu og
á kvöldin.
Vélvirkjameistari
33ja ára fjölskyldumaður óskar eftir framtíðar-
starfi. Er með meirapróf. Ýmislegt kemur til
greina, jafnvel vaktavinna.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„V-7372“.
Húsbyggjendur-
húseigendur
Húsasmíðameistari sem sér um viðhald fast-
eigna, breytingar á skrifstofu- og íbúðar-
húsnæði og hverskonar nýsmíði getur bætt
við sig verkefnum.
Upplýsingar í síma 36822.
Húsasmiðir
óskast strax í blokkarbyggingu í Grafarvogi
Upplýsingar í símum 656221 og 985-22221.
Lagermenn
vantar til framtíðarstarfa við vörumóttöku.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf strax.
Upplýsingar í síma 91-678522.
Vélaverkstæði-
framkvæmdastjóri
Okkur hefur veri^Vfalið að ráða yfirmann á
vélaverkstæði úti á landi.
Hér er um að ræða daglega stjórnun verk-
stæðisins, öflun verkefna, framkvæma
tæknilegan undirbúning og sinna tæknilegri
ráðgjöf á staðnum.
Óskað er eftir manni með tæknimenntun eða
vélstjóramenntun og nokkra reynslu á þessu
sviði.
Vinnuaðstaða er mjög góð og verkstæðið er
í uppbyggingu.
Umsóknir sem tilgreina nafn, aldur, menntun
og fyrri störf sendast undirrituðum sem fyrst
eða eigi síðar en 15. ágúst nk. merktar:
„Hvati sf - 923“.
Hvati sf.
Smiðsbúð 12, 210 Garðabæ,
sími 641799.
Húsasmiðir óskast
Óska eftir vönum húsasmiðum í uppslátt.
Næg vinna.
Nánari upplýsingar í síma 687849.
Sjúkraþjálfarar
Sjúkraþjálfari óskast að Kristnesspítala frá
og með 1. september nk. Um er að ræða
afleysingastarf í 6 mánuði sem gæti orðið
framtíðarstaða. Góð starfsaðstaða í heillandi
umhverfi. Barnaheimili á staðnum. Aðstoð-
um við að útvega húsnæði ef þörf krefur.
Nánari upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari í
síma 96-31100.
Fóðurstöð
Dalsbú hf., Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða
mann með bílpróf sem fyrst.
Upplýsingar í síma 667233.
Fyrsta vélstjóra
vantar á góðan 150 lesta togbát frá
Grindavík.
Upplýsingar í símum 92-68206 og 92-68582.
Afgreiðslustarf
Húsgagnaverslun í borginni vill nota starfs-
kraft á aldrinum 40-50 ára til afgreiðslu-
starfa. Fullt starf. Framtíðarstarf.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Afgreiðslustarf - 14296“ fyrir 4.
ágúst nk.
Hraðframköllun
Hraðframköllunarstofu í Kópavogi vantar
vanan starfskraft í vinnu við Kodak-hrað-
framköllunarvél strax.
Góð laun fyrir rétta manneskju.
Tilboð sendist á auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Kodak - 14289“ fyrir 4. ágúst.
Sjúkrahúsið á
Húsavíksf.
Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa nú þegar
eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Aldís Friðriksdóttir,
hjúkrunarforstjóri, í síma 96-41333.
Matreiðslumeistari
Matreiðslumeistari óskast til að annast
rekstur á eldhúsi í stóru veitingahúsi í
Reykjavík. Góð vinnuaðstaða. Góðir tekju-
möguleikar fyrir réttan mann.
Upplýsingar sendist <auglýsingadeild Mbl.
merktar: „M- 7371“ fyrir 7. ágúst.
RÍKISÚTVARPIÐ
Tónlistarstjóri
Starf tónlistarstjóra útvarpsins hefur verið
auglýst laust til umsóknar. Ráðningartími er
til fjögurra ára. Háskólamenntun og reynsla
í stjórnunarstörfum er æskileg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf þurfa að berast starfsmanna-
stjóra Ríkisútvarpsins, Efstaleiti 1, Reykjavík,
fyrir 6. ágúst.