Morgunblaðið - 30.07.1989, Page 30
MoœuwBLADiÐfÓLK í FRÉTTURfl &U?&ítíÐÁ'GUR'30. JÚLÍ 1989'
30
KIRLAR
AfFlosa og
sokkabuxum
Það er alltaf sorglegt þegar
kjarabarátta kvenna snýst
upp í karlrembugang af hættuleg-
ustu tegund. Það er sú tegund sem
gerir konur að eftirsóttum þukl-
varningi. Flosi
Ólafsson lét ekki
sitt eftir liggja og
i grein sinni í
Pressunni um
flugfreyjur og
sokkabuxur kem-
ur hann upp um
hugmyndir sinar
varðandi sam-
starf kynja á
eftir Jónínu
Benediktsdóttur
vinnustað.
Hann hvetur Flugleiðir til þess
að skaffa flugstjórum naglaklipp-
ur og þá yrði endingatími sokka-
buxna flugfreyja lengri. Vera má
að í Þjóðleikúsinu þukli sam-
starfsfólk hvert annað en ansi er
ég hrædd um að Geirþrúður Al-
freðsdóttir ílugstjóri sjái sér lítinn
hag í því að renna nöglunum eftir
sokkabuxum flugfreyja Flugleiða.
Það er að visu alveg rétt að
íslenskar flugfreyjur eru upp til
- hópa stórglæsilegar (örugglega
myndarlegasta stétt í heiminum
■ í dag) en að þær séu einhvcrjar
gálur sem láti karlmenn nota sig
(þó þeir séu i spariskónum) er
draumsýn karlmanna og ekkert
annað. Umræðan um sokkabux-
urnar hefur haft þau áhrif á Flosa
að hann telur sjálfan sig hafa litla
sem enga „kvenhylli".
Hann segir að nú falli konur
fyrir mönnum sem „hafa frjálst
framtak að leiðarljósi og eru með
gæfu og gjörvileika í farteskinu".
- „Ekki má lengur kaupa konur
^*með nælonsokkum." Flosi minn,
þú ert nú að mínu mati vænsti
karlkostur og þarft ekki alltaf að
vera að afsaka útlitið eða gjörvi-
leikann. Kvenhylli og sexagil
kemur innan frá. Líttu t.d.á
Woody Allen, konur eru nefnilega
með heila líka . . . Vitsmunaverur
láta ekki kaupa sig með útltti eða
sokkabuxum. Ekki heldur flug-
freyjur. Þær eiga samt skilið fullt
af sokkabuxum í sárabætur þó
ekki væri nema fyrir það eitt að
þurfa að vinna í sokkabuxum.
Menn ættu að reyna að ganga í
sokkabuxum í nokkra tíma. Ætli
færi ekki um frjóframleiðslumust-
erin. Það er örugglega erfitt að
vinna starf sitt pungsveittur með
gerviefni límt við sig. Betra væri
fyrir karlmenn að fylgja tiskunni
og kaupa sér það vinsælasta á
markaðnum i dag. En það eru
nefnilega (Flosi minn) nælon-
sokkar. Já og sokkabandabeltin
gömlu og uppreimuð magabelti, já
og blúndutau í öllum litum við öll
tækifæri t.d. hvítt á brúðkaup-
snóttina, bleikt fyrir brúðkaupið
og svart eða rautt eftir.
Flosi! Stór hluti af islenskum
karlmönnum hefur fjárfest í þess-
um nýja nærfatnaði og fært elsk-
unum sínum og þá skiptir ekki
máli hvort konan er flugfreyja eða
ekki, menn gleyma stund og stað
og konunni líður eins og hún hafi
fæðst að nýju, nema aðeins rétt
eftir stríð.
En ekki má blanda friðhelgi
' Jjeimilislífsins við kjarabaráttu
flugfreyja. Það er ljótt, því það eitt
að vera að ganga um beina með
mjaðmirnar gjörsamlega upp í
nösunum á kúnnunum er nóg til
þess að flugfreyjur eiga skilið
næstum því allt sem þær fara
fram á.
Flosi, ekki gætum við gengið á
hælaháum skóm eftir þessum
mjóa gangi, borið drykkí í óþol-
andi íslendinga, tilkynnt um sól-
arhrings tafir, pússlað fólki í sæt-
in, hellt sjóðheitu kaffi í bolla
meðan allt hristist og skelfur,
fært flugstjórunum kaffi . . . og
„ brosað allan tímann.
Gætum við ekki bara unnt
þeim að fá að vera í venjulegum
buxum í vinnunni eins og allar
aðrar stéttir í þessu landi, (síðan
Pan pan-hópurinn var lagður nið-
ur). Því eins og ég sagði áðan hlýt-
ur kvenhylli og karlhylli að koma
innan frá og hefur þar af leiðandi
ekkert með sokkabuxur að gera.
j Flosi, þú talar um „lostafagrar
konur“. Attu við þessar sætu hjá
Rafmagnsveitunni?..............
KEILA
Æðislega gaman
A
Isumar, §órða sumarið í röð,
býður Keilusalurinn í
Öskjuhlíð krökkum á leikja-
námskeiðum borgarinnar, í
unglingavinnunni og í íþrótta-
samtökum uppá tilsögn í keilu.
Blaðamaður brá sér upp í
Öskjuhlíð á dögunum og heils-
aði upp á 12 krakka sem voru
að stíga sin fyrstu spor með
keiluna.
Eftir að hafa hlustað með
athygli á Gulla leiðbeinanda
fengu krakkarnir hver af öðr-
um að höndla keiluna. Það er
ýmislegt sem þarf að athuga.
Halda rétt á keilunni, ekki
stíga of mörg skref áfrám og
síðast en ekki síst að miða
rétt svo keilan renni ekki útaf
brautinni án þess að snerta
keilurnar. Sumir krakkanna
höfðu áður farið í keilu og
voru ósparir á að leiðbeina
þeim sem minna kunnu.
„Þetta er æðislega gaman,“
sögðu Svava 11 ára og Kristj-
ana 7 ára og fylgdust spenntar
með félögum sínum við braut-
ina.„Ég ætla sko að koma
hingað aftur,“ bætir Svava
við. Hún var búin að fara einn
dag í sveit í sumar. Jón Hnef-
ill sagðist lika hafa farið í
sveit. „Og datt af baki. Hestur-
inn vildi ekki að ég og frændi
minn tvímenntum svo hann
henti okkur báðum af sér.
Nei, nei, eg meiddi mig ekki
neitt,“ segir Jón Hnefill um
leið og hann fagnar góðu
keilukasti.
Að sögn Guðnýjar Guðjóns-
dóttur, framkvæmdastjóra
Keiluhallarinnar, er mun minni
aðsókn í keilu á sumrin en á
veturna. „Víða erlendis er lok-
að um hásumartímánn en hér
höfum við tekið upp þá stefnu
að hafa opið og nota tíman til
að kenna krökkum íþróttina.“
Yfir 4.000 krakkar hafa
hlotið tilsögn í keilu á vegum
Keilusalarins í Öskjuhlíð.
Það borgar
sig að fara
rétt að frá
byrjun.
Kristjana, 7
ára og Gulli.
HANDKNATTLEIKUR
Heimsmet
“I A leikmenn í meistaraflokki
-I- Hauka í handknattleik spil-
uðu stanslaust í 48 klukkustundir
og 20 mínútur um síðustu helgi
og er það heimsmet. írskt lið átti
gamla metið, 45 stundir og 50
mínútur. Leikmennirnir, sem tóku
þátt í þessu til fjáröflunar fyrir
deildina, skiptu í tvö lið og var
hvílt í fimm mínútur á klukkutíma
fresti. Úrslit leiksins urðu 1323:
1244. Á myndinni er hópurinn að
keppni lokinni ásamt Jóni Hjal-
talín Magnússyni, formanni HSÍ,
sem sá um að allt færi samkvæmt
settum reglum.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
ÞJÓNUSTU FYRIRTÆKIS
Framkvæmdastjóra vantar að meðalstóru
þjónustufyrirtæki í harðri samkeppni.
Framkvæmdastjórinn verður að hafa góða þekkingu
á rekstri, byggða á menntun og reynslu.
Vegna eðlis starfsins þarf framkvæmdastjórinn að geta
verið virkur í félagsstarfi og koma fram opinberlega.
Æskilegast er að hann geti hafið störf sem
fyrst og eigi síðar en í haust.
Þeir sem óska eftir að koma til greina í þetta starf
eru beðnir að láta vita um það fyrir 5. ágúst.
WffftW ENDURSKOÐUN HF.
Suöurlandsbraut 18,108 Reykjavík,
Sími (91) 686533.
GOLF
Golfklúbbi
Reykjavíkur
færð rausn-
arleg gjöf
Guðmundur Ingólfsson jas-
spíanisti er mikill golfiinn-
andi og leikur oft golf á Grafar-
holtsvellinum. Nýlega vildi hann
sýna Golfklúbbi Reykjavíkur og
félögum sínum þar þakklæti sitt
og aflienti klúbbnum píanó að
gjöf. Að ofan sést Guðmundur
leika á píanóið. Ágústa Ósk og
Sæmundur fylgjast með. Að sögn
Björgúlfs Lúðvíkssonar, fram-
kvæmdastjóra golfldúbbsins, er
hljóðfærið afar vinsælt, sérstak-
lega þegar Guðmundur leikur
sjálfúr á það.