Morgunblaðið - 24.08.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989
*
Ihuga þessa reynslu áður en
ég ákveð hvort ég reyni aftur
- segir André-Georges Lafitte, flugmaður fis-vélarinnar
sem nauðlenti á Grænlandi
FRANSKI flugmaðurinn André-Georges Lafitte, sem nauðlenti fis-vél
sinni á Grænlandi í fyrrakvöld, segist ekki viss um að hann geri aðra
tilraun til að fljúga yfir hafið milli íslands og Grænlands. Fyrst þurfi
hann að melta með sér í nokkrar vikur þessa reynslu áður en hann
taki slíka ákvörðun. í öllu falli verði slík tilraun ekki gerð fyrr en á
næsta ári.
Lafitte fór frá Reykjavík klukkan
níu á þriðjudagsmorgun og var ferð-
inni heitið til Kulusuk á Grænlandi.
Um miðjan daginn átti hann skammt
eftir ófarið til fiugvallarins í Kulusuk
og um líkt leyti missti fylgdarflugvél
frá Sverri Þóroddssyni sjónar af hon-
um. Slæmt skyggni var í Kulusuk
og í nágrenni og þegar Lafitte átti
eftir 1-2 mflur ófamar til flugvallar-
ins, að því er hann telur, beygði
hann af stefnu á flugvöllinn og það
kostaði að hann fór villur vegar í um
sex klukkustundir áður en hann
neyddist til að nauðlenda í Sermilik-
firði vegna þess að hann var að verða
eldsneytislaus, um 20 kílómetra frá
Angmagssalik og tæpa 40 kflómetra
frá Kulusuk þangað sem ferðinni
hafði verið heitið.
VEÐUR
Lafitte segir að bilun í rafkerfi
hafi gert það að verkum að móttak-
ari stefnuvita hafi ekki virkað rétt
og hann hafi haft lítil not af lóran-
tæki um borð. Þá hafi heldur ekki
verið hægt að treysta á áttavitann.
Hann ákvað að nota síðasta eldsneyt-
ið til að nauðlenda, leitaði að heppi-
legum stað til þess og nauðlenti með
aðstoð fallhlífar aftast á vélinni. Þá
var klukkan hálf tíu. Klukkan 11
bjargaði Lynx-þyrla frá dönsku varð-
skipi honum og stundarfjórðungi
seinna var hann í Angmagssalik.
Hann segir að lélegt skyggni og
sú staðreynd að honum tókst ekki
að hækka flugið hafi orðið þess vald-
andi að honum tókst aldrei að fá
rétta mynd af umhverfinu, en hann
hafi haft mjög góð kort um borð.
VEÐURHORFUR I DAG, 24. AGUST
YFIRLIT í GÆR: Um 200 km austur af Langanesi er 993 mb lægð
sem grynnist og þokast austnorðaustur. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Á morgun er búist við norðlægum áttum um land allt, víðast
golu. Norðanlands verður skýjað að mestu og dálítil súld á annesj-
um, en víða léttskýjað um iandið sunnanvert. Hiti á bilinu 7 til 14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Hæg norðaustlæg eða
breytileg átt. Léttskýjað víða um land. Hiti 6-11 stig.
TAKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* # *
■J0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur-
—Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri 8 alskýjað Reykjavík 10 úrkoma
Bergen 13 skúr
Helsinki 16 skýjað
Kaupmannah. 18 skýjað
Narssarssuaq 7 léttskýjað
Nuuk 3 súld
Ósló 18 skýjað
Stokkhólmur 19 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað v
Algarve 28 skýjað
Amsterdam 19 skýjað
Barcelona 31 léttskýjað
Berlín 22 hálfskýjað
Chicago 22 alskýjað
Feneyjar 29 léttskýjað
Frankfurt 22 léttskýjað
Glasgow 16 rigning
Hamborg 19 skýjað
Las'Palmas 34 léttskýjað
London 22 skýjað
Los Angeles 18 alskýjað
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madríd 31 léttskýjað
Malaga 28 mistur
Mallorca 35 léttskýjað
Montreal 18 skúr
New York 25 léttskýjað
Orlando 26 léttskýjað
París 22 léttskýjað
Róm 29 þokumóða
Vín 28 hálfskýjað
Washington 26 alskýjað
Wlnnipeg vantar
Morgunblaðið/PPJ
André-Georges Lafitte til vinstri ræðir við flugmenn í Grænlandi
gær daginn eftir nauðlendinguna.
„Flugvélin flaug mjög vel, en tækin
í slíkum vélum þurfa að vera örugg-
ari en í öðrum vélum, þar sem þær
þola ekki ísingu og geta ekki flogið
eða klifrað hratt. Ef til þess kæmi
að ég reyndi aftur þá þyrfti að skipu-
leggja það mjög vel og það þyrfti
að bæta tækjakostinn, sem ég held
að séu möguleikar til. Þá myndi ég
velja veðrið miklu betur, en ég var
búin að tefjast hér í 10-11 daga og
var áfram um að komast sem fyrst
á stað. Dagurinn í dag (gær) hefði
verið fínn,“ segir Lafitte.
Hann segir að með þessu flugi
hafi hann viljað sýna að fís-vélamar
fljúgi vel. Það hafí sýnt sig. Það
hafi tekið fímm og hálfa klukkustund
að fljúga til Grænlands og annað
eins hafí hún verið á lofti við erfíðar
aðstæður. Þá hafí nauðlendingin tek-
ist mjög vel.
Ekki verður reynt að bjarga vél-
inni, enda segir Lafítte að það muni
kosta jafn mikið og ný vél, auk þess
sem það muni þurfa að fljúga henni
burt. Það myndi kosta að það yrði
að hætta lífí einhverra annarra en
hans og það geðjist honum ekki að.
Lafítte vildi að lokum koma á
framfæri kæm þakklæti til allra sem
áttu hlut að því að aðstoða hann.
^ Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Ernir ÍS 88 kominn til lands í gær. Eins og sjá má er báturinn tals-
vert siginn enda hálffullur af sjó.
Trilla strandaði við Garðskaga:
„Hann barði alveg
óskaplega í gijótinu“
*
- segir Olafiir Gunnar Gíslason
Keflavík.
„ÉG neita því ekki að ég var hræddur eftir að báturinn tók niðri, því
það var þung undiralda og hann barði alveg óskaplega í grjótinu,"
sagði Ólafúr Gunnar Gíslason 43 ára Sandgerðingur í samtali við Morg-
unblaðið í gær eftir að varðskipið Óðinn hafði dregið 3 tonna bát hans,
Erni ÍS 88, til hafhar í Njarðvík.
Ólafur Gunnar Gíslason sagðist
hafa farið í róður frá Hafnarfírði á
þriðjudagsmorguninn til veiða á
handfæri og línu í Garðsjó — og
áætlaði að vera tvo sólarhringa.
Dæla við sjókælingu hefði bilað seint
um kvöldið og hefði hann ákveðið
að halda til hafnar. Ólafur Gunnar
sagði að hann hefði ekki getað keyrt
nema stutta stund í einu því vélin
hefði strax hitnað og hann hefði því
orðið að stöðva hana. Þannig hefði
gengið um hríð, en um fjögurleytið
í gærmorgun hefði vélin drepið á sér
þegar þari festist í skrúfunni og í
sömu svifum hefði bátinn rekið upp
í grýtta fjöruna austan við Garð-
skaga.
Olafur Gunnar náði þegar sam-
bandi við Reykjavíkurradíó sem kall-
aði út björgunarsveitina Ægi í Garði
og einnig kom varðskipið Óðinn á
strandstaðinn stuttu síðar. Talsverð-
ur leki kom að Emi IS eftir strand-
ið, en björgunarsveitar- og varð-
skipsmönnum tókst. að þétta bátinn
og koma honum á flot aftur. Óðinn
tók Erni í tog til Njarðvíkur og gekk
ferðin til lands áfallalaust.
BB
Vaka-Helgafell kaup-
ir hús Þj’óðviljans
BÓKAFORLAGIÐ Vaka-Helgafell hefúr fest kaup á húsi Þjóðviljans
að Síðumúla 6 í Reykjavík. Starfsemi Þjóðviljans flytur að Krókhálsi
10 eftir nokkra mánuði, en þar er nú risin 730 fermetra fokheld hæð,
að því er fram kemur í Þjóðviljanum í gær.
Það er Blaðaprent og eignaraðilar um snemma á næsta ári. Vaka-
þess, Þjóðviljinn, Timinn og Alþýðu-
blaðið, sem standa að nýbyggingunni
og var ákvörðun um sameiginlegar
byggingarframkvæmdir teknar fyrir
þremur árum. Stefnt er að aukinni
samvinnu blaðanna og hagræðingu,
að því er fram kemur í viðtali við
Hall Pál Jónsson, framkvæmdastjóra
Þjóðviljans.
Elín Bergs, fjármálastjóri Vöku-
Helgafells, segist búast við flutning-
Helgafell hefur hingað til verið í
leiguhúsnæði að Síðumúla 29 og
sagði Elín að reikna mætti með
ýmsum breytingum og viðbótum hjá
bókaforlaginu samfara flutningi. Of
snemmt væri að segja til um hvers
vænta megi, en fyrir utan hina al-
menna bókaútgáfu erd starfræktir
þrír klúbbar hjá forlaginu, Bóka-
klúbbur barnanna, handavinnuklúb-
burinn Nýtt af nálinni og Blóma-
bókaklúbþurinn.