Morgunblaðið - 24.08.1989, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989
Jósefína K. Magnús
dóttir - Minning
Fædd 11. janúar 1900
Dáin 14. ágúst 1989
í dag kveðjum við ömmu okkar,
langömmu og langalangaömmu, Jós-
efínu Katrínu Magnúsdóttur. Hún var
aldamótabarn og lifði þá tíma sem
flestir í dag þekkja ekki, þar sem
einstaklingurinn varð oft einn að há
erfiða baráttu til að fá þá aðstoð sem
hann þurfti.
Amma var einstæð móðir með
flmm ung börn, heilsulítil á þeim tíma
en vildi vera sjálfstæð og fá að njóta
þeirra réttinda að ala bömin sín sjálf
upp. Það var henni kappsmál þó efn-
in væm lítil að þau væm öll vel til
höfð því snyrtimennska var henni
mjög mikilvæg. Með mikilli elju og
þolinmæði tókst henni að koma böm-
um sínum til manns, ættliðimir vom
orðnir fimm.
Hún var alltaf mjög félagslynd og
jákvæð, átti auðvelt með að eignast
vini á öllum aldri. Bæði í Múlabæ og
Seljahh'ð þar sem hún dvaldi síðustu
árin var hún opin fyrir öllu tóm-
stundastarfi, tilbúin að prófa allt
nýtt sem boðið var upp á og reyndi
að fá sem flesta með. Hún hafði
gaman af að búa til fallega hluti og
gefa sem við síðan öll nutum góðs
af. Hún var með eindæmum minnug
og þó barnafjöldinn stækkaði stöðugt
gleymdist enginn, á afmælisdögum
eða öðmm tyllidögum kom hún gjarn-
an með gjöf sem hún hafði sjálf hann-
að.
Við munum öll sakna hennar en
eigum minninguna um hugulsama og
góða ömmu.
„Far þú í friði,
friður pðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V. Briem)
Elsku mamma, við sendum þér,
pabba og systkinum þínum okkar
innilegustu samúðarkveðjur, bless-
uð sé minning hennar.
Kveðja frá Katrínu,
Unni Stellu, Rósu
og fjölskyldum.
í dag verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni Jósefína Katrín Magnús-
dóttir. Mig langar að minnast þessar-
ar góðu konu, sem var mér sem besta
amma. Hún var ýmist nefnd Jósefína
eða Katrín. Flestir þekktu sem
Katrínu, en ég kallaði hana alltaf
Jósefínu eða Fínu.
Jósefína Katrín fæddist á Nes-
kaupstað 11. janúar 1900. Foreldrar
hennar voru Kristín Einarsdóttir og
Magnús Pétur Johnsen. Hún átti tvær
systur sem voru talsvert eldri en
hún, þær eru báðar látnar. Fimm ára
fluttist hún með móður sinni til
Reykjavíkur og bjó þar alla tíð síðan.
1918 giftist hún Þorbergi Gunnars-
syni, eignuðust þau 6 börn og eru 5
þeirra á lífi. Þau eru: Magnús Pétur,
Bergur Thorberg, kvæntur Stefaníu
Friðriksdóttur, Kristín Fjóla, gift
Hermanni Björgvinssyni, Gunnar
Bergmann, kvæntur Unni Bjarna-
dóttur og Stella Ester Singer. Bama-
bömin em 16 og barnabarnabörnin
31. Öllum þessum niðjum sínum
fýlgdist Jósefína vel með, allt til hins
síðasta.
Jósefína og Þorbergur skildu eftir
9 ára sambúð. Þá vom aðrir tímar
en núna. Það var erfitt að koma upp
þessum hóp, en Jósefína var dugleg
og þótti vænt um bömin sín, aldrei
kom til greina að láta þau frá sér.
Hennar starf í meira en hálfa öld
var að þvo þvott, skúra gólf og elda
mat fyrir aðra. Meðan börnin vom
lítil vann hún myrkranna á milli en
þegar börnin stækkuðu hjálpuðu þau
móður sinni. Þetta vom líka erfiðir
tímar hjá þeim, en bömin hennar
vom og em duglegt og gott fólk.
Jósefína sagði mér oft frá þessum
tíma ævi sinnar og gladdist mest
yfir því að hafa ekki gefist upp og
tvístrað hópnum sínum. En eins og
hún sagði sjálf, Guð gaf henni góða
heilsu og kjark. Jósefína hafði mjög
gott skap, var ræðin og skemmtileg.
Henni þótti gaman að vera innan um
margt fólk og naut þess að fara i
leikhús, en á seinni ámm háði það
henni talsvert að þurfa að nota heyrn-
artæki. Móðir mín, Elsa Þorbergs-
dóttir, var stjúpdóttir Jósefínu og var
elsta barn Þorbergs. Jósefína hafði
ajla tíð sambánd við hana og þegar
hún settist að á Siglufirði, þá hélst
sambandið með bréfaskriftum. Fjóla
var tvö sumur fyrir norðan hjá okkur
og það styrkti sambandið milli systr-
anna. Jólapakkarnir frá Fínu og börn-
um hennar eru góðar minningar frá
bernskunni. Innihaldið var alltaf leik-
föng, sem ekki var mikið um í þá
daga, en svona var Fína, alltaf að
gefa. Nú seinni árin, eftir að hún
hætti að vinna, var hún í dagvistun
í Múlabæ, þar sem hún kunni svo vel
við sig, þar lærði hún að mála og búa
til ýmsa fallega hluti. Flesta þeirra
gaf hún í jóla- og afmælisgjafir. Ég
á nokkra muni sem hún bjó til og
er gaman að skoða þá og sjá hvað
þeir em vel gerðir, þó hún hafi unnið
þá alla eftir að hún varð 85 ára. En
það var sama hyað hún gerði, hún
vandaði sig við alla hluti, hvort sem
Eldgjá - Lakagígar - Skaftafcll
5 daga hótelferö
Ferðaskrifstofa íslands og Hótel Edda, í samvinnu við heimamenn á Kirkjubæj-
arklaustri, efna til 5 daga skoðunar- og skemmtiferðar um Suðurland dagana
6.-10. september nk.
Á meðal áhugaverðra staða, sem skoðaðir verða, má nefna:
Landmannalaugar - Eldgjá - Meðalland - Skarðsfjöruviti - Skaftáreldahraun - Lakagígar
- Núpstaðarskógur - Skaftafell - Kapellan Núpsstað - Byggðasafnið Skógum.
Verð kr. 14.900,
InnifaliA: Akstur
Gisting í 4 nætur í tveggja manna herbergi
m/baði á Kirkjubæjarklaustri
4 morgunverðir
4 nestispakkar
1 kvöldverður á laugardagskvöldið
Allar nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu íslands, Skógarhlíð 18, sími 91-25855.
Missið ekki af þessari stórskemmtilegu haustferð.
FERÐASKRIFSTOFAxU
ISLANDS Skógarhlíð 6 101 Reykjavík
itb
var að skúra gólf eða mála rósir.
Enga manneskju hef ég þekkt sem
var eins þrifin, aldrei ryk eða blett-
ur. Ég minnist allra þeirra stunda sem
ég gisti hjá henni, alltaf var hún með
hvítan rúmfatnað, stífstraujaðan með
blúndu og útsaumuðum stöfum. Það
fór vel um alla sem gistu hjá Fínu.
Hún bjó til góðan mat og var bæði
nýtin og hagsýn. Eitt það versta sem
kom fyrir hjá henni var að þurfa að
henda mat.
Eftir að ég fór að búa í Ólafsvík
reyndi hún að heimsækja okkur á
hveiju sumri. Þá dvaldi hún smátíma
í senn og ég er ánægð þegar ég lít
til baka, að hafa getað glatt hana
og gefið henni góðar stundir með ijöl-
skyldu minni. Þá var hún orðin full-
orðin en alltaf létt í skapi og til í að
fara í beijamó suður fyrir Jökul eða
annað. En nú síðustu árin hefur hún
verið svo lasburða að hún hefur alltaf
frestað því að koma vestur.
Ég hef dáðst að því hvað Bergur
pg Fjóla hafa verið móður sinni góð.
I meira en 20 ár hafa þau daglega
komið til hennar eða haft samband
við hana í síma. Ef þau fóru burtu
úr bænum eða voru veik þá voru
aðrir fengnir til að fylgjast með líðan
hennar. Ég veit að hún var þeim
þakklát fyrir alla umhyggjuna.
í nokkra mánuði hefur Jósefína
búið í Seljahlíð þar sem henni þótti
gott að vera og lofaði allan aðbúnað.
Fólkið sem býr þar og starfsfólkið
voru orðnir vinir hennar.
Jósefína virtist alls staðar njóta
sín, sá alltaf björtu hliðarnar á hlut-
unum og vildi helst tala um það sem
var skemmtilegt. Elskuleg kona sem
búin er að lifa langa ævi og þakkaði
allt sem fyrir hana var gert, var búin
að biðja Guð sinn að lofa sér að
kveðja þennan heim án þess að verða
rúmliggjandi, var bænheyrð. Hún
veiktist 9. ágúst, lá á sjúkrahúsi í 5
daga og lést þá sátt við allt og alla.
Ég vil þakka henni allt sem hún
var mér og mínu fólki. Ég, Berg-
mundur, Þórdís og Elsa sendum börn-
um hennar og fjölskyldum innilegar
samúðarkveðjur. Guð blessi minningu
vinkonu okkar Jósefínu Magnúsdótt-
ur. Hvíli hún í friði.
Sigríður Þóra Eggertsdóttir
Mágkona pabba míns, Katrín
Magnúsdóttir, hefur lokið sinni löngu
og ströngu lífsbaráttu 89 ára að
aldri. Katrínu hef ég alla mína ævi
þekkt, því hún var gift föðurbróður
mínum og þegar ég var að alast upp
voru ijölskylduböndin yfirleitt sterk-
ari en þau eru núna.
Katrín var aðeins 29 ára að aldri,
þegar föðurbróðir minn yfirgaf hana
og börnin til að giftast annarri konu.
Höfðu þau hjónin þá eignast 6 böm
og af þeim var þá eitt látið. Þá var
hér ekkert tryggingakerfi eins og nú
er, svo róðurinn hjá Katrínu var oft
þungur við að koma börnunum upp
og tókst henni það af miklum dugn-
aði. Hún tók að sér alls konar erfiða
vinnu, svo sem þvotta, þvegna á
brettum og stundum undnir í höndun-
um. Auk þess hafði hún menn í þjón-
ustu og tók að sér alls konar ræsting-
arvinnu fyrir fólk.
Ég hitti Katrínu núna í sumar,
þegar Stella dóttir hennar, sem bú-
sett er \ New York, var hér í heim-
sókn. Hun var þá að segja okkur hve
ánægð hún væri í Seljahlíð og ég
furðaði mig á því hve minni hennar
var ennþá gott. Hun fór þar í föndur
þar til hún veiktist nokkrum dögum
áður en hún lést. Kona, sem unnið
hefur eins mikið um ævina og Katrín
gerði, getur ekki hætt að starfa þótt
komin sé á elliheimili og að aðeins
vanti hálft ár upp á að hún nái níræð-
isaldri.
Ég votta íjölskyldu Katrínar mína
innilegustu samúð við fráfall hennar
og er þakklát að hafa kynnst annarri
eins dugnaðarkonu.
Sigríður P. Blöndal
Ó, heita og margreynda móðurást,
milda og sterka, sem aldrei brást,
og Drottins vors dýrasta gjöfin.
Hve lík er hún elsku lausnarans,
er leiðarstjama hvers einasta manns,
er lýsir um hauður og höfín.
Hún hugsar ekki’ um sinn eigin hag,
en öllu fómar, og nótt og dag
ég veit, að hún vakir og biður.
Hún heyrir barnanna hjartaslátt
og hlustar og telur hvem andardrátt,
hún beygir sig bljúg að þeim niður.
Hún kyssir þau, vaggar þeim blítt í blund,
hún brosir og grætur á sömu stund,
að bijósti sér viðkvæm þau vefur.
og veitir þeim af sínu lífi líf,
er ljós þeirra, vemd og bezta hlíf.
Hún er engill, sem Guð oss gefur.
Guð blessi þig, móðir, í gleði og þraut,
og geislar frá himins stjömu braut
þér lýsi um ófarin árin.
Og sál þín gleðjist við hjarta hans,
vors hjartkæra, góða frelsarans,
er skilur bezt tregann og tárin.
(Sumarliði Halldórsson)
Börnin
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
BÓKFJERSU 06 VHJIITUN
KVÖLDNÁMSKEIÐ
Sækið nómskeið hjó traustum aðila
Haldin verða á næstunni eftirfarandi námskeið:
Nómskeið Dagsetning
Bókfærsla I - fyrri hluti.12., 14., 19., 21., 26. og 28. sept.
Bókfærsla I - seinni hluti.3., 5., 10., 12., 17. og 19. okt.
Vélrifun (byrjendur).1 1., 13., 18., 20., 25., 27. sept., 2., 4., okt.
Ymis stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku.
Skráning og frekari upplýsingar: Sími 91-688400.
Verzlunarskóli íslands