Morgunblaðið - 24.08.1989, Síða 15

Morgunblaðið - 24.08.1989, Síða 15
MORGUNBLAÐIIj) FlMMTjLHj^fjlJR AGÚ5T ^989 15 ^ Morgunblaðið/BAR Halldór Halldórsson fékk farseðil til London frá Iþróttasambandi Islands áður en hann skokkaði í Reykjavíkurmaraþoni. Frá vinstri eru Magnús B. Einarsson endurhæfingarlæknir á Reykjalundi, en hann hljóp skemmtiskokkið með Halldóri, Sveinn Björnsson, forseti íþróttasambands ísiands. Halldór Halldórsson og Sigurður Magnússon, framkvæmdasijóri Iþróttasambands Islands. ISI styrkir hjartaþega íþróttasamband íslands styrkir Halldór Halldórsson hjartaþega til Englandsfarar í byijun september. Halldór ætlar að taka þátt í hjartaþegahlaupi í London sem haldið er af Harefield-sjúkrahús- inu þar. íþróttasamband íslands greiðir ferðakostnað Halldórs og vill með því móti leggja áherslu á stuðning sinn við almenningsíþróttir en Halldór keppir ekki fyrir hönd neins af íþróttafélögunum innan ÍSÍ. Halldór tók þátt í skemmtiskokki Reykjavíkumaraþons sl. sunnudag og var það liður í undirbúningi fyrir hjartaþegahlaupið í London. Leiðbeinir um notkun hunda við leit í rústum og vatni CAROLINE HEBARD heitir bandarísk björgunarsveitarkona sem undanfarna daga hefúr leið- beint íslenskum björgunarsveitar- mönnum á námskeiði í notkun hunda við leit í rústum og vatni. Auk Caroline hafa Sólveig Smith og Sólveig Þorvaldsdóttir umsjón með námskeiðinu. Sólveig Smith er formaður Björgunarhunda- sveitar Islands, sem er aðildar- sveit Landssambands hjálpar- sveita skáta og opin öllum sem áhuga hafa á að þjálfa leitar- hunda, en Sólveig Þorvaldsdóttir vinnur að undirbúningi Viðlaga- sveitar. Námsskeiðið er haldið á vegum LHS. Blaðamaður ræddi við Caroline og nöfnurnar Sól- veigu Smith og Sólveigu Þorvalds- dóttur. því að ef stórslys verða á íslandi er ekki hægt að kalla til björgunar- hundasveit frá öðrum löndum. Þeir hundar þyrftu að vera í sóttkví í 6 mánuði áður en þeim væri hleypt inn. Þá er hætt við að ekki yrði mik- il hjálp í þeim lengur.“ Við snúum okkur aftur að Caroline og forvitnumst um björgunarstarfið. „Þetta er krefjandi starf en það veit- ir manni mikla ánægju. Ánægjan er fólgin í því að veita hjálp. Það er ómetanlegt. Aftur á móti verður að segjast eins og er að álagið er mik- ið. Stundum er talað um að skipta megi fórnarlömbum slysa í þijá flokka: Þá sem slasast eða deyja, fjölskyldur þeirra og björgunarfólkið. Sumir bíða þess aldrei bætur að horfa upp á eymdina. Þannig missum við margt fólk úr sveitinni. Áiagið verð- ur of mikið.“ Caroline, sem býr í grennd við New York, er félagi í tveimur hunda- björgunarsveitum. Önnur er alþjóð- leg og nefnist „USA disaster team“. Sú sveit er opinber viðlagasveit bandaríska alríkisins og er kölluð til aðstoðar þegar meiriháttar náttúru- hamfarir verða í heiminum. Caroline var beðin um að segja frá sveitinni. „í Bandaríkunum eru 88 björgunar- hundasveitir ef'allt er ta!ið,“ segir Caroline. Úr þessum sveitum er umsjónarfólk og hundar valið í „USA disaster team“. Auk hjálparsveitar- manna eru í sveitinni slökkviliðs- menn, læknar og verkfræðingar. Það eru gerðar miklar kröfur til félaga sveitarinnar, bæði manna og hunda. Hundurinn og umsjónarmaður hans verða að þekkjast vel og geta unnið saman. Auk þess gerum við þær kröfur til umsjónarmannsins að hann taii að minnsta kosti tvö tungumál, kunni fyrir sér í skyndihjálp og hafi þekkingu á þeim tækjum og tólum sem notuð eru. Svo er auðvitað nauð- synlegt að allir í sveitinni þekkist og séu færir um að vinna saman. Sveitin var stofnuð árið 1985. Það ár tókum við þátt í hjálparstarfi e_ft- ir jarðskjáiftana miklu í Mexíkó.Ári seinna fónim við til E1 Salvador og í fyrra til Armeníu. Þar fyrir utan sinnum við víðtæku hjálparstarfi í Bandaríkjunum. Eitt af verkefnum björgunar: hundasveitanna er vatnaleit. í Bandaríkjunum hefur verið þróuð ákveðin tækni í þess konar leitum. Aðferðin byggist á því að hundamir eru þjálfaðir til að þefa uppi gufur og olíur sem leita frá manninum í vatninu á yfirborðið. Þjálfaður hund- ur nemur lyktina og gefur merki með nefinu hvert skal stefna. Ef siglt er of langt færir hundurinn sig til í bátnum og gefur nýja stefnu. Þar sem lyktin er sterkust geltir hundur- inn og reynir að bíta í vatnið. Þá er hægt að gefa kafara vísbendingu um hvar eigi að leita. Vatnaleit er eitt af því sem ég kynni á námskeiðinu á íslandi." Caroline leggur mikla áherslu á miklvægi þekkingarmiðlunar. _,,í haust fer fram alþjóðlegt þing á It- alíu. Þangað kemur fólk til að miðla öðrum af reynslu sinni, ekki til að metast á um hunda. Með þekkingar- miðlun verðum við hæfari og getum bjargað fleiri mannslífum." En hvar stöndum við íslendingar í alþjóðlegu samstarfi. Sólveig Þor- valdsdóttir verður fyrir svörum. „Lengi vel var því þannig farið að við höfðum lítil samskipti út á við. Svo var það fyrir nokkrum árum að við áttuðum okkur á því að við vorum að dragast aftur úr. Síðustu ár höfum við sótt ráðstefnur og reynt að fylgjast með því nýjasta sem er að gerast. Það var einmitt á ráð- stefnu í Bandaríkjunum sem ég hitti Caroline og bað hana um að koma hingað. Þessa dagana vinnum við að því að koma á fót alþjóðlegri björgunarsveit á íslandi. í sveitinni, sem kölluð er Viðlagasveit, verða hundar, björgunarfólk, læknar og vísindafólk. Auk hjálparstarfs er til- gangur sveitarinnar að afla þekking- ar sem nýst getur við björgunar- störf.“ Við tölum um hunda og Sólveig Smith leggur áherslu á að Islending- ar verði að vera sjálfbjarga með hunda. „Við verðum að átta okkur á Morgunblaðið/Árni Sæberg Sólveig Þorvaldsdóttir, Caroline Hebard og Sólveig Smith. Ert þú nokkuð búin(n) að gleyma síðasta vetri - þegar allt var ófært? Pú ferð léttar í gegnum komandi vetur á Feroza. Hvort sem er í rjúpu - á skíði - eða bara út í búð. Þú ferð þetta allt á Feroza. Daihatsu Feroza - fullbúinn og fallegur jeppi á frábæru verði. Verðfrákr. 1.072.300 stgr. á götuna # i_ P.S. Hefur nokkur Brimborg hl. Séð langtíma veðurspá Faxafen 8 ■ sími (91 )685870 fyrír Veturínn ?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.