Morgunblaðið - 24.08.1989, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.08.1989, Qupperneq 16
m t- Danmörk: Ríkisútgjöldin ftyst til að hemja skuldasöftiun Kaupmannahöfn. Reuter. DANSKA stjórnin ætlar að frysta ríkisútgjöldin á næsta ári, koma með öðrum orðum í veg fyrir hækkun á milli ára, og stöðva um leið skuldasöfhunina erlendis. Skýrði Palle Simonsen fjármálaráð- herra frá þvi i gær. „Skuldir þjóðarinnar vaxa stöð- ugt og þess vegna verðum við að sýna aðhald og auka með öllum ráðum spamað í landinu," sagði Simonsen þegar hann kynnti fyrir fréttamönnum drög að íjárlaga- frumvarpi næsta árs. Á síðasta ári jukust erlendu skuldimar um 160 milljarða ísl. kr. og vora um síðustu áramót samtals 2.368 milljarðar, þær mestu á hvert mannsbam í aðildarríkjum OECD. Afborganir af erlendum skuldum verða stærsti útgjaldaliður ríkisins Tapaði í tímahraki Skelleftá. Reuter. YASSER Seirawan, Banda- ríkjunum, og Viktor Kortsnoj, Sviss, tefldu í fyrrakvöld biðskák úr sjöundu umferð heimsbikar- mótsins í skák og lauk henni með sigri Seirawans eftir 12 klukku- stunda setu samtals og 118 leiki. Skákin fór í bið á sunnudag eftir 61 leik en í gær urðu Kortsnoj á afdrifarík mistök og tapaði í miklu tfmahraki. Míkhaíl Tal, Sovétríkj- unum, og Predrag Nikolic, Júgó- slavíu, sömdu um jafntefli í fyrra- dag í síðustu skák áttundu um- ferðar og var staðan þá þannig, að Garrí Kasparov, Anatólíj Karpov, Jan Ehlvest, Valeríj Salov og Lajos Portisch vom efstir með fimm vinn- inga. á næsta ári en áætlað er, að þær verði rúmlega 413 milljarðar ísl. kr. Sagði Simonsen, að það væri helmingur alls tekjuskattsins í Dan- mörku. Minnihlutastjóm borgaraflokk- anna á nú í viðræðum við jafnaðar- menn um breytingar á skattkerfínu en það á að laga að því, sem gerist í öðmm Evrópubandalagsríkjum. Er vonast til, að einhvers konar málamiðlun geti orðið með haustinu en fjárlagafmmvarpið verður að leggja fram fyrir jólaleyfi þingsins. Palle Simonsen sagði, að áætluð útgjöld á næsta ári yrði að skera niður um 64 milljarða ísl. kr. til að þau hækkuðu ekki á milli ára að raunvirði. Yrði það gert með því að minnka framlög til húsnæðis- og samgöngumála, með 1,5% fækk- un ríkisstarfsmanna, aukinni hag- ræðingu og með því að selja ríkis- fyrirtæki. í fjárlagadrögunum er gert ráð fyrir, að ríkisútgjöldin á næsta ári verði 2.240 milljarðar ísi. kr. og fjárlagahallinn rúmlega 22 milljarðar kr. Talið er, að hann verði rúmlega 40 milljarðar ísl. kr. á þessu ári. Simonsen kvaðst trúaður á, að danskt efnahagslíf væri á réttri leið og spáði því, að hagvöxtur yrði 1,5% á þessu ári og því næsta. Nefndi hann sem dæmi, að útflutningur hefði verið að aukast og einnig spamaður einstaklinga. Ekki er samt búist við, að atvinnuleysið minnki en nú em 270.000 manns á skrá, 9,7% vinnuaflsins. Færeyjar: f- / i • f •! >c iteuœr Latinna leitað Lögreglumenn leituðu enn í gær að líkum I fundu níu áður en kvöld var komið. Hafa þá þeirra, sem fórust þegar sandfhitningaskip I fúndist Iík 44 manna en talið er, að 57 hafi sigldi aftan á skemmtiferðaskip á Tempsá, og | farist. Brennuvargurinn kærður Þórshöfii. Frá Snorra Halldórssyni, firéttaritara Morgunblaðsins. TVÍTUGUR Færeyingur var tekinn höndum í bænum Ribe í Dan- mörku á fimmtudag í síðustu viku og verður nú ákærður fyrir að hafa kveikt í nokkrum húsum þar í bæ. Ekki hlaust teljandi Ijón í neinu tilfellanna. Það em þó ekki þessar upplýsing- ar, sem vekja mestan áhuga Færey- inga, heldur hitt að hann hefur enn fremur játað að hafa valdið nokkr- um stórbranum í Færeyjum fyrir nokkm síðan. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæslu- varðhald og verður að þeim tíma loknum fluttur til Færeyja, þar sem áframhaldandi lögreglurannsókn fer fram. Hann hefur sagt dönsku lögregl- unni allt af létta um íkveikjur sínar í Danmörku, en ekkert er vitað um athafnasemi hans á þessu sviði í Færeyjum eða hvort einhveijir hafa verið með honum í verki þar. Ungi maðurinn var grunaður um íkveikju í Færeyjum fyrir tveimur ámm, þegar stór timburverslun í Þórshöfn brann til granna skömmu fyrir jólin 1987. Færeyska lögregl- an sagði í viðtali við blaðið Sosialur- in, að maðurinn hefði þá legið und- ir gmn, en ekki reynst unnt að leggja fram nauðsynlegar sannanir fyrir rétti til þess að fá hann dæmd- an. Hinn handtekni hefur stundað skólanám í Ribe. Það tók lögregluna þar ekki langan tíma að ná til hans eftir að óvenjumargir bmnar höfðu orðið í bænum á stuttum tíma. issafgifi Áyv.ívj Vlrs 14. september. Ferðaskrifstofan Farandi stendur fyrir hópferð til Vínarborgar 14.-21. september. nk. . | . Boðið uppá gistingu í tveggja eða íjögurra manna íbúðum í miðborginni, sem eru nýuppgerðar og með öllum þægindum. Verð erfrá kr. 48.000,- sem innifelur flug, gistingu, skoðunarferð um borgina, fararstjórn og aðstoð við útvegun aðgöngumiða í óperuna og á aðra listviðburði. Boðið upp á dagsferðir frá Vín svo sem til Búdapest og víðar. Pantið tímanlega því sætafjöldi er takmarkaður. ---'l--- ~ S?9? ' : --r -1í ViM VISA FARKC3RT A. Ferðaskrifstofan llarandi VESTURGÖTU 5 SÍMI 622420

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.