Morgunblaðið - 24.08.1989, Side 18
18
mi yhuoa .t-s u ;)ac urm,/n G)c<Aiavpj&í.C'.)ivi
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989
Austur-Þj ó ð verj ar réttlæta
samning Stalíns og Hitlers
Austur-Berlín. Reuter.
Austur-Þjóðverjar viðurkenndu í fyrsta sinn í gær tilvist leyniá-
kvæða í griðasáttmála þýskra nasista og Sovétmanna frá 1939 en rétt-
lættu jafnframt þennan örlagaríka og umdeilda sáttmála. Pólska þing-
ið samþykkti hins vegar ályktun, þar sem griðasáttmálinn er fordæmd-
ur og sagður brot á alþjóðalögum.
Heinz Kuhnrich, sagnfræðingur
austur-þýska kommúnistaflokksins,
sagði í viðtali, sem birt var í stærsta
dagblaði Austur-Þýskalands, Junge
Welt, að enginn vafi léki á því að
leyniákvæði um skiptingu Austur-
Evrópu í áhrifasvæði nasista og Sov-
étmanna hefðu fylgt sáttmálanum,
enda hefðu sovéskir sagnfræðingar
staðfest að svo væri. Austur-Þjóð-
veijar hafa þar til nú vísað því á bug
að leyniákvæði hefðu fylgt sáttmá-
lanum, en þau hafa aðeins verið varð-
veitt í örfilmum sem geymdar eru í
Bandaríkjunum og vestur-þýska ut-
anríkisráðuneytinu.
Kuhnrich sagði að nauðsynlegt
hefði verið fyrir sovésk stjómvöld
að undirrita griðasáttmálann við nas-
ista. Sáttmálinn hefði veitt Sovét-
mönnum landsvæði, sem hefðu verið
nauðsynleg til að treysta vamir Sov-
étríkjanna, og gert þeim kleyft að
búa sig undir óhjákvæmilega styijöld
gegn Þjóðveijum.
Sagnfræðingurinn gaf hins vegar
í skyn að Sovétmenn hefðu getað
notfært sér betur þann frest sem
þeir fengu til að treysta vamir sínar
frá því griðasáttmálinn var undirrit-
aður 23. ágúst 1939 og þar til Þjóð-
veijar réðust inn í Sovétríkin í júní
árið 1941. Hann bætti þó við að sátt-
málinn hefði átt þátt í því að gera
sigur Sovétmanna og bandamanna
þeirra í heimsstyijöldinni síðari
mögulegan. Þessi söguskoðun kemur
einnig fram í austur-þýska mánaðar-
ritinu Horízont, og segir þar meðal
annars að það sé „helber lygi“ að
Stalín hafi viljað semja við nasista
um skiptingu Póllands.
Dæmi um hugarfar
heimsvaldasinna
Fordæming pólska þingsins á
griðasáttmálann var samþykkt með
öllum greiddum atkvæðum, en rúm-
lega 100 þingmenn tóku ekki þátt í'
atkvæðagreiðslunni. „Sáttmálinn var
svívirðilegur, braut gegn alþjóðalög-
um og var því ómerkur frá upphafi,"
segir í ályktuninni. Sáttmálinn er
einnig sagður gott dæmi um hugar-
far heimsvaldasinna og óvirðingu við
smærri þjóðir. Daginn áður hafði
stjórnmálaráð pólska kommúnista-
flokksins fordæmt sáttmálann. Jósef
Stalín kom flokknum til valda árið
1944.
í skýrslu nefndar pólskra og sov-
éskra sagnfræðinga, sem rannsakað
hefur aðdraganda og afleiðingar
innrásar Þjóðveija í Pólland 1. sept-
ember 1939, segir að með griðasátt-
málanum og vináttu- og landamæra-
samningnum við nasista hafi sovésk
stjórnvöld gerst sek um alvarlegt
brot á alþjóðalögum með hörmuleg-
um afleiðingum fyrir Pólveija og
Sovétmenn. Vladímír Potemkín, að-
stoðarutanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, hefði afhent sendiherra Pól-
lands í Moskvu bréf þann 17. septem-
ber 1939, þar sem því hefði verið
haldið fram að pólska ríkið væri ekki
lengur til. Það hefði einnig verið
brot á alþjóðalögum, einkum vegna
þess að pólski herinn hefði enn varið
Varsjá, auk þess sem bandamenn
Pólverja og óháð ríki hefðu viður-
kennt pólska ríkið.
Pólsku sagnfræðingarnir í nefnd-
inni hafa einnig sakað sovésku leyni-
þjónustuna NKVD, fyrirrennara
KGB, um að hafa myrt þúsundir
pólskra hermanna, sem handteknir
voru eftir innrás Þjóðveija í Pólland.
Reuter og Soviet Weekly.
^TEPPALANDS
Teppi, dúkur, parket og flísar
Nú sláum við öll met.
Stórglæsilegt úrval af gólfefnum á ótrúlega lágu verði.
Útsalan er á tveimur hæðum.
í kjallaranum er Dúkaland með gólfdúk, flisar,
parket og kork. En í Teppalandi, á fyrstu hæðinni, eru
gólfteppin og motturnar í glæsilegu úrvali.
allt að 60% afsláttur
Gólfdúkur
Eitt glæsilegasta úrval teppa og búta á
útsölu til þessa, Margir gæðatlokkar og allir
veröflokkar. Bútar allt aó 30 fermetrar aö
stærö meö 50% afslættl.
Dæmi:
Uppúrklippt teppi með sígildu mynstri
úr 100% polyamid. Tveir litir.
Veröáöur 1.219-
AFSLÁTTUR 27% 898-
Lykkjuteppi (Berber) úr gerviefni meö viöur-
kenndri óhreinindavörn. Fallegt og efnismikið
teppi í tveimur litum; Ijósgráu og „beige".
Einstakt tílboð.
Verð áður 1729-
AFSLÁTTUR 35% 1.297-
Grimmsterkt teppi á skrifstofur, stofnanir og
stigahús. Fallegt mynstur.
Verð áður 2.350-
AFSLÁTTUR 35% 1.534-
Fallegt einlitt teppi með „velúr"áferð úr 80% ull
og 20% nælon.
Endingargott heimilisteppi i háum gæöaflokki.
Verð áður 2.732-
AFSLÁTTUR 22% 2.156-
AFSLÁTTUR AF GÓLFTEPPUM
ER 10-50%
Fjölbreytt mynstur og margar þykktir.
Ýmsar breiddir. Bútar á hellu herbergin
meö 50% afslætti.
Dæml:
„Gerflor" 2ja metra breiöur dúkur sem er 2,2
mm að þykkt í frísklegum litum.
Verð áður 898-
AFSLÁTTUR 24% 685-
„Gerflor" 3ja metra breiöur dúkur sem ekki þarf
aö líma.
Verð áður 1.365-
AFSLÁTTUR 30% 955-
„Gerflex" 2ja melra breiður dúkur á heimili,
verslanir og skrítstofur. Slitþoliinn dúkur.
Verðáður 1.376-
AFSLÁTTUR 28% 998-
AFSLÁTTUR AF GÓLFDÚK
ER 10-50%
Afgangar í ýmsum viöartegundum með allt
aö 30% afslætti. Úrvalsparket frá ýmsum
framlelöendum á lækkuöu veröi.
Dæml:
Beykiparket í tveimur gerðum og eikarparket
i tveimur gerðum frá Káhrs
AFSLÁTTUR 10%
Vestur-þýskt gæöaparket frá Haro í úrvali.
Antik-eik.
Verð áður 3.462-
AFSLÁTTUR 22% 2.769-
„Kambala"
Verö áður 3.353-
AFSLÁTTUR 10% 3.018-
AFSLÁTTUR AF PARKETI
ER 10-30%
Stökteppí
Eitt glæsilegasta úrval landsins af stökum
teppum i mörgum stærðum úr bæði ull og
gerviefnum. Klassisk og nýtískuleg mynstur
viö allra hæfi.
AFSLÁTTUR10-25%
Mikiö úrval af heimilisf lisum á gólf og veggi.
Dæml:
Einlitar veggflísar i stærðinni 15x20 sm.
Verð áður 1.876-
AFSLÁTTUR 20% 1.499-
Bútar - sértilboö
Mikið af gólfteppum i fullri breidd I heilum
rúllum sem eru allt aö 70-80 fermetrar.
Heilar dúkarúllur meö 40-60% afslætti.
Haföu málin með þér og þú getur gert
ótrúleg kaup f heilu góifteppa- og góffdúka-
rúllunum fyrir heimiliö eða vinnustaöinn.
AFSLÁTTUR 40-60%
Börnin fá Emmess-ís og Hi-Ci.
Þau una sér í Boltalandi rneðan
foreldrarnir spara stórar upphæðir.
Góðir greíðsluskiimálar.
Euro og Visa afborgunarsamningar.
Greiðslukort.
mi
Léttmynstraðar veggflísar og einlitar í
þessum litum: hvítu, „beige“, Ijósgráu og rós.
Stæröin er 20x25 sm.
Verð áöur 1.525-
AFSLÁTTUR17% 1.195-
AFSLÁTTUR AF FLÍSUM
ER 10-40%
OP1Ð LAUGARDAGA FRÁ10 m 14.
Teppaland • Dúkaland
mmmmmmmmmmmm^mmmmm^mmmmmmmmmmmmmmm mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm öll verö eru uppgefin l fermetrum
Grensásvegi 13, sími 83577, Rvik.
Reuter
Sendiherrann Shirley Temple
Shirley Temple Black, fyrrum kvikmyndaleikkona og líklega frægasta
barnastjarna allra tíma, tók í gær við embætti sem sendiherra Banda-
ríkjanna í Tékkóslóvakíu. Hér er hún að ganga á fund Gustavs Hus-
aks forseta í Prag og eins og sjá má voru margir komnir til að líta
þessa kunnu konu. Temple hefur áður gegnt sendiherrastörfum í Ghana
og hún var siðameistari Geralds Fords Bandaríkjaforseta á sínum tíma.
Hreinsanir í Kína;
Þúsundir manna send-
ar í endurhæfingu
Peking. Reuter.
KÍNVERSKIR ráðamenn hyggjast senda þúsundir menntamanna sem
starfa í Peking í endurhæfíngu í sveitum landsins þar sem þeir þykja
ekki nógu hlýðnir stjórnvöldum, að sögn erlendra stjórnarerindreka.
Samkvæmt því sem segir í opinberu menningarriti stendur til að senda
alla menntamenn, sem útskrifast hafa úr skólum 1985 eða síðar og
starfa í stofnunum menningarmálaráðuneytisins, til starfa í sveitum
landsins í eitt til tvö ár.
Erlendir stjórnarerindrekar segja
að með ákvörðun sinni sé stjórnin
að reyna að sýna náms- og mennta-
mönnum í tvo heima. Hún sé að
refsa þeim fyrir þá forystu sem þeir
höfðu í aðgerðum umbótasinna í
vor, sem náðu hámarki er kínverski
alþýðuherinn braut andófið á bak
aftur í bióðbaði í júní, og að reyna
að koma í veg fyrir frekara andóf.
„Allir sem ekki hafa hlotið þjálfun
hjá grasrótarsamtökum verða senn
sendir í slíkar vinnubúðir,“ sagði í
menningarritinu China Culture í
gær. Með starfi hjá grasrótarhreyf-
ingu mun jafnan vera átt við hefð-
bundin sveitastörf. Samkvæmt upp-
lýsingum frá hinúm ýmsu stofnunum
ríkisins virðist ákvörðunin eiga að
ná til mun fleiri en þeirra sem starfa
hjá menningarmálaráðuneytinu. Að
sögn vestrænna stjórnarerindreka
er jafnframt ætlunin að hreinsa
kínverska kommúnistaflokkinn af
mönnum, sem ekki þykja nógu hall-
ir undir sjónarmið harðlínuaflanna.
Song Ping, háttsettur fulltrúi í
stjómmálaráðinu, sagði í viðtali við
kínverska fjölmiðla í gær að andófið
í vor hefði að einhveiju leyti verið
flokknum að kenna og þyrfti hann
að losa sig við ósækilega félaga.
Skipt var um rektor í Peking-
háskólanum í gær en þar kom til
mikilla andófsaðgerða í vor og náms-
menn við skólann vom í forystu
umbótasinna. Ding Shisun var látinn
víkja og Wu Shuging, fyrram aðstoð-
arrektor, settur yfir skólann í hans
stað. Ding var vinsæll meðal stúd-
enta og hermt er að hann hafi bar-
ist gegn fyrirmælum kínversku
stjórnarinnar um hertar reglur fyrir
skólann eftir aðför hersins að and-
ófsmönnum. Meðal þeirra fyrirmæla
var ákvörðun um að allir nýstúdent-
ar við skólann skuli ljúka ári í her-
skóla áður en raunverulegt háskóla-
námn hefjist.
EB:
Matvæli send
til Póllands
Brussel. Frá Kristjáni Má Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins (EB) hefúr ákveðið
að hefla nú þegar fyrirhugaðar
matvælasendingar til Póllands.
Bandalagið sendir 500.000 tonn
af hveiti, 300.000 tonn af fóður-
korni, 10.000 tonn af nautakjöti og
5.000 tonn af ólívuolíu til Póllands.
Verðmæti matvælanna er áætlað
rúmlega sjö milljarðar íslenskra
króna.
Gert er ráð fyrir því að pólsk
stjórnvöld selji þessi matvæli og noti
peningana, sem fyrir þau fást, til
þess að draga úr áhrifum mikilla
verðhækkunar á nauðsynjavöra, sem
varð þegar verðlag var að miklu ieyti
gefið frjálst fyrir skömmu.
I lok júlí var fundur 24 ríkja hald-
inn í Brussel til að fjaila um sameig-
inlegar aðgerðir til styrktar Pólveij-
um. Þar var samþykkt að ríkin ski-
luðu inn skýrslum um fyrirhugaða
aðstoð við Pólland og Ungvetjaland
fyrir ok þessa mánaðar. Áætlað er
að fulltrúar ríkjanna hittist á nýjan
leik fyrir næstu mánaðamót.