Morgunblaðið - 24.08.1989, Síða 23
2591 r-iUI»Á Jí jl'lífclj'i. U.il.A.-ttHl ífclCM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24: ÁGÚST1989
Aðalfund-
ur Skóg-
ræktarfé-
+
lags Is-
lands
59. AÐALFUNDUR Skógrækt-
arfélags íslands verður haldinn
í Menntaskólanum á Isafirði
25.-27. ágúst nk. Helsta mál
fundarins verður Atak 1990 —
Landgræðsluskógar.
Fundurinn hefst á föstudags-
morgun með afhendingu fundar-
gagna og setningu formanns fé-
lagsins, Huldu Valtýsdóttur. For-
maður Skógræktarfélags ísafjarð-
ar ávarpar fundinn og fráfarandi
skógræktarstjóri, Sigurður Blönd-
al, flytur ávarp. Þá verða venjuleg
aðalfundarstörf en um kvöldið ann-
ast framkvæmdanefnd Átaks 1990
kynningu á landgræðsluskógum.
Átak 1990 var ákveðið í tilefni
60 ára afmælis Skógræktarfélags
Islands sem verður á næsta ári.
Það er sérstakt átak í landgræðslu
— ræktun landgræðsluskóga — í
samvinnu við Skógrækt ríkisins,
Landgræðslu ríkisins og landbún-
aðarráðuneytið.
I tengslum við aðalfundinn verð-
ur skógarreitur Skógræktarfélags
ísafjarðar skoðaður og verða þar
veittar leiðbeiningar um alhliða
uppgræðslustörf, farið verður í
Skálavík og á Bolafjall og á heim-
leið á sunnudag verður komið við
í gróðurreit Matthíasar Bjamason-
ar í Arnarfirði.
Borgarlista-
menn heiðraðir
Menningarmálanefiid
Reykjavíkur og borgarráð hafa
valið borgarlistamann og veitt
starfslaun listamanns til þriggja
ára. Davíð Oddsson horgarstjóri
afhenti verðlaunin við athöfii
sem haldin var í Höfða 18. ágúst
sl.
Nína Björk Árnadóttir er borgar-
listamaður 1989. Hún hlaut skjal
því til staðfestingar og áletraðan
stein með nafni sínu, nafnbótinni
og skjaldarmerki Reykjavíkur.
Einar Hákonarson hlaut starfs-
laun listamanns til þriggja ára.
Fulltrúi Einars tók við laununum
þar sem Einar var í útlöndum.
Borgarstjóri nefndi við athöfnina
að menningarmálanefnd borgar-
innar hefði lagt til við borgarráð
að tímabundinni ákvörðun, sem
tekin var í tengslum við 200 ára
afmæli borgarinnar, um að veita
starfslaun listamanns til þriggja
ára, yrði framhaldið. Hlaut þetta
góðar undirtektir viðstaddra.
Norræn ráð-
stefha um full-
orðinsfræðslu
NORRÆN ráðstefiia um fullorð-
insfræðslu verður haldin á Hótel
Sögu, föstudaginn 25. og laugar-
daginn 26. ágúst, á vegum Nor-
rænu ráðherranefiidarinnar.
Ráðstefhan ber yfirskriftina
„Nýjar leiðir í fullorðinsfræðslu
á Norðurlöndum".
Á ráðstefnunni verða flutt erindi
um tengsl milli vinnumarkaðs-
menntunar og almennrar menntun-
ar fyrir fullorðna, um fræðslu á
vegum stórfyrirtækja í Banda-
ríkjunum og Evrópu og um reynslu
Dana og Svía í fullorðinsfræðslu.
Gert er ráð fýrir að 10-15 þátt-
takendur verði frá hveiju Norður-
landanna og að alls sitji 70 manns
ráðstefnuna.
Hestaíþróttir:
Heimsmeistara-
mót í Frakklandi
Frá Valdimar Kristinssyni, fréttaritara
Morgunblaðsins.
SAMÞYKKT var á aðalfundi
FEIF að Frakkar fái næsta
heimsmeistaramót í hestaíþrótt-
um sem haldið verður 1991. Þeir
hafa þó frest til áramóta til að
ákveða hvort þeir treysti sér til
að halda mótið, en franska Is-
landshestasambandið er hvorki
fjöhnennt né sterkt.
Islendingar buðust til að aðstoða
Frakkana og yrði sú aðstoð ráðgjöf
við skipulagningu mótsins ef af því
verður, ef Frakkar hinsvegar gefa
mótið frá sér, er talið líklegt að
Norðmenn muni halda það.
Þá var samþykkt að Hollending-
ar fái mótið árið 1993 ogjafnframt
ákveðið að framvegis skuli staður
fyrir heimsmeistaramót ákveðinn
með meiri fyrirvara en gert hefur
verið, svo mótshaldarar fái lengri
tíma til undirbúnings.
Þá var samþykkt að framvegis
verði mótin kölluð heimsmeistara-
mót og sigurvegarar heimsmeistar-
ar með tilkomu Bandaríkjamanna
og Kanadamanna.
Spurst hafði út fyrir fundinn að
leggja ætti til, að staða varaforseta
yrði lögð niður, en Islendingar hafa
ávallt gegnt þeirri stöðu.
Þeim Kára Arnórssyni og Pétri
Jökli Hákonarsyni sem sátu fund-
inn fyrir íslands hönd tókst að
koma í veg fyrir að þessi tillaga
næði fram að ganga.
Af öðrum samþykktum má nefna
að næsti aðalfundur FEIF verður
haldinn á Islandi í júlí á næsta ári
að loknu landsmóti. Fram kom á
fundinum mikill áhugi á að haldið
yrði svokallað „mini“-heimsmeist-
aramót í tengslum við iandsmótið
og verður því komið á framfæri
við hlutaðeigandi aðila á íslandi.
Samþykkt var að næstu ungl-
ingabúðir FEIF yrðu í Sviss á
næsta ári, en einnig kom fram
áhugi á að þær yrðu á íslandi árið
1991.
Góð hey í
Meðallandi
Hnausum.
HÉR hefiir verið ágætis veðr-
átta, sólardagar eins og þeir
geta bestir orðið. Hafa þeir kom-
ið sér vel, ýmsir á fullri ferð að
ljúka slætti, en sumir höfðu það
af fyrir verslunarmannahelgi.
Hljóta að vera góð heyin austan
Mýrdalssands þvi hér hafa verið
ágætis þurrkar. Óvenju mikil um-
ferð var á hringveginum um versl-
unarmannahelgina og hefur líklega
aldrei sést önnur eins hér.
Mikið hefur verið um ferðafólk
í sumar og hefur veðráttan boðið
upp á það. Messa var í bænahúsinu
á Núpsstað, sunnudaginn ö. ágúst
og hefur lengi verið messað þar
einu sinni á ári og valin til þess
verslunarmannahelgin. Var íjöl-
mennt við athöfnina.
Tunglmyrkvinn sást hér vel, því
heiðríkt var að mestu og a.m.k.
sumir hér sáu slfkt fyrirbæri í
fyrsta sinn sem naut sín mjög vel.
Nú aka ménn hér í Meðallandi
á malbiki þar sem áður var versti
grjótvegur, maður var hér á ferð
núna sem hefur ferðast um allt
ísland og kvaðst hann aldrei hafa
ekið á jafn ömurlegum vegi og hér
var og fannst viðbrigðin með ólík-
indum.
- Vilhjálmur
Bólstaðarhlíðar-
kirkja 100 ára
SUNNNUDAGINN 27. ágúst
verður þess minnst við guðs-
þjónustu kl. 14 í Bólstaðarhlíð-
arkirkju, Bólstaðarhlíðarhr. í
A-Hún, að kirkjan hefiir þjónað
söfiiuðinum í 100 ár.
Við sama tækifæri setur prófast-
ur Húnvetninga, sr. Guðni Þór
Ólafsson á Melstað, nýjan sóknar-
prest, Stínu Gísladóttur, inn í emb-
ætti, en sl. 4 ár hefur prestakallið
verið prestlaust og því þjónað af
nágr:1 nnaprestum.
Fyrrverandi sóknarprestum og
þeim prestum sem hafa þjónað
prestakallinu er sérstaklega boðið
að taka þátt í hátíðinni þennan
dag, auk allra sveitunga og velunn-
ara kirkju og prestakalls.
Söfnuðurinn býður til kaffi-
drykkju í Húnaveri að lokinni hátíð-
armessunni.
Fyrirlestur
umjarðfræði
SÍÐASTI fyrirlesturinn í „Opnu
húsi“ í Norræna húsinu verður
i dag, fímmtudaginn 24. ágúst
klukkan 20.30. Ari Trausti Guð-
mundsson jarðfræðingur talar
um jarðfræði og eldvirkni á ís-
landi. Ari flytur mál sitt á norsku
og eftir stutt kaffihlé verður
sýnd kvikmyndin Eldur í Heima-
ey og er hún með norsku tali.
I anddyri Norræna hússins
stendur yfir sýning um Vestmanna-
eyjar er lýsir jarðeldunum í Heima-
ey og myndun Surtseyjar. Bóka-
safn og kaffistofa hafa opið fram
til klukkan 22 á fimmtudagskvöld.
Á laugardag 26. ágúst verður
síðasti fyrirlesturinn um ísland sem
Borgþór Kærnested hefur flutt fyr-
ir norræna ferðamenn í sumar.
Klukkan 17 talar hann á sænsku
og klukkan 18 fer fyrirlesturinn
fram á finnsku.
Fiskverö á uppboðsmörkuðum 23. ágúst
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 52,50 43,00 48,27 34,415 1.661.249
Þorskur(smár) 22,00 22,00 22,00 0,015 319
Ýsa 90,00 42,00 83,01 6,771 562.114
Karfi 12,00 12,00 12,00 0,028 333
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,071 1.066
Ufsi(smár) 12,00 11,00 11,78 1,789 37.835
Steinbítur 49,00 15,00 47,96 0,980 46.977
Lúða 160,00 140,00 149,60 0,253 37.835
Koli 25,00 25,00 25,00 0,211 5.263
Gellur 255,00 255,00 255,00 0,045 11.475
Kinnar 75,00 75,00 75,00 0,066 4.950
Samtals 52,70 44,643 2.352.664
í dag verða meðal annars seld 32 tonn af þorski, 3 tonn af ýsu,
10 tonn af karfa, 3 tonn af ufsa og óákveðið magn af steinbít,
lúðu, gellum og kinnum úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 54,00 30,00 49,38 80,779 3.989.276
Þorskur(smár) 14,00 14,00 14,00 0,151 2.114
Ýsa 100,00 45,00 66,86 12,650 845.811
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,224 3.360
Ufsi 29,00 15,00 26,41 11,110 293.423
Ufsi(umál) 10,00 10,00 10,00 0,294 2.940
Steinbítur 56,00 56,00 56,00 0,711 39.816
Hlýri 56,00 56,00 56,00 0,030 1.680
Langa+blál. 15,00 15,00 15,00 0,316 4.740
Lúða(stór) 205,00 115,00 183,85 0,571 104.980
Lúða(smá) 190,00 140,00 184,82 0,332 61.360
Sólkoli 25,00 25,00 25,00 0,021 525
Skarkoli 68,00 25,00 53,43 0,480 25.648
Hnísa 5,00 5,00 5,00 0,040 200
Samtals 49,85 107,927 5.379.703
Selt var úr Jóni Baldvinssyni RE.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 50,50 46,00 49,52 6,387 316.263
Þorskur(umál) 15,00 15,00 15,00 0,007 105
Ýsa 79,00 26,00 39,86 5,041 200.952
Karfi 28,00 15,00 18,05 4,230 76.332
Ufsi 21,00 15,00 18,05 4,230 76.332
Steinbítur 48,50 15,00 45,03 2.148 96.714
Langa 40,00 17,00 36,15 1,371 49.568
Lúða 200,00 180,00 185,53 0,100 18.460
Skarkoli 30,00 30,00 30,00 0,006 180
Keila 12,00 7,00 7,35 0,359 2.640
Lax 150,00 150,00 150,00 0,070 10.500
Samtals 36,04 23,533 848.016
í dag verður selt óákveðið magn af blönduðum afla úr ýmsum
bátum.
Eskifiörður:
Dvalarheimili aldr-
aðra tekið í notkun
Eskifírði.
D V AL ARHEIMILI aldraðraá Eski-
firði hefiir verið tekið í notkun.
Húsið er um 300 m2 að grunnfleti,
þijár hæðir auk kjallara. Á heimil-
inu er rými fyrir 22 vistmenn í
hjónaíbúðum og einstaklingsher-
bergjum. Þar af er rými fyrir 12
á hjúkrunardeild. Við vígslu heim-
ilisins var því gefið nafnið
Hulduhlið til minningar um Huldu
Björgúlfsdóttur síðustu húsfreyj-
una á höfuðbólinu Eskifirði.
Við vígslu Hulduhlíðar rakti Hrafn-
kell A. Jónsson forseti bæjarstjómar
Eskifjarðar byggingarsögu hússins.
Upphaf byggingar dvalarheimilis
aldraðra á Eskifirði má rekja allt
aftur til ársins 1979 er bæjarstjórn
kaus nefnd til að annast byggingu
dvalarheimilis fyrir aldraða. Síðan
hefur verið unnið að því að þoka
málinu áfram. Bygging Hulduhlíðar
hófst svo 16. apríl 1989 og var húsið
vígt nú 18. ágúst. í heimilinu eru 3
hjónaíbúðir, ein einstaklingsíbúð auk
herbergja og rúmar húsið allt 22 vist-
menn. Þar af er gert ráð fyrir rými
fyrir 12 á hjúkrunardeild sem ekki
er að fullu lokið. í kjallara er gert
ráð fyrir sundlaug og endurhæfingar-
aðstöðu sem samnýtist með heilsu-
gæslustöðvunum á Reyðarfirði og
Eskifirði.
Kostnaðurinn við bygginguna
nemur nú um eitthundrað milljónum
og gert er ráð fyrir að um 16 milljón-
ir kosti að ljúka því sem eftir er af
húsinu. Hinn mikli og almenni áhugi
fyrir byggingu dvalarheimilis aldr-
aðra á Eskifirði meðal bæjarbúa er
forsenda þess að Hulduhlíð er nú ris-
in, segir Hrafnkell A. Jónsson forseti
Við vígslu Hulduhlíðar rakti
Hrafnkell A. Jónsson, forseti
bæjarstjórnar, byggingarsögu
hússins.
bæjarstjórnar. Fjölmargir einstakl-
ingar, félagasamtök og fyrirtæki
hafa lagt fram stórar og smáar upp-
hæðir til dvalarheimilisins. Stærsti
hluti kostnaðarins hefur þó hvílt á
bæjarfélaginu en Framkvæmdasjóður
aldraðra hefur lagt 9 milljónir til
byggingarinnar og vonast er tii að
það verði aukið enn frekar. Þá er
gert ráð fyrir að til byggingar hjúk-
runardeildar og til þess hluta kjallara
sem nýttur verður af heilsugæslu-
stöðinni komi framlag frá ríkinu sem
nemur 85% af byggingarkostnaði
þessara hluta hússins. Ekkert hefur
komið enn af þessu ríkisframlagi en
þess er vænst að úr því rætist sem
fyrst.
Efnt var til samkeppni um nafn á
húsinu og varð nafnið Hulduhlíð hlut-
skarpast. Er það í minningu Huldu
Björgúlfsdóttur, síðustu húsfreyju á
höfuðbólinu Eskifirði. Hulda var mik-
il baráttukona fyrir byggingu dvalar-
heimilis aldraðra á Eskifirði og gaf
verulegt fé til byggingarinnar. Hún
ánafnaði dvalarheimilinu allar eigur
sínar eftir sinn dag. Hulda lést 23.
maí 1985. - Björn
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson.
Hulduhlíð.