Morgunblaðið - 24.08.1989, Page 24

Morgunblaðið - 24.08.1989, Page 24
AKUREYRI Morgunblaðið/Rúnar Þór Harður árekstur Allharður árekstur varð á mótum Glerárgötu og Þórunnarstræt- is laust fyrir kl. 10 í gærmorgun, en þá skullu tvær fólksbifreiðar saman. Tildrög óhappsins voru þau að bifreið sem ekið var suður Þórunnarstræti fór yfir á rauðu ljósi, að sögn lögreglu. Engin slys urðu á fólki, en fjórir voru í öðrum bílnum og ökumaður einn í hinum. Annar bilanna er óökufær og hinn talsvert skemmdur. Slátrun hefst 12. september: Rúmlega 44 þúsund fíár slátrað í haust SAUÐFJÁRSLÁTRUN hefst í Sláturhúsi KEA á Akureyri þriðjudaginn 12. september næstkomandi. Alls verður rúmlega 44 þúsund fjár slátr- að nú í haust og er það nokkru fleira en var í síðustu sláturtíð. Á undanfórnum tveimur árum hefúr fé sem slátrað er á Akureyri fækkað um 1.500 að meðaltali. Óli Valdimarsson sláturhússtjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að flölgunin nú væri til komin vegna þess að nú yrði fé ekki slátrað á Dalvík eins og verið hefði. Fé frá Ólafsfirði og Arskógsströnd verður ekið til Akureyrar þar sem því verð- ur slátrað. í síðustu sláturtíð var slátrað um 7.000 fjár á Dalvík. Síðasta. haust var slátrað um 43.800 fjár á Akureyri, en auk þess var Kaupfélag Eyfirðinga með rekst- ur sláturhússins á Kópaskeri á leigu þar sem slátrað var um 19 þúsund fjár. Engu fé verður slátrað á Kópa- skeri nú í haust og tekur sláturhúsið á Húsavík við fé frá svæðinu. Fé sem slátrað hefur verið hjá Sláturhúsi KEA á Akureyri hefur fækkað með hveiju árinu og á síðustu tveimur árum hefur því fækkað að jafnði um 1.500. Óli sagðist búast við að fé myndi áfram fækka á svæð- inu, en bændur væri í nokkrum mæli að breyta fullvirðisrétti sínum yfir í mjólk. Óli sagði að nægt framboð væru af starfsfólki til starfa við slátur- húsið og mikið væri búið að hringja og spyijast fyrir um störf, en enn væri ekki farið að auglýsa eftir fólki. Reiknað er með að sláturtíðin taki um sex vikur og henni ljúki 24. eða 25. október. Vinnuslys MAÐUR sem var við vinnu hjá Timburvinnslu KEA á Lónsbakka slasaðist nokkuð á hægri hendi, er hún lenti í límvalsa sem hann var að vinna við. Slysið varð rétt fyrir hádegið í gær og var maðurinn fluttur í Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert var að meiðslum hans. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. AGUST 1989 Öldungadeild MA sam- einuð deildinni í VMA Síldarkvóti Til sölu er síldarkvóti í skiptum fyrir þorskkvóta. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á aug- lýsingadeild Mbl., merkt: „Síldarkvóti - 7713“. • Hentar bæði ó timburhús og steinhús. VERNDGEGN veorun pBwf, Hi SMIÐJUVEGUR4BS: 641150 ÖLDUNGADEILD Menntaskól- ans á Akureyri verður sameinuð öldungadeild Verkmenntaskól- ans nú í haust, en þeir nemar sem langt eru komnir í námi munu þó Ijúka því við MA, en þar er um að ræða 15 manna hóp. Ástæða þess að hætt verður að kenna öldungum við MA er lítil aðsókn nemenda siðustu ár. Jónas Helgason kennslustjóri í öldungadeild Menntaskólans á Ak- ureyri sagði að deildin hefði að miklu leyti þjónað tilgangi sínum, en fjölmargir hafa stundað þarnám. Starfsemi deildarinnar hófst haust- ið 1975 og fyrsti hópurinn var út- skrifaður vorið 1977, en alls hafa 90 stúdentar verið brautskráðir frá öldungadeild MA. „Það hefur dregið mjög úr að- sókninni á allra síðustu árum og því þótti okkur ekkert vit í að halda úti tveimur öldungadeildum. Við munum leggja niður deildina hér og vísum væntanlegum nemum á öldungadeild Verkmenntaskólans, en hún hefur verið fjölmenn þau ár sem hún hefur verið starfandi," sagði Jónas. I vetur verður haldið úti nokkrum námskeiðum við öldungadeildina og m.a. er ætlunin að kenna frönsku næstu tvö árin, en engin franska er kennd í VMA. j j * y * >c • Morgunblaðið/Rúnar Antonsson Nettobuðin opnuð Fjölmargir lögðu Ieið sína í KEA-Nettó þegar búðin var opnuð á þriðjudaginn. Strax eftir að búðin var opnuð var töluverður hópur fólks kominn í verslunina. KEA-Nettó er við Höfðahlíð 1 og er fyrirkomu- lagið með svipuðum hætti og í Bónusbúðunum í Reykjavík. Rekstrarkostnaði er haldið í lágmarki, sem kemur viðskiptavinum til góða í lægra vöruverði. Starfsmenn í versluninni verða þrír, en fleira fólk verður að störfiim í versluninni fyrst um sinn. Verslunin verður opin firá kl. 13.00-18.30 virka daga og á laugardögum frá 10.00-14.00. Sækið námskeið hjá traustum aðila Haldin verða á næstunni eftirfarandi námskeið: LOKSINS er hún komin utanhússklæóningin, sem allir geta sett upp: ROCKWOOL steinullarklæóning með höróu yfirborði. Námskeið Dagsetning Grunnnámskeið í einkatölvum.........................4.- 6. september WordPerfect (Orðsnilld) - ritvinnsla...........................9.-10. september Word - ritvinnsla..............................................16.-17. september Multiplan - töflureiknir.......................................23.-24. september Ópus - fjárhags- og viðskiptamannabókhald...........30. sept. - 1. okt. dBase IV - gagnagrunnur.................................7.-8. október Ýmis stéttarfélög styrkja félaga sína til þátttöku. Skraning og frekari upplýsingar: Sími 91-688400. Verzlunarskóli íslands Mjög auðveld og fljótleg í uppsetningu. • Stærð 600x200x80 mm • Mjög hátt einangrunargildi sem þýðir verulega lækk- un hitakostnaóar. Húðuó með Flexcrete FCR 848 Decadex teygjanlegri plasthúð. TOLVUNAMSKEIÐ J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.