Morgunblaðið - 24.08.1989, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989,
■ ' - ' ■ ■ :_t 1______L
Ríkey Ing-imundardóttir við verk sín.
Hveragerði:
Einkasýmng Ríkeyjar
RÍKEY Ingimundardóttir myndhöggvari opnar í dag, fimmtudag 24.
ágúst, einkasýningu í Eden, Hveragerði.
Þetta er 11. einkasýning Ríkeyjar, síðast sýndi Ríkey í Lúxemborg, fyrr
á þessu ári.
Á sýningunni verða málverk og postulínsmyndir. Sýningin stendur yfir til
4. september. (Frcttatilkynning:)
Minning:
Þorsteinn Stefánsson
frá Blómsturvöllum
Selá góð
Veiði hefur verið jöfn og góð í
Selá í Vopnafirði síðustu vikurnar
og lax alltaf að ganga. Þar eru
nú komnir hátt í 800 laxar á land
og ljóst að þama fer ein besta áin
í sumar, því veitt er á sjö stangir
í ánni og ljóst að talan mun hækka
vemlega áður en yfir lýkur. Lax
er nú kominn um alla á og nýlega
vom Garðar H. Svavarsson og
félagar á ferð á efra svæðinu.
Vom þeir í fjóra daga og fengu
á fimmta tug laxa, flesta væna
mjög. Sem dæmi má nefna, að
Haukur Garðarsson lét sig hafa
að ganga í Efri Foss, sem er hálf
þriðja klukkustund hvor leið.
Hann veiddi sig niður með ánni
og kom í hús kúguppgefinn seint
um kvöld með drápsklyfjar, 7
laxa, allt að 17 punda, og meðal-
þunginn 10 pund.
Vesturdalsá mjög góð
Mög góð veiði hefur verið í
Vesturdalsá í Vopnafirði og vel á
þriðja hundrað Iaxar komnir þar
á land. Að sögn er stór hluti af-
lans lax sem hefur verið tvö ár í
sjó, 9 til 14 punda. Dijúgt mun
af laxi í ánni og stöðugar göng-
ur, ekki stórar, en jafnar.
Langá Iéleg enn ...
“Það er ekki ördeyða, en þetta
er samt óttalega lélegt, kannski
4 til 5 laxar sem veiðast á dag
og svona upp undir 400 laxar
komnir á land á neðstu svæðunum
í Langá og eitthvað á sjöunda
hundraðið úr ánni í heild. Það
hefur ekki verið jafn tregt síðan
1984, þegar það veiddust aðeins
610 laxar í ánni,“ sagði Runólfur
veiðivörður við Langá í samtali
við Mörgunblaðið í gær. Hann
sagði jafnframt að enn væm að
tínast inn nýgengnir laxar, en lítið
magn. Þá væri ekki undan því að
kvarta að enginn fiskur væri í
ánni, það væri líf á hveijum veiði-
stað, en laxinn væri orðinn grút-
leginn og tæki illa.
Fæddur 24. desember 1917
Dáinn 15. ágúst 1989
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast míns kæra tengdaföður,
sem hefur lokið sínu ferðalagi. Nú
verðum við að halda áfram án hans.
Þorsteinn, eða Steini eins og
hann var alltaf kallaður, fæddist
að Gijótgarði í Glæsibæjarhreppi
24. desember 1917. Foreldrar hans
vom Sigríður Guðrún Pálsdóttir og
Stefán Valdimar Siguijónsson,
bama- og unglingakennari og síðar
oddviti. Voru þau hjóiiin mjög vel
látin af öllum.
Steini ólst upp við frekar kröpp
kjör, eins og víða var á þeim tíma.
Systkini Steina vom sex, þau
Pálína, Baldur, Siguijón, Ragn-
heiður, Frímann og Guðbjörg sem
búsett er á Akureyri og ein lifir
bróður sinn. Steini byijaði ungur
að vinna eins og önnur börn hafa
ávallt gert til sveita. Hann gekk í
barnaskóla í Þinghúsinu, sem oftast
var nefnt kuðungurinn. Þaðan lá
leiðin í Alþýðuskólann að Laugum
í Reykjadal. Þar lauk hann prófi
vorið 1939 eftir tveggja ára nám.
Á Laugum kynntist hann eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Jónínu Arn-
fríði Víglundsdóttur frá Hauksstöð-
um í Vopnafirði. Jónína, kölluð
Ninna, réðst í vist að Möðruvöllum
í Eyjafirði sumarið 1939, síðan í
vist á Akureyri veturinn eftir, en
Steini stundaði daglaunavinnu á
Akureyri. Þarna endurnýja þau
kynni sín og um vorið 1940 fluttist
Ninna að heimili tengdaforeldra
sinna að Blómsturvöllum í Glæsi-
bæjarhreppi. Steini og Ninna giftu
sig sumarið 1941 við skírn fyrstu
barna sinna, tvíburanna Stefáns og
Víglundar.
Sumarið 1942 flytjast Steini og
Ninna í Bjarg sem var lítið kot nið-
ur við sjó í landi Blómsturvalla. Þar
vora þau með smá búskap en einn-
ig stundaði Steini vinnu utan heim-
ilis á sumrin á Dagverðareyri og
víðar.
Árið 1948 flytjast þau aftur að
Blómsturvöllum og taka þar við búi
af foreldram Steina. Þar bjuggu
þau til ársins 1970 að þau bmgðu
búi og flytjast til Akureyrar.
Steini og Ninna eignuðust átta
börn, fyrst tvíburana fædda 24.
júní 1941. Þau era: Stefán Valdi-
mar, kvæntur Önnu Björnsdóttur,
búsett á Akureyri; Víglundur,
kvæntur Kristjönu Skarphéðins-
dóttur, búsett á Húsavík; Haukur,
f. 14.2. 1943, kvæntur Aðalheiði
Gísladóttur, búsett á Akureyri; Sig-
urður Guðmann, f. 5.12. 1946,
kvæntur Guðrúnu Magnúsdóttur,
búsett í Reylqavík; Páll, f. 7.10.
1948, kvæntur Sigurbjörgu Einars-
dóttur, búsett á Akureyri; Ásta, f.
7.8. 1951, gift Jóhannesi Ola Garð-
arssyni, búsett á Þinghól við Akur-
eyri; Ragnheiður Guðbjörg, f. 22.1.
1955, gift Grétari Sveinbjörnssyni,
búsett í Reykjavík; Þorsteinn Mar-
inó, f. 30.4. 1957, kvæntur Guð-
björgu Árnadóttur, búsett í Svíþjóð.
Barnabömin em 24 og 1 langafa-
barn.
Eftir að Steini kom til Akureyrar
vann hann lengst af hjá Plastiðj-
unni Bjargi eða meðan heilsa hans
leyfði.
Að leiðarlokum langar mig að
þakka Þorsteini tengdapabba fyrir
hans ljúfa viðmót frá okkar fyrstu
kynnum og allt síðan.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlaustu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin,
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Hvíli hann í friði. Minning hans
er ljós í lífi okkar.
Kristjana Skarphéðins-
dóttir og íjölskylda.
+
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN Í. EIRÍKSSON,
Barónsstfg 3A,
andaðist þriðjudaginn 22. ágúst.
Stella Guðjónsdóttir, Sigurður H. Konráðsson,
Ómar Sigurðsson, Sigurbjörg Karlsdóttir,
Bára Sigurðardóttir, Kristján Þorgeirsson,
Erla Sigurðardóttir, Jón Arnar Sverrisson,
og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRA MAGNÚSDÓTTIR,
fyrrum húsmóðir,
Miðbæ, Hrísey,
andaðist þann 22. ágúst að Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri.
Börn, tengdabörn, ömmubörn og
langömmubörn.
Prentvélar
Óska eftir offsetprentvél og digulvél í góðu
ástandi.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merk:
„P - 1102“
FÉLAGSSTARF
Aðalfundur
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Súðavíkurverður haldinn fimmtudaginn
24. águst nk. kl. 20.30 í kaffisal Frosta hf.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Akureyringar
- Eyfirðingar
Halldór Blöndal, alþingismaður, verður með
viðtalstima á skrifstofu Sjálfstæðisflokks-
ins, Kaupangi, á morgun, föstudaginn 25.
ágúst kl. 14.00-18.00, sími 21500.
Wélagslíf
Hjálpræðisherinn
í kvöld kl. 20.30 almenn sam-
koma. Jórunn Erla Stefánsdóttir
talar. Föstudagskvöld kl. 20.00
bæn, lofgjörð og bænanótt (i
kjallarastofunni).
Allir velkomnir.
Skipholti 50b 2. hæð
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir velkomnir.
AGLOW -
kristileg samtök kvenna
Fundur verður í Menningarmið-
stöðinni í Gerðubergi mánu-
dagskvöldið 28. ágúst nk. kl.
20.00-22.00. Gestur fundarins
verður Ester Jakobsdóttir frá
Akureyri. Fundur hefst með
kaffiveitingum, sem kosta 250,-
krónur. Allar konur velkomnar.
Samkoma í kvöld
í Seltjarnarneskirkju
kl. 20.30.
Séra Sólveig Lára Guðmunds-
dóttir predikar. Þorvaldur Hall-
dórsson stjórnar söng.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almennur biblíulestur í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
[y^j útivist
Helgarferðir 25.-27. ágúst
Þórsmörk - Goðaland. Góð
gisting í Útivistarskálunum Bás-
um. Gönguferðir við allra hæfi.
Fararstj. Egill Pétursson.
Básar - Fimmvörðuháls -
Skógar. Gist í Básum. Gengið á
laugardeginum yfk hálsinn. Far-
ið í Seljavallalaug. Fararstj.
Hákon J. Hákonarson. Uppl. og
farm. á skrifst., Grófinni 1,
simar: 14606 og 23732.
Ársrit Útivistar nr. 15 (1989) er
komið út. Félagsmenn, vinsam-
legast greiðið heimsenda gíró-
seðla fyrir árgjaldinu.
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
i kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum, Hvefisgötu 42.
Fjölbreyttur söngur. Vitnisburð-
ir. Samhjálparkórinn tekur lagið.
Ræðumaður er Þórir Haralds-
son. Allir velkomnir.
Samhjálp.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Frá Ferðafélaginu:
25.-30. ágúst: Landmanna-
laugar - Þórsmörk (6 dagar).
Gengið á fjórum dögum frá
Landmannalaugum til Þórs-
merkur. Gist i sæluhúsum F.í.
Fararstjóri: Jóhannes I. Jónsson.
1.-3. sept. Óvissuferð.
Spennandi ferð. Gist í svefn-
pokaplássi. Upplýsingar og far-
miöasala á skrifstofu F.I.
Ferðafélag (slands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 0019533.
Helgarferðir Ferðafélags-
ins 25.-27. ágúst:
Helgarferðin til Þórsmerkur
verður frá laugardegi 26. ágúst
til sunnudag 27. ágúst. Brottför
kl. 8.00 laugardag.
Ath. breyttan brottfarartíma.
Landmannalaugar. Gist í sælu-
húsi F.í. í Laugum.
Ekið frá Laugum um Jökuldali i
Eldgjá - gengið að Ófærufossi
(dagsferð). Farnar gönguferðir
um nágrenni Lauga.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 00 19533.
Dagsferðir Ferðafélags-
ins-sunnudag27.
ágúst:
Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð.
Verð kr. 2.000,-
Það er alltaf rétti tíminn til þess
að dvelja í Þórsmörk hjó Ferða-
félagi íslands.
Kl. 10.00 Rauðsgil - Burfell f
Reykholtsdal.
Þetta er öku- og gönguferð.
Gengið upp með Rauðsgili sem
er afar fögur náttúrusmíð. Verð
kr. 1.500,-
Ki. 13.00 Eyrarfjall.
Eyrarfjall er við sunnanverðan
Hvalfjörð og verður gengið á fjal-
lið að austan. Verð kr. 800,-
Brottför frá Umferðarmlðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Fritt fyrir. börn að 15 ára
aldri. Ferðafélag islands.