Morgunblaðið - 24.08.1989, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989
fclk í
fréttum
mjmM
■ ■
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þórdís Gísladóttir með dóttur sína við hástökksrána.
HÁSTÖKK
Þórdís byrjuð að æfa aftur
Eg er ákveðin í að halda áfram
að keppa. Maður bytjar rólega
til að finna sig aftur í þessu,“ sagði
Þórdís Gísladóttir íslandsmethafi í
hástökki kvenna og afrekskona í
öðrum greinum ftjálsíþrótta. Þórdís
tók sér hvíld frá ströngum æfingum
og keppni á meðan hún gekk með
dóttur sína sem fæddist 14. júlí
síðastliðinn.
Þórdís býr á Laugarvatni ásamt
manni sínum Þráni Hafsteinssyni.
Hún er þegar byijuð að æfa en
tekur það rólega í byijun. Hún sagði
áhugann hafa blossað upp þegar
hún fylgdist með bikarkeppni FRÍ
á dögunum og engu munaði að hún
tæki þar þátt.
Litla dóttirin, sem enn er óskírð,
fékk að fara með á völlinn fyrir
stuttu í blíðskaparveðri á Laugar-
vatni. Þá var hástökksráin sett í
1,88 m sem er íslandsmet Þórdís-
ar. Sú litla hefur þegar fengið
íþróttabúning sem er rækilega
merktur Héraðssambandinu Skarp-
héðni sem móðir hennar keppir fyr-
ir. Sjálfsagt á hún eftir að trítla
með móður sinni á æfingar þegar
fram líða stundir.
—Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Einar. Falur
Á myndinni eru talið frá vinstri Anna Lísa, séra Vigfus Þór, Jón
Thor og Áslaug.
SUM ARFERMIN G
Komu frá Kaliforníu
í Dómkirkjuna
Tvær íslenskar stúlkur búsettar í Kalifomíu voru fermdar í Dóm-
kirkjunni á sunnudaginn var. Stúlkurnar heita Anna Lísa Jóns-
dóttir sem er 14 ára og Aslaug Óskarsdóttir, 15 ára. Prestur var séra
Vigfús Þór Ámason, sóknarprestur á Siglufirði. Hann var við fram-
haldsnám í Berkeley háskóla síðasta vetur og hjá honum fengu stúlk-
umar fermingarfræðsluna. Við þessa athöfn var einnig skírður lítill
bróðir Áslaugar, Jón Thor Jónsson. Um 200 manns komu í kirkjuna og
á eftir voru haldnar fermingarveislur. Stúlkumar hafa báðar búið í
Bandaríkjunum í nokkur ár, Áslaug býr í E1 Cerrito sem er við San
Francisco flóann og Anna Lísa býr í bænum Heyward, sem einnig er
í nágrenni San Francisco.
AFLAKLÓ
Sjöhundruð rauðmagar á einum mánuði
AFMÆLI
Beatrice
eins árs
Beatrice litla, dóttir Andrés-
ar Bretaprins og Söru eig-
inkonu hans, varð eins árs göm-
ul, áttunda ágúst. Þótt hún sé
ung að ámm á hún stóran aðdá-
endahóp í Bretlandi og veifaði
tignarlega til mannfjöldans sem
óskaði henni til hamingju með
afmælið.
Við íslendingar eigum marga
góða sjómenn sem stundað
hafa sjóinn í áratugi og em sumir
hveijir enn að. Svo em þeir sem
ekki hafa sjómennskuna að aðal-
starfí og það em útvegsbændumir.
Þeir rém áður fyrr til fískjar til að
draga björg í bú og höfðu búskap-
inn í hjáverkum þegar vel gaf til
hafs. Margir em ennþá við þessa
iðju og einn þeirra er Aðalbjöm
Guðmundsson sem er ættaður frá
Vatnsdal í Súgandafírði.
Aðalbjöm ólst upp á Gelti þar
sem foreldrar hans vom með bú-
skap. Bjössi, eins og hann er kallað-
ur, fór fljótt að róa til fískjar með
föður sínum og hefur hann verið
meira og minna við það síðan.
„Já, ég hafði 700 rauðmaga og
á fjórða hundrað glásleppur,“ sagði
Aðalbjöm þegar hann var spurður
um veiðina á vertíðinni. „Þetta var
mjög stuttur tími eða rétt mánuð-
ur. Eg man ekki eftir svona skarpri
veiði, það hafa alltaf komið skorpur
í veiðina yfír vorið, en núna var
alltaf jafnmikið í netunum. Ég vildi
ekki vera lengur að þessu, vegna
þess að hann var farinn að verða
dálítið grannur."
„Ég hef eiginlega stundað rauð-
magaveiði alla mína ævi. Ég var
ekki nema lítill patti þegar ég fór
að hjálpa til þegar farið var frá
býlinu til veiða. Svo fór ég að stunda
þetta fyrir alvöru eftir að hrogna-
salan byijaði.“
- Hvað gerir þú við rauðmagann
sem þú veiðir?
„Ég læt taðreykja allan minn
rauðmaga. Hann er saltaður fyrir
reykingu og þá læt ég hann liggja
í þurra salti í 8-10 tíma, það má
ekki vera miklu meira því hann er
Glaður í bragði heldur Bjössi
heim frá höfhinni með soðmatinn
sem trillukarlarnir gáfu honum.
fljótur að drekka í sig saltið. Ég
hef selt þó nokkuð og fólk lætur
bara vel af honum.“
- R. Schmidt
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Bjössi á árabáti sínum sem hann kallar Leó.