Morgunblaðið - 24.08.1989, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989
Þessir hringdu .. .
Óvirðing við sr. Bjarna
Sigurður Runólfsson hringdi:
„Eg fer oft niður í miðbæ
Reylq'avíkur og það er eitt, sem
ég er leiður yfír. Það er, að rusla-
tunnur skuli vera hafðar fyrir aft-
an höggmyndina af sr. Bjama
Jónssyni við Dómkirkjuna. Mér
fínnst þetta ósmekklegt og mælist
til þess að þær verði fjarlægðar."
Landbúnaðarmálin
Þorvaldur hringdi:
„Ég vil lýsa yfír stuðningi við
það, sem Jón Baldvin sagði um
landbúnaðarmálin. Mér finnst eins
og bændur séu orðin sérréttinda-
stétt, ef nýr búvörusamningur
verður samþykktur. Gaman væri
að heyra frá öðrum stjórnmála-
mönnum um þetta mál. Hvað
ætlar t.d. Sjálfstæðisflokkurinn
að gera í þessu?“
Hjól og regnbuxur
Lítið, rautt gírahjól af krakka-
stærð fannst í Arbænum um
verzlunarmannhelgina. Eigandi
getur haft samband við Kristínu
í síma 673848.
Regnbuxur merktar Selmu töp-
uðust á útihátíðinni í Húnaveri.
Finnandi er beðinn um að hafa
samband við Kristínu í sama síma.
Græn taska
Föstudaginn 11. ágúst tapaðist
græn taska með krakkafötum
annað hvort í Grafarvogi eða
Kringlunni. Finnandi er beðinn
um að hringja í síma 675816 eft-
ir kl. 19.
Veski
Brúnt seðlaveski týndist 11.
ágúst. Finnandi hringi í Önnu
Eddu í síma 45346.
Annað brúnt seðlaveski tapað-
ist nýlega i Laugaráshverfi eða í
Grafarvogi. Finnandi hafí sam-
band í síma 675058 eða 985-
28696.
Slæra framkoma við
fatlaða
Móðir hringdi:
„Ég er móðir fatlaðs barns og
vil vekja athygli á því skelfílega
máli, hversu slæmt fordæmi full-
orðið fólk sýnir í umgengni við
fatlaða. Sem dæmi nefni ég, að á
biðstofu lækna, þá er horft á bam-
ið eins og það sé tvíhöfða lamb
eða hvaðeina sem fólki dettur í
hug í það og það skiptið. Annað
dæmið er, ef bamið er úti á hjóli,
þá hægir fólk á bflum sínum og
gangandi stoppa til að virða fyrir
sér „þetta fyrirbæri".
Fólk almennt gerir sér ekki
grein fyrir því, að heil sál sé gjam-
an í fötluðum líkama og ég efast
stórlega um að heilbrigðt fólk vilji
láta góna svona á sig.“
Gleraugfu
Gleraugu töpuðust í Norður-
mýrinni fyrir um það bil mánuði.
Finnandi hafi samband við Má í
síma 24193.
Hvimleitt agaleysi hjá SVK
Til Velvakanda.
Vegna reynslu minnar af strætis-
vagnabílstjórum undanfarin ár lét
ég loks verða af því að skrifa í fjöl-
miðil, í þeirri von að bætur verði
gerðar á aga hjá bílstjórum SVK og
SVR, og þá sérstaklega SVK.
Aldurs vegna hef ég þurft að
nota strætisvagna til að komast leið-
ar minnar, meðal annars í og úr
vinnu sem ég hef stundað með skóla.
Og það er ekki gaman að mæta of
seint í vinnu, eða koma kl. eitt heim
þegar maður er búinn að vinna
klukkan hálftólf, vegna agaleysis og
mistaka hjá vagnstjómm og yfir-
manni þeirra.
Svo fólk viti hvað ég er að tala
um em hér nokkur óhöpp sem ég
vitna í hjá SVK:
1. Farið af stað 10 mín. of seint
og strætisvagnastjórinn keyrir mann
upp á Borgarspítala og það er úr
áætlun.
2. A.m.k. fjómm sinnum farið 3
mín. á undan áætlun hjá biðstöð, svo
ég hef þurft að hlaupa innanbæjar-
leiðina.
3. Nýliði fór út af áætlunarleið á
malarplan „til að skoða bifreið,"
sagði vagnstjórinn, og þar rak hann
framenda vagnsins niður harkalega
þrisvar.
4. Nýliði gleymdi að stöðva þrisv-
ar í sömu ferð þó að merki væri
gefið um að stöðva.
5. Nýliði fór af stað 6 mín. eftir
áætlun, keyrði eins og bijálæðingur
(ég er nú ýmsu vanur), stöðvaði á
miðri leið, talaði í 5 mín. og hélt svo
áfram eins og vitlaus maður.
6. Svo að lokum hef ég a.m.k.
þrisvar lent í að farin er önnur en
áætluð leið vegna gatnagerðarfram-
kvæmda án þess að skilja eftir skila-
boð þess efnis og þar af leiðandi hef
ég misst af vagninum.
Hjá SVR man ég hins vegar að-
eins eftir einu alvarlegu atviki. Þar
var sleppt úr hluta af áætlaðri leið
án nokkurs tilefnis og þegar ég tal-
aði við SVR gegnum síma játaði
maðurinn að hafa sleppt þessum
hluta en yfirmenn hans gátu ekkert
gert þar sem vagnstjórinn ræður
sinni ferð að sögn SVR.
Og geta nú ekki vagnstjórar og
yfirmenn þeirra (ef nokkrir eru) sest
niður og bætt úr þessu svo að ég
þurfí ekki að vera lengur en þennan
klukkutíma sem vanalega tekur mig
að komast heim í strætó.
Sæmundur Stefánsson
a7
Sovéskir dagar 1989:
Tðnleikar í Þjódleikhúsinu
Lokatónleikar listafólksins frá Moldavíu, Kammerhljómsveitar
moldaviska útvarpsins undir stjórn A. Samúile og óperu-
söngvaranna Maríu Bieshú, sópran, og Mikhaíls Múntjans,
tenor, verða í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 27. ágúst og
hefjast kl. 16 - kl. fjögur síðdegis. Á efnisskránni eru hljóm-
sveitarverk, óperuaríur, einsöngslög og þjóðleg tónlist.
Miðasala í Þjóðleikhúsinu laugardag kl. 13-17 og sunnudag
kl. 13-16.
MIR.
Karlmannaföt
kr. 5.500,- til 9.990,-
Terylenebuxur kr. 1.395,- til 2.195,-
Gallabuxur kr. 1.195,- og 1.420,-
Flauelsbuxur kr. 1.220,- og 1.900,-
Sumarblússur kr. 2.390,- og 2.770,-
Skyrtur, nærföt, sokkar o.fl. ódýrt. '
Andrés,
Skólavörðustíg 22, sími .18250.
Hraölcstrarnámskeid
Námskeið í hraðlestri hefst 30. ágúst nk.
Þú lærir áhrifaríkar aðferðir í hraðlestri á námskeið-
um Hraðlestrarskólans!
Á níu ára starfstíma skólans hafa nemendur að
jafnaði þrefaldað lestrarhraða sinn í öllu lesefni.
Viljir þú bætast í hóp ánægðra nemenda skólans,
skaltu skrá þig sem fyrst á námskeið.
Skráning í síma 641091.
Hraðlestrarskólinn
ÞÆR ERD KOMN&R AFTUR!
TVILUM VEGGSAMSTÆÐURNAR
Á GÓÐA VERÐINU í beiki eða mahogny.
Stærð: Breidd: 240 cm.
Hæð: 176 cm.
Dýpt: 41 cm.
HúsgagnaAöllin
REYKJAVÍK