Morgunblaðið - 24.08.1989, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 24.08.1989, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989 KNATTSPYRNA / LANDSLEIKUR .. .Úti er ævintýri Ítalíudraumur íslendinga á enda eftirtapfyrir Austurríkismönnum í Salzburg ÍSLENDINGAR geta líklega gleymt öllum vonum um sæti í loka- keppni heimsmeistarakeppninnar á Ítalíu á næsta ári. T ap fyrir Austurríkismönnum í gærkvöldi, 1:2, gerir vonir þeirra nánast að engu og líklega þyrfti kraftaverk til að koma íslendingum til Ítalíu. En þrátt fyrir tap þurfa íslensku leikmennirnir ekki að skammast sín, þeir léku vel og hefðu með smá heppni getað náð í annað ef ekki bæði stigin. Islendingar voru kannski minna með boltann en þeir fengu ágæt færi og áttu ágæta möguleika á að ná að minnsta kosti jafntefli. Austurríkismenn byrjuðu reyndar betur og réðu ferðinni lengst af en geta þó þakkað fyrir bæði stigin úr þessum leik og samtals þrjú stig úr tveimur leikjum sem hlýtur að teljast mjög ósanngjamt. íslendingar byrjuðu frekar illa og á fyrstu mínútunum fengu Aust- urríkismenn nokkur ágæt færi, tvö þeirra eftir misskilning í íslensku vöminni. Ragnar Margeirsson fékk góð færi hinum megin, skaut fram- hjá í fyrra skiptið en í því síðara náði markvörðurinn að slá boltann yfír. Sigurður Grétarsson fékk þó líklega besta færi íslenska liðsins í fyrri hálfleik. Bjarni Sigurðsson átti langt útspark og Guðmundur Torfason lagði boltann glæsilega fyrir Sigurð. Lindenberger í aust- urríska markinu varði hins vegar glæsilega skot Sigurðar. Tvö mörk á mínútu Austurríkismenn náðu forystunni á 48. mínútu er Pfeifenberger skor- aði með þrumuskoti. Hann fékk boltann út í vítateig, skaut föstu skoti að marki, í Agúst Má Jónsson og þaðan í netið. Austurríkismenn vom ekki hætt- ir að fagna þegar íslendingar jöfn- uðu með glæsilegu marki. Ragnar Margeirsson fékk boltann út í vítá- teig, frá Ólafi Þórðarsyni, gaf sér góðan tíma og lagði hann svo í blá- homið. Glæsilegt mark sem þagg- aði niður í austurrísku áhorfendun- um. Ragnar var reyndar nálægt því að skora aftur skömmu síðar er gott skot hans fór framhjá aust- urríska markinu. Á 63. mínútu kom svo reiðarslag- ið. Manfred Zsak fékk boltann óvaldaður utan við vítateig. Hann átti gott skot að marki en Bjami Texti: Logi B. Eiðsson Myndir: Bjarni Eiríksson Sigurðsson virtist hafa boltann. Hann náði þó ekki að halda honum og boltinn datt inn í netið. Austurríkismenn léku af skyn- semi það sem eftir var og héldu boltanum lengst af. Sigurður Jóns- son fékk einu færi íslenska liðsins en tvö góð skot hans fóm framhjá austurríska markinu. Austurríkis- menn fögnuðu því sigri og mikil- vægu spori í átt til Ítalíu. Mikil harka Leikurinn var mjög harður og greinilegt að bæði lið börðust af krafti. Austurríkismenn bmtu oft illa á íslensku sóknarmönnunum, einkum á Sigurði Grétarssyni, og komust upp með það. Þessi brot drógu máttinn úr sóknarleik íslend- inga og dómarinn hefði mátt gefa fleiri spjöld til að koma í veg fyrir slíkan leik. íslenska liðið lék vel og það var sorglegt að það skyldi tvisvar missa niður jafntefli. Guðni Bergsson, Sigurður Jónsson og Ragnar Mar- geirsson áttu góðan leik og Sigurð- ur Grétarsson. hélt austurrísku varnarmönnunum við efnið, hélt boltanum vel og skapaði hættu. í heild má segja að íslendingar hafi staðið sig mjög vel en augna- blik án einbeitingar kostuðu dýr- mæt stig og gerðu líklega vonir um sæti í lokakeppninni að engu. Pétur Arnþórsson fylgir hér vel eftir í leiknum. Hann varð fyrir því óláni að einn Austurríkismaðurinn sleit af honum hálfsfesti, og varð Pétur að skilja hana eftir utan vallar. Sigurður og Ólafur í leik- banni gegn A-Þjóðverjum Islendingar urðu fyrir miklu áfalli í gær. Það var ekki aðeins að liðið tapaði einum mikilvægasta leik sínum, gegn Austurríkismönnum, heldur missti það einnig tvo leikmenn fyrir næsta leik gegn Austur-Þjóðveijum. Sigurður Jónsson og Ólafur Þórðarson fengu nefnilega báðir gult spjald og verða því ekki með. „Það má segja að þetta komið á góðum tíma. Við hjónin.eigum von á barni um svipað leyti og leikurinn er gegn Austur-Þjóðvetjum og ég hefði líklega ekki gefið kost á mér í þann leik,“ sagði Sigurður Jónsson, sem fékk gult spjald strax á sjöttu mínútu. „Mér finnst það heldur lítið að leikmenn megi aðeins fá tvö spjöld í heimsmeistarakeppninni. Þetta eru harðir leikir og mikil barátta. En því miður er ekkert við þessu að gera,“ sagði Ólafur Þórðarson. Austurríki—ísland 2 : 1 Lehen-leikvangurinn í Salzburg, undan- keppni heimsmeistarakeppninnar í knattspymu, miðvikudaginn 23. ágúst 1989. Mörk Austurríkis: Pfeifenberger (48.), Zak (63.) Mark íslands: Ragnar Margeirsson (49.) Gul spjöld: Sigurður Jónsson (6.), Rod- ax (20.), Ólafur Þórðarson (78.) og Pfei- fenberger (84.) Dómari: Peter Mikkelsen frá Danmörku án efa velkominn til Austurríkis í framt- íðinni. Línuverðir: Dangárd og Nielsen frá Danmörku. Áhorfendur: 17.000. Lið Austurríkis: Klaus Lindenberger, Kurt Russ, Robert Peci (Michael Steiter 31.), Anton Pfeffer, Heribert Veber, Manfred Zsak, Gerhar Pfeifenberger, Andreas Herzo^ (Alfred Hörtnagl 59.), Andreas Ogris. Lið íslands: Bjami Sigurðsson, Guðni Bergsson, Ágúst Már Jónsson, Gunnar Gíslason, Sævar Jónsson, Ólafur Þórðar- son, Pétur Araþórsson (Rúnar Kristins- son 70.), Si^urður Jónsson, Ragnar Margeirsson (Ómar Torfason 80.), Guð- mundur Torfason, Sigurður Grétarsson. H GUÐNI Bergsson, vamar- maður Islendinga, sýndi mjög skemmtileg tilþrif er hann „skutl- aði“ sér á eftir Gerhard Rodax sem komst fram hjá honum. Guðni náði hvorki leikmanninum né boltanum og dómarinn lét leikinn halda áfram. „Ég var nú bara nokkuð ánægður með „skutlið," sagði Guðni, eftir leikinn, og hló. „Boltinn stoppaði í grasinu og því misreikn- aði ég hann. Það var því ekki um annað að ræða en að kasta sér á eftir Rodax og reyna að stöðva hann. Það varð ekkert úr þessu færi og ég má þakka fyrir að ég náði honum ekki, annars hefði ég líklega fengið rautt spjald," sagði Guðni Bergsson. H ÞEGAR fyrri hálfleikur var hálfnaður kastaði einn áhorfandinn flugeldi inn á vollinn. Hann logaði þar í smá stund en dómarinn stöðv- aði ekki leikinn. Austurríkismenn geta þakkað fyrir að ekki fór verr en mega búast við áminningum frá Alþjóða knattspyrnusamband- inu, FIFA. H RÚMLEGA tvö hundruð stuðningsmenn Islendinga komu gagngert að heiman til að sjá leik- inn. Við ^ þann hóp bættust svo margir íslendingar sem verið höfðu á flakki um Evrópu og komu við í Salzburg til að fylgjast með leiknum. Þessi áhorfendur voru kannski ekki margir en það var tekið eftir þeim. Það hefði þurft þjálfað eyra til að reikna út að öll þessi hróp kæmu frá aðeins um 250 Islendingum. Opna Olís -BP golfmótið fer fram í Grafarholti, helgina 26. og 27. ágúst Leiknar verða 36 holur. Keppt verð- ur í karla- og kvennaflokki án for- gjafar og einum forgjafarflokki karla og kvenna. Keppni hefst kl. 8 báða dagana. Þátttökugjald er kr. 2.500,- Karlaflokkur 1. sæti: 25.000 kr.; 2. sæti: 15.000 kr.; 3. sæti: 10.000 kr. Kvennaflokkur Keppendur fá í verðlaun vöruútekt í OLÍS-búðunum. 1. sæti: 15.000 kr. verðmæti; 2. sæti: 10.000 kr. verð- mæti; 3. sæti: 5.000 kr. verðmæti. Forgjafarflokkur Keppendur fá í verðlaun vöruútekt í OLIS-búðunum. 1. sæti: 15.000 kr. verðmæti; 2. sæti: 10.000 kr. verð- mæti; 3. sæti: 5.000 kr. verðmæti. Allir keppendur fá glæsilegan gjafapakka og sá keppandi sem kemst næst því að slá holu í tveim höggum á 14. braut fær í verðlaun gasgrill af fullkomnustu gerð. á holu i tveim H VERIÐ UPPSELT - SKRÁIÐ YKKUR TÍMANLEGA í G0LFSKÁLANUM GRAFARHOLTI í SÍMA 8 2815.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.