Morgunblaðið - 24.08.1989, Side 40
BYSSUR OG SKOTFÆRI
Heildsöludreifing:
I.Guðmundsson,sími:24020
SAGA CLASS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan __
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Útflutningur á eldislaxi
nær þrefeldast milli ára
Verðhækkun í Evrópu og Bandaríkjunum
Útflutningsverðmæti í fiskeldi er áætlað rösklega tvöfalt meira á
þessu ári en í fyrra eða 750-800 milljónir króna samanborið við um
300 milljónir í fyrra. Framleiðsluverðmæti fiskeldisfyrirtækja Ijórfald-
ast frá því í fyrra og er áætlað kringum 4 milljarðar á árinu. I ár er
reiknað með framleiðslu á 3.500 tonnum af laxi samkvæmt áætlun
Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva.
Búvöruverð
hækkar um
mánaðamót
VERÐ á búvörum hækkar í byijun
næsta mánaðar, en ekki liggur enn
fyrir hversu mikil hækkunin verð-
ur. Nýtt verð á mjólkurafúrðum
tekur væntanlega gildi 1. septem-
ber, en nýtt verð á sauðfjárafúrðum
ekki fyrir fyrr en um 10. september.
Að sögn Guðmundar Sigþórssonar
ritara sexmannanefndar koma
magntölur og einingaverð búvara nú
til endurskoðunar, auk þeirra verð-
lagsbreytinga sem orðið hafa frá
síðustu hækkun búvöruverðs. Þannig
sé því ekki um venjubundinn árs-
ijórðungslegan framreikning að
ræða, heldur raunverulega nýja
samninga.
Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri:
Vextir lækki
1. september
JÓHANNES Nordal, seðlabanka-
stjóri, segir þann mun, sem nú er
á verðbólgu og vöxtum óverð-
tryggða útlána vera of mikinn.
Gerir hann ráð fyrir að bankarnir
muni lækka vexti sína verulega
þánn 1. september næstkomandi.
Jóhannes sagðist telja að þessi
munur myndi minnka á næstunni og
hefðu bankarnir verið að lækka vexti
jafnt og þétt. Þar sem lánskjaravísit-
ala hefði ekki legið fyrir fyrr en 21.
ágúst mætti búast við breytingum á
grundvelli hennar 1. séptember. „Við
teljum að þessi munur sé of mikill
núna. Það er greinilegt að verðbólgan
er komin niður og mun haldast á því
stigi næstu mánuði. Það er því
ástæða til að lækka nafnvexti veru-
lega 1. september og reiknum við
með að það gerist. Við teljum enga
ástæða til að ætla annað en að veru-
leg lækkun verði hjá bönkunum 1.
september."
Þegar Jóhannes var spurður álits
á því hvað hann teldi vera eðlilega
lækkun vaxta við þessi skilyrði sagði
hann vexti á verðtryggðum lánum
nú vera í kringum 7-8% og mætti
telja eðlilegt að ávöxtunin á víxillán-
um væri á svipuðu stigi.
Framleiðsluaukning á laxi er fyrst
og fremst hjá strandeldisstöðvunum
og má þar nefna að hjá íslandslaxi
eykst framleiðslan úr 236 tonnum í
450 tonn. Hjá Lindalaxi var slátrað
laxi í fyrsta sinn síðastliðinn mánu-
dag og er gert ráð fyrir að framleiða
þar 150-200 tonn af laxi í ár en
auka hana í 1.000 tonn á næsta ári.
Þá mun ísþór í Þorlákshöfn hefja
slátrun á þessu ári og er reiknað
með að framleiðslan verði innan við
100 tonn á árinu og nokkur hundruð
tonn á næsta ári. Hjá þeim strandeld-
isstöðvum sem þegar eru í rekstri
er mikill áhugi fyrir að auka afköst
stöðvanna meðal annars með súrefn-
isábót.
Stórar kvíaeldisstöðvar hafa einn-
ig verið að auka við sig, fyrst og
fremst ísno sem bæði er í Lónum í
Kelduhverfi og Vestmannaeyjum svo
og íslenska fiskeldisfélagið á Sund-
unum við Reykjavík. T.d. er gert ráð
fyrir að framleiðsla ísno verði um
450 tonn á árinu.
Verð á laxi hefur hækkað í Evrópu
og Bandaríkjunum að undanfömu. I
Frakklandi er verð á hafbeitarlaxi
orðið svipað og í fyrra, að sögn Jóns
Sveinssonar framkvæmdastjóra Lá-
róss, en verð á laxi lækkaði verulega
um tíma vegna mikils framboðs frá
Noregi. Jón segist hafa fengið óstað-
fest tilboð frá Frakklandi um 335
króna skilaverð fyrir kílóið af tveggja
til þriggja kílóa hafbeitarlaxi.
Sjá viðskiptablað Bl.
Tilraunaveiðar
hafriar við Eldey:
Falleg og
stór rækja
TILRAUNAVEIÐAR á rækju við
Eldey hófúst á mánudag en fimm
bátar fengu fyrir skömmu leyfi til
að stunda þessar veiðar til 15.
september næstkomandi. Að sögn
skipverja á Sandvík GK er rækjan
við Eldey falleg og sæmilega stór.
Enginn kvóti er á rækjuveiðunum
við Eldey en árangur þeirra verður
metinn eftir 15. september, að sögn
Árna Kolbeinssonar ráðuneytisstjóra
í sjávarútvegsráðuneytinu. Leyfi til
veiðanna fengu Guðfinnur KE,
Hjördís GK, Ólafur GK og Fengsælí
GK, auk Sandvíkur GK.
• » *----
Þúsund bíl-
ar óseldir
UM ÞAÐ bil 1.000 bílar af árgerð
1989 og eldri eru enn óseldir hjá
bifreiðaumboðunum, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Þar
af mun nær þriðjungur vera hjá
éinu umboði. Minna en fimm þús-
und nýir bílar hafa verið seldir
það sem af er árinu. Bílar af ár-
gerð 1990 eru þegar komnir til
landsins og byrjað að selja þá hjá
sumum umboðum.
Óseldu bílarnir eru af árgerðum
1987 til 1989 og skiptast misjafnlega
eftir umboðum. Eitt umboðanna á
um 300 bíla óselda af öllum þessum
árgerðum, samkvæmt heimildum
blaðsins, annað um 150 bíla og tvö
um 100 bíla.
Mikill samdráttur hefur orðið í
sölu nýrra bíla á síðasta ári og þessu.
1987 seldust um 18 þúsund fólks-
bílar, í fyrra um 12 þúsund og það
sem af er þessu ári innan við fimm
þúsund bílar. Heimildarmenn Morg-
unblaðsins telja ólíklegt að mikið eigi
eftir að bætast við þá tölu, telja ekki
ósennilegt að innan við sex þúsund
bílar seljist á árinu öllu. Þessi trega
sala hefur aftur orðið til þess að lífga
viðskipti með notaða bíla og hækka
verð á þeim.
Morgunblaðið/Bjarni
Tap þrátt fyrirgóða firammistöðu
Islenska landsliðið í knattsyrnu stóð sig vel í landsleiknum gegn
Austurríki þrátt fyrir 1-2 tap, enda var það ákaft hvatt áfram
af íslenskum knattspyrnuáhugamönnum, sem fylgdu liðinu til
Austurríkis. Sjá nánar bls. 38 og 39.
Grunnskólar í Reykjavík settir 6. september:
Árlega flölgar nemend-
um grunnskóla um 250
ÁRLEG meðalflölgun grunnskólanemenda í Reykjavík, hefur numið
250 börnum á síðustu fimm árum. Á þessum tíma hafa sex ára börnin
eða nýnemarnir verið mun fjölmennari heldur en árgangarnir, sem
eru að ljúka grunnskólanámi. Auk þess fjölgar grunnskólanemendum
í Reykjavík vegna fólksflutninga frá landsbyggðinni til höfúðborgarinn-
ar, að sögn Ragnars Georgssonar,
Grunnskólamir í Reykjavík verða
settir miðvikudaginn 6. september,
en skólarnir hefja starf föstudaginn
1. september með því að kennarar
mæta til starfa eftir sumarleyfi. Þeir
munu heija skólastarfið með kenn-
arafundum og frekarí undirbúningur
fer fram mánudag og þriðjudag, 4.
og 5. september. Gera má ráð fyrir
að grunnskólar annars staðar á
landinu hefji störf á svipuðum tíma.
skólafulltrúa í Reykjavík.
Skólastjórum er þó í sjálfsvald sett
hvenær nákvæmlega þeir hefja
kennslustörf, en samkvæmt lögum
geta skólastjórnendur ráðstafað átta
starfsdögum yfir árið.
„Við höfum ekki lengi séð svona
stóra árganga eins og nú eru að
koma inn í skólana og ef fram held-
ur sem horfir, á enn eftir að fjölga
í skólunum. Til dæmis eru 1.700
börn, fædd í fyrra, á manntali í
Reykjavík. Svo stóran árgang í íbúa-
skránni höfum við ekki séð síðan
árið 1966. Meðalárgangur forskóla-
barna í Reykjavík var kominn allt
niður í 1.300 börn fyrir sex til átta
árum. Síðan hefur þetta stigið upp
á við ár frá ári og í haust setjast
1.540 sex ára börn á skólabekk í
Reykjavík," sagði Ragnar.
Að meðaltali munu 22,9 nemendur
sitja í hverri bekkjardeild í grunn-
skólum Reykjavíkur í vetur og mun
það hlutfall hvergi annars staðar
vera eins hátt, að sögn Ragnars. í
fyrra mun þetta meðaltal hafa num-
ið 22,6.