Morgunblaðið - 03.09.1989, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 3. SBPTEMBER 1989
T r\ *persunnudagur3. september. 15. sd. eftirTrínit-
A UAu atis. 246. dagur ársins 1989. Árdegisflóð í
Reykjavík kl. 7.57 og síðdegisflóð kl. 20.09. Sólarupprás í
Reykjavík kl. 6.15 og sólariag kl. 20.37. Myrkur kl. 21.29.
Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.27 og tunglið er í suðri
kl. 15.40. (Almanak Háskóla íslands.)
Drottinn er konungur að eilífu, er Guð þinn, Síon frá
kyni til kyns. Halelúja. (Sálm. 146,10.)
ÁRNAÐ HEILLA____________
ára afmæli. Á morgun,
mánudaginn 4. sept-
ember, er 75 ára frú Ingi-
björg Jósepsdóttir, Álfa-
skeiði 45 í Hafiiarfirði. Eig-
inmaður hennar var Ragnar
Magnússon sjómaður. Hann
er látinn fyrir allmörgum
árum. Ingibjörg ætlar að taka
á móti gestum á heimili sínu
á afmælisdaginn.
frú Ester Sigmundsdóttir,
Fannarfelli 10 í Breiðholts-
hverfí. Hún starfar hjá Sjálfs-
björg í Hátúni 12. Eiginmaður
hennar er Jón Reynir Hilm-
arsson. Þau eru stödd erlend-
is um þessar mundir.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
36. VIÐSKIPTAVIKA
yfirstandandi árs hefst á
morgun, mánudag.
ÞENNAN dag árið 1919 var
í fyrsta skipti flogið hérlendis.
ALÞINGISHÚSIÐ. Fyrir
helgina var slegið upp vinnu-
pöllum meðfram framhlið Al-
þingishússins. Það mun vera
hugmyndin að nú verði lokið
við nauðsynlega endurnýjun
og viðhald glugganna. Enn
sem komið er er ekki sett
tvöfalt gler í þinghúsbygging-
una. Slíkt mun ekki samræm-
ast skoðunum húsfriðunar-
nefndar.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 50 ÁRUM
Byijað er að prenta
skömmtunarseðlana
vegna þeirrar matvæla-
skömmtunar sem fyrir-
huguð er vegna styijald-
arástandsins. Verður
þeim fyrst dreift hér í
Reykjavík en verða send-
ir út á land með fyrstu
póstum.
★
Matthías Þórðarson þjóð-
minjavörður er farinn
norður í land til að hafa
umsjón með viðgerð á
gamla bænum i Glaumbæ
í Skagafirði. Hann hefúr
Þjóðminjasafiiið fengið til
umráða og varðveislu.
Hefúr safiiið nú fengið
þijá gamla bæi nyrðra.
Allir voru þeir forðum
prestssetur. Auk Glaum-
bæjar eru hinir Grenjað-
arstaður og Laufás.
Leggur Matthías áherslu
á að þessum gömlu bæj-
arhúsum verði vel við
haldið.
★
Ríkisstjórnin hefiir
ákveðið að setja nokkrar
hömlur við sölu á bensíni.
Hefúr verið gefin út
bráðabirgðareglugerð
þetta varðandi. Heyrst
hafa raddir um að tak-
marka ætti bensínnotkun
með því að skammta þeim
bensín sem eigi hafa
brýna þörf á því vegna
bílaksturs. Mun þetta
verða athugað nánar.
INNANLANDS flugleiðir. í
nýlegu Lögbirtingablaði er
tilk. frá samgönguráðuneyt-
inu, sem tilkynnir að um
næstu áramót, 31. des., renni
út öll sérleyfi til áætlunar-
flugs með farþega, póst og
vörur á flugleiðunum hér inn-
anlands. Næst mun sam-
gönguráðherra veita leyfi til
áætlunarflugs tímabilið 1.
janúar 1990 til 31. desember
1994. Ráðuneytið setur um-
sóknarfrestinn til 1. október
næstkomandi. í þessari augl.
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 í uppnámi,
5 gráu hárin, 8 gerð tilraun
til, 9 birgðir, 11 leika illa, 14
spil, 15 skáru, 16 ritað plagg,
17 kveikur, 19 innyfli, 21 var
eigandi að, 22 umhyggju-
samt, 25 dugnað, 26 málmur,
27 svelgur.
LÓÐRÉTT: — 2 þannig, 3
hagnað, 4 beð, 5 slæm með-
ferð, 6 borðandi, 7 nóa, 9
hégómaskapur, 10 sjávardýr,
12 böggull, 13 mjög slæma,
18 illgresi, 20 rugga, 21
snemma, 23 einkennisstafir,
24 kind.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 askan, 5 báran, 8 rokan, 9 bætir, 11
raska, 14 puð, 15 rekka, 16 afræð, 17 rýr, 19 váld, 21
smán, 22 lónunum, 25 lóa, 26 ýra, 27 aum.
LÓÐRÉTT: — 2 snæ, 3 Ari, 4 norpar, 5 barðar, 6 ána,
7 auk, 9 búrhval, 10 túkalla, 12 stramma, 13 arðinum, 18
ýsur, 20 dó, 21 SU, 23 ný, 24 Na.
Texaco oröið hluthafi í Olís og málaferli úr sögunni:
Fylla, takk ...
er þess getið sem taka skal
fram í sjálfri umsókninni.
JC-Nes heldur fyrsta félags-
fund hins nýja starfsárs ann-
að kvöld, mánudag, á Lauga-
vegi 178 kl. 20.30. Gestur
fundarins verður Ólafúr
Tómasson póst- og síma-
málastjóri. Fundurinn er öll-
um opinn.
SÉRFRÆÐIN GAR. Heil-
brigðismálaráðuneytið tilk. í
Lögbirtingi að það hafi veitt
þessum læknum leyfi til að
starfa sem sérfræðingar hér-
lendis. Ingibjörg Georgs-
dóttir læknir hefur fengið
leyfi til að bæta við barna-
lækninorar. sem eru sérgrein
ERLENDIS:
1497: Manúel Spánarkonung-
ur kvænist Isabellu af Spáni.
1591: Kristján II af Saxlandi,
8 ára, tekur við völdum við
lát föður síns, Kristjáns I.
1603: Hinrik IV af Frakk-
landi leyfir jesúítum að koma
aftur til Frakklands þrátt fyr-
ir andstöðu.
1650: Orrustan við Dunbar
(sigur Englendinga á Skot-
um).
1651: Orrustan við Worcester
(sigur Cromwellsinna á kon-
ungssinnum).
1658: Oliver Cromwell, her-
maður og stjórnmálaleiðtogi,
látinn.
1759: Brottvísun kaþólskra
Jesúíta hefst í Portúgal.
1789: Parísar-sáttmáli Bret-
lands, Frakklands, Spánar og
Bandaríkjanna undirritaður
og frelsisstríði lýkur.
1873: Afganskir hermenn
myrða brezka sendiráðsmenn.
1913: Kínverskir byltingar-
menn undir forystuy Yuan-
Shih-Kai taka borgina Nan-
king.
1916: Fyrsta Zeppelin-loft-
skipið ferst á Englandi.
1923: Bandaríkin viðurkenna
stjórn Mexíkó.
1925: Bandaríska loftfarið
„Shenandoah“ brotnar í spón
hennar, svonefndrar nýbura-
lækningum sem undirgrein.
Georg A. Bjarnason læknir
sem er lyflæknir hefur hlotið
starfsleyfi með krabbameins-
lækningar sem undirgrein.
Þá hefur Hilmar Þór Hálf-
dánarson læknir hlotið leyfi
til að starfa sem sérfræðingur
í bæklunarskurðlækningum.
SAMTOK um sorg og sorg-
arviðbrögð hafa opið hús nk.
þriðjudagskvöld, 5. þ.m., í
safnaðarheimili Kársnessókn-
ar í Kastalagerði 7, Kópa-
vogi, kl. 20. A sama tíma eru
veittar uppl. og leiðbeiningar
í síma 46820.
REYKVÍSKA útvarpsfélag-
ið heitir hlutafélag sem stofn-
í Cardwell, Ohio.
1939: Bretar og Frakkar
segja Þjóðveijum stríð á
hendur.
1943: Innrás bandamanna í
Ítalíu hefst.
1945: Singapore fer aftur
undir stjórn Breta eftir
hernám Japana.
1962: Stjórnin í Katanga
samþykkir áætlun U-Thants
um sameiningu Kongó.
1965: Borgarastríð brýzt út í
Dóminikanska lýðveldinu.
1977: Zulfikar Ali Bhutto, fv.
forsætisráðherra Pakistans,
handtekinn fyrir samsæri um
að myrða pólitískan andstæð-
ing 1974.
HÉRLENDIS:
1537: Kirkjuskipun Kristjáns
III lögfest.
1582: Gísli biskup Jónsson
látinn.
1714: Jón Vídalín stefnir Oddi
Sigurðssyni.
1723: Sigurður Björnsson
lögmaður látinn,
1804: Bjarni frá Sjöundá
strýkur úr fangahúsinu í
Reykjavík.
1878: Fæddur Sigurður Guð-
mundsson skólameistari.
1919: Fyrst flogið á íslandi.
1968: Viðræður um lausn
efnahagsvanda.
að hefur verið hér í bænum,
samkv. hlutafélagatilk. í nýju
Lögbirtingablaði. Tilgangur
þess, segir í blaðinu, er út-
varpsrekstur (að sjálfsögðu).
Hlutafé félagsins er kr.
500.000 og stofnendur þess
einstaklingar. Stjórnarfor-
maður er Birgir H. Birgis-
son, Brekkubæ 31, og fram-
kvæmdastjóri félagsins er
Konráð Ölavsson, Njörva-
sundi 20.
FÉLAG eldri borgara.
Haust- og vetrarstarfið er
hafið á ný. í dag, sunnudag,
kl. 14 er opið hús í Goð-
heimum, Sigtúni 3. Verður
þá spilað og teflt. Dansað
verður kl. 20.
BAHÁI-samfélagið hefur
opið hús annað kvöld, mánu-
dag að Álfabakka 12 kl.
20.30.
JC-Reykjavík heldur fyrsta
fund sinn á haustinu nk.
þriðjudagskvöld, 5. sept., kl.
20 á Laugavegi 178. Gestur
fundarins verður Jóna Ingi-
björg Jónsdóttir kynfiæð-
ingur. Fundurinn er öllum
opinn.
SKIPIIM
RE YK J A VÍ KURHÖFN: í
gær fór Urriðafoss, eftir að
hafa legið bundinn við
bryggju í einar fjórar vikur.
Fór hann á ströndina og held-
ur þaðan beint út. Á morgun,
mánudag, er Grundarfoss
væntanlegur að utan og tog-
arinn Jón Baldvinsson er
væntanlegur inn til löndunar.
HAFNARFJARÐARHÖFN:
Ljósafoss, sem kom fyrir
helgina, fer í dág á ströndina.
Á morgun koma að utan Lag-
arfoss, sem fer að bryggju í
Straumsvík, og Mánafoss
sem fer að bryggju í Hafnar-
fírði. Þá er súrálsskip vænt-
anlegt á morgun til Álverk-
smiðjunnar.
ORÐABOKIN
Heiti fyrirtækja og
stofnana
Enginn mun vera í vafa um
það, að stór stafur sé í heiti
fyrirtækis, svo sem er venja
um sérnöfn. Hins vegar
virðist stundum einhver
óvissa ríkja, þegar í heitinu
eru fleiri en eitt nafn. Eng-
inn velkist í vafa um rithátt
eins og Árvakur hf. eða
Skorri hf. Eins á að vera
vandalaust að rita rétt nöfn,
þar sem í heitinu kemur
fram annar orðflokkur en
nafnorð. Má þar minna á
heiti eins og Svart á hvítu
og Byggt og búið. Ef í heit-
inu eru tvö nafnorð og hið
síðara svokallað samnafn,
skal samkv. reglum rita það
með litlum staf. Þannig á
að skrifa Ljós & orka, Blikk
& stál, Kjöt &■ álegg, Máln-
ing & járnvörur, íslenskur
markaður, svo dæmi séu
nefnd. Sé litið í Símaskrána
kemur víða ósamræmi í ljós.
Mjög oft eru tvínefnd fyrir-
tæki rituð með stórum stöf-
um í báðum nöfnum og svo
er um flest ofangreind fyrir-
tæki. Hins vegar má einnig
sjá önnur heiti, þar sem far-
ið er eftir gildandi reglum,
svo sem Glerslípun og
speglagerð, Áklæði og
gluggatjöld, Mál og menn-
ing o.fl. Sé seinna nafnið
hins vegar sérnafn skal að
sjálfsögðu rita það með
stórum staf. Þar má taka
heiti eins og Örn og Örlygur
hf.
- JAJ.
ÞETTA GERÐIST
3. september