Morgunblaðið - 03.09.1989, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989
Teikning/Pétur Halldórsson
Leiðin til að sameina
Á mánudaginn hófst ráðstefna um málrækt í Kennaraháskóla
íslands. Þegar ráðsteftian átti að hefjast var orðið svo þröngt að
setja varð upp sjónvarpsskerma og hátalara í nærliggjandi stof-
um. Og ráðstefnan stóð í þrjá daga; þar geislaði áhugi og starfs-
gleði af hveiju andliti.
Eins og kunnugt er þurfa
vísindamenn oft að bora
lengi og oft í iður jarðar
eftir heitu eða köldu vatni. Og
loksins kemur árangurinn f ljós.
Eins er það með stjómmálamenn.
Þeir reyna oft að finna æðina og
það er iðulega tímafrekt og stund-
um dálítið vanþakklátt verkefni.
En svo finnst æðin. Og þá streym-
ir áhuginn fram. Og fátt er stór-
kostlegra en verða vitni að því
að hreyfing verður til. Þá minna
stjornmálin á listsköpun: Að
skapa hreyfingu sem skilar já-
kvæðum árangri. Þá gefa stjórn-
málin líf, neista sem endist til
þess að takast á við öll hin verk-
efnin sem eru misjafnlega
skemmtileg eins og gengur.
Átak sem sameinar
Og þannig er það einmitt með
málræktarátakið. Þar er hreyfing
sem sameinar fólk hvar sem það
er á landinu í öllum stjórnmála-
flokkum á öllum aldri. Sérstak-
lega er mikilvægt einmitt að
áhuginn nær þvert á kynslóðimar
eins og sást á ráðstefnunni í
Kennaraháskólanum í síðustu
viku. Og þar vora saman komnir
uppalendur, kennarar af öllum
stigum: Leikskólastigi, grann-
skólastigi, framhaldsskólastigi,
háskólastigi og hygg ég að aldrei
áður hafi öll skólastigin hist með
þessum hætti til þess að ræða um
eina grein, að vísu undirstöðu-
greinina, í skólastarfinu.
Ég hef reyndar heyrt að einn
maður hafi í fjölmiðli látið í ljós
efasemdir að rétt sé að efna til
málræktarátaks. Þjóðin tali alveg
nógu gott mál. Og þjóðin talar
gott mál, en samt þarf að efna
til málræktarátaks. Það sýnir
áhuginn sem alls staðar hefur
birst.
Margfvísleg verkefiii
Minna má á að í menningaríkj-
um Vestur-Evrópu setja slíkir fjöl-
miðlar sér ævinlega markmið og
meginviðfangsefni í
þessu sambandi.
Sums staðar er
beinlínis kveðið á
um það í reglugerð-
um að innlent efni
verði að vera tiltekið
hlutfall af fluttu
tónlistarefni. Von-
andi þarf ekki að
setja reglugerðir um
slíkt hér á landi.
Vonandi verður
unnt í framhaldi af
þeirri umræðu sem
nú stendur yfir um
íslenskt mál og
menningu að merkja
breytingar á ljós-
vakamiðlum í þess-
um efnum. Ég er
þeirrar skoðunar að
hér sé um að ræða
einn áhrifamesta þátt samfélags-
ins um þróun máls og menningar;
hvergi era unglingarnir eins áber-
andi meirihluti. Menningaram-
ræða sem er svo „háfleyg" að
ekki má ræða um þennan þátt
mála, hún snertir ekki lengur að-
alatriðið: Unga fólki og uppeldi
þess og aftur viðhorf þess til barn-
anna þegar þar að kemur. Dægur-
tónlist er einn fyrirferðarmesti
þáttur menningarneyslu á
landinu. Hana má ekki afgreiða
með hroka sem garg. Hún er sá
áhrifaþáttur hversdagslífsins sem
næst fjölmiðlunum og skólunum
og heimilunum ber að huga að
þegar fjallað er um þróun
íslenskrar menningar. Einnig þar
eiga menn því að setja sér mark-
mið og viðmiðanir.
Allar menningarstofiianir
setji sér ný
markmið
Ljósvakamiðlar
og raunar allar
menningarstofnanir
eiga að setja sér
markmið og þær
eiga að laga skipu-
lag sitt og st,arfsemi
að þessum mark-
miðum. Þær eiga
líka að huga að inni-
haldinu. Er stofnun-
in að gera gagn eða
ógagn? Hver stofn-
un eða fyrirtæki
þarf að eiga sjálf-
virkt innra athugun-
arkerfi þar sem mál-
in era endurmetin á
hverjum einasta
degi svo að segja.
Og skipulag þessara stofnana
þarf að verða þannig að niðurstöð-
ur endurmatsins eyðileggist ekki
af einhveijum ástæðum. Mennta-
málaráðuneytið og starfslið þess
fer nú einmitt yfir alla þætti starf-
semi sinnar og unnið er að endur-
skipulagningu ráðuneytisins.
Vonandi verður málræktarátakið
til þess að allar stofnanir íslenskr-
ar menningar endurmeti hlutverk
sitt, verkefni og innhald starfs
síns.
Þá lifir íslensk menning.
Dægurtónlist eru einn
fyrirferðarmesti þáttur
menningarneyslu á landinu. Hana má
ekki afgreiða með hroka sem garg.
HUGSAÐ
UPPHÁTT
/ dag skrifar Svavar
Gestsson,
mennlamálaráöherra
ogþingmaöur
Alþýöubandalagsins.
Skiparadíó meb sýningarbíl
SKIPARADIO hf. verður a ferðinni um landið með
sýningarbíl frá Danmörku, hlaðinn nýjustu siglinga-
og fiskileitartækjum frá FURUNO, SKAINITI og fl.
30.08.1989
31.08.1989f.h.
31.08.1989 e.h.
01.09.1989
02.09.1989
03.09.1989 e.h.
04.09.1989
05.09.1989
06.09.1989
07.09.1989
08.09.1989
09.09.1989
10.09.1989
11.09.1989
12.09.1989 f.h.
12.09.1989 e.h.
13.09.1989
14.09.1989
15.09.1989 f.h.
15.09.1989 e.h.
16.09.1989
17.09.1989 f.h.
17.09.1989 e.h.
18.09.1989 e.h.
GrandagarðuríRvk.
Þorlákshöfn
Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar
Grindavík
Sandgerði
Höfn, Hornafirði
Fáskrúðsfjörður
Eskifjörður
Neskaupstaður
Neskaupstaður
Seyðisfjörður
Húsavík
Dalvík
Ólafsfjörður
Siglufjörður
Akureyri
Skagaströnd
Hvammstangi
ísafjörður
ísafjörður
Bolungarvík
Grandagarður í Rvk.
HEFST Á MORGUN
1F AAO/ afsláttur af
OnÁV /O ellum verun